Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.09.2019, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 05.09.2019, Qupperneq 22
TRI VERSLUN selur eingöngu CUBE reiðhjól en við seljum allar tegundir reiðhjóla frá merkinu,“ segir Valur Rafn, markaðsstjóri TRI. „CUBE er þýskt gæðamerki sem framleiðir allar tegundir reiðhjóla en síðustu ár hafa rafmagnshjólin orðið stór hluti af merkinu,“ útskýrir Valur. Liðin eru sjö ár frá því að TRI- verslun byrjaði að selja hjól af þessari gerð. „Við höfum selt CUBE rafmagnshjól frá árinu 2012,“ segir Valur Rafn. Hann segir rafmagns- hjólin hafa verið í stöðugri þróun og því séu hjólin í dag þannig afar frábrugðin þeim upprunalegu. „Fyrstu hjólin voru allt öðruvísi en hjólin sem við seljum í dag,“ segir Valur. Drifin áfram af Bosch Rafmagnshjólin eru sérstaklega vönduð en þau eru útbúin búnaði frá þýska gæðaframleiðanum Bosch. „Rafmagnshjólin sem CUBE framleiðir í dag eru með Bosch hjálparmótor en þau komu fyrst á markaðinn fyrir fjórum árum og slógu strax í gegn,“ segir Valur Rafn. „Bosch framleiðir sem sagt skjáborðið, mótorinn, rafhlöðuna og drifið. Þessi samsetning hefur komið mjög vel út og CUBE hefur framleitt mikið úrval rafmagns- hjóla síðustu ár.“ Valur segir rafmagnshjólin ekki ósvipuð hefðbundnum hjólum í útliti við fyrstu sýn. „Hjólin eru virkilega fallega hönnuð og þú þarft að horfa í smástund á sum af þessum hjólum til að átta þig á því að þarna er um rafmagnshjól að ræða,“ segir hann. Í takt við breyttar kröfur Það er ljóst að mannkynið stendur nú frammi fyrir krefjandi áskorunum hvað snertir nýtingu auðlinda. Kröfurnar um breytta hegðun verða sífellt háværari og segir Valur að greina megi áhrif þessa nýja og áríðandi tíðaranda í heimi rafmagnshjóla, bæði hjá framleiðendum og kaupendum. „Þessi markaður er að þróast mjög hratt og sjáum við að allir stærstu framleiðendurnir eru farnir að Rafmagnshjólin sem CUBE framleiðir í dag eru með Bosch hjálparmótor en þau komu fyrst á markað- inn fyrir fjórum árum og slógu strax í gegn. Rafmagnshjólin eru virkilega fallega hönnuð og geta verið nokkuð lík hinum hefðbundnu í útliti við fyrstu sýn. selja rafmagnshjól,“ segir hann. Áhrifanna gætir líka hérlendis. „Við sjáum greinilega að ferðavenj- ur íbúa á höfuðborgarsvæðinu eru að breytast hægt og rólega,“ bendir Valur á. „Síðustu tvö ár höfum við séð nokkuð mikla aukningu í sölu rafmagnshjóla á heimsvísu en við sjáum líka klárlega að íslenski markaðurinn er að taka hressilega við sér,“ segir Valur. Þessi aukning lofi góðu og geti haft veruleg áhrif á þróun mála. „Rafmagnshjólið gæti spilað lykilhlutverk þegar kemur að því að draga úr umferð.“ Frelsi til að stilla eftir eigin höfði Valur segir hjólin einföld í notkun og minni raunar um margt á þau hefðbundnu. „Rafmagnshjólin virka þannig að þú hjólar á hjólinu eins og þú gerir á venjulegu hjóli en þú færð hjálp frá mótor sem þú getur stillt eftir þörfum,“ segir hann. Þá hafi notendur verulegt svigrúm til þess að ákveða erfið- leikastig. „Þú getur stillt hjólið og ráðið því hversu mikla eða litla hjálp þú vilt fá frá hjólinu,“ útskýrir Valur. „Þessi tækni verður til þess að þú getur auðveldlega hjólað til vinnu án þess að svitna, brekkur og vindur skipta minna máli þegar þú ert á rafmagns- hjóli,“ segir hann. „Þegar þú hjólar svo heim getur þú auðveldlega minnkað hjálpina og þannig fengið nokkuð mikla líkamsrækt út úr heimferðinni.“ Valur segir CUBE-rafmagns- hjólin kjörin fyrir íslenskt veðurfar en hægt er að nota þau meira og minna allan ársins hring, íslenskum notendum til mikillar gleði. „Viðskiptavinir okkar eru mjög ánægðir með hve CUBE- rafmagnshjólin þola íslenskar aðstæður vel og eru langflestir að nota hjólin allt árið.“ Þá er lítið mál að bæta við eða breyta eftir eigin höfði. „Það til dæmis er ekkert mál að setja nagladekk á CUBE-raf- magnshjól,“ segir Valur. Vaxandi viðskipti í vefverslun Það eru ekki eingöngu fararskjót- arnir sem endurspegla breytta tíma. Valur segir að einnig megi greina nýja nálgun í því hvernig fólk stundar viðskipti en þau eru sífellt að færast meira yfir í starf- rænt form. „Í byrjun árs opnuðum við vefverslun en sú viðbót hefur komið virkilega vel út fyrir okkur og við sjáum strax að framtíðin í verslun á hjólatengdum vörum er á netinu,“ segir Valur. Hægt er að festa kaup á hjólunum sama hvar á landinu viðkomandi er staddur. „Þú getur til dæmis keypt CUBE- rafmagnshjól hjá okkur hérna á tri.is og við sendum þér hjólið frítt um land allt,“ segir hann. Viðskiptavinir þurfi ekki að hafa áhyggjur skyldi eitthvað koma upp á við kaupin. „Ef þú gerðir mistök og pantaðar rangan hlut eða eitt- hvað passar ekki á þig þá kemur þú til okkar og skiptir vörunni,“ segir Valur. „Þetta er svona einfalt.“ Sjá nánar á tri.is Viðskiptavinir okkar eru mjög ánægðir með hve CUBE- rafmagnshjólin þola íslenskar aðstæður vel og eru langflestir að nota hjólin allt árið. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 0 5 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B 6 -1 5 C 4 2 3 B 6 -1 4 8 8 2 3 B 6 -1 3 4 C 2 3 B 6 -1 2 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.