Skessuhorn - 25.09.2002, Side 5
^■ktissunui.:
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 2002
5
Ferðir fiska á Vesturlandsmiðum
Síðustu ár hefur Hafrannsókna-
stofnun merkt talsvert af þorski og
skarkola við landið og nú er einnig
hafið átak í merkingum á ufsa, að
sögn Jóns Sólmundssonar hjá
Hafró í Olafsvík. I sumar og fyrra-
sumar voru m.a. merktir um 1000
ufsar í Breiðafirði.
Merkingar geta gefið mikilvægar
upplýsingar um ferðir fiska og hafa
sjómenn því skiljanlega mikinn á-
huga á því að fá upplýsingar sem
þessar.
I töflunni eru merktir fiskar sem
bárust útibúinu í haust. Nokkrir
skarkolar sem merktir voru í Faxa-
flóa sl. vetur veiddust í Breiðafirði
og alls hafa um 20 kolar af þeim
500 sem merktir voru veiðst í
Breiðafirði. Skarkolar úr Faxaflóa-
merkingunni hafa einnig fengist
nærri merkingarstað, en einnig við
Reykjanes og allt austur að Vest-
mannaeyjum.
Tegund Merkingarstaður Túni Veiðistaður Ttmi Bátur
Skarkoli Faxaflói jan 2002 ÚtafRifi ágúst 2002 Esjar SH
Skarkoli Faxaflói jan 2002 11 mílur suður af Bjargi ágúst 2002 Egill
Halldórsson SH
Skarkoli Faxaflói jan 2002 Hafnaleir vestur af Reykjanesi mars 2002 Hamar SH
Skarkoli Flákakantur mars 1998 Hafnaleir vestur af Reykjanesi mars 2002 Hamar SH
Skarkoli Faxaflói jan 2002 Skarðsvík sept 2002 Sveinbjörn
Jakobsson SH Út af Ólafsvík
Þorskur Við Krísuvíkurberg apríl 2002 júní 2002 Egill SH
Þorskur ísafjarðardjúp okt1997 Látrabjargsbleiðan júní 2002 Sóley SH
Þorskur Miðfjörður apríl 2002 vestur af Skagaströnd ágúst 2002 Þeyr SH
Þorskur Út af Ólafsvík júní 2002 Suður Breiðafjörður sept 2002 Ekki vitað
Ufsi Öndverðanes júlí 2001 Flákinn sept 2003 Sóley SH
Jarðaskiptamálið á Snæfellsnesi
Bjargshjónin fá ekki meðmæli
JörSin Bjarg/Pétursbúð á Amarstapatorfunni.
Bæjarráð Snæfellsbæjar hefur
samþykkt að mæla ekki með því að
ábúendurnir á Bjargi/Pétursbúð á
Amarstapa fái forkaupsrétt á jörð-
inni. Bréf þess efnis verður fljótlega
sent lögmanni hjónanna á
Bjargi/Pétursbúð, Jóni Höskulds-
syni hdl.
Sem kunnugt er hafa Snæfellsbær
og Umhverfisráðuneytið gert með
sér samkomulag um skipti á jörðun-
um Saxhól annars vegar, sem er inn-
an þjóðgarðs og í eigu Snæfellsbæj-
ar, og hins vegar ríkisjörðum á svo-
kallaðri Arnarstapatorfu. Eins og
fram hefur komið í Skessuhorni hafa
ábúendurnir fengið meðmæli Jarða-
nefndar en þurfa aukinheldur með-
mæli Snæfellsbæjar til að geta nýtt
sér þann forkaupsrétt sem þau telja
sig eiga. Kristinn Jónasson, bæjar-
stjóri Snæfellsbæjar, segir að málið
eigi sér langan aðdraganda og bréfið
nú til lögmanns ábúendanna á
Bjargi/Pétursbúð sé hluti af eðlilegri
framvindu málsins. „I bréfinu ítrek-
um við fyrri afstöðu okkar um að
veita þeim ekki meðmæli. Þau hafa
þann kost að vísa málinu til land-
búnaðarráðherra til afgreiðslu,“ seg-
ir Kristinn.
Gunnar Om Gunnarsson greiddi
einn atkvæði gegn þessari afgreiðslu
málsins. smh
Kæra Snæfellsbæjar
Urskurðar að vænta
Úrskurðar umhverfisráðuneytis,
vegna kæm Snæfellsbæjar á ákvörð-
un Skipulagsstofnunar um mat-
skyldu á lagningu Úmesvegar nr.
574 um Klifhraun frá Gröf að Arn-
arstapa, er að vænta 3. október nk.
Þetta kemur fram í bréfi Um-
hverfisráðuneytisins til Snæfellsbæj-
ar sem var lagt fram til kynningar á
bæjarráðsfundi þann 19. október sl.
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Snæfellsbæjar, segir að ákvörðun
Skipulagsstofnunar sé kærð á þeim
forsendum að þegar hafi farið fram
úttekt á svæðinu. „Við teljum að
það sé bæði sóun á fjármagni og
tíma að fara í umhverfismat á svæð-
inu þar sem það var tekið ítarlega út
árið 1994 þegar snjóflóðahætta var
þar rannsökuð. Þá var náttúrafar
þar líka tekið út,“ segir Kristinn.
Kristinn segir að uppi séu fjórir
kostir um vegstæði um Klifhraun.
„Við mælum með kosti númer 3
þar sem hann sneiðir hjá skil-
greindum snjóflóðasvæðum (en það
gera kostir 1 og 2 ekki) og fer í
gegnum smærra svæði Klifhrauns
en kostur 4.“
smh
Þátt ekki séu mikil umsvif viö háfnina í Borgamesi samanborið við aðrar hafnir á Vesturlandi þá er hiín aðráttaraflfyrir imga at-
hafmmenn ekki siður en aðrar slíkar. Viktor Jakobsson og félagar voru í efiirlitsferð um hafirarsvæðið þegar blaðamann Skessuhoms
bar að garði í vikunni.
Ný plata firá Orra
í byrjun októbermánaðar er
væntanlegur nýr geisladiskur úr
smiðju Skagamannsins Orra Harð-
arsonar og hefur hún fengið heitið
Tár. Þetta er þriðja sólóskífa Orra
en áður hafa komið út plöturnar
Drög að heimkomu ('93) og Stóri
draumurinn ('95).
Orri sér að langmestu leyti um
hljóðfæraleik á skífunni auk þess
sem hann stjórnar upptökum og
hljóðblandar.
Orri mun fylgja plötunni eftir
með tónleikahaldi og era tónleikar
fyrirhugaðir á Akranesi þann 12.
október. smh
Auglýsing
um deiliskipulag í Leirár-
og Melahreppi
Borgarfjarharsýslu
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér meb lýst eftir
athugasemdum við tillögur ab deiliskipulagi fyrir 11
sumarhús og eitt íbúöarhús í landi Beitistaba, Leirár-
og Melahreppi, Borgarfjarðarsýslu.
Tillagan ásamt byggingar og skipulagsskilmálum liggur
frammi hjá oddvita Leirár- og Melahrepps, Vestri-
Leirárgörbum, frá 26. september til 24. október 2002
á venjulegum skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila fyrir 7. nóvember 2002
og skulu þær vera skriflegar.
| Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests
| teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags og byggingarfulltrúi.
INGI TRYGGVASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
NÝTTÁ SÖLUSKRÁ
HRAFNAKLETTUR 8
fbúð á 3. hæð, 96 ferm. Hol
og gangur flísa- og parketlagt.
Stofa parketlögð. Eldhús
parketlagt, viðarinnr. Þrjú
svefnherb. dúklögð, skápar í
öllum. Baðherb. flísalagt,
kerlaug/sturta, tengi fyrir
þvottavél. Sérgeymsla og sameiginl. hjólageymsla í kjallara.
íbúðin er í mjög góðu ástandi. Sameign snyrtileg. Gott
útsýni.
Verð: kr. 8.000.000
ÞORSTEINSGATA 4
Einbýlishús á 2 hæðum, 103
ferm. og 39 ferm. bflskúr. A
neðri hæð er dúklögð forstofa,
hol flísalagt, stigi parketlagður.
Tvö herb., annað dúklagt,
skápar, hitt parketlagt.
Baðherb. flísalagt. Á efri hæð
er parketlögð stofa, eldhús og geymsla. Góður garður.
Húsið er til afhendingar strax.
Verð: kr. 10.700.000
www.skessuhom. is
Mynd: GE