Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2002, Síða 2

Skessuhorn - 18.12.2002, Síða 2
2 MIÐVTKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 Þrek og tár Leikdeild Ungmennafé- lagsins Skallagríms mun hefja æfmgar á leikritinu Þrek og Tár eftir Olaf Hauk Símonarson strax í byrjun næsta árs. Leikstjóri verður Skúli Gautason. GE Bygginga- eftirlit í Skil- mannahreppi Nýverið samþykkti Akra- neskaupstaður að taka við byggingaefdrliti í Skilmanna- hreppi frá og með 1. janúar 2003 til 31. desember2003 en samningurinn framlengist um eitt ár í senn hafi honum ekki verið sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara. I því felst að byggingafull- trúinn á Akranesi eða stað- gengill hans skal í samræmi við byggingalög fara með alla þætti byggingaeftirlits í sveitarfélaginu. Iðnaðarsvæði Norðuráls hf. er þó þar und- anskilið, en um það svæði gilda sérstakar reglur. Meðal verkefna bygginga- fulltrúa á Akranesi er að ann- ast móttöku umsókna um byggingaleyfi, undirbúa fundi bygginganefndar Skilmanna- hrepps, annast nauðsynlegar lögbundnar úttektir, afgreiða og yfirfara teikningar í sam- ræmi við lög, annast samskipti við stofnanir sem að málum koma og framfylgja ákvæðum byggingalaga í hvívetna og samþykktum bygginganefnd- ar. (Af vefnutn akranes.is) Kona skipuð í Slökkvilið Akraness Nýlega voru 5 nýir slökkvi- liðsmenn skipaðir í Slökkvilið Akraness. Þar á meðal er Helga Jónsdóttir, en hún er fyrsta konan sem skipuð er í Slökkvilið Akraness. Um tuttugu umsóknir bárust til slökkviliðsstjórans Jóhannesar Karls Engilbertssonar. Hinir nýju liðsmenn slökkviliðsins eru auk Helgu: Guðmundur Rúnar Hjörleifsson, Berg- steinn Óskar Egilsson, Arni Ingólfsson og Sigurður Þór Elísson. Bæjarstjórinn á Akra- nesi, Gísli Gíslason, ásamt slökkviliðsstjóra, afhentu Helgu skipunarbréf, en Helga er vélsmiður að mennt og hefur unnið m.a. í Sements- verksmiðjunni, Járnblendi- verksmiðjunni, ÍSAL og Skaganum. (Af vefnum akranes.is) Héraðsnefnd Mýrasýsju vinnur mál gegn Héraðnefhd Mýrasýslu fýrir Hæstarétti Otrúleg niðurstaða segir Davíð Pétursson um eignaskipti á Grundartangahöfn Helga Halldórsdóttir Davíö Pétursson I síðustu viku var kveðinn upp í Hæstarétti dómur í máli Héraðsnefndar Borgarfjarðar gegn Héraðsnefnd Mýrasýslu vegna skiptingar á sameign sem er 25% hlutur í Grundar- tangahöfn. Deilt var um hvort komist hefði á samningur um skiptingu eignarhlutans eins og haldið var fram af hinum stefnda. Héraðsnefnd Mýra- sýslu hélt því fram að gerður hefði verið samningur um eignaskiptin árið 1975 í sam- ræmi við höfðatölu og ætti Héraðsnefnd Mýrasýslu 18% en Héraðsnefnd Borgarfjarðar 7%. Héraðsnefnd Borgarfjarð- ar neitaði því að slíkur samn- ingur hefði nokkru sinni verið gerður og gerði kröfu um að hlutnum yrði skipt jafnt á milli eigendanna. A meðan að þetta mál hefur beðið dóms hefur ekki verið hægt að fullmanna stjórn Grundartangahafnar þar sem héraðsnefndirnar hefur greint á um hvor aðilinn ætti rétt á stjórnarmanni. Héraðsnefnd Borgarfjarðar skipaði stjórnar- mann að afloknum kosningum á grundvelli meints samkomu- lags þess efnis að nefndirnar skiptust á að eiga stjórnar- manninn á meðan skiptin væru ófrágengin en Héraðsnefnd Mýrasýslu átti sinn fulltrúa í stjórninni á síðasta kjörtíma- bili. Héraðsnefnd Mýrasýslu skipaði einnig stjórnarmann og það á þeim forsendum meðal annars að genginn var dómur í Héraðsdómi Vesturlands Mýramönnum í vil. Héraðs- nefndirnar komu sér ekki sam- an um hvor aðilinn ætti að til- nefna stjórnarmann og var því ákveðið að fresta því þar til dómur væri upp kveðinn í eignaskiptamálinu. Fyrri dómur staðfestur I dómi Hæstaréttar kemur fram að formlegur samningur um skiptingu eignahlutans liggi ekki fyrir en vísað er til oddvitafundar frá 1975 þar sem skiptingin 18% á móti 7% er samþykkt. Þá kemur fram í dómnum að engin athugasemd hafi verið gerð við þessa skipt- ingu á sínum tíma. Þá er einnig tekið fram að hún sé í góðu samræmi við núgildandi sveit- arstjórnarlöggjöf sem geri ráð fyrir að sveitarsjóðir beri ein- falda ábyrgð á fjárhagslegum skuldbindingum byggðasam- lags sem þeir eigi aðild að en að innbyrðis skiptist ábyrgðin í hlutfalli við íbúatölu. Hæstiréttur staðfesti því dóm Héraðdóms og var Hér- aðsnefnd Borgarfjarðar gert að greiða allan málskostnað. Eins og við héldum fram „Þetta er í samræmi við það sem við höfum alla tíð haldið fram varðandi skiptinguna og eins og hún var ákveðin af odd- vitunum á sínum tíma,“ segir Helga Halldórsdóttir formað- ur Héraðsnefndar Mýrasýslu. „Við eigum eftir að fara yfir málið í Héraðsnefndinni en það liggur í hlutarins eðli að við gerum kröfu um stjórnar- manninn.“ Ótrúleg niðurstaða „Við höfðum tvo dómara með okkur en þrjá á móti þannig að þetta var tvísýnt. Á þeim forsenduin tel ég undar- legt að dæma okkur til að borga málskostnað,“ segir Davíð Pétursson formaður Héraðsnefndar Borgarfjarðar. „Mér finnst það fráleitt að dæma Mýramönnum í vil á þeim forsendum að ekki hafi verið gerð athugasemd við meinta skiptingu. Það er ekki til fundargerð frá umræddum oddvitafundi en það hefur komið fram að á þann fund hafi aðeins mætt fjórir oddvitar, all- ir úr Mýrasýslu. Þeir ættu nátt- úrulega ekki að hafa verið í vandræðum með að komast að samkomulagi án Borgfirðing- anna. Þá hefur hvergi fundist stafur um að þessi gjörningur hafi verið samþykktur í við- komandi hreppsnefndum. Ef enginn hefur vitað af þessu nema kannski örfáir oddvitar þá voru ekki margir sem höfðu möguleika á að mótmæla. Það þýðir svo sem ekki að deila við dómarann en mér finnst þetta ótrúleg niðurstaða að láta samning gilda sem aldrei hefur verið gerður, svo sannað sé,“ segir Davíð. GE Aðflutt atvinnuleysi í Borgarbyggð Um síðustu mánaðarmót voru um fimmtíu manns á at- vinnuleysisskrá í Borgarbyggð að sögn Sveins Hálfdánarson- ar formanns Verkalýðsfélags Borgarness en það er gífurleg aukning á milli ára. I október á síðasta ári voru sjö manns á atvinnuleysisskrá. Það sem vekur hinsvegar mesta athygli er að 60% þeirra sem eru at- vinnulausir eru nýfluttir í sveitarfélagið. „Eitthvað af fólkinu fylgir með nemendum á Bifröst og er það hluti skýr- ingarinnar. Síðan virðist vera að þegar atvinnuleysið eykst í Reykjavík þá eykst það einnig hér með þessum hætti. Það hefur verið tilhneyging í þá átt að atvinnulausir flytji til Reykjavíkur á þeim forsend- um að þar sé helst vinnu að hafa en nú virðist þessi þróun vera að snúast við og nú eru atvinnulausir í Reykjavík að flytja . á staðina í kringum borgina, Borgames, Akranes og Suðurnesin. Hér er húsa- leigan lægri og vöruverð sam- bærilegt. Þá er ýmiss þjónusta ódýrari og síst minni. Þá era vegalengdirnar ekki eins miklar. Atvinnuleysisbæmrnar eru einnig þær sömu þannig að það stendur meira eftir hér en fyrir sunnan.“ Sveinn segir að fátt bendi til þess í dag að atvinnuleysið sé aftur á undanhaldi. Hvað varðar „aðflutta atvinnuleys- ið“ ef svo má kalla þá segir hann að vissulega sé það nei- kvætt að svo mikil Ijölgun sé á atvinnuleysisskránni. „Það já- kvæða er hinsvegar að hingað er fólk að flytja vegna þess að hér er gott að búa og hag- kvæmt og þetta fólk hlýtur að sjálfsögðu að vera jafh vel- komið og aðrir. Eg vona hins- vegar að atvinnuleysið hverfi, jafht hjá aðfluttum sem inn- fæddum,“ segir Sveinn. GE

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.