Skessuhorn - 06.09.2001, Side 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDl - 36. tbl. 4. árg. 6. september 2001 Kr. 250 í lausasölu
Tölvur
i oivuviðgerðir
Skrifstofuvörur
Símtæki
lyrnutorgi • 430 2200 - verslun@islensk.is
Það er heilnæmt vatnið í Stykkishólmslaug
Vottað vatn í
Stykldshólmi
Á dögunum fengu Stykkis-
hólmsbúar staðfestan grun sinn
um að vatnið þeirra væri heil-
næmt. Heilsuefling Stykkishólms
ehf. fékk þá vottun á heita vatn-
inu frá þýskri stofnun, Institut
Fresenius, sem sérhæfir sig í
vatns- og umhverfisvottun. I mati
þeirra kemur fram að heita vatnið
sé sérstaklega gagnlegt gagnvart
stoðkerfasjúkdómum en mæla
einnig með því til drykkar líkt og
tíðkast víða í Evrópu. Þar drekka
menn salt-og steinefnaríkt vatn
sér til heilsubótar.
Vatnið í Stykkishólmi hefur
einnig reynst mjög gott á psorias-
is-sár og exem og veitt mörgum
þeim sem þjást af hafa af þessum
sjúkdómum ágætan bata.
Vatnið í Stykkishólmi er á
margan hátt sérstakt, það er
basískt (pH 8,45) og inniheldur
allmikið af uppleystum efnum
sem eru einkum natríumklóríð og
kalsíumsölt. Vatnið er að efna-
innihaldi líkt því vatni sem frá
forsögulegum tímum hefur verið
notað til baða á baðstaðnum
Baden Baden í Þýskalandi.
Kalda vatnið, sem einnig var
sóst eftir vottun á, fékk frábæra
einkunn og er mælt með því til
útflutnings, sérstaklega til að
blanda við mjólk handa unga-
börnum. Kalda vatnið fékk hins
vegar ekki vottun vegna þess að
það er lindarvatn en kemur ekki
úr borholu.
snih
Komið af fjöllum...
Haustið er komið með öllu sem
því tilheyrir. Þótt sauðfé fari
stöðugt fækkandi eru göngur og
réttir enn einn af hápunktum
haustsins hjá mörgum og víða er
svo komið að fólk er orðið fleira
en féð í einstökum réttum. Fyrir
þá sem áhuga hafa á að fara í rétt-
ir í haust birtum við í blaðinu í dag
yfirlit yfir allar réttir á Vestur-
landi.
Sjá bls. 6
Borgnesingar í vfking
Tveir fimmtán ára unglingar úr
Borgarnesi eru fulltrúar Islands í
samnorrænu verkefni sem hófst
s.l. þriðjudag. Um er að ræða gerð
sjónvarpsþáttar sem fjallar um
unglinga frá öllum Norðurlönd-
unum sem sigla í vikutíma á vík-
ingaskipinu Gaju og þurfa að
treysta á sjálfa sig og ekki síst sam-
vinnu við jafnaldra sína frá hinum
löndunum.
GE
Tengivagn á hliðina undir Hvalfirði
Göngin lokuð í íjóra tíma
Hvalfjarðargöngin voru lokuð í
tæpa fjóra tíma á mánudagskvöld
eítir að tengivagn vörubifreiðar fór
á hliðina í norðanverðum göngun-
um. Ekki urðu slys á fólki og má lík-
lega þakka það að ekki var mikil
umferð í göngunum á þessum tíma.
Ohappið vildi til með þeim hætti
að ökumanni vörubifreiðarinnar
mistókst að skipta um gír og byrjaði
bíllinn að renna afturábak með
þeim afleiðingum að tengivagninn
fór þversum og síðan á hliðina.
Framhjól vagnsins losnuðu hins-
vegar frá og urðu effir aftan í bíln-
um.
Eins og gefur að skilja var ekki
mikið rými til athafha í göngtmum
og því tók tíma sinn að ná tengi-
vagninum út. Losa þurfti allar vörur
úr honum og voru slökkviliðsmenn,
björgunarsveitarmenn frá Akranesi
og fleiri í rúma tvo tíma að ferja yfir
í annan bíl allskyns varning, allt frá
eplum og appelsínum upp í tísku-
famað en farmur bílsins átti að fara
í verslanir Hagkaupa og Bónuss á
Akureyri. Þegar affermingu var lok-
ið kom til kasta kranabíls frá ÞÞÞ
og tókst með lagni að rétta vagninn
við í göngunum og hengja hann síð-
an aftan í kranabílinn. Ohappið
varð um kl. 21.00 en það var ekki
fyrr en rétt fyrir eitt um nóttina sem
aftur var hægt að hleypa umferð
umgöngin. Á meðan á þessu stóð
höfðu lögregluþjónar beggja vegna
ganganna beint umferðinni fyrir
Hvalfjörðinn. GE
Góður árangur boltameyja
Stúlkurnar í öðrum flokki IA
mættu Fylki á Akranesvelli síðast-
liðinn laugardag en leikurinn var
síðasti leikur stúlknanna á Islands-
mótinu í ár. Það er skemmst frá því
að segja að leikmenn Fylkis áttu
aldrei möguleika og lokatölur leiks-
ins urðu 7-2. Hafa Skagastúlkur því
tryggt sér efsta sæti B-deildar ís-
landsmótsins. Mörk þeirra gerðu
þær Heiðrún Garðarsdóttir (2),
Sólveig Sigurðardóttir, Hallbera
Gísladóttir, Unnur Smáradóttir og
Berglind Pétursdóttir auk þess sem
Fylkisstúlkur gerðust svo almenni-
legar að skora eitt sjálfsmark.
Á tímabilinu hefur liðið leikið
átta leiki. Þar af unnu stúlkurnar
sex, gerðu eitt jafhtefli og töpuðu
einum leik. Markatalan var 37-10.
Árangurinn er sérlega glæsilegur ef
tillit er tekið til þess að liðið er allt
sldpað leikmönnum á fyrsta ári.
SÓK
mmmmmmmmmmmmmœmmmmmmmmmmmmmmimmmmmmmmammmmmmmemmmmmmmmm
-Gildirfrá fimmtudegi 7. sept.
Súpukjöt 2.fl....................149 kg.
Rauðvínslegin Helgarsteik..20% afsláttur
Samlokubrauð fín og gróf...15% afsláttur
Kleinur 10 stk.......................15% afsláttur
Blómkál..............................249 kg.
Appelsínur.......................149 kg.
Epli gul........................149 kg.