Fréttablaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 24
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Tískudrottningin Iris Apfel, sem hélt upp á 98 ára afmælið um helgina, er ein þeirra sem hafa mótað afatískuna. MYNDIR/NORDICPHOTOS/GETTY Rétt eins og pabbatíska, sem sló í gegn fyrir örfáum árum, er afatíska nú orðinn áber- andi stíll. Báðir þessir stílar eru angar af „normcore“ tískunni sem hefur heillað marga síðastliðinn áratug, sem snýst um súrrealíska og jafnvel fyndna útgáfu af venju- legum klæðnaði. Afatískan gengur út á stíl sem minnir á fötin sem afi og amma klæðast, en aðaláherslan er á þægindi. Nýsjálenski vefurinn Stuff fjallaði um tískustrauminn fyrir skömmu. Ef orðið „afatíska“ fær þig til að hugsa um strigaskó með frönskum rennilás, íþrótta- galla úr velúrefni, inniskó og sandala, mittistöskur og ofvaxna jakka, þá ertu á réttri braut. Rétt eins og pabbatískan, sem snerist um þreytu- leg íþróttaföt, ofvaxna strigaskó sem litu út fyrir að koma beint úr Seinfeld-þætti og ljósbláar gallabuxur, er afatíska það nýjasta og flott- asta þegar kemur að því að klæða sig í stíl sem er svo laus við að vera flottur að hann fer, að sumra mati, í hring og verður töff. Tískufyrir- myndir eins og Iris Apfel hafa átt sinn þátt í velgengni afatískunnar og fleiri eldri borgarar hafa fetað í fótspor hennar og gert góða hluti á Instagram. Stílistinn Elliot Garnaut, sem starfar í Melbourne, vill meina að bæði fatahönn- uðurinn Demna Gvasalia, hönnunarstjóri Balenciaga og Vetements, og Olsen-tvíbur- arnir hafi gegnt lykilhlutverki Afatískan kemur í kjölfar pabbatísku Afatíska er nýr tískustraumur innblásinn af klæðnaði eldri borgara og gengur út á þægindi og nytsemi umfram allt. Stíllinn varð til sem uppreisn gegn ríkjandi tískustöðlum. í því að móta stíl afatísku. Þau hafa átt stóran þátt í að gera flíkur eins og buxur með broti, ofvaxin gleraugu, kassalaga jakka og Jesú- sandala vinsæla. Þessi stíll dregur líka innblástur frá tísku tíunda áratugar og frá Kóreu og Japan. Þægindi og uppreisn Þægindi skipta líka mjög miklu, enda kýs eldra fólk fötin sín oft einfaldlega vegna þess að þau eru þægileg. Það hefur verið almenn aukning í áherslu á þægindi og nytsemi í tísku, en áherslan er samt ekki svo algjör að það gleymist að passa upp á litasamsetningar, réttu efnin og að fötin passi vel. Eins og svo margt byrjaði þetta sem stíll sem átti að vera nokkurs konar and- svar gegn hefðbundinni tísku en endaði svo með því að verða enn einn tískustraumurinn. Að sumu leyti er afatískan andsvar við fegurðarstöðlum tískuheimsins, þar sem lögð er áhersla á föt sem sýna líkam- ann, í stað þess að fela hann. Fyrir stelpur getur afatískan verið uppreisn gegn viðteknum venjum og þröngum kjólum. Sumum konum finnst líka vald- eflandi að klæða sig í þessum stíl, því þá eru þær að hugsa um þægindi og klæða sig fyrir sig og ekki einhvern annan. Demna Gvasalia, hönnunarstjóri Balenciaga og Vetements, hefur mótað afa­ tískuna. Þægindin voru svo sann­ arlega í fyrirrúmi á þessari sýningu Dolce & Gabbana. Afatísku­ áhrifin eru sterk í hönnun Demna Gvas­ alia. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Jakki Kr. 8.900.- Fleiri litir Str. S-XXL Nýjar haustvörur Buxur kr. 6.900.- Litur: dökkblátt, svart ÚTSALA Á HJÓLUM OG HJÓLAVÖRUM 25–45% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS EKKI MISSA AF ÞESSU! Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS NÝJAR HAUSTVÖRUR 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 0 5 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 B 6 -0 2 0 4 2 3 B 6 -0 0 C 8 2 3 B 5 -F F 8 C 2 3 B 5 -F E 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.