Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2002, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 18.09.2002, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 SIfiÉSS*ili©BS3 Hitaveitu- framkvaemd- ir í Flókadal Á næstu dögum er fyrirhugað að hefja framkvæmdir við hita- veitu í Flókadal í Borgarfirði. Það eru ábúendur á fimm bæjum í dalnum, Geirshlíð, Giljahlíð, Hæl, Hrísum og Brennistöðum sem standa að framkvæmdunum með styrk frá Borgarfjarðarsveit. Að sögn Huldu Sigurðardóttur í Geirshlíð er allt til reiðu að heíja framkvæmdir og núna er beðið eftir bomum til að bora vinnslu- holu en borinn hefúr tafist í öðr- um verkefnum. Borað verður á mörkum Geirshlíðar og Gilja- hlíðar en rannsóknir benda til að þar sé nægt heitt vam að finna. „Við vonumst til að finna nóg vam fyrir þessa fimm bæi í það minnsta. Sérfræðingar frá Orku- stofnun hafá rannsakað svæðið ffá því 1997 og búið er að bora nokkrar tilraunaholur. Það bendir allt til að þetta sé nokkuð gott svæði og þvf erum við bjartsýn á að þessi draumur verði að veru- leika.“ Hulda segir að ef nægt vam finnist í haust verði þá þegar hafist handa við lagningu hitaveitunnar ef tíðarfarið verði hagstætt. GE Vilja atvinnu- ráðgjafa Á síðasta fundi bæjarráðs Akra- ness var samþykkt að beina því er- indi til stjómar Samtaka sveitarfé- laga á Vesturlandi að hluti af at- vinnuráðgjöf SSV verði á Akra- nesi. í ályktuninni segir m.a. „Er óskað eftir því að hálft til heilt stöðugildi verði hluti af mála- flokki atvinnumála bæjarins, en að unnið verði þar að verkefhum á Akranesi og sveitarfélögunum sunnan Skarðsheiðar í samvinnu við starfsemína í Borgamesi eins og t.d. verkefhi vegna úttektar á áhrifum Hvalfjarðarganga o.fl. Erindi þetta er sett fram m.a. til þess að tengja betur starfsemi at- vinnuráðgjafarinnar við Akranes og til þess að auka hlutdeild Akra- ness og svæðisins sunnan Skarðs- heiðar í verkefnum atvinntiráð- gjafarinnar. I Ijósi framlaga sveit- arfélaganna og þeirra verkefha sem unnin hafa verið á liðnum árum er eðlilegt að leitast við með þessum hætti að tryggja öfluga starfsemi í þessu efni á Akranesi og í nágrenni." GE Skúr við gæsluvöll á Akranesi brann tál kaldra kola -grunur leikur á um íkveikju Rétt fyrir hálfimm í nótt barst slökkviliðinu á Akranesi tilkynning um eld í skúr við gæsluvöllin sem stendur við Háholt. Skúrinn sem var mannlaus stóð í björtu báli þeg- ar að var komið en vel gekk að ráða niðurlögum eldsins og var slökkvi- starfi lokið um klukkustund síðar. Skúrinn hýsti leiktæki fyrir gæslu- völlinn og brannu þau öll til kaldra kola með skúmum. Suðurhlið húss- ins á gæsluvellinum skemmdist einnig töluvert. Nágranni í nærliggjandi húsi fann reykjarlykt um kvöldmatar- leytið í gær en gat hinsvegar ekki greint hvaðan lyktin kom og gerði því lögreglu ekki viðvart. Að öllum líkindum hafa glæður leynst í skúrnum frá þeim tíma þar til að eldurinn blossaði upp nokkrum að ræða þar sem að ekkert rafmagn klukkutímum síðar. Að sögn lög- var í skúrnum. Lögreglan óskar eft- reglunnar á Akranesi era eldsupp- ir upplýsingum frá öllum þeim sem tök ókunn en engu að síður þykir hugsanlega hafa einhverja vitneskju liggja ljóst fyrir að um íkveikju sé um málið. HH Skiílslæti og skemmdarverk í miðbæ Akraness Aðfaranótt þriðjudagsins 10. sept- ember sl. var töluvert um ólæti og skemmdarverk unnin á eignum í miðbæ Akraness og í næsta nágrenni við skemmtistaðinn Cafe Mörk. Töluverður fjöldi fólks var að gera sér glaðan dag á Cafe Mörk af tilefhi Islandsmeistaratitils 2.flokks IA sem þeir tryggðu sér fyrr um kvöldið. Eftir að staðnum lokaði kl.l safhað- ist hópurinn saman fyrir utan stað- irm og fór mikinn. Umferðarskilti sem sett höfðu verið á götuna vegna ffamkvæmda vora notuð til að vinna skemmdir á handriði við kirkjtma sem sér töluvert á. Nálægur íbúi hringdi á lögregluna þegar hér var komið vegna ólátanna og kom hún á staðinn skömmu síðar. Lögreglan stillti til friðar um tíma en fljótlega effir að hún fór mögnuðust ólætin upp á nýjan leik. Áðurnefnd umferðarskilti vora numin á brott auk þess sem lítil grafa sem staðsett var á Akratorgi vegna framkvæmda þar svalaði skemmdarfýsn óprúttinna aðila en tvær rúður vora brotnar í gröfunni. Indriði Valdimarsson, skrifstofu- stjóri hjá Akraneskirkju, sagði í sam- tali við Skessuhom að skemmdar- verkin hafi ekki verið kærð til lög- reglunnar heldur yrði reynt að leita til þeirra ábyrgu varðandi greiðslu á lagfæringunum. Indriði sagði einnig að aðkoman daginn eftir hafi verið skelfileg. „I garðinum í kringum kirkjuna og safnaðarheimilið lágu bjór og vínflöskur á víð og dreif sem við þurftum að hreinsa upp í snatri því jarðarför var áætluð seinna um daginn. Síðan höfðu götumerkin greinilega verið notuð til að berja á kirkjutröppunum og handriðinu þar við.“ Indriði sagði, effir að hafa rætt við nokkra sjónarvotta að hann vissi til þess nokkrir leikmenn 2.flokks IA séu ábyrgir fyrir skemmdunum. „- Þetta mál er allt hið leiðinlegasta ekki síst í ljósi þess að þessir knatt- spyrnudrengir eiga að vera fyrir- mynd annara unglinga hér í bæ.“ Við fleiri að sakast Helgi Þorsteinsson er eigandi vélaleigunnar Þróttar og er rúðu- brotna grafan í hans eigu. Helgi sagði að atvikið hafi strax verið kært til lögreglu og liggur nú nokkuð ljóst fyrir hver hinn seki er. Helgi vildi ekki segja hver væri valdur að skemmdunum en staðfesti hinsvegar að hann tengdist knattspymufélagi ÍA ekki. Á spallsvæði vefe Akraneskaup- staðar kvartar einn íbúi í miðbæ Akraness undan hávaða leikmanna 2.flokks og „að hlutum [skuli] hent utan í íbúðarhús, engin virðing bor- in fyrir því að héma býr fólk.“ í kjölfarið kom skeyti frá „stjórn 2.flokks“ sem líkast til era leikmenn flokksins, á síðuna og segir þar að leikmenn í öðram flokki karla vilji koma á ffamfæri afsökunarbeiðni til allra þeirra er urðu fyrir ónæði af þeirra hálfú umrædda nótt. Enn- fremur segir í skeytinu að þar sem að þeir hafi ekki verið einir um að vera að skemmta sér þessa nótt þá sé við fleiri að sakast í þessu máli. Gunnar Sigurðsson, formaður rekstrarfélags mfl. og 2.flokks karla, sagði að stjóm KIA hyggðist ekki beita sér í þessu máli þar sem að drengirnir hafi ekki verið á vegum klúbbsins og þar með snerti það knattspymufélagið ekki beint. HJH ^eilt um launahækkun bæjarstjóra Odrengileg umræða segir formaður bæjarráðs Kóngasvarmi í Borgamesi Snorri Már Lárusson með Kóngasvarmann sem sést betur á innfelldu myndinni. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði gegn nýjum ráðn- ingarsamningi við Gísla Gíslason bæjarstjóra þegar hann var tekinn til afgreiðslu á fundi bæjarstjómar fyrir skömmu. I bókun Sjálfstæðismanna segir m.a. „I honum (þ.e. samningn- um) kemur ffarn m.a. að kosmaðar- auki Akraneskaupstaðar vegna hans verður um 40 - 50% ffá byrjun síð- asta kjörtímabils. Við bæjarfulltrúar Sjálfetæðisflokksins gemm ekki sam- þykkt þessar hækkanir þar sem við teljum að um óeðlilega miklar hækk- anir sé að ræða og greiðum því at- kvæði á móti samningi þessum." „Það er ódrengilegt að setja þetta ffam með þessum hætti,“ segir Guð- mundur Páll Jónsson formaður bæj- arráðs. „Þeir era sjálfeagt að miða við samninginn eins og hann var í upp- hafi síðasta kjörtímabils. Síðan er búið að gera leiðréttingar á aksturs- þáttum og taka inn ýmsan endur- greiddan kosmað sem bæjarstjóri leggur út fyrir sjálfur. Hækkun á launum bæjarstjóra er ekki nema 6 - 8% ogþví er bókun sjálfetæðismanna mjög villandi. Eg tel að þessi samn- ingur sé hagstæður fyrir bæjarsjóð miðað við það sem gengur og gerist hjá öðrum sveitarfélögum. Það getur ekki gengið þannig gagnvart bæjar- stjóra sem hefur starfað hér lengi og staðið sig vel að hann sé út úr korti miðað við laun bæjarstjóra í sam- bærilegum bæjarfélögum. Nýr samningur er meira í takt við það sem gengur og gerist og því tel ég þessa umræðu sjálfetæðismanna ómaklega,“ segir Guðmundur Páll. GE Þetta myndarlega fiðrildi fannst í garði í Borgamesi um síðustu helgi. Það var Snorri Már Lárasson, 8 ára, sem fann fiðrildið og fangaði það en hann er upprennandi náttúraffæð- ingur. Samkvæmt upplýsingum frá Náttúruffæðistofrmn er fiðrildið af tegundinni Kóngasvarmi sem er út- breidd um sunnanverða Evrópu, Asíu og Ástralíu en lifir ekki í norð- anverðri Evrópu. Fiðrildin berast annað slagið hingað til lands á eigin vængjum með suðlægum vindum en þó er það ekki mjög algengt. GE Smáhýsa- byggð í Garðalundi? Trésmíðjan Akur ehf. hefúr með bréfi til bæjarráðs Akra- ness, dagsettu 2. september sl., sett fram hugmyndir um smá- hýsasvæði í Garðalundi við skógræktina á Akranesi. Að sögn Halldórs Stefánssonar, fram- kvæmdastjóra Akurs, felur hug- myndin í sér að athugaðir verði möguleikar á því að koma upp einskonar sumarhúsabyggð á þessu svæði, sem samanstæði af útleigðum smáhýsum og tjald- stæði. „Við teljum að þetta sé ákjósanlegt svæði til að laða að ferðafólk, enda er þar mjög fal- legt um að litast og stutt í afþr- eyingu eins og á golfvöllinn, á íþróttasvæðið að Jaðarsbökkum og á safnasvæðið að Görðum." Halldór segir að þetta muni fara sinn farveg innan stjórn- sýslu bæjarins en þetta séu ein- ungis framhugmyndir. „Á þessu svæði í Garðalundi er ákveðin skipulagsvinna í gangi á vegum bæjarins og því fannst okkur til- valið að viðra þessar hugmyndir okkar við bæjaryfirvöld nú þó þær séu á algjöra ffumstigi.“ Á fundi bæjarráðs Akraness þann 5. september var málið tekið fyrir og samþykkt að beina því tií atvinnumálanefndar að hún boði fúlltrúa Akurs á fund sinn til ffekari viðræðna. smh Ein ttf sprengjunum semfannst und- ir Melabökkum. Djúp- sprengjur við göngu- leið Laugardaginn 7. september sl. fór hópur á vegum tóm- stunda- og forvarnarnefndar Akraneskaupstaðar í gönguferð undir As- og Melabökkum. Þátttakendur voru á fjórða tug og á nær öllum aldri; þeir yngstu þrír 7 ára . Fljótlega þegar komið var niður á sandinn urðu tveir göngumanna varir við það sem tilsýndar virtist vera lítið ohufat. Annar göngumanna gekk nær fatinu og þar sem það í leik- mannsaugum líktist djúp- sprengju kom hann þar ekki of nálægt en tók ljósmynd af gripn- um og hélt hljóður á braut. Ljósmyndinni var síðan kom- ið til sprengjudeildar Landhelg- isgasslunnar sem lét ganga svæð- ið nokkra síðar og fúndust þá á svæðinu fjórar óvirkar djúp- sprengjur úr sfðari heimsstyrj- öld. (af vefAkraneskaupstaðar)

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.