Skessuhorn


Skessuhorn - 17.04.2002, Síða 2

Skessuhorn - 17.04.2002, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. APRIL 2002 www.xb.is/akranes akranes@xb.is í Grundamrði A dögunum var listd óháðra í Grundarfirði samþykktur, en um nýtt framboð er að ræða til sveitar- stjórnakosninganna í vor. Listann skipa; 1. Garðar Svansson, pípulagningamaður. 2. Ami Elvar Eyjólfsson, verslunarstjóri. 3. Höskuldur Reynir Höskuldsson. 4. Jón Björgvin Sigurðsson, veitingamaður. J. Kolbrún Reynisdóttir, nemi. 6. Karl Jóhann Jóhannsson, verkamaður. 7. Eygló Bára Jónsdóttir, hársnyrtir. 8. Herdís Gróa Tómasdóttir, verslunarmaður. 9. Þorsteinn Bjarki Olafsson, sjómaður. 10. Dariusz Niecier, verkamaður. Garöar Svansson leiðir lista óháðra í Grundarfirdi. 11. Bjami Jónasson, sjómaður. 12. Hermann Geir Þórsson, tre'smiður. 13. Sigurður Sigurðsson, veitingamaður. 14. Asta Olafsdóttir, kennari. smh Kæra vegna sorpmála Njarðtak ehf. hefur kært til úrskurðarnefndar útboðsmála þá ákvörðun Borgarbyggðar að haftia öllum tilboðum í sorp- hirðu í sveitarfélaginu og bjóða verkið út að nýju í haust en gera í millitíðinni bráðabrigðasamn- ing við Gámaþjónustu Vestur- lands. Forsaga málsins er sú að Njarðtak átti lægsta boð í sorp- hirðu en bæjarstjórn Borgar- byggðar ákvað engu að síður að ganga til samninga við Gáma- þjónustu Vesturlands á grund- velli frávikstilboðs. Þá ákvörðun kærði Njarðtak og úrskurðar- nefnd útboðsmála úrskurðaði að ákvörðunin væri ólögmæt og benti m.a. á að galli væri í út- boðinu þar sem ekki kæmi fram á hvaða forsendum tilboð yrðu metin. „I framhaldi af þessum úrskurði og ekki síst með tilliti til þess að útboðsgögn voru tal- in gölluð, þá þótti okkur eðli- legt að endurtaka útboðið til að allir sætu við sama borð. Við töldum okkur hafa fullan rétt til að hafna öllum tilboðum enda sá réttur áskilinn í útboðsaug- lýsingunni," segir Stefán Kal- mansson bæjarstjóri Borgar- byggðar. Stefán kvaðst enn- ffemur bjartsýnn á að úrskurð- arnefiidin kæmist að sömu nið- urstöðu og að málið gæti haft þann framgang sem að var stefnt. GE Orkuveitan kaupir þrjár hitaveitur í Norðurárdal Síðastliðinn fimmtudag var und- irritaður á Bifröst samningur um kaup Orkuveitu Reykjavíkur á Hitaveitu Norðdælinga og hita- veitum í landi Bifrastar og Svarta- gils í Norðurárdal. Samningarnir voru undirritaðir með fyrirvara um samþykki viðkomandi stjórna. Kaupverð veitanna þriggja er sam- tals um 70 milljónir króna að sögn Alfreðs Þorsteinssonar stjórnar- formanns Orkuveitunnar. Alfreð segir að með kaupunum sé Orkuveitan að treysta enn frek- ar markað sinn í hitaveiturekstri í Borgarfirði en á síðasta ári samein- uðust Akranesveitur og Hitaveita Borgarness Orkuveitunni. Alfreð segir ennfremur að með þessum kaupum sé útlit fýrir frek- ari uppbyggingu á veitusvæðinu í Norðurárdal sem m.a. þjóna skóla- setrinu á Bifröst. „Byggðin á Bif- röst er í örum vexti og útlit fyrir að þar verði um 600 íbúa byggð inn- an fárra ára. A okkar fyrsta fundi með rektor Viðskiptaháskólans sagði hann að þeir væru góðir í að reka skóla en síðri í að reka hita- veitu. Við teljum okkur hinsvegar vera góða í því og vonumst til að geta þjónað þessu svæði vel. Einnig höfum við hug á að auka þjónustu við sumarhúsaeigendur á veitusvæðinu". GE Framboðslisti sjálfstæðismanna á Akranesi Á fúndi fulltrúaráðs Sjálfstæðis- félaganna á Akranesi, laugardaginn 13. apríl 2002, var framboðslisti flokksins til sveitarstjórnarkosninga 25. maí samþykktur einróma. Efsm sæti listans em samhljóða niður- stöðu úr prófkjöri flokksins í febrúar síðastliðnum. Gunnar Sig- FASTEIGNASALA Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir af sumarbústaðarlóðum, jarðarskikum, lögb/lum og húsum í Borgarnesi á skrá á fasteignasölu okkar í Borgarnesi. Eign.is 437 1030 - Egilsgötu 2 urðsson oddviti listans er hins- vegar sá eini af þeim þremur bæjarfulltrúum sem hlum kosningu 1998 en Jón Gunn- laugsson sem skipar 3ja sætið kom inn í bæj- arstjórn fyrir stuttu í stað Pémrs Ottesen sem flutti úr sveit- arfélaginu. Guðrún Elsa Gunnars- dóttir sem skipar annað sætið er hinsvegar ný á listanum. Listann skipa: 1. Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri 2. Guðrún Elsa Gunnarsdóttir, iðnrekstrarfrœðingur 3. Jón Gunnlaugsson, umdæmisstjóri 4. Þórður Þórðarson, bifreiðastjóri 5. Sæmundur Víglundsson, byggingatæknijræðingur 6. Sævar Haukdal, framkvæmdastjóri 7. Hallveig Skúladóttir, hjúknmarfræðingur 8. Eydís Aðalbjömsdóttir, landfræðingur / kennari 9. Lárus Arsælsson, verkfræðingur 10. Kristjana Guðjónsdóttir, nemi 11. Egill Ragnarsson, veitingamaður 12. Ingþór Bergmann Þórhallsson, pípulagningamaður 13. Ragnheiður Olafsdóttir, deildarstjóri 14. Eiður Olafsson, skipstjóri 15. Elín Sigurbjömsdóttir, hjúkrunarfræðingur 16. Elínbjörg Magnúsdóttir, skrifstofumaður 17. lngibjórg Olafsdóttir, húsfreyja 18. Guðjón Guðmundsson, alþingismaður Framboðslisti óháðra TF-Líf sótti veikt bam á Rif Fimmmdagskvöldíð 11. apríl sótti þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, fimm mánaða gamlan veikan strák á Rif á Snæfellsnesi. Það var vakthafandi læknir á Heilsugæslustöðinni í Olafsvík sem bað um að þyrlan yrði köll- uð út þar sem bamið var með háan hita og átti erfitt með and- ardrátt. Barnið var flutt á Bama- spítala Hríngsins og samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Lútheri Sigurðssyni, barnalækni, var bamið með lungnabólgu en er nú á batavegi og fer líklega heim á næsm dögum. smh / Arekstur í Borgamesi Ekið var á bifteið utan við verslun 10-11 í Borgamesi að- faranótt laugardags. Atvikið var með þeim hætti, að sögn lög- reglu að ökumaður bifreiðar sem ekið var efdr Borgarbrautinni missti stjóm á bflnum með þeim afleiðingum að hann lentd á kyrr- stæðum bfl á bílastæði við 10-11 og lenti sú bifreið á húsinu. Að sögn lögreglu stakk ökumaður- inn af eftir áreksmrinn. Til hans náðist þó fljódega og reyndist hann ómeiddur en grunur leikur á að um ölvunarakstur hafi verið að ræða. GE Vatná litlu dýpi Um síðusm helgi fannst nýtan- legt heitt vatn á aðeins 37 metra dýpi í landi Kjalvararstaða í Reykholtsdal en þar komu upp um 11 sékúndulítrar af 87 gráðu heim vatni. Samkvæmt upplýs- ingum Skessuhoms er nánast einstakt að fá svo heitt vam upp af ekki meira dýpi þrátt fyrir að í þessu tdlfelli hafi verið borað í þekktri sprungu. Þess má reynd- ar geta að ein grynnsta borhola sem gerð hefúr verið er við Bit- ann t Reykholti en hún var á sín- um tíma aðeins 27 metrar niður úr móhellu. GE Bifrestingar bjóða ekki firam Félagið uppbygging í Borgar- firði sem stofnað var á Biröst í febrúar síðastliðnum í þeim dl- gangi að bjóða ffam lista til sveit- arstjómarkosninga í Borgar- byggð í vor hefúr sent ffá sér yf- írlýsingu þess efnis að ekkí verði af ffamboði á vegum félagsins þrátt fyrir að ffamboðslisti hafi verið tilbúinn. í yfirlýsingunni segir m.a. „I kjölfar stofiiunar fé- lagsins for mikil umræða af stað í héraðinu, varðandi þau mál sem við stöndum fyrir. Sum þeirra framboða sem nú þegar hafa komið fram, hafa lýst yfir áhuga að taka okkar stefnumál inní sín- ar stefiiuskrár. Við teljum að við höfum komið þeim skilaboðum á framfæri að Bifröst sé nýr þétt- býliskjami í Borgarbyggð og að hækka þurfi þjónustustigið á svæðinu í samræmi við það. Með tilliti til þessa teljum við að okkar máltun hafi verið kom- ið á dagskrá í héraðinu og því sé tilgangi okkar náð.“ GE

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.