Skessuhorn - 18.09.2002, Blaðsíða 5
SiiisSaiuiioaíS
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002
5
Þokkalegu laxveiðisumri að ljúka
Þrátt fyrir að byrjunin í vor hafi
ekki lofað sérstaklega góðu þá lítur
út fyrir að laxveiðimenn og veiði-
réttareigendur á Vesturlandi geti
þokkalega við unað nú í lok sum-
ars. Laxveiðitímabilinu er víðast
hvar að ljúka eða lokið nú þegar og
þær tölur sem liggja fyrir sýna að
veiðin er víðast hvar betri en í
fyrra og sumastaðar betri en í lang-
an tíma á undan.
I Norðurá voru lokatölur 2310
laxar sem er hvorki meira né
minna en um þúsund löxum meira
en í fyrra en þá endaði veiðin í
1337 löxum. Veiði er einnig lokið í
Þverá og hún bætir sig einnig á
milli ára og endar í 1453 löxum á
móti 1210 í fyrra. Langá var kom-
in í 1517 laxa síðastliðinn fimmtu-
dag en hún endaði í 1407 löxum á
síðasta ári. Laxá í Leirarsveit er
komin yfir þúsund laxa markið,
stendur í 1030 löxum sem er
hundrað löxum meira en í fyrra.
Laxá í Dölum er komin í 835 laxa
en endaði í 900 í fyrra. Veiðin þar
hefur verið góð að undanförnu og
Þúsund löxum fleira úr Norðurá en í fyrrasumar
ekki ólíklegt að hún endi á svipuðu
róli og síðast. Grímsá var komin í
979 laxa síðastliðinn miðvikudag
en þar veiddust 1005 laxar á síðasta
ári.Straumfjarðaráin endaði í 340
fiskum. Heildarveiði í Flekkudalsá
var 230 laxar og í Krossá um 130.
Bætt við búsvæðum
„Norðuráin kemur sérlega vel út
þrátt fyrir að hafa ekki byrjað sér-
staklega vel, segir Sigurður Már
Einarsson, hjá Veiðimálastofnun í
Borgarnesi. „Am hefur ekki verið
jafn góð í mjög langan tíma en það
byggist meðal annars á að það hafa
verið að bætast við búsvæði inn á
heiðum sem eru farin að skila sér.
Flóka verður einnig mjög góð í
sumar en þar er einnig landnám í
gangi sem ég held að sé að skila
sér. Þá held ég að menn séu mjög
sáttir í Þverá en hún byrjaði mjög
illa en var góð á lokasprettinum.
Þess má geta í sambandi við hana
að í sumar var eingöngu leyfð
fluguveiði í Kjarrá og það hefur
áhrif á veiðitölurnar. Þá hefur
Norðuráin skilaði fleiri löxum á land í sumar en mörg undanfarin ár.
Langáin verið mjög góð og einnig
Dalaárnar flestar. Krossáin er t.d.
vel yfir meðalveiði. Einnig má geta
þess að Straumfjarðaráin kemur
betur út en mörg undanfarin ár.“
Sigurður segir það ekki liggja
fyrir hvort veiði í vestlenskum ám
nær langtímameðaltali í heildina
enda liggja endanlegar tölur ekki
fyrir. Hann segir þó ljóst að
stærstu árnar séu að bæta sig held-
ur á milli ára. GE
Ný aðstaða fyrir fjamámsnemendur á Akranesi
Svöfusalur tekinn í notkun
Síðastliðinn fimmtudag var
formlega tekin í notkun ný aðstaða
fyrir nemendur í fjarnámi á Akra-
nesi að viðstöddum menntamála-
ráðherra. I haust byrjuðu 13 nem-
endur í leikskólakennaranámi við
Háskólann á Akureyri og 2 nem-
endur í íslensku við Háskóla Islands
og hafa þessir nemendur ásamt
öðrum fjamámsnemum nú aðgang
að góðri aðstöðu í Svöfustofu til að
stunda sitt nám. Kostir þess að hafa
slíka aðstöðu á safninu era meðal
annars þeir að þar hafa nemend-
urnir einnig aðgang að öðrum
gögnum og þar er fagfólk í upplýs-
ingaleit.
Akveðið var að nefna kennslu-
stofuna Svöfusal til heiðurs Svöfu
Þórleifsdóttur sem var skólastjóri
við Barnaskólann frá 1919 til 1944
og sömuleiðis skólastjóri Iðnskól-
ans frá upphafi 1937 til 1943.
Svafa var virk í félagsmálum bæði á
vettvangi Kvenfélags Akraness,
Sambands borgfirskra kvenna og
Kvenfélagasambands Islands.
Væntingar standa til að Svöfusal-
ur verði enn til að bæta aðstöðu
þeirra sem vilja búa á Akranesi og
bæta menntun sína. Einnig getur
þessi aðstaða nýst félögum, fyrir-
tækjum og stofhunum til funda- og
námskeiðahalds. Sjúkrahús og
heilsugæslustöð Akraness, Lands-
bankinn og Landmælingar hafa
sýnt þessu verkefni mikilvægan
stuðning. GE/Akranes.is
Samkeppni um framtíðarslápulag í
gamla bænum?
Bæjarráð Borgarbyggðar fjallaði
fyrir skemmstu um framtíðar-
skipulag í Englendingavík og að
Brákarsundsbrú. Ljóst er að gömlu
kaupfélagshúsin í Englendingavík
eru komin að fótum fram og
þarfnast umfangsmikilla endur-
bóta ef þau eiga að standa um ein-
hverja framtíð. Þá liggur fyrir að
Kaupfélag Borgfirðinga hyggst
byggja nýtt húsnæði fyrir bygg-
ingavöraverslun sína í nágrenni
við Olafsvíkurvegamót. Komið
hafa upp hugmyndir um bryggju-
hverfi þar sem timburplan kaupfé-
lagsins er í dag. Bæjarráð hefur í
framhaldi af þeirri umræðu ákveð-
ið að kanna möguleika á að láta
fara fram samkeppni um framtíð-
arskipulag svæðisins.
GE
Sláturhús
uiö Laxá
Slátursala hefst þriðjudaginn
24. september
Vinsamlegast pantið með dags fyrirvara
ísíma 433 8893
Snœfellsbær
-þar sem Jökulinn ber við loft
ÚTBOÐ
Leikskólinn Krílakot
í Ólafsvík
Snæfellsbær óskar eftir tilboðum í stækkun
leikskólans Krílakots í Ólafsvík. Viöbyggingin
verður steinsteypt. Stærð 148,5 m2
Verkið felst í að reisa viðbyggingu við núverandi
leikskóla og skila húsinu fullfrágengnu ásamt
lögnum og innréttingum.
í eldra húsnæði skal saga ofan af steyptum
göflum, skipta út þakklæðningu og ýmsar
breytingar innanhúss.
Helstu magntölur eru:
Gröftur
Fylling
Steypumót
Bendistál
Steinsteypa
500 m3
385 m3
374 m2
4.100 kg
55 m3
| Útboðsgögn verða til afhendingar frá
fimmtudeginum 19. september 2002 á skrifstofu
Snæfellsbæjar, Snæfellsási 2, 360 Hellissandi.
Opnun tilboða verður fimmtudaginn 3.október
2002 kl. 11:00 á sama stað.