Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2002, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 18.12.2002, Blaðsíða 5
 MIÐVTKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 5 Aldraður Skagamaður í gangahlaupi í Færeyjum Þorsteinn Þorvaldsson hljóp með færeyingum í gegn um „Vágagöng“ Þorsteinn í miðju gangahlaupinu. Þorsteinn Þorvaldsson 78 ára gamall Skagamaður fór til Fær- eyja í byrjun desember í óvenjulegum tilgangi, nefnilega til að hlaupa í gegnum ný göng milli Vogeyjar og Strauineyjar en það eru íyrstu göngin undir sjó í Færeyjum þrátt íyrir frændur okkar Færeyjar hafi sprengt sig í gegnum annan hvorn klett á eyjunum. I tilefni af vígslu ganganna var efnt til gangahlaups að ak- urneskri fyrimiynd en slíkt hlaup fór frarn daginn sem Hvalfjarðargöngin voru vígð á sínum tíma. Þorsteinn tók einnig þátt í því og ekki laust við að hann fengi fiðring í fæt- urnar þegar hann frétti af Fær- eyjahlaupinu. „Eg var einhvern tímann búinn að segja að mað- ur hlypi víst ekki þar þegar ég I viðtali við færeyska sjdnvarpið frétti af þessu hlaupi. Eg átti heldur alls ekki von á því að það yrði, en síðan koma Hannes sonur minn og Þórdís tengda- dóttir mín með jólagjöf til mín löngu fyrir jól og það var far- seðill til Færeyja sem gilti helg- ina sem hlaupið átti að vera. Þetta var því sannarlega óvissu- ferð og frábær upplifun enda hafði ég ekki komið til Færeyja fyrr. Þegar ég kom til Færeyja tók á móti mér maður úr ferða- málabransanum sem Þórdís þekkir og hann tók mig að sér á meðan ég stoppaði. Hann fór meðal annars nteð mig að skoða golfvöllinn sem Hannes hefur hannað fyrir Færeyinga og sýndi mér Eyjarnar,“ segir Þor- steinn. Skokkaði létt Um 2500 manns tóku þátt í gangahlaupinu og var Þor- steinn eini Islendingurinn. Hann skartaði bol úr Hval- íjarðargangahlaupinu og vakti inikla athygli. „Eg hitti þarna nokkra sem höfðu hlaupið á Is- landi og mönnum fannst þetta voða skrítið og skemmtilegt að sjá þennan gamla karl kominn frá Islandi til að hlaupa með þeim. Eg lenti ineðal annars í viðtali í sjónvarpi og dagblöð- um og þetta var allt mjög skemmtilegt enda var stemmn- ingin mjög góð,“ segir Þor- steinn. Þorsteinn segir það líka hafa verið mjög áhugavert að sjá göngin og hann dáðist að því hvað bergið var hreint og gott. „Það var virkilega gaman að fá þetta tækifæri en ég var ekkert að flýta mér, skokkaði þetta svona á rúmum hálftíma.“ Þess má geta að göngin eru um fimm kílómetrar og þætti ein- hverjum yngri manni þessi tími ekki alslæmur. Áhugamál í ellinni Margir finna sér eitthvað til að dunda við í ellinni, þegar þeir hverfa af vinnumarkaðn- um, svo sem söfnun hverskonar, bókband eða ýmiss konar hand- verk. Þorsteinn fór hinsvegar ó- venjulega leið og byrjaði að hlaupa þegar hann hætti að vinna. „Eg komst á bragðið í slökkviliðinu þegar boðið var upp á eróbik fyrir okkur þar. Það kveikti í mér og þegar ég hætti að vinna fór ég að hreyfa mig fyrir alvöru. Eg reyni að hreyfa mig eitthvað annan hvorn dag. Annað hvort hleyp ég, hjóla í kringum Akrafjallið eða geng á Háhnjúk. Síðan er ég náttúrulega búinn að vera í golfinu í rúm þrjátíu ár. Það voru töluverðar úrtölur þegar ég byrjaði á þessu og mitt fólk hélt að ég myndi drepa mig á þessu. Eg sagði þeim að ég myndi bara hlaupa inn í eilífð- ina en ég hef aldrei verið hress- ari. Það mættu fleiri taka þetta upp enda er þetta ekki mikið mál, þetta er bara eins og hver önnur vinna en ánægjan gerir þetta erfiðisins virði,“ segir þessi aldraði hlaupagikkur sent bíður núna eftir næsta tækifæri til að hlaupa undir sjó.“ GE Tölvuteikning af nýja miðbœjan-citnum eins og lagt er til að hann líti út í Framtíðinni. Hugmyndir að Mið- bæjarreit kynntar Síðastliðinn miðvikudag kynnti vinnuhópur, sem starfar með Herði Jónssyni bygginga- meistara, hugmyndir að mann- virkjum og skipulagi Miðbæjar- reitsins (Skagaverstún). A kynningarfundinn mættu um 70 manns. Tillögur hópsins gera ráð fyrir að á svæðinu verði reistar tvær íbúðarblokk- ir alls með 80 íbúðum og 7000 ferm. verslunarmiðstöð. Alls eru mannvirki á svæðinu um 19000 ferin. en lóð 12000 ferm. Þessar tillögur verða lagðar fyrir Bygginga- og skipulags- nefhd á næstu dögum. Ef til- lögurnar verða samþykktar, af hálfu bæjaryfirvalda, munu framkvæmdir á svæðinu hefjast í vor að sögn Björns S. Lárus- sonar talsmanns undirbúnings- hópsins. GE Borgarhyggð og Borgarfjarðarsveit í eina sæng? Sameiningar- viðræður á næsta ári Sveinbjöm Eyjólfsson Nýtt framboð, sem var sjálf- kjörinn listi í sveitarstjórnar- kosningunum í Borgarfjarðar- sveit síðastliðið vor hafði það á stefnuskrá sinni að kanna mögu- leika á sameiningu sveitarfélag- anna í Borgarfjarðar og Mýra- sýslu. Þeim málum hefur ekki verið hreyft enn og segir Svein- björn Eyjólfsson oddviti Borg- arfjarðarsveitar að menn hafi viljað bíða eftir að kosningarnar í Borgarbyggð væru frá. Hann sagði að málið myndi bíða næsta árs en þá yrði það væntanlega tekið upp af alvöru. „Við höfum hvergi hvikað frá því sem við sögðum í vor að við viljum kanna möguleikana á samein- ingu við Borgarbyggð og önnur sveitarfélög í héraðinu. Fyrst ætlum við að ljúka gerð okkar fyrstu fjárhagsáædunar og öðlast meiri og betri skilning á rekstri okkar sveitarfélags. Við erum öll ný í hreppsneihd og rekurn okk- ur á það að um leið og við þykj- umst hafa lært eitt atriði varð- andi rekstur sveitarfélagsins rek- umst við á tvö önnur sem okkur vantar skýringu á. Rekstur sveit- arfélaga í dag er orðinn ótrúlegt kraðak og það eitt og sér kallar á stærri einingar. Við höfum verið að fara yfir samstarfssamning á milli Akra- ness og Borgarbyggðar, en þessi sveitarfélög bjóða okkur og öðr- um sveitarfélögum hér fulla að- ild að. Við tökum því fagnandi og munum koma að því sam- starfi eftir föngum. Það er útaf fyrir sig liður í að stækka eining- arnar en ekki nóg að mínu mati,“ segir Sveinbjöm. Sveinbjörn segir að ekki sé komið neitt tímaplan á umræð- ur en allar líkur séu á að þær hefjist á næsta ári. „Menn munu væntanlega gefa sér góðan tíma þegar að því kemur og gera þetta vel. Það er vitað að hér og örugglega hinum megin líka er einhver kvíði þannig að það verður ekki flanað að neinu,“ segir Sveinbjörn. GE

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.