Skessuhorn


Skessuhorn - 18.12.2002, Page 24

Skessuhorn - 18.12.2002, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002 jn±,33Utlu... Landbúnaðarprófessor, sögngrúskari, safitiari, gítarleikari, söngvari lagahöfundur og teiknari Viðurkenni að ég er gamaldags í hugsun segir þúsundþjalasmiðurinn Bjarni Guðmundsson prófessor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri Velflestir Borgfirðingar og margir Vestlendingar aðrir og þótt víðar væri leitað hafa haft einhver kynni af Bjarna Guð- mundssyni, prófessor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Þeir sem stundað hafa nám á Hvanneyri við Bændaskólann og síðar Land- búnaðarháskólann eða hafa sótt þangað einhver námskeið þekkja hann sem kennara og rannsóknarmann. Þeir sem heimsótt hafa búvélasafnið á Hvanneyri hafa margir séð Bjarna þar sem ástríðufullan safnara og einn þann fróðasta um forna búskaparhætti og tæknivæðingu í íslenskum landbúnaði. Aðrir kunna að hafa séð hann í Reykholti þar sem hann hefur verið í forsvari fyrir Snorrastofu sem stjórnar- formaður þeirrar stofnunar. Einnig hafa fjölmargir barið manninn augum þar sem hann hefur komið fram við hin og þessi tækifæri sem skemmti- kraftur, hvort sem það hefur verið veislustjórn, söngur, þá hann einn eða í stærri hópum, við gítarslátt eða sem sagna- maður. Síðast en ekki síst hafa margir séð eftir hann teikning- ar sem gjarnan hafa birst með texta sem hann hefur sett á blað af ýmsum ástæðum. Þótt þarna gætu verið á ferð- inni margir ólíkir einstaklingar, allt hæfileikamenn, þá er þetta einn og sami maðurinn en það býsna fjölhæfur svo ekki sé fastara að orði kveðið. Því flaug blaðamanni Skessuhorns í hug að reyna að gefa lesend- um einhverskonar heildar- mynd af þessum manni sem birtist mönnum svo gjarnan í hinum ólíkustu hlutverkum. Sjónvarpið til ama Þegar blaðamaður hafði fyrst samband við Bjarna, vegna hugsanlegs viðtals, kvaðst hann vera hálf fastur undir sófa í stofu sinni hvar hann var að aðstoða annan þúsundþjala- smið, Eyjólf Hjálmsson frá Þingnesi. „Eg er búinn að humma það fram af mér árum saman að koma einhverju lagi á sjónvarpsmálin á heimilinu og lét loksins undan miklum þrýstingi og fékk Eyjólf til að koma á þetta einhverri mynd. Það er akkúrat að takast núna, öðrum heimilismönnum til ó- mældrar ánægju en mér til hálfgerðrar armæðu. Það má segja að þetta hafi eiginlega verið mátulega mikið bras því við sem þekkjum Eyjólf, snill- inginn þann, vitum að honum líkar frekar illa ef hlutirnir eru of einfaldir. Það sem helst er hægt að gera til að gleðja þann mann er að færa honum vanda- mál sem virðast óleysanleg en þetta slapp sum sé fyrir horn í þetta sinn,“ segir Bjarni. Þessi takmarkaði áhugi Bjarna á móttökuskilyrðum sjónvarpsins lýsa í raun þeim andstæðum sem einkenna þennan mann því hans aðal- starf felst í því að uppfræða verðandi bændur um nýjustu tækni og vísindi í landbúnaði og ýmislegt sem nýtast má þeim sem best í starfi í nútíð og framtíð. Ahugamálin snúa hinsvegar að miklu leyti að fjarlægri fortíð. Þessu forspjalli líkur hinsvegar á því að Bjarni biður um að viðtalið snúist ekki upp í algjöra forneskju svo hann líti ekki út fyrir að vera mörg hundruð árum á eftir sinni samtíð. Fánýti menntunarinnar Þegar blaðamaður mætir síð- an á staðinn daginn eftir þá er öllum sjónvarpsviðgerðum lok- ið og Bjarni bíður upp á kaffi og árgang 2002 af jólasmákök- um. Bjarni er fæddur á Kirkjubóli í Dýrafirði, árið 1943, sonur hjónanna Asdísar Bjarnadóttur og Guðmundar Jónssonar. Kona Bjarna er Ásdís B. Geirdal og eiga þau þrjár dætur: Asdísi Helgu, lektor við LBH, Þórunni Eddu, nema við LBH og Sólrúnu Höllu leik- skólakennara. „Eftir hefðbundinn barna- skóla lenti ég hjá þeim góða manni sr. Eiríki J. Eiríkssyni í héraðsskólanum í Núpi í Dýra- firði og var þar í eina tvo vetur. Eg kom síðan hingað suður að Hvanneyri þar sem ég tók bú- fræðingspróf og fór síðan í framhaldsdeildina eins og há- skólahlutinn hét þá. Eg kláraði það árið 1965 og stuttu seinna héldum við til Noregs og vor- um þar í tæp fimm ár.“ I Noregi var Bjarni við nám við Landbúnaðarháskólann í Asi og tók bútækni og fóður- verkun sem aðalfög. Bjarna lík- aði vistin meðal frænda okkar Norðmanna allvel og segist hafa búið að henni alla tíð síð- an. „Háskólinn í Ási er meðal bestu skóla sinnar tegundar eða ég held að Norðmönnum þyki það í það minnsta. Þetta er svona eitt risavaxið sveitaþorp og það má kannski segja að Hvanneyri sé nokkurs konar míníútgáfa af Asi. Það var mjög gott að búa þarna, ég lærði helling af þessari dvöl og hafði gaman af. A þessum árum var uppi gríðarleg hagnýtingar- krafa og bútækni og vinnufræði var nokkurs konar poppgrein og því tók ég hana sem annað aðalfag. Það má hinsvegar segja að hluti af náminu hafi orðið úrelt um leið og ég kom heim því breytingar á vinnu- brögðum í fóðurverkun hafa orðið miklar síðan. Það sýnir líka svolítið fánýti hlutanna að þegar ég kom heim þurfti ég að taka víxil og þótt ég hafi lært ótal andstyggðar formúlur úti í Noregi þá kunni ég ekki að fylla út víxilinn. Eg þurfti því sérstaka leiðsögn hjá Friðjóni heitnum sparisjóðsstjóra en eyðilagði áður tvö eða þrjú víx- ilblöð. Eg hef stundum notað þetta sem dæmi um að lang- skólanám er ekki alltaf allt sem þarf. Eg sé hinsvegar ekki eftir þessum tíma og mér finnst námið hafa nýst mér vel. Eg legg hinsvegar ekki minna upp úr að hafa kynnst viðhorfum og menningu Norðmanna en það er það sem situr mest eftir þótt ég hafi gleymt einhverjum kennisetningum. „ Rannóknarmaðurinn Þegar Bjarni og Asdís komu aftur heim til Islands eftir Nor- egsdvölina settust þau að á Hvanneyri, þar sem Bjarni fékk fljótlega kennarastöðu við Bændaskólann sem nú er orðin að prófessorsstöðu við Land- búnaðarháskólann. „Eg hef verið á launaskrá hjá skólanum síðan, utan það að ég var um fimm ára skeið farandverka- maður í Reykjavík, frá 1983 - 1988, en þá var ég aðstoðar- maður hjá Jóni Helgasyni þá- verandi landbúnaðarráðherra. Þegar hann lét af ráðherratign kom ég aftur hingað og tók upp fyrri iðju.“ Hluti af kennarastarfinu á Hvanneyri felst í rannsóknum tengdum landbúnaði og hefur Bjarni lagt drjúgan skerf í þann sjóð. „Það má segja að þetta sé sambland af rannsóknum og leiðbeiningum, en við höfum ekki skilið þetta úr samhengi. Við höfum ekki haft efni á allra fínustu rannsóknum þannig að þetta hefur verið meira það sem við kjósum að kalla hag- nýtar rannsóknir. Framan af snerust mínar rannsóknir mik- ið um nýtingu fóðurefna og fóðurfræði en á seinni árum hef ég lagt meiri áherslu á kostnaðarþáttinn og hagfræði bútækninnar." Sérviska bænda Margir halda því fram að hvergi þrífist meiri sérviska en í bændastétt og að bændur séu ekki hrifnir af öðrum breyting- um en þeim að fjárfesta í nýj- ustu, flottustu og dýrustu tækj- unum burt séð frá þörfinni. „- Þetta kann að eiga við einhver rök að styðjast en ég held að það hafi orðið breyting á allra

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.