Skessuhorn


Skessuhorn - 31.01.2002, Síða 11

Skessuhorn - 31.01.2002, Síða 11
•r gKgSSÖHöBSJ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2002 11 ipnhninfy Hvemig líst þér á að fá Keikó í Ilólnihm? J (Spurt í Stykkisbólmi) María Kúld Heimisdóttir: „Bara nokkuð vel. Mín vegna má ' hami alveg koma hingað. “ [ : Sigurbjörg Henrýsdóttir: „Æ ég veit það ekki. Það er kannski allt í lagi, kannski tneira líf í bæinn. “ atrín Eva Hinriksdóttir: 4jög vel, ég held að koma hans uni hafa mjög lífgandi áhrif á\ jarlífið. “ tia Rut Kristjánsdóttir: >/, held að þaö geti haft góð á- f dferðamannabransam hóTna tfkkishólmi. “ Svandís Þorsteinsdóttir: „Ég held að það gæti orðið gott til , að auka ferðamannastrawninn. ‘ ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - Íþróttahátíð Ungmennasambands Borgarfjarðar Gauti Jóhannesson er íþróttamaður ársins Íþróttahótíð Ungmennasambands Borgarfjarðar var haldin laugardag- inn 26. janúar sl. Hátíðin er árviss viðburður og fer jafnan fram síðustu helgina í janúar í Iþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Fer þá fyrst fram íþrótta- keppni og ýmsar útnefningar en síð- an er krýndur Iþróttamaður Borgar- fjarðar. Við þelta tækifæri voru einnig til- kynnt úrslit í Skólakeppni UMSB. Héraðsþjálfari UMSB ásamt íþrótta- kennurum í héraðinu hafa staðið fyr- ir skólakeppninni sem fer fram á milli skóla, bekkja og einstaklinga þar sem þol, kraftur samhæfing og leikni einstaklinga eru mæld á jafnréttis- grundvelli. Það eru nemendur 10 ára og eldri sem taka þátt í keppn- inni. Arangur er reiknaður eftir barna- og unglingastigatöflu Frjáls- íþróttasambands Islands. Ung- mennasambandið veitir að keppni lokinni stigahæsta einstaklingnum, stigahæsta bekknum og stigahæsta skólanum eignarbikara og farand- bikara. Að þessu sinni var það Trausti Eiríksson sem var stigahæstur einstaklinga, en 5. bekkur Grunn- skólans í Borgarnesi stigahæsti bekk- urinn og Grunnskólinn í Borgarnesi stigahæsti skólinn en til gamans má geta þess að aðeins munaði 26 stig- um á Grunnskólanum í Borgarnesi og Kleppjárnsreykjaskóla. Að lokum var svo komið að kjöri I- þróttamanns Borgarfjarðar en það fer þannig fram að íþróttanefndir UMSB, Golfklúbbur Borgarness og Iþróttafelag fatlaðra hafa öll rétt til að tilnefna 3 einstaklinga til kjörs. Þeir sem síðan eiga atkvæðisrétt í kjöri í- þróttamanns Borgarfjarðar eru stjórnarmenn UMSB, stjórn hvers að- ildarfélags og íþróttanefndir sam- bandsins. Sambandsstjóri UMSB ber ábyrgð á kosningunni. Þegar tveir eða fleiri tilnefndir eru jafnir að stig- um er farið eftir því hversu oft þeir eru tilnefndir til að raða niður í sæti. Að þessu sinni bárust 18 kjörseðlar. Iþróttamaður Borgarfjarðar 2001 er langhlauparinn Gauti Jóhannes- son. Hann er annar besti langhlaup- ari landsins. Hann vann til fjölda verðlauna á árinu þar sem hann var að stórbæta árangur sinn. Á Meist- aramóti Islands 15-22 ára varð Gauti í fyrsta sæti bæði í 1500 m hlaupi og 3000 m hlaupi. Hann varð tvöfaldur Islandsmeistari í Ung- lingaflokki. Hann er í úrvalshópi ung- linga og var valinn í tveggja manna A-landsliðshóp Frjálsíþróttasam- bands Islands á síðasta ári. Hann Gauti Jóhannesson 4 stundar læknisnám erlendis og æfir þar með sænsku félagi. Hann legg- ur mikið á sig fyrir sitt félag og sam- band, auk þess að vera mikill félagi og góð fyrirmynd yngstu kynslóðar- innar. Veronika Sigurvinsdóttir/smh 10 efstu sætin í kjöri íþróttamanns ársins hjá UMSB 1. Gauti Jóhannesson Umf. íslendingi frjálsar íþróttir 46 stig 2. Sigurkarl Gústavsson Umf. Skallagrími frjálsar íþróttir 38 stig 3. Hlynur E. Bæringss. Umf. Skallagrími körfuknattleik 36 stig 4. Hallbera Eiríksdóttir Umf. Skallagrími frjálsar íþróttir 30 stig 5. Guðmundur I.Einars. íþróttaf. Kveldúlfi íþróttir fatlaðra 20 stig 6. Alexander Ermoliskij Umf. Skallagrími körfuknattleik 20 stig 7. Sigurður Guðmundss. Umf. íslendingi Sund 12 stig 8. Inga T. Sigurðardóttir Umf. Skallagrími badminton 11 stig 9. Hilmar Þór Hákonars. Umf. Skallagrími knattspyrna 10 stig W.Jakob Orri Jónsson Umf. Skallagrími Sund 10 stig Bullandi fallbarátta framundan -Skallagrímur í vondum málum eftir tap í Grindavík Skallagrímsmenn eru komnir í verulega vond mól við botn deildar- innar eftir stigalausa ferð til Grinda- víkur í síðustu viku. Heimamenn í Grindavík nóðu strax forystu í upphafi leiks og leiddu allan fyrri hólfleikinn. Skallagrímur minnkaði muninn í upphaf 2. leik- hluta í 2 stig en þó kom góður leik- afli heimamanna og þeir juku foryst- una í 12 stig fyrir hlé. Grindvíking- ar virtust vera að rúlla yfir Skallanna í 3. leikhluta og nóðu þó 21 stigs for- skoti. En með góðum spretti fró Haf- þóri minnkuðu Borgnesingar muninn aðeins, þó að þeir næðu aldrei að ógna heimamönnum og var sigur Grindvíkinga nokkuð öruggur, 95- 82. Larry Florence byrjaði vel fyrir Þau tíðindi urðu í 1. deildinni í körfuknattleik karla ó sl. laugardag að Snæfell tapaði sínum þriðja leik ó tímabilinu og öðrum leiknum af síð- ustu þremur - að þessu sinni fyrir IG í Grindavík. Lokatölur urðu 93-90 og mó þar trúlega kenna um vanmati Snæfellinga ó andstæðingum sínum auk þess sem einbeitingarleysis gætti innan liðsins. Grindvíkingarnir léku hins vegar vel og komust yfir 12-2 í fyrsta leikhluta og virtust Snæfellingar hreinlega ekki tilbúnir í alvöru leik. í hólfleik var ÍG 10 stigum yfir en í þriðja leikhluta tóku gestirnir sig saman í andlitinu og minnkuðu muninn í 3 stig. Enn bættu þeir sig í fjórða leikhluta og komust þó yfir í fyrsta sinn í leiknum og loksins al- Skallana en virtist svo fynast í síðari hólfleik, Hafþór Ingi var í heildina séð besti maður liðsins og gerði 17 stig. Skallagrímsmenn réðu ekkert við Helga Jónas Guðfinnson sem gerði sjö þriggja stiga körfur og var í banastuði. Eins og óður segir er staðan orðin iskyggileg við botninn. En Borgnesingar hafa nú 8 stig ó- samt Breiðablik í 11 sæti deildarinn- ar. Næsti leikur Skallagríms er næst- komandi föstudag gegn Þór í Borg- arnesi. Leikurinn hefst klukkan 20:00 og er alveg Ijóst að piltarnir í Skallagrími verða að sýna betri leik heldur en sést hefur að undanförnu ætli þeir sér ekki að lenda í frekari vandamólum í bili. vöru leikur í íþróttahúsinu í Grindavík. Spenna hélst út leikinn en IG kreisti fram sigur og munu þeir hafa leikið sinn besta leik í langan tíma en Snæ- fellingar nóðu sér aldrei almennilega ó strik. Ólafur Guðmundsson var besti leikmaður Snæfellinga en Bandaríkja- maðurinn Orlando Donaldson nóði sér ekki ó strik. Þar með nóðist ekki takmark Snæ- fellinga að vinna þrjó síðustu leiki sína og tryggja sér efsta sætið í deildinni. Næstu leikir þeirra verða mjög mikil- vægir og erfiðir en bilið er lítið milli fjögurra efstu liðanna og innbyrðis viðureignir eru ó döfinni. Nk. föstu- dag klukkan ótta tekur Snæfell ó móti KFÍ í Stykkishólmi. smh Stelpurnar upp um deild Meistarafiokkur kvenna ÍA í knatt- spyrnu sigraöi sinn riöil í 2. deild íslandsmótsins í innanhúsknatt- spyrnu um síöustu helgi. Stelpurn- ar munu því (ólíkt körlunum) leika í 1 .deildinni að ári. Skagastúlkur áttu í haröri baráttu viö Þróttara um efsta sætiö. Bæði liöin höföu unnið báða leiki sína áður en kom að innbyröis viður- eign þeirra. Liðin geröu jafntefli þegarþau mættust 1-1 og því Ijóst að endanleg staða í riölinum mundi ráöast á markatölu. Skagastúlkurnar þurftu að vinna síöasta leikinn sinn gegn Ægi með minnst tveggja marka mun til að tryggja sér sigur í riðlinum. Þær gerðu gott betur en það og sigruðu leikinn með sex mörkum gegn engu. HJH Sigurvegararnir bregða á leik fyrir Ijósmyndara Haraldur og Birgir sigruöu Haraldur Hinriksson og Birgir Birgisson sigruðu í opnu móti í tví- menning í keilu sem fram fór um síðustu helgi í keilusalnum á Akra- nesi. Sex pör voru skráð til þátt- töku í þessu fyrsta keilumóti sem haldið er á Akranesi. Haraldur og Birgir sigruðu Birgittu Þuru Birgis- dóttur og Guðmund Sigurðson í æsispennandi úrslitaleik. HJH Snæfellingar fengu skell Molar Skagamenn spiluðu sinn fyrsta æf- ingaleik á þessu ári þegar þeir mættu Grindvíkingum í Reykjanes- höllinni á laugardaginn. íslands- meistararnir áttu ekki í neinum vandræðum með Grindvíkinga og sigruðu örugglega 4-0. Hjörtur Hjartarson kom Skagamönnum í 2- 0 í fyrri hálfleik. Ungur Húsvíkingur, Birkir Vagn Ómarsson, sem var til reynslu hjá ÍA um helgina, skoraði þriðja markið og Jóhannes Gíslason rak svo endahnútinn á ágætan leik Skagamanna með fjórða markinu rétt fyrir leikslok. í dag (miðvikudag) mæta Skagamenn Breiðablik í Reykjaneshöllinni. Næsti æfinga- leikurinn á eftir honum er síðan á sunnudaginn gegn HK. (þróttafélagið Þjótur sendir 12 keppendur á Malmömótið svokall- aða sem fram fer í Svíþjóð í byrjun febrúar. Níu íþróttamenn keppa í boccia og þrír í sundi. Hópurinn heldur til Svíþjóðar 8. febrúar og kemur heim þann 11. Nánar verður sagt frá mótinu í þarnæsta tölublaði Skessuhorns. 4. flokkur kvenna ÍA í knattspyrnu tryggði sér þátttökurétt í úrslita- keppni íslandsmótsins i innan- húsknattspyrnu í síðustu viku þegar þær sigruðu sinn riðil næsta auð- veldlega með fullu húsi stiga. Hið sama gerði 5.flokkur karla hjá sama félagi. Drengirnir sigruðu alla leikina sína nokkuð örugglega og til marks um það skoruðu þeir 40 mörk í leikjunum fimm en fengu aðeins á sig sex. 4.flokkur karla sat hinsveg- ar eftir en þeir enduðu í öðru sæti í sínum riðli. Hafliði Guðjónsson var á dögun- um ráðinn þjálfari Bruna fyrir næsta sumar. Leikmenn Bruna æfa nú af kappi fyrir komandi tímabil og skv. heimildum Skessuhorns eru menn hæfilega bjartsýnir á gengið. Ein af fjölmörgum tillögum sem liggja fyrir ársþing KSÍ að greiða um er sú að ekki verði lengur leyfilegt að gera svokallaða venslasamninga á milli félaga. ÍA gerði ekki vensla- samning á síðasta tímabili en bæði Skallagrímur og Bruni voru áhuga- söm um að koma slíkum samningi á koppinn við ÍA fyrir næsta tímabil. Mfl. Skagamanna í körfuknattleik tapaði sínum áttunda leik í röð er þeir mættu ÍS í Reykjavík í síðustu viku. Lokatölur urðu 101-71, ÍS í vil. HJH T f *

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.