Skessuhorn - 04.10.2001, Side 7
jntsaunu^
FIMMTUDAGUR 4. OKTOBER 2001
7
Allar deildir reknar með hagnaði í ár
Allt önnur staða en
samt ekki dans á rósum
segir Gunnar Sigurðsson formaður meistaraflokksráðs Knattspyrnufélags 1A
Gunnar Sigurösson
„Ef allt gengur eftir eins og ég
reikna með koma allar þrjár deildir
knattspyrnufélagsins til með að
skila hagnaði á þessu rekstrarári,
mismiklum að vísu, og einnig eru
góðar líkur á að við verðum búnir
að borga íyrir þátttöku í Evrópu-
keppninni þótt við fáum ekki tekj-
urnar fyrr en í maí á næsta ári,“ seg-
ir Gunnar Sigurðsson, formaður
meistaraflokksráðs KFIA, aðspurð-
ur um fjárhagsstöðu félagsins í dag
eftir árangursríkt sumar á knatt-
spvrnuvellinum.
Eins og flestum er sjálfsagt í
fersku minni var fjárhagsstaða
Knattspyrnufélags IA afar slæm urn
síðustu áramót og voru skuldir fé-
lagsins milli 60 og 70 milljónir. Þá
var farið í sérstakt átak til að ná nið-
ur skuldum og skilaði það vægast
sagt góðum árangri því áður en
keppnistímabilið hófst var félagið
nánast orðið skuldlaust. Síðan þarf
varla að rifja það upp að árangur
sumarsins var vonum framar, félag-
ið eignaðist Islandsmeistara í
meistaraflokki og einnig í öðrum
og fimmta flokki þrátt fyrir að út-
gjöldum væri haldið í lágmarki og
nánast eingöngu byggt á heima-
mönnum. Þá var aðsókn á völlinn
mjög góð í sumar og allt hefur þetta
hjálpað til að skjóta á ný styrkum
stoðum undir knattspyrnuveldið
IA. „Staðan er náttúrulega allt önn-
ur þótt það sé ekki hægt að segja að
við séum á grænni grein. Það kost-
ar ekki lítið að reka alvöru knatt-
spyrnufélag og sem dæmi má nefna
að allur hagnaðurinn af þessu
starfsári fer væntanlega í að reka
dæmið í vetur. Núna höfum við
hinsvegar haustið til að undirbúa
næsta keppnistímabil en þurfum
ekki að vera að vinna aftur fyrir
okkur eins og undanfarið. Núna
verður farið í að gera langtíma
samninga við styrktaraðila og
ganga frá leikmannasamningum og
fleira sem oft hefúr ekki verið hægt
að vinna fyrr en á vorin.“
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni eru líkur á því að IA fái
hluta af kaupverði Jóhannesar Karls
Guðjónssonar sem uppeldisfélag
leikmannsins en sem kunnugt er
var hann seldur frá RJ Warwick til
Real Betis fyrir skemmstu. „Það er
verið að vinna í því máli en þetta er
eitt af fyrstu málunum sem kemur
upp eftir að nýjar reglur um leik-
mannaskipti voru settar. Þetta get-
ur orðið einhver lögfræðilegur
þvælingur og tekið tíma en mér
skilst að við eigum rétt á 4,5% eða
5% af kaupverðinu. Við vitum
hinsvegar ekki enn hvert kaupverð-
ið var þannig að þetta er ekki á
hreinu,“ segir Gunnar en sam-
kvæmt þeim tölum sem nefndar
hafa verið um kaupverð Jóhannesar
ætti hlutur IA að verða um 12-15
milljónir. Þá hefur það heldur ekki
farið fram hjá neinum sem fylgst
hefur með boltanum í sumar að
margir ungir leikmenn ÍA hafa
slegið í gegn í surnar og sannað sig
sem líklega kandidata í atvinnu-
mennsku. Þessir leikmenn eru allir
samningsbundir IA og því líkur á að
félagið geti fengið eitthvað fyrir
sinn snúð ef erlend stórlið kynnu að
vilja krækja í þá. „Það er ekkert sem
bendir til annars en að þessir ungu
strákar verði hjá okkur áfram en ör-
ugglega eiga einhverjir þeirra eftir
að fara £ atvinnumennsku. Við
erum hinsvegar ekki komnir með
dollaramerkið í augun yfir þeim
enn. Eg er hinsvegar ákveðinn í því,
ef ég verð í þessu áfram það er að
segja, að beita mér fyrir því að tekj-
ur sem félagið kann að fá af sölu
leikmanna verði notaðar í upp-
byggingu félagsins. Eg vil að þeir
peningar verði látnir ávaxtast og
höfuðstóllinn ekki skertur en vext-
irnir notaðir í þessa stráka sem eru
að koma á skólasamninga hjá okkur.
Við höfum auglýst eftir fjölskyldum
til að taka að sér unga stráka sem
við ætlum að ala upp og erum að
gera samninga við þrjá núna til árs-
ins 2003, einn frá Siglufirði, annan
frá Dalvík og þann þriðja úr
Grundarfirði. Við bindum miklar
vonir við þetta uppbyggingarstarf
og verðum að mínu mati að leggja
rækt við það.“
Gunnar er bjartsýnn á að hægt
verði að fylgja hinum ótrúlega ár-
angri sumarsins eftir enda líkur á að
flestir þeirra leikmanna sem léku í
sumar verði með á næsta ári og að
fleiri muni jafnvel bætast við. „Ef
menn eru tilbúnir til þess áfram að
leggja eitthvað á sig þá er bjart
framundan,“ segir formaðurinn
sigursæli að lokum.
GE
Of mildð um hraðakstur í göngunum
Okumenn greiða allt aö 50 þúsund króna sekt
Eins og fram hefur kornið í
Skessuhorni og víðar voru settar
upp hraðaljósmyndavélar í Hval-
fjarðargöngunum fyrir síðastliðna
verslunarmannahelgi. Dregið heflir
úr hraðakstri í göngunum eftir til-
komu þeirra þótt margir ökumenn
freistist til að keyra yfir hámarks-
hraða sem er 70 km/klst. Vikuna
14.-21. september síðastliðinn va.r
331 ökumaður festur á filmu. Sam-
kvæmt upplýsingum á heimasíðu
Spalar ehf. óku flestir á 80-100
km/klst. Mesti hraði sem mynda-
vélin hefúr mælt í göngunum er
121 km/klst og þurfti ökumaður
þeirrar bifreiðar að greiða 50 þús-
und krónur í sekt. SOK
Fr 'ótisk sktíta liggur nú bundin við
Stykkishólmshöfit. Kom skútan til hafnar
í Stykkishólvii í sumar en hún er í eigu
franskrar fiögmra manna fiölskyldu san
atlar að hafa vetursetti í skútunni í
Stykkishólmi ogferðast þaðan itm lsland.
A myndinni sést hvar hún liggur utan á
skútu san Björn Arnason ogfleiri eru
eigendur að, en hann er einnig einn af
eigendttm Sjávarpakkhússitts í
Stykkisbólmi.
Mynd: smh
Frönsk
skúta í
Stykkis-
hólmshöfn
lllOKO
< Borgarbraut 55
3 i
Borgamesi
4371930
Efnalaug
t>0ottahús
1*Jotim og hreinsum:
Sðengnr - kodda -
s>Defnpoka - mottur -
gardínur - dúka -
heimitisþOottinn og
spari
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
... Fax: 437-1017
'GGVASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
Nýtt á söluskrá
Skúlagata 9, Borgarnesi
íbúð á neðri hæð, 57 ferm. íbúðin (forstofa, stofa og
eitt svefnherb.) er öll parketlögð. I eldhúsi er nýleg
viðarinnr. Baðherb. allt nýlega flísalagt, ljós viðarinnr.,
sturta og tengi f. þvottavél. Geymsluskúr á lóð. Nýjar
vatns- og skolplagnir, nýtt rafmagn og nýlegir gluggar.
Verð: 4.900.000.
Borgarbraut 55, Borgarnesi
Iðnaðarhúsnæði 210 ferm. (nú smíðaverkstæði).
Húsnæðið er mjög vel staðsett og með góðri aðkomu.
Húsið býður því upp á mikla möguleika og fjölbreyttan
rekstur. Til afhendingar fljótlega.
Verð: 10.900.000
Akraneskaupstaður
Hús til sölu
Akraneskaupstaður auglýsir hér með
til sölu húseignina sem áður stóð við
Kirkjubraut 25 (Merkigerði), en húsið
er nú geymt á athafnasvæði Gámu.
Húsið verður selt til flutnings eða
niðurrifs í því ásigkomulagi sem það er
í. Húsið er til sýnis í samráði við
umsjónarmann sorpmála, Valdimar
Þorvaldsson.
Tilboðum skal skilað á
bæjarskrifstofuna, Stillholti 16-18, eigi
síðar en mánudaginn 15. október 2001,
kl. 11:00, en þá verða tilboðin opnuð
að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Bœjarritari