Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2002, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 18.09.2002, Blaðsíða 7
áiiisaiaiuMC»i2Kí MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2002 7 Höfðingleg gjöf frá Lionskonum Krakkamir í Grunnskólanum í Olafsvík voru ánægð meS gjöf Lionskvenna í Olaftvík. Fyrir skemmstu færðu konur í Lionsklúbbnum Rán í Olafsvík Grunnskólanum í Olafsvík að gjöf vönduð leiktæki fyrir á aðra millj- ón króna. Um er að ræða þrjú stór leiktæki sem hefur verið komið fyr- ir á skólalóðinni og bekk sem vænt- anlegur er síðar. Umtalsverðar framkvæmdir hafa staðið yfir á skólalóðinni í sumar og hefur meðal annars verið skipt um jarðveg og lagnir á skólalóðinni. Eftir er að helluleggja leiksvæðið næst skólanum og einnig er ædun- in að byggja nýtt anddyri sem snýr að íþróttahúsinu og verður það í framtíðinni aðalinngangurinn í skólann. Leiktækin frá Lionskon- um eru síðan kórónan á verkið. Fram kom við afhendingu leik- tækjanna að fjáröflun vegna verk- efnisins hefur staðið í fimm ár og sagði Sigrún Ólafsdóttir formaður klúbbsins að viðtökur bæjarbúa hefur verið mjög góðar. GE Sigrún Ólafidóttir formaður Lionsklúbbsins Ránfierði Sveini Þór Elinbergssyni gjafabréf við hafhendingu leiktækjanna við hátíðlega athöfn. Myndir: PSJ Norðurál Góð afkoma Norðuráls á fyrstu sex mánuðunum Fjögur hundruð milljóna hagnaður Reksmr Norðuráls skilaði 404 milljóna króna hagnaði fyrstu sex mánuði ársins," samkvæmt ffétta- tilkynningu frá félaginu. Nettó- velta fyrirtæksins var 4,2 milljarðar króna eða 48 milljónir dollara fyrstu sex mánuðina. A sama tíma- bili árið 2001 var velta fyrirtækisins 3,8 milljarðar króna eða 36 millj- ónir dollara. Framleiðsla á áli var 45 þúsund tonn á tímabilinu en árið áður höfðu verið framleidd 30 þúsund tonn. A miðju ári 2002 var eitt ár síðan stækkun úr 60 þúsund tonna ársframleiðslu í 90 þúsund tonn var tekin í notkun. Álverð var 1367 dollarar á tonn fyrstu sex mánuði yfirstandandi árs en var 1550 dollarar á sama tímabili í fyrra. Áætlun gerði ráð fyrir 1500 dollurum á tonnið. I fféttatilkynn- ingunni segir að útlit sé fyrir ffem- ur lágt álverð það sem eftir er árs- ins en verðið er liðlega 1300 dollar- ar á tonn um þessar mundir. Þá segir í tilkynningunni: „Utiit er fyrir áframhaldandi hagnað af rekstri Norðuráls út árið 2002 þrátt fyrir lækkun álverðs. Norðurál áætlar að ffamleiða rúmlega 90.000 tonn á árinu.“ Enn tekist á um Bjarg á Amarstapa Deilur vegna sölu á ríkisjörðinni Bjargi á Amarstapa hafa ekki enn verið útkljáðar. Eins og ffam hefur komið í Skessuhomi gerðu Snæ- fellsbær og Umhverfisráðuneytið með sér samning í tengslum við stofhun Þjóðgarðsins Snæfellsjök- uls um skipti á jörðinni Saxhóli sem er innan þjóðgarðsins og smærri jarða á Arnarstapatorfunni. Var Bjarg þar á meðal. Þau skipti hafa enn ekki verið formlega ffágengin og strandar málið á því að ábúend- ur Bjargs hafa óskað eftir að fá jörð- ina keypta af ríkinu. Hafa ábúend- umir óskað effir meðmælum ffá Snæfellsbæ til að fá forkaupsrétt sinn staðfestan. Meirihluti Snæ- fellsbæjar hefur hinsvegar hafnað því á þeim forsendum að bærinn hafi þegar keypt jörðina. Á síðast fundi bæjarstjómar Snæ- fellsbæjar krafðist minnihlutinn í bæjarstjórn þess að ábúendur Bjargs fengju meðmæli bæjarins til að geta nýtt forkaupsrétt sinn. I bókun minnihlutans segir meðal annars: „ Fyrrverandi og núverandi meirihluti virðist hafa misskilið eða ofmetið sinn rétt varðandi for- kaupsrétt á þessari jörð og einnig staðið í þeirri meiningu að nauð- synlegt væri að allar jarðir innan þjóðgarðs væra ríkiseign og þ.v. ædað að skipta á Saxhóli og m.a. Bjargi. Síðan hefur komið í ljós samkvæmt áliti Jóns Höskuldssonar lögmanns að ábúendur eiga for- kaupsrétt að því gefnu að þeir fái meðmæli ffá bæjarstjóm og einnig hefúr það komið fram að jarðir inn- an þjóðgarðs þurfi ekki endilega að vera í eigu ríkisins." Ásbjörn Óttarsson forseti bæjar- stjómar lét þá bóka að það væri rangt að ágreiningur hefði verið um það í bæjarstjóm á síðasta kjör- tímabili hvort bærinn afsalaði sér jörðinni Sagði hann einnig að engar deil- ur hafi staðið um það innan síðusm bæjarstjómar að allar jarðir innan Þjóðgarðs ætm að vera í eigu ríkis- ins. Það hafi alla tíð staðið til að skipt yrði á jörðinni Saxhól og torf- unni á Amarstapa. „Ferillinn í þessu máli á sér mikið lengri að- draganda en ffá síðustu bæjarstjóm og stofhun Þjóðgarðsins, m.a. vegna þess að ríkið hefur alla tíð fengið inn allar leigutekjur af jörð- unum á Arnarstapa en Snæfellsbær hefur borið allan kostnaðinn,“ sagði Ásbjörn. Fyrir liggur að á næsta fundi bæj- arráðs verði gengið frá formlegu svari til ábúenda Bjargs um það hvort umbeðin meðmæli verða veitt eður ei. GE Vel heppnuð körfuboltaferð í Hvalfjörðinn Körfuboltamenn á Akranesi lögðu land undir fót (og bolta) síð- astliðinn laugardag þegar þeir rökm knöttinn fyrir Hvalfjörðinn úr Reykjavík og upp á Skaga. Til- gangurinn var að safha áheitum til að fjármagna félagsstarfið. Að sögn forráðamanna Körfuknattleiksfé- lags IA gekk allt að óskum og hinir fílhrausm og feiknalipru körfu- boltakappar af Skaganum blésu vart úr nös þegar þeir skokkuðu létt í hlað á Jaðarsbökkum. Þar lögðust þeir í bleyti í heita pottinn um stund ■ og söddu síðan hungur sitt með pizzum frá Barbró. Stjórn körfuknattleiksfélagsins vildi koma á framfæri þökkum til fyrirtækja, stofnana og allra bæja- búa fyrir stuðninginn við þetta uppátæki. GE Komnir heim með boltann. I— -i-----j——-— ----------——n---------- ft Dægurlagakeppni UMFR Dreymir þig um frægð og frama? Langar þig að baða þig í sviðsliósinu? Nú er tækifærið Dægurlagakeppni UMFR verður haldin í Logalandi 16. nóvember næstkomandi. Lög þurfa að berast á geisladiski eða hljóðsnældum fyrir 1. nóvember til Sigríðar Jónsdóttur, Ásbrún 8, Bæjarsveit, 311 Borgarnes. Lögum þarf að skila inn undir dulnefni en rétt nafn höfundar dsamt símanúmeri þarf að fylgja með í lokuðu umslagi. Skilyrði fyrir þdtttöku eru að lögin séu frumsamin, með íslenskum í texta og mega ekki hafa verið flutt opinberlega óður. Gríptu nú tækifærið og komdu laginu þínu d framfæri. Ungmennafélag Reykdœla GE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.