Skessuhorn - 17.04.2002, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDi -16. tbl. 5. árg. 17. apríl 2002
Kr. 250 í lausasölu
Elís og Anna sigruðu í Fegurðarsamkeppni Vesturlands
Anna María Sigurðardóttir, 18 ára Skagamær var valin Ungfrú Vesturland 2002 á Fegurðarsamkeppninni í Klifi í Olafivík um st'ðustu belgi. Elts Bergmann Blœngsson 21 árs
Borgnesingur var valinn herra Vesturland. Sjá keppnina í máli og myndum á bls. 8-9. Mynd: SOK
Jákvæð ímynd
Akraness
I marsmánuði voru unnar
tvær kannanir um viðhorf al-
mennings gagnvart búsetu og
þjónustu á Akranesi. Annars
vegar vann Gallup á Islandi
könnun meðal almennings í
landinu um almennt viðhorf
gagnvart Akranesi; búsetu þar
og hver væri ímynd bæjarfélags-
ins í huga fólks. Hinsvegar unnu
nemendur Viðskiptaháskólans á
Bifröst könnun meðal bæjarbúa
þar sem þeir voru spurðir um
viðhorf gagnvart búsetu, at-
vinnu, helstu kostum og göllum,
viðhorf gagnvart opinberri
þjónustu og hvaða þjónustu-
þætti vanti e.t.v. í bæjarfélagið.
„Almennt má túlka niðvu-stöð-
ur beggja þessara kannana
þannig að þær séu bæjarfélaginu
á Akranesi mjög jákvæðar," seg-
ir Magnús Magnússon markaðs-
fulltrúi Akraneskaupstaðar.
„Svo virðist sem ímynd Akra-
ness sé jákvæð bæði meðal bæj-
arbúa sjálfra sem og hjá öðrum
landsmönnum. Til marks um
það má geta þess að 42% lands-
manna geta hugsað sér að búa á
Akranesi, þar af segja 11% að
það komi mjög sterklega til
greina að flytjast þangað.“
Sjá ítarlega umjjöllun á bls 5
Tuttugu
umfram
brottflutta
Samkvæmt nýútgefnum töl-
um frá Hagstofu Islands um bú-
ferlaflutninga eftir sveitarfélög-
um á tímabilinu janúar - mars
2002 þá fjölgaði aðfluttum um-
fram brottflutta á Akranesi um
20 manns. I heild eru aðfluttir
umfram brottflutta á Vestur-
landi 17 manns sem er það
mesta á landsbyggðinni, en ein-
ungis á Suðurnesjum eru að-
fluttir einnig fleiri en brottflutt-
ir - eða 6 talsins. A höfuðborgar-
svæðinu eru aðfluttir 399 um-
fram brottflutta.
smh
Jaðarsmálið í Ólafsvík
Hj úkrunarfræðingar kæra Snæfellsbæ
Félag íslenskra hjúkrunarffæðinga
hefur kært Snæfellsbæ vegna máls
sem varðar ráðningu manneskju í af-
leysingar fyrir hjúkrunarforstjóra
Dvalarheimilisins Jaðars í Olafsvík,
Valdísi Brynjólfsdóttur, sem er á leið í
bameignarfrí.
Forsaga málsins er sú að fyrir
þremur árum fór Valdís einmg í barn-
eignarfrí og var þá ráðinn sjúkraliði til
að leysa hana af. Mótmælti
Félag íslenskra hjúkrunar-
ffæðinga því við heilbrigðis-
ráðuneytið að gengið hefði
verið ffam hjá hjúkrunarffæð-
ingi við ráðninguna og kærði
að lokum til umboðsmanns
Alþingis. Hann vísaði félag-
inu á að kæra til félagsmála-
ráðuneytisins en málið hafði
þá dagað uppi og Valdís aftur
tekin til starfa. Félagið ákvað
því að sinni að fella niður kæm en
taka málið af fullum krafti upp aftur ef
slíkt kæmi fyrir aftur.
Þann 10. apríl sl. kærði svo Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga Snæfells-
bæ til félagsmálaráðuneytisins. I
kærunni kemur ffam að kæran sé til-
komin vegna „Ákvörðunar sveitar-
stjómar Snæfellsbæjar vegna Dvalar-
heimilisins Jaðars og effir atvikum á-
kvörðun stjómar Dvalarheimilisins
Jaðars um að auglýsa eftir starfsmanni
til þess að veita forstöðu dvalar- og
hjúkrunarheimili, sem Jaðar er, til af-
leysinga hjúkrunarforstjóra á leið í
fæðingarorlof a) án þess að gerð sé
krafa um að umsækjendur hafi lokið
prófi í hjúkrunarffæði b) án þess að
hjúkrunarffæðingur starfi við stofh-
unina ef talið verður að um sé að ræða
starf forstöðumanns/framkvæmda-
stjóra, sbr. auglýsingu í bæjarblaðinu
Jökli 27. mars sl.“
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í
Snæfellsbæ, segir að það sé skýrt að
ekki þurfi að ráða hjúkrunarffæðing í
starf forstöðumanns eða fram-
kvæmdastjóra dvalarheimila og vísar í
bréfi ffá heilbrigðisráðuneytinu til
Dvalarheimilisins Jaðars ffá 22. júní
1999. Skessuhom hefur téð bréf und-
ir höndum og þar kemur einnig ffam
að ef um er að ræða afleysingastöðu
fyrir hjúkrunarforstjóra þarf hjúkrun-
arfræðingur að gegna henni. Aukin-
heldur kemur ffam í bréfinu að þar
sem ljóst sé að hjúkrun sé veitt á dval-
arheimilinu í fjórum hjúkrunarrým-
um, þá þurfi að vera starfandi þar
hjúkrunarfræðingur. Herdís Sveins-
dóttir, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarffæðinga, segir það alveg
ljóst að það verði að auglýsa effir
hjúkrunarffæðimenntuðu starfsfólki
tdl að leysa Valdísi af vegna þess að á
Jaðri sé enginn starfsmaður fyrir með
slíka menntun. Hún bætir því við að
hún skilji ekki hvað liggi á bak við
þessa aðferð Snæfellsbæjar við að
auglýsa stöðuna, en ef bæði hjúkrun-
arffæðingur og sjúkraliði sæld um
hana sé ekki hægt að ganga ffam hjá
hjúkrunarffæðingnum.
smh
Ef keyptir eru 3 pakkar af
Kelloggs morgunkorni (samahvaða
tegund) þá fylgir Kelloggs útvorp
eöa klukka (að e/g/n vaii) frítt meö!