Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2002, Blaðsíða 46

Skessuhorn - 18.12.2002, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 „Draumur í dós“ Fótboltastelpur fá frábærar móttökur í söfnunarferð Við fótboltastelpur í Skalla- grími, 13 ára og eldri ætlum að fara í æfingabúðir erlendis næsta sumar. Líklega verður farið í knattspyrnuskóla Bobby Charlton á Englandi, en 3. fl. karla hjá Skallagrími fór þangað í vel heppnaða ferð s.l. sumar. Slík draumaferð er kostnaðarsöm fyrir okkur stelpurnar og ætlum við því að vera duglegar að safna aurum með ýmsu móti á næstu mán- uðum til að fjármagna hluta ferðarinnar. I þeim tilgangi dreifðum við upplýsingamiða í hús í Borgarnesi fyrir síðustu helgi þar sem við kynntum „drykkjarumbúða“-söfnunar- átakið okkar, sem við erum nú farnar að kalla „Draumur í dós“. Við vorum svo á ferð- inni s.l. sunnudag og gengum í hús í Borgarnesi og söfnuð- um dósum og flöskum. Feng- um við ffábærarar móttökur og góðan stuðning. Margir höfðu tekið til fyrir okkur dós- ir og flöskur í poka og biðu greinilega eftir komu okkar og fundum við fyrir miklum vel- vilja í okkar garð. Við sjáum líka um að tæma dósakistu Skallagríms á Hyrnuplani og viljum við benda Borgfirðingum á að nýta sér þann uppbyggilega losunarmáta, en ágóði af dósakistunni rennur í okkar ferðasjóð. Fyrsta sunnudag í hverjum mánuði ætlum við svo ganga í hús í Borgarnesi til að safna og vonumst við til þess að vel verði tekið á móti okkur, og að sem flestir styðji okkur því margt smátt gerir eitt stórt! Næst verðum við á ferðinni sunnudaginn 5. janúar 2003, sjáumst vonandi þá, bestu kveðjur og þakkir fyrir ffábær- ar móttökur, Anna María, Aðalheiður, Alfheiður, Elva P., Guðnin Osk, Guðrún Selma, Gunnfríður, Sigga Dóra °g Sigrtín Sj'ófn. Heiður Höm Hjartardóttir í fóndurhominu á Bjargi. Jólahom á Bjargi Hjá ferðþjónustunni á Bjargi við Borgarnes hefur verið kom- ið upp sérstöku jólahorni þar sem ýmiss konar handverk er til sýnis og sölu ffam að jólum. Bjarg er gamall bóndabær í út- jaðri Borgarness, en þar hafa gömul útihús verið innréttuð sem gistihús með rúmum fyrir 14 manns. A meðan sýningin stendur yfir verður gistiaðstað- an til sýnis. Jólahornið er opið frá kl. 15.00 til 21.00 alla daga til jóla. Tónlistarskólinn í Ólafsvík héltfyrri tónleika sína sl. niánudagskvöld og þar kom m.a. fram bamakár Olafvíkur undir stjóm Vdlentinu Kai og sungu þar nokkur jólalög við góðar undirtektir gesta. A tónleikum Tónlistarskólans í Ólafsvík sl. mánudagskvóld komfyam hjómsveitin 4 you, en hún er eingóngu skipuð 14 ára stúlkum en það eru þœr Valgerður Kristmannsdóttir á trommur, Tinna Aradóttir á rafmagnsorgel, Gýgja Jónsdótt- ir og Guðrún Guðmundsdóttir báðar á gítar. Vonandi verður framhald á þessum leik stúlknanna og kannski eru komn- arfratn nýjar „g>ýlur“. PSJ Frá jólahugvekju í Breiðabólstaðarkirkju Mynd: Lárus Jólahugvekja í Breiðabólsstaðar- kirkju á Skógarströnd Annan sunnudag í aðventu hélt séra Gunnar Eiríkur Hauksson jólahugvekju í kirkj- unni á Breiðabólsstað á Skóg- arströnd, en söngkórinn Vor- boðinn í Búðardal söng 10 jólalög. Halldór Þórðarson söngstjóri lék á orgel. Var það mál manna að vel hefði til tekist og ánægjulegt að undirbúa komu frelsarans með þessum hætti. Söngkórinn Vorboðinn er blandaður kór og telur 24 kórfélaga, þ.á.m. Jóel H. Jónasson á Bíldhóli nýkjörinn sóknarnefndarmann kirkjunnar á Breiðarbólsstað. Er vonast til að þetta verði ár- legur viðburður í vestasta hluta Dalabyggðar enda var kirkjan nær fullsetin með 55 kirkju- gesti við þetta tækifæri.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.