Fréttablaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 16
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Skattalækk- un fjármála- ráðherrans er tímabær, sanngjörn og hið besta mál. Það hlýtur að vera öllum þingmönnum kappsmál að fá að segja skoðun sína á varnar- málum með atkvæði sínu. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Íslenskt listalíf er kröftugt á heimsmælikvarða. Fyrir því er engin ein ástæða. Þó er hægt að fullyrða að listamannalaun og umhverfið sem listamönnum er hér skapað hefur meðal ann-ars orðið til þess að íslenskt leikhús er metn-aðarfullt, bókaútgáfa er í blóma, kvikmyndir eru stóriðja og myndlistarlífið í Reykjavík minnir á stórborg. Listamenn á borð við Björk og Ólaf Elíasson eru orðnir að fyrirtækjum, með fjölda fólks í vinnu. Ragnar Kjartansson, einn þekktasti myndlistar- maður samtímans, hefur sagst vera „eingetin afurð listamannalauna“. Stórbrotið listalíf smáþjóðar sýnir svo ekki verður um villst að hér er eitthvað gert rétt. Opinber stuðningur við list hefur verið stefna stjórnvalda um árabil. Endalaust má svo deila um hvernig það skuli gert. Ávinningurinn fyrir íslenskt samfélag er hins vegar ótvíræður. Land án listar væri fátækara samfélag. Listir eru auðlind í breiðari skilningi en þeim sem metinn verður í krónum og aurum. Þó blasir við samspil skapandi greina og ann- arrar atvinnustarfsemi. Galleristar og smiðir nærast á myndlistarmönnum. Hönnuðir, prentarar og bók- salar eiga allt sitt undir rithöfundum. Tónleikahátíðir sem trekkja að ferðamenn væru ekki haldnar án tón- listarmanna sem svo skapa störf fyrir tæknimenn. Þau merku tíðindi urðu svo í vikunni að Alþingi samþykkti tillögu Bjarna Benediktssonar fjármála- ráðherra um að greiðslur til höfunda eða annarra rétthafa hugverks verði skattlagðar sem fjármagns- tekjur í stað launatekna. Á mannamáli þýðir það að tekjur listamanna, vegna til dæmis tónlistarflutnings í útvarpi, upplesturs á ritverkum eða birtingar á myndverkum í bókum, verða skattlagðar eins og aðrar tekjur fólks af eignum sínum. Fjármagnstekju- skattur er 22 prósent. Til samanburðar er launaskatt- ur í lægra þrepi 37 prósent og í efra þrepi 46 prósent. Fyrir málinu hefur lengi verið barist af hálfu þeirra sem í hlut eiga. Þeim hefur þótt ósanngjarnt að hug- verk sé ekki skattlagt eins og tréverk; með öðrum orðum, að hugverkavarið efni sé ekki skattlagt eins og önnur peningaleg verðmæti á borð við fasteignir, fjármuni eða hlutabréf. Sanngjarnara sé að afnot af hugverkum, hvort sem um ræðir bækur, tónlist eða myndlist, sé skattlagt eins og um húsaleigu sé að ræða. Eflaust verður áfram þráttað um hvernig styrkja skuli skapandi greinar. Listamannalaun eru þyrnir í augum sumra. Afrek listamannanna okkar innan og utan landsteinanna sýna hins vegar svo ekki verður um villst að stefna stjórnvalda hefur margborgað sig; bæði í eiginlegum verðmætum og í þeirri lífsfyllingu sem listin veitir okkur. Skattalækkun fjármálaráðherrans er tímabær, sanngjörn og hið besta mál. Hugverk eða tréverk Þau Aura svo á mig Borga Rukka Skipta Sú hugsun læðist oft að undirrituðum að sú staðreynd að aðild að Atlantshafsbandalaginu fylgi skyldur sé ekki öllum kunn. Að sum haldi að með aðildinni sé Ísland bara að merkja sig hvorum megin það vilji standa í alþjóðapólitík; við ætlum að vera með þessum í liði. Svo er ekki. Aðildinni fylgja skyldur og í tilfelli Íslands hafa þær í gegnum tíðina falist í viðveru herliðs og aðstöðu fyrir það. Um þetta er á kveðið í svoköll- uðum varnarsamningi og bókunum og viðaukum við hann. Á Íslandi ríkir þingræði og ríkisstjórnir sækja vald sitt til þingsins. Engu að síður er það stað- reynd að frá því að Alþingi greiddi atkvæði um varnarsamninginn árið 1951 hefur þingið aldrei fengið að greiða atkvæði um neitt sem að viðveru og umfangi herliðs hér kemur. Grundvallarbreyt- ingar á eðli varnarsamningsins hafa ekki einu sinni verið bornar undir atkvæði Alþingis. Eitt af forgangsmálum Vinstri grænna á komandi þingi verður tillaga mín um breytingar á varnarmálalögum. Hún felur í sér að allar bókanir og viðbætur við samninginn verði að bera undir Alþingi til samþykktar, sem og öll uppbygging og framkvæmdir sem tengjast hernum, utan eðli- legs viðhalds. Aukinheldur hyggst ég leggja til þingsályktun um að ráðherra verði falið að vinna að bókun við varnarsamninginn sem kveði á um að alla viðveru herliðs hér á landi skuli bera undir Alþingi, en um viðveru herliðs er kveðið á í sjálfum varnarsamningnum. Hver sem afstaða fólks er til viðveru starfsfólks herliða og uppbyggingar mannvirkja á vegum hersins, hlýtur það að öllum kappsmál að auka lýðræðislega umræðu um þessi mál. Það hlýtur að vera öllum þingmönnum kappsmál að fá að segja skoðun sína á varnarmálum með atkvæði sínu. Samþykkt þessarar tillögu gefur þeim færi á því og eykur þannig mikilvægi Alþingis þegar að þessum málum kemur. Ég vonast því eftir víðtækum stuðningi við málið. Alþingi ráði um hermál Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna Sterk skilaboð Koma varaforseta Banda- ríkjanna til Íslands í gær hefur varla farið fram hjá neinum. Í nágrenni Höfða þurfti að loka götum og sáu sum fyrir- tæki sér ekki fært að hafa opið. Sumir nýttu þó tækifærið til að senda gestinum skilaboð. Tveir voru handteknir fyrir að brenna bandaríska fánann við Sæbraut. Öllu sterkari skilaboð sendi hins vegar Advania sem f laggaði regnbogafánum við höfuðstöðvar sínar sem eru við hliðina á Höfða. Pence hefur ein- mitt verið sakaður um að hafa ítrekað lagt stein í götu réttinda- baráttu hinsegin fólks. 400 metrar Miðað við þann stutta tíma sem Pence dvaldi á Íslandi blasir við að auðvelt hefði verið að afgreiða þau mál sem rædd voru í gegnum síma eða Skype. Heim- sóknin var því fyrst og fremst táknræn en um leið skýr skila- boð til Kína. Samskipti Banda- ríkjanna og Kína hafa verið afar stirð upp á síðkastið. Pence notaði tækifærið og ítrekaði varnaðarorð Bandaríkjamanna þegar kemur að Huawei en hér hefur einmitt verið fjárfest fyrir milljarða í fjarskiptatækni fyrirtækisins. Skilaboðin hafa væntanlega skilað sér því Pence stóð aðeins í um 400 metra fjar- lægð frá kínverska sendiráðinu þegar þessi ummæli féllu. sighvatur@frettabladid.is 5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 5 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B 6 -1 A B 4 2 3 B 6 -1 9 7 8 2 3 B 6 -1 8 3 C 2 3 B 6 -1 7 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.