Skessuhorn - 16.10.2002, Side 7
6
Stefán Jónsson er gestur skráargat-
sins þessa vikuna en hann er nýráðinn
útibússtjóri Búnaðarbankans í Búðar-
dal. Stefán er Flateyringur og fluttist
á Vesturland árið 1998 en hann var
sveitarstjóri í Dalabyggð árið 1998-
2000. „Eg flutti þá frá Haínarfirði þar
sem við höfðum átt heima í 16 ár. Eg
starfaði þar í 12 ár á endurskoðunar-
stofú og var síðan sjálfstætt starfandi
ráðgjafi í nokkur ár, aðallega í tengsl-
um við útgerðir og fiskvinnslu. Eg á
ekki ættir að rekja í Dali en ættir
núnar hggja aðallega úr Hvalfirði
Stefán Jónsson
Kjós og Borgarfirði. Þær tengingar sem ég get helst bent á er að langafi
minn var Jón Sigurðsson hreppstjóri , bóndi í Kalastaðakoti á Hvalfjarðar-
strönd."
Nafit: Stefán Jónsson
Fœðingadagur og ár: 20.01.1951
Starfi Utisbússtjóri Búnaðarbanka Islands hf. í Búðardal.
Fjölskylduhagir: Kvæntur Guðrúnu G.Halldðrsdóttur, frá Hnífsdal og eigum
við tvö böm, Ingu Dóru 21 árs ogjón Gunnar 12 ára.
Hvemig bíl áttu? Toyotu Touring 1989.
Uppáhalds matur: Lambakjöt í brúnni sósu ( beinasteik).
Uppáhalds drykkur: Gin og tónik.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Allt fréttatengt efiii.
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Egill á Skjá 1
Uppáhalds leikari innlendur: Ingvar Sigurðsson
Uppáhalds leikari erlendur: Liam Neeson
Besta bíómyndin: Schindlers List
Uppáhalds íþróttamaður: Guðni Bergsson.
Uppáhalds íþróttafélag: Ungmennafélagið Grettir á Flateyri.
Uppáhalds stjómmálamaður: Einar Oddur
Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjóminni? Hlynntur
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Jakob Magnússon
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Van Morrison
Uppáhalds rithöjundur: Snorri
Hvað meturðu mest ífari annarra? Areiðanleika.
Hvaðfer mest í taugamar áþér ífari annarra? Oáreiðanleiki
Hverþinn helsti kostur? Vilji til að vera áreiðanlegur.
Hver erþinn helsti ókostur? Gleymskan.
Hvemig leggst nýja starfið í þig ? Vel.
Hver er hin hliðin ápeningnum ? Eins báðum megin slétt oggárótt til
skiptis eins og lífið jálft.
Smálúða m/grænmeti
Hrönn Hafliðadóttir er
gestgjafi Matargatsins þessa
vikuna. Hrönn er Skagamönnum
kannski best kunn sem unnusta
knattspyrnuhetjunnar fyrrverandi
Haraldar Hinrikssonar.
Uppskrifrin sem Hrönn ber á
borð fyrir lesendur Skessuhorns
núna segir hún ætíð slá í gegn hjá
þeim hjónaleysum.
Smálúða m/grænmeti
fyrir fjóra
4 flök smálúða
1 rauð paprika
1 gul paprika
1 blaðlaukur
1 rauðlaukur
smjör og nóg af því
kartöflur (eða hrísgrjón)
brokkolí, gulrœtur eða annað
grænmeti
Krydd, Aromat, sítrónupipar,
hvílaukskrydd frá Pottagöldrum
og bara það sem fólki finnst gott
Best er að byrja á að skafa roðið
á smálúðunni, leggja hana síðan í
ofnskúffu og krydda (mikilvægt
að krydda roðið líka)
Þá er grænmetinu raðað
smekklega ofan á til að skreyta.
Eg set svo smjörklípur ofan á
flökin og undir þau líka til að fá
sem mest af smjörfloti. Þetta sett
inn í ofn í 25-35mín á 200°
Ég ber þetta fram með soðnum
kartöflum, brokkolí og gulrótum
sem ég krydda svo með
Herbamare salti
Við höfum yfirleitt enga sósu
með þessu en fyrir þá sem það
vilja er mjög gott að hafa sýrðan
rjóma 10% og setja út í hann
„græsk dressing" frá Knorr, það
passar mjög vel með.
Verði ykkur að góðu
www.skessuhom.is
-H
MIÐVIKUDAGUR16. OKTÓBER 2002 SifigSSliHÖBM snssiiHÖiæi
Angurvær og lágstemmdur Orri
Orri Harðarson aftur fram í sviðsljósið
Skagamaðurinn Orri Harðarson
sendi á dögunum frá sér nýja plötu
sem hefur fengið nafnið Tár. Þetta er
hans fyrsta plata í ein sjö ár og hans
þriðja á ferlinum þrátt fyrir að vera
aðeins rétt tæplega þrítugur.
Þegar að fyrsta plata Orra, Drög
að heimkomu, kom út árið 1993
hafði hann verið viðloðandi tónlist í
mörg ár. Orri hafði þá þegar skapað
sér nafn innan tónlistarheimsins á Is-
landi sem einn af efhilegri tónlistar-
mönnum landans. Það má með sanni
segja að plötu hans hafi verið beðið
með eftirvæntingu þrátt fyrir að Orri
hafi tæpast verið orðinn 21 árs gam-
all en þar með varð hann yngsti tón
listarmaður Islands til að gefa út
sólóplötu með ffumsömdu efni.
Það met hefur reyndar síðar ver-
ið slegið. Drög að heimkomu var
fádæma vel tekið bæði af gagn-
rýnendum sem og öðrum tónlist-
arunnendum. I kjölfar plötunnar
var Orri útnefndur nýliði ársins á
íslensku tónlistarverðlaununum.
Tveimur árum síðar kom svo Stóri
draumurinn út. Sú plata seldist ekki
eins vel en fékk engu að síður betri
dóma hjá poppskríbentum hvað svo
sem það segir um gæði gripsins.
Engu að síður voru flestir sammála
um að laga- og textasmíðar Orra
höfðu tekið stórstigum framförum
frá fyrri plötunni.
Fljótlega eftir útkomu Stóra
draumsins dró Orri sig útúr sviðsljósi
popplífsins enda fann hann fljótlega
að áhugi hans lá á öðrum sviðum.
„Það má eiginlega segja að ég hafi
spilað yfir mig. Ég var að þvælast
einn um allt land spilandi á krám allt
að fjórum til fimm sinnum í viku
þannig að ég keyrði mig hreinlega
út,“ segir Orri. „Það að spila fyrir
drukkið fólk sem vildi ekkert heyra
nema einhverja rútubílaslagara
átti ekki og á ekki enn við mig.
Ég var farinn að drekka mig í
það ástand fyrir hvert kvöld að
ég kæmist hreinlega í gegnum
þessi leiðindi. Þegar að það
dugði ekki til varð ég bara að
hætta þessu.“
Orri segir að það hafi ekki
varið átakalaust að vera orðinn
þjóðþekkt andlit á einni nóttu
eftir útkomu fyrstu plötu sinnar
Drög að heimkomu. Eins og
vanalega þykir fólki eftirsóknarvert
að vera í kringum þá sem eru þekktir
í þjóðfélaginu. Hinsvegar þegar að
Orri dró sig útúr hringiðunni fljót-
lega eftir útkomu Stóra Draumsins,
fóru ýmsir sem sótt höfðu í félags-
skap Orra fljótlega að leita fanga
annars staðar og einhverjir þeirra
lém ekki þar við sitja heldur hófu
að bera út ýmsan óhróður um
Orra. Þær sögur kvisuðust út
að stuttu eftir að Orri flutti til
Danmerkur ‘98 að hann væri
langt leiddur í fíkniefna-
neyslu og væri ekki við-
bjargandi. Aðspurður um
þessar sögur svarar Orri því
til að eina
vímuefnið
sem hann hafi
misnotað sé
áfengi. Þá seg-
ir hann að fólk
sem breiðir út
lygar af þessu
tagi um náung-
ann hljóti að vera
sjálft í miklum
vanda statt; í það
minnsta hljóti það að
lifa afar viðburða-
snauðu og leiðinlegu
lífi.
Lifað á rúg-
brauði
A þessum sjö árum frá
útkomu Stóra draumsins
hefur Orri síður en svo set-
ið auðum höndum. Orri hef-
ur með einum eða öðrum
hætti komið að útgáfu hvorki
fleiri né færri en 26 platna. Allt
frá því að spila á gítar í einu
lagi upp í það að stjóma
upptökum á heilli breið-
skífu. Þá rak Orri í félagi
við danskan vin sinn
hljóðver í Danmörku
um skeið en höfðu lít-
ið upp úr krafsinu þar
sem að Orri leit á
starf sitt sem mikil-
vægt að því leytinu
til að gefa ungum
og fátækum tónlist-
armönnum tæki-
færi á að taka upp
plötur án mikils til-
kostnaðar. Eftir 18
mánaða dvöl þar sem
lifibrauðið var nær ein-
göngu rúgbrauð fékk Orri
nóg og kom heim. Nú um
jólin kemur síðan út þýðing
Orra á sjálfsævisögu knatt-
spymugoðsins George Best.
Orri segir sjálfur að það
hafi verið fjarri huga hans
fyrir ekki svo löngu síðan
að gefa út sína þriðju sóló-
plötu. „Ég hafði aldrei hætt
að semja þó að halda mætti
annað. Engu að síður var
ekki á stefnuskránni að gefa
þau lög sem ég átti til út á plötu. Það
var ekki fyrr en kona úr stjórn Dauf-
blindrafélags Islands hafði samband
við mig og furðaði sig á því að ég
hafði ekki gefið neitt út í langan
tíma. Því næst spurði hún mig hvort
ég væri ekki til í að gera sólóplötu
sem þau myndu kosta og gefa út.
Hagnaðurinn myndi þá renna allur
til þeirra félags. Þetta var of gott til-
boð til hafna því og því sló ég til.“
Sólóplata með stóru S-i
En hvernig er platan Tár?
„Tár er angurvær og lágstemmd
plata eins og reyndar tvær fyrri plöt-
ur mínar hafa verið. Yrkisefnið er
sem fyrr á persónulegum nótum og
að mörgu leyti persónulegri en sú
síðasta þar sem að nú sem ég aftur í
1. persónu á meðan Stóri draumur-
inn fjallaði að mestu um gamlan fé-
laga. Hluta laganna hafði ég þegar
samið áður en ég réðist í gerð plöt-
unnar. Elsta lagið samdi ég þegar ég
var 19 ára en það nýjasta er síðan í á-
gúst á þessu ári. Það má eiginlega
segja að þetta sé svona „best of‘ af ó-
útgefnu efni síðustu 11 ára. I raun
má samt segja að elsta lagið á plöt-
unni sé að verða 30 ára gamalt, í það
minnsta grunnurinn í því. Þannig er
mál með vexti að sem barn söng ég
mig alltaf í svefn á hverju kvöldi. Eitt
skiptið þegar ég var að fara að sofa
laumaði faðir minn upptökutæki inn
til mín og tók upp þetta söngl í mér.
Þessar upptökur nota ég síðan á plöt-
unni og bæti smá píanói og úr verður
svona lýrísk músík. Andrea Jónsdótt-
ir, útvarpskona á Rás 2, sagði að lag-
ið minnti óneitanlega á Sigurrós,
hvort sem það er rétt eða ekki. Ég á-
kvað að hafa lagið sem aukalag á
plötunni, einskonar leynilag og er
því hvergi minnst á lagið á albúminu
né disknum sjálfum.“
Ohætt er að segja að plata Orra sé
sólóplata með stóru S-i. Ekki nóg
með að semja öll lög og alla texta,
stjórna upptökum, hljóðblanda og
útsetja, þá spilar hann á öll hljóðfæri
í mörgum laganna. Birgir Baldursson
trommar í fimm lögum en annars sér
Orri sjálfur um að spila á önnur
hljóðfæri s.s. kassagítar, rafgítar,
bassa, píanó og hin ýmsu ásláttar-
hljóðfæri. Að auki fær Orri til sín
tvær óþekktar söngkonur til að að-
stoða sig í tveimur laganna.
Orri segir að sú fjölbreytta vinna
sem hann hefur unnið undanfarin ár
hafi gert honum kleift að vinna plöt-
una svona mikið einn. „Ég hefði ekki
treyst mér í þetta fyrir nokkrum
árum. Ég hef hinsvegar þroskast
mikið sem listamaður og er því mun
betur í stakk búinn að takast á við
svona verkefni. Auknum þroska fylg-
ir einnig meiri sjálfsgagnýni og því
var sú spurning stöðugt að plaga mig
við gerð plötunnar „er þetta nógu
gott hjá mér“. Núna get ég verið viss
um að svarið við þeirri spurningu sé
„já.“
Er Tár þín besta plata?
,Já, ég held ég geti sagt það. Ann-
ars er erfitt að svara þessu svona
stuttu eftir útgáfú plötunnar. Ég tel
að maður þurfi ákveðna fjarlægð frá
verkum sínum til að geta dæmt af
einhverju viti um það. Nær væri að
spyrja mig að þessu eftir nokkur ár.“
En hvar finnst þér platan standa
núna í samanburði við hinar tvær? „
Ég tel hana standast samanburð og
vel það. Þó að ég sjái ekki beinlínis
eftir því hvernig útkoman var á Drög
að heimkomu er samt margt þar sem
ég myndi gera öðruvísi í dag. Platan
var ansi poppuð og mörg lögin voru
á henni af þeirri ástæðu einni að þau
voru talin „útvarpsvæn“, ef svo má að
orði komast. Stóri draumurinn var
framfaraskref þó hún sé ekki galla-
laus frekar en allt annað.“
Orri Harðarson er stigin aftur á
sviðið sem hann gekk svo hljóðlega
útaf fyrir nokkrum árum. Ovíst er að
hann komi með álíka hvelli og hann
gerði fyrir um áratug síðan enda
skiptir það engu máli. Orri segir að
neistinn sé kveiktur á nýjan leik og
frekari plötuútgáfa sé á teikniborð-
inu. Þó er engin hætta á að Orri sé að
fara að hella sér útí einhverja fjölda-
framleiðslu. „Það er engin hætta á
því að frá mér komi plata fyrir hver
jól“, segir Orri Harðarson.
HJH
Gagnvirk umræða um
bækur á netinu
Bókasafn Snæfellsbæjar hefur opn-
að nýja heimasíðu á slóðinni
http://www.snb.is/bokasafn. A síð-
unni er m.a. hægt að fylgjast með
nýjustu bókakaupunum, sögustund-
um og fá upplýsingar um útlánsregl-
ur og opnunartíma. Þá er líka hægt
að taka þátt í gagnvirkri umræðu um
bækur og lesa og senda inn ritdóma.
Það er von bókavarðar að lestrar-
hestar bæjarins nýti sér þennan vett-
vang fyrir skemmtilega umræðu. A
heimasíðunni er líka að finna krakka-
síðu með áhugaverðum krækjum,
ýmsum upplýsingum og umfjöllun-
um um nýjar bækur og myndbönd
safnsins. Höfundur og umsjónar-
maður síðunnar er Elín Una Jóns-
dóttir og er ætlunin að uppfæra hana
reglulega.
Mikil aukning í aðsókn að
safnasvæðinu að Görðum
Mun fleiri gestir
hafa komið á
Byggðasafnið að
Görðum það sem af
er þessu ári heldur
en allt árið 2001. í
lok september höfðu
ríflega 10 þúsund
manns heimsótt
safnasvæðið en í lok
ársins í fyrra höfðu
tæplega 4000 manns
komið. Reiknað er
með að allt að 15
þúsund manns hafi
komið á svæðið í lok ársins. Jón All-
ansson, forstöðumaður Byggðasafns-
ins, sagði í samtali við Skessuhorn að
fyrst og fremst mætti þakka aukinni
aðsókn góðri markaðsetningu og
fjölgun sýninga innan svæðisins.
MIÐVIKUDAGUR 16. OKTÓBER 2002 7
VESTURLANDSSLAGUR
Intersportsdeildin í körfuknattleik
SKALLAGRÍMUR - SNÆFELL
sunnudaginn 20. október kl. 19:15
íþróttamiðstöðinni Borgarnesi
Allir á völlinn - Áfram Skallagrímur
Til leigu nýjar og glæsilegar íbúðir
Eins, tveggja, þriggja, fjögurra og fimm herbergja
Upplýsingar í síma
892 2175