Fréttablaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 36
GAMAN VERÐUR AÐ HEYRA KONSERTANA; NÝSKÖPUN ER MIKILVÆG EF KLASSÍSK TÓNLIST Á EKKI AÐ STAÐNA. Tónlistarfólk dreymir of t mar traðir sem tengjast því að koma f r a m f y r ir á hey r-endur. Dæmigert er að viðkomandi frétti að hann eigi að spila á tónleikum næsta dag, allsendis óundirbúinn. Vladimir Ashkenazy dreymdi einu sinni slíkan draum. Hann gekk fram á sviðið til að spila ein- leikinn í þriðja píanókonsertinum eftir Rakh manínoff. Þá uppgötvaði hann sér til skelfingar að hljómborð flygilsins var lóðrétt. Konsertinn er engin smásmíði. Hann er gríðarlega erfiður í f lutn- ingi. Heljarstökkin eftir hljómborð- inu eru ekki á hvers manns færi. Verkið verður á dagskrá Sinfóníu- hljómsveitar Íslands í mars og ein- leikari verður píanósnillingurinn Olga Kern. Kern hefur komið til Íslands áður, fyrst aðeins barn að aldri. Þá var hún í hópi af efnilegu tónlistar- fólki frá Sovétríkjunum sálugu. Hún vakti þar athygli fyrir mikla tón- listarhæfileika og þó sérstaklega hvernig hún f letti nótnabókinni. Í stað þess að f letta eins og maður gerir venjulega, setti hún allan lóf- ann á blaðsíðuna miðja og snaraði henni til hliðar. Einhverjir innlendir tónlistarmenn reyndu þetta á eigin nótnabókum þegar heim var komið, og eyðilögðu þær. Kern er nú með virtustu píanó- leikurum samtímans og vekur ávallt lukku fyrir magnaða frammi- stöðu. Hún spilaði t.d. með glæsi- brag annan píanókonsertinn eftir Rakhmanínoff með Sinfóníunni fyrir allnokkru síðan. Tónleikar hennar í mars næstkomandi eru því tilhlökkunarefni. Fyrir vinstri hönd eingöngu Sjálfsagt er ekkert grín að spila á lóðrétt hljómborð. En það er heldur ekkert gamanmál að missa útlim, hvað þá fyrir píanóleikara. Þetta kom fyrir Paul Wittgenstein, sem missti hægri handlegginn í fyrri heimsstyrjöldinni. Flestir myndu leggja árar í bát við slíkar kringumstæður, en ekki Witt- genstein. Hann fékk tónskáld til að semja verk fyrir sig. Þar standa upp úr tveir píanókonsertar eftir önd- vegistónskáld, þau Ravel og Próko- fíev. Í þessum tónsmíðum er nánast ógjörningur fyrir venjulegan leik- mann að heyra að aðeins sé leikið með annarri hendinni. Hægri pedallinn er notaður ríkulega til að tengja saman nótur og hljóma, og vinstri höndin fer út um allt hljóm- borð, oft á ógnarhraða. Að þessu sinni fáum við að heyra konsertinn eftir Ravel um miðjan september. Áhugasamir eru hvattir til að sjá undrið frekar en að hlusta bara á það í útvarpinu. Það er Jean- Eff lam Bavouzet sem leikur ein- leik. Hann spilaði hinn konsertinn eftir Ravel, í það skipti fyrir báðar hendur, með Sinfóníunni fyrir ekki löngu síðan. Það kom vel út. Draumfagrar laglínur Fleiri píanókonsertar eru á dag- skrá hljómsveitarinnar í vetur. Sérstaka athygli vekur annar kons- ertinn eftir Brahms. Hann verður á dagskrá í október og er óvanalega viðamikill, í rauninni eins og heil sinfónía. Tónlistin skartar draum- fögrum laglínum og stórkostlegum hápunktum sem framkalla gæsa- húð ef vel er gert. Einleikari verður Stephen Hough, en hann er frábær píanisti sem ávallt nálgast viðfangsefni sitt af frumleika og skáldskap. Undirrit- uðum er enn í fersku minni túlkun hans á Rapsódíunni eftir Rakhman- ínoff. Hún var svo óvanaleg og jafn- framt svo sannfærandi að það var eins og að heyra þessa útjöskuðu tónsmíð í fyrsta sinn. Fiðlukonsert eftir leikhústónskáld Annar forvitnilegur einleikskons- ert er fyrir fiðlu og eftir Kurt Weill. Hann verður f luttur af Erin Keefe í mars. Fæstir þekkja tónsmíðina, sem er þó skemmtileg, enda er Weill fyrst og fremst kunnur fyrir leik- hústónlist sína. Einnig má nefna fiðlukonsertinn Offertorium eftir Sofiu Gubaidulina í meðförum Vadim Gluzman aðeins síðar. Tónlist hennar er reyndar ekki fyrir hvern sem er. Hún er yfir- leitt trúarlegs eðlis og gríðarlega alvöruþrungin, gjarnan myrk og drungaleg, en ávallt áhugaverð. Ekki þessa heims Það verður draugagangur í föstu- dagsröðinni á einum tímapunkti, en tónleikarnir eru alltaf klukkan sex á föstudögum. Annar kaf linn í Tónlist fyrir strengi, selestu og slagverk eftir Bartók var notaður á áhrifaríkan hátt í kvikmyndinni The Shining eftir Stanley Kubrik. Þetta er einhver óhugnanlegasta, en jafnframt mest grípandi tónlist sem um getur. Maður bókstaflega séð afturgöngurnar – og þær eru ekki fallegar. Fleira annarsheimslegt verður á dagskrá Sinfóníunnar í vetur, þ. á m. Aion eftir Ernu Ómarsdóttur og Önnu Þorvaldsdóttur. Dansverk Ernu vekja ætíð athygli fyrir kynngi og frumleika, og tónlist Önnu er myrk og seiðandi. Nýir íslenskir konsertar Alltaf ber til tíðinda þegar nýr einleikskonsert lítur dagsins ljós. Frumf luttur verður harmóníku- konsert eftir Huga Guðmundsson og konsert fyrir hljómsveit eftir Snorra S. Sigfússon á Myrkum mús- íkdögum. Konsert fyrir hljómsveit án einleikara þýðir að einleikshlut- verkið er í höndum mismunandi hljóðfærahópa hljómsveitarinnar. Gaman verður að heyra konsertana; nýsköpun er mikilvæg ef klassísk tónlist á ekki að staðna. Ollikainen og Wagner Sinfónían fagnar 70 ára afmæli þann 9. mars. Á þessum hátíðar- tónleikum mun Eva Ollikainen stjórna, en hún hefur verið ráðin aðalstjórnandi sveitarinnar frá hausti 2020. Hún er fyrst kvenna til að gegna þessari stöðu. Ollikainen hefur stjórnað hér áður og ávallt staðið sig með sóma. Á tónleikun- um verður m.a. f lutt fyrsta sinfónía Mahlers, sem er full af hrífandi nátt- úrustemningu. Loks verður að nefna uppfærslu Íslensku óperunnar á Valkyrju Wagners í samvinnu við Sinfóní- una í vor, en óperur tónskáldsins eru sjaldséðar hér á landi. Nif l- ungahringurinn var f luttur í mjög styttri mynd á Listahátíð 1994, og löngu síðar var Hollendingurinn fljúgandi settur upp. Núna er komið að Valkyrjunni í heild sinni, sem er annar hluti Nif lungahringsins (þeir eru alls fjórir). Valkyrjan er ein stórbrotnasta ópera tónbók- menntanna. Gaman verður að sjá og heyra hvernig til tekst. Jónas Sen Spáð í vetrardagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands Margir áhugaverðir tónleikar eru fram undan hjá Sinfóníuhljómsveitinni í vetur, að mati Jónasar Sen. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Tónlist úr The Shining, harmón- íkukonsert og Val- kyrjur Wagners eru meðal atriða. 5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R28 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 5 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 B 6 -0 2 0 4 2 3 B 6 -0 0 C 8 2 3 B 5 -F F 8 C 2 3 B 5 -F E 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.