Fréttablaðið - 05.09.2019, Page 24
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Tískudrottningin Iris Apfel, sem hélt upp á 98 ára afmælið um helgina, er
ein þeirra sem hafa mótað afatískuna. MYNDIR/NORDICPHOTOS/GETTY
Rétt eins og pabbatíska, sem sló í gegn fyrir örfáum árum, er afatíska nú orðinn áber-
andi stíll. Báðir þessir stílar eru
angar af „normcore“ tískunni sem
hefur heillað marga síðastliðinn
áratug, sem snýst um súrrealíska
og jafnvel fyndna útgáfu af venju-
legum klæðnaði. Afatískan gengur
út á stíl sem minnir á fötin sem afi
og amma klæðast, en aðaláherslan
er á þægindi. Nýsjálenski vefurinn
Stuff fjallaði um tískustrauminn
fyrir skömmu.
Ef orðið „afatíska“ fær þig til
að hugsa um strigaskó með
frönskum rennilás, íþrótta-
galla úr velúrefni, inniskó
og sandala, mittistöskur
og ofvaxna jakka, þá ertu á
réttri braut. Rétt eins og
pabbatískan, sem
snerist um þreytu-
leg íþróttaföt,
ofvaxna strigaskó
sem litu út fyrir
að koma beint úr
Seinfeld-þætti
og ljósbláar
gallabuxur, er
afatíska það
nýjasta og flott-
asta þegar kemur
að því að klæða
sig í stíl sem er svo
laus við að vera
flottur að hann
fer, að sumra
mati, í hring og
verður töff.
Tískufyrir-
myndir eins og
Iris Apfel hafa átt
sinn þátt í velgengni
afatískunnar og fleiri
eldri borgarar hafa fetað í
fótspor hennar og gert góða
hluti á Instagram.
Stílistinn Elliot Garnaut,
sem starfar í Melbourne, vill
meina að bæði fatahönn-
uðurinn Demna Gvasalia,
hönnunarstjóri Balenciaga og
Vetements, og Olsen-tvíbur-
arnir hafi gegnt lykilhlutverki
Afatískan kemur í
kjölfar pabbatísku
Afatíska er nýr tískustraumur innblásinn af klæðnaði eldri
borgara og gengur út á þægindi og nytsemi umfram allt.
Stíllinn varð til sem uppreisn gegn ríkjandi tískustöðlum.
í því að móta stíl afatísku. Þau
hafa átt stóran þátt í að gera flíkur
eins og buxur með broti, ofvaxin
gleraugu, kassalaga jakka og Jesú-
sandala vinsæla. Þessi stíll dregur
líka innblástur frá tísku tíunda
áratugar og frá Kóreu og Japan.
Þægindi og uppreisn
Þægindi skipta líka mjög
miklu, enda kýs eldra fólk
fötin sín oft einfaldlega
vegna þess að þau eru
þægileg. Það hefur verið
almenn aukning í áherslu
á þægindi og nytsemi í
tísku, en áherslan er samt
ekki svo algjör að það
gleymist að passa upp á
litasamsetningar, réttu
efnin og að fötin passi vel.
Eins og svo margt byrjaði
þetta sem stíll sem átti að
vera nokkurs konar and-
svar gegn hefðbundinni tísku
en endaði svo með því að verða
enn einn tískustraumurinn.
Að sumu leyti er afatískan
andsvar við fegurðarstöðlum
tískuheimsins, þar sem lögð er
áhersla á föt sem sýna líkam-
ann, í stað þess að fela hann.
Fyrir stelpur getur afatískan
verið uppreisn gegn viðteknum
venjum og þröngum kjólum.
Sumum konum finnst líka vald-
eflandi að klæða sig í þessum
stíl, því þá eru þær að hugsa
um þægindi og klæða sig fyrir
sig og ekki einhvern annan.
Demna
Gvasalia,
hönnunarstjóri
Balenciaga og
Vetements, hefur
mótað afa
tískuna.
Þægindin
voru svo sann
arlega í fyrirrúmi
á þessari sýningu
Dolce &
Gabbana.
Afatísku
áhrifin eru
sterk í hönnun
Demna Gvas
alia.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Jakki Kr. 8.900.-
Fleiri litir
Str. S-XXL
Nýjar haustvörur
Buxur kr. 6.900.-
Litur: dökkblátt, svart
ÚTSALA Á HJÓLUM OG HJÓLAVÖRUM
25–45%
AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM
FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
EKKI
MISSA
AF ÞESSU!
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS
NÝJAR HAUSTVÖRUR
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
0
5
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
6
-0
2
0
4
2
3
B
6
-0
0
C
8
2
3
B
5
-F
F
8
C
2
3
B
5
-F
E
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K