Skessuhorn


Skessuhorn - 17.04.2002, Side 15

Skessuhorn - 17.04.2002, Side 15
SiíSáiiutaíMjiS MIÐVIKUDAGUR 17. APRIL 2002 15 í Þfié m Hver er uppáhalds íþróttamaðurinn þinn? (Spurt í Gnmdarfirði) Sefán Viðar Ólafsson: „Orti Amarson sundmaður er t mestu uppdhaldi. “ Ólafur Þór Ólafsson: „Golfarinn Tiger Woods.“ Hákon Gunnarsson: „Það er Ole Giinnar Solkjær knattspymumaðtir hjá Manchest- \ erUnited.“ Jóhann Svanur Júlíusson: „Michael Jordan körfubolta- hetja. “ Bjöm Þór Þorsteinsson: »Framherji knái hjá Liverpool, \ Micbael Owen. “ Guðni Leifur Friðriksson: : „Kanu hjá Arsenal er bestur.“ ; ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - ÍPRÓTTIR - Lið 10 fiokks Skallagríms. Efri röð f.v. Pavel Ermolinskij, Heiðar Lind Hansson, Gísli Már Arnarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Adolf Hannesson og Pálmi Þór Sævarsson þjálfari. Neðri röð f.v. Hörður Unnsteinsson, Árni Gunnarsson, Brynjar Berg Guðmundsson og Svanberg Rúnarsson. Mynd: AE Deildarbikarinn Öruggur sigur á Stjörnunni íslands- meistarar ÍA sigruðu sinn annan leik í röð þegar þeir m æ t t u Stjörnunni á gervigras- inu í Laug- ardal sl. sunnudag. Lokatölur urðu 3-1. Allt útlit var fyrir að leikurinn gæti ekki farið fram á fyrirhug- uðum tíma vegna vallarað- stæðna. Mikill snjór var á vellin- um og var hann þar af leiðandi mjög háll. Aðgerðir vallarstarfs- manna báru hinsvegar árangur og var leikurinn flautaður á á rétt- um tíma. Leikurinn fór heldur rólega af stað en þó voru Skagamenn heldur sterkari. Bæði lið fengu sitthvort dauðafærið áður en Hjörtur Hjartarson skoraði fyrsta mark leiksins um miðjan hálfleik- inn. Fyrirliðinn, Gunnlaugur Jóns- son, sendi boltann frá eigin vall- arhelmingi innfyrir vörn Stjörn- unnar þar sem Hjörtur var einn á auðum sjó, lék á markvörðinn og skoraði í autt markið. Eftir það tóku Skagamenn öll völd á vellin- um og var sigurinn í raun aldrei í hættu. Ekki voru fleiri mörk skor- uð í fyrri hálfleik og staðan því 1 - 0 í leikhléi. í síðari hálfleik sköpuðu fs- landsmeistararnir sér hvert dauðafærið á fætur öðru og fór Garðar Gunnlaugsson þar fremstur í flokki. Garðar átti með- al annars tvö stangarskot og að auki voru tvö fullkomlega lögleg mörk dæmd af sem hann skor- aði. Það stefndi allt í það að léleg færanýting myndi koma í bakið á leikmönnum ÍA þegar Stjarnan fékk dæmt víti 15 mínútum fyrir leikslok. Einn leikmaður Stjörn- unnar var með boltann utarlega í teig Skagamanna þegar hann grýtti sér í jörðina án þess að nokkur kæmi við hann. Dómarinn féll einnig fyrir leikrænum tilburð- um leikmannsins og dæmdi víti. Ólafur Þór Gunnarsson er þekkt- ur fyrir allt annað en að láta menn skora af punktinum hjá sér og stóð svo sannarlega undir nafni og varði vítaspyrnuna glæsilega. f næstu sókn á eftir skoraði Garðar markið langþráða. Markið var nákvæmlega eins og mark Hjartar í fyrri hálfleik nema að nú kom stungusendingin frá Ólafi markverði. Fimm mínútum fyrir leikslok minnkuðu Stjörnumenn muninn en það kom ekki að sök þv( þriðja mark Skagamanna kom fjórum mínútum síðar. Hjörtur var þá aft- ur á ferð er hann skoraði úr víta- spyrnu eftir að brotið hafði verið á Lúðvíki Gunnarssyni innan teigs. Áframhaldandi þátttaka Skaga- manna í keppninni er nú í annara liða höndum. Skagamenn eru sem stendur í þriðja sæti riðilsins með 12 stig og hafa lokið leik í riðlakeppninni. Til þess að ÍA komist áfram verður annaðhvort KR eða Breiðablik að tapa stigum í síðasta leik sínum. HJH Skailarnir án sigurs í deildarbikar Knattspyrnulið Skallagríms úr Borgarnesi er enn án sigurs í deildarbikarkeppninni en um helgina steinlágu þeir fyrir Tinda- stóli frá Sauðárkróki 6-1. Fór leik- urinn fram í Reykjaneshöllinni og að sögn Valdimars Sigurðssonar, þjálfara, var lið hans hreinlega tekið í kennslustund, en nýr leik- maður Skallagríms Garpur Elísa- betarson skoraði eina markið. Var þetta annað tap Skallanna í mótinu en áður töpuðu þeir fyrir KS 4-1 og gerðu jafntefli við Sindra 2-2. Segir Valdimar að þrátt fyrir stórt tap sé Ijóst að endurkoma hinna eldri leikmanna Skallagríms hafi haft góð áhrif á liðið og nú sé bara að stilla saman strengi hinna ungu og eldri fyrir íslandsmót sem hefst eftir u.já.b. mánuð. Skallagrímsmenn leika næst í deildarbikarkeppninni í Laugar- dalnum við Fjölni nk. mánudag. smh Góður árangur ungra Skalla Féllu úr leik gegn íslandsmeisturunum 10. flokkur Skallagríms í körfuknattleik drengja lék um síð- astliðna helgi í undanúrslitum ís- landsmótsins. Skallagrímur mætti þar nýbökuðum bikarmeisturum Njarðvíkur og fór leikurinn fram í Laugardalshöllinni. Njkarðvíkingar byrjuðu af miklum krafti og var staðan orðin 10-2 þeim í vil eftir 7 mínútna leik. Mest munaði um sterkasti leikmaður Skallagríms í vetur, Pavel Ermolinskij.s náði sér ekki á strik enda var hann passað- ur mjög stíft af varnarmönnum Njarðvíkur. Njarðvíkurpiltar juku forskotið í 17 stig áður en Borg- nesingar hresstust og náðu að minnka muninn í 12 stig fyrir hálf- leik. Skallagrímur hóf síðari hálf- leikinn á allt öðrum nótum en þann fyrri. Stressið virtist horfið úr leik liðsins og þeir skoruðu 10 stig gegn 2 á upphafsmínútunum og minnkuðu muninn í 4 stig. Nær komust þeir hins vegar ekki þv( Njarðvík hélt uppteknum hætti eft- ir það og hafði nokkuð þægilegt forskot til leiksloka og sigraði 74- 56. Þess má geta að allir leikmenn Skallagríms fengu að spreyta sig í leiknum og það sem meira er þeir skoruðu allir. Njarðvíkingar urðu svo íslandsmeistarar daginn eftir er þeir sigruðu Þór í úrslitaleiknum. Árangur Skallagrímsstrákanna í vetur er hins vegar mjög góður. Þeir hófu leik í B-riðli íslandsmóts- ins, unnu sig fljótlega upp í A riðil- inn og komust í undanúrslit. Auk þess komust þeir í undanúrslit í bikarkeppninni þar sem þeir lágu einnig fyrir Njarðvíkingum. Má Ijóst vera að þjálfarinn, Pálmi Sæv- arsson er að gera góða hluti með þetta lið og vonandi þeir gera enn " betur næsta vetur. Að spila meðal þeirra bestu í Laugardalshöllinni er mikil og góð reynsla fyrir strákana sem þeir eiga eftir að búa lengi að. Stig Skallagríms í leiknum: Pa- vel Ermolinskij 14, Svanberg Rún- arsson 7, Adolf Hannesson 7, Gísli Arnarsson 7, Bjarni Kristmarsson 6, Brynjar Berg Guðmundsson 5, Árni Gunnarsson 5, Heiðar Hans- son 2, Hörður Unnsteinsson 2 fí.G Staðan í deildarbikar- keppni KSÍ Efri deild karla A riðill Félag Leik U J T Stig 1 FH 5 4 0 1 12:4 12 2 Fylkir 6 4 0 2 14:7 12 3 ÍA 7 4 0 3 13:10 12 4 KR 6 3 0 3 13:8 9 5 Breiðablik 5 3 0 2 10:6 9 6 Stjarnan 6 3 0 3 9:14 9 7 ÞórA. 6 1 1 4 6:13 4 8 Víking. R. 7 1 1 5 7:22 4 Borgarbraut 61 310 Borgarnes Sími: 437-1700 Fax: 437-1017 lögg. fasteigna- og skipasali Nýtt á söluskrá Arnarklettur 14, Borgarnesi Raðhús 112 ferm. Forstofa flísalögð, skápur. Stofaoghol parketlagt, þijú dúklögð herb., skápar. Eldhús dúklagt, viðarinnr. Baðherb. dúklagt, kerlaug/sturta. Geymsla og þvottahús dúklagt. Verð: 11.000.000 Borgarbraut 52, Borgarnesi - Hlíðartún Einbýhshús, hæð og ris, 154 ferm. Á neðri hæð er flísalögð forstofa, stofa og borðstofa teppalagðar, eitt herbergi teppalagt. Eldhús parketlagt, ljós viðarinnr. Baðherb. parketlagt, flísar á veggjxnn. Þvottahús. Stigi er teppalagður. I risi eru þijú herb. teppalögð og geymslur undir súð. Verð: 11.500.000. Borgarbraut 49, Borgarnesi - Múlakot Skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum, samtals 140 ferm. Húsið byggt 1922 en hefur verið mikið endumýjað m.a. klætt að utan og byggt við það 1996. Húsið er í góðu ástandi. Verð: 9.000.000 Egilsgata 6, Borgarnesi Hús á 2 hæðum, á neðri hæð hefur verið rekin verslun, samtals um 180 ferm. Á efri hæð er eldhús, samliggjandi stofiir og herbergi. Húsið þarfnast endumýjunar úti sem inni. Verð: 6.000.000 Fálkaklettur 7, Borgarnesi Einbýlishús með innb. bflgeymslu, samtals 200 ferm. Forstofa flísalögð, hol parketlagt, stofa teppalögð, eldhús parketlagt, viðarinnr. Baðherb. dúklagt, ljós innr., kerlaup/sturta. Fimm herb., eitt parketlagt, íjögur dúklögð. Búr. A neðri hæð er stór geymsla og bflgeymsla. Verð: 14.500.000

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.