Fréttablaðið - 05.09.2019, Page 36
GAMAN VERÐUR AÐ
HEYRA KONSERTANA;
NÝSKÖPUN ER MIKILVÆG EF
KLASSÍSK TÓNLIST Á EKKI AÐ
STAÐNA.
Tónlistarfólk dreymir of t mar traðir sem tengjast því að koma f r a m f y r ir á hey r-endur. Dæmigert er að viðkomandi frétti
að hann eigi að spila á tónleikum
næsta dag, allsendis óundirbúinn.
Vladimir Ashkenazy dreymdi
einu sinni slíkan draum. Hann
gekk fram á sviðið til að spila ein-
leikinn í þriðja píanókonsertinum
eftir Rakh manínoff. Þá uppgötvaði
hann sér til skelfingar að hljómborð
flygilsins var lóðrétt.
Konsertinn er engin smásmíði.
Hann er gríðarlega erfiður í f lutn-
ingi. Heljarstökkin eftir hljómborð-
inu eru ekki á hvers manns færi.
Verkið verður á dagskrá Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í mars og ein-
leikari verður píanósnillingurinn
Olga Kern.
Kern hefur komið til Íslands
áður, fyrst aðeins barn að aldri. Þá
var hún í hópi af efnilegu tónlistar-
fólki frá Sovétríkjunum sálugu. Hún
vakti þar athygli fyrir mikla tón-
listarhæfileika og þó sérstaklega
hvernig hún f letti nótnabókinni.
Í stað þess að f letta eins og maður
gerir venjulega, setti hún allan lóf-
ann á blaðsíðuna miðja og snaraði
henni til hliðar. Einhverjir innlendir
tónlistarmenn reyndu þetta á eigin
nótnabókum þegar heim var komið,
og eyðilögðu þær.
Kern er nú með virtustu píanó-
leikurum samtímans og vekur
ávallt lukku fyrir magnaða frammi-
stöðu. Hún spilaði t.d. með glæsi-
brag annan píanókonsertinn eftir
Rakhmanínoff með Sinfóníunni
fyrir allnokkru síðan. Tónleikar
hennar í mars næstkomandi eru því
tilhlökkunarefni.
Fyrir vinstri hönd eingöngu
Sjálfsagt er ekkert grín að spila á
lóðrétt hljómborð. En það er heldur
ekkert gamanmál að missa útlim,
hvað þá fyrir píanóleikara. Þetta
kom fyrir Paul Wittgenstein, sem
missti hægri handlegginn í fyrri
heimsstyrjöldinni.
Flestir myndu leggja árar í bát við
slíkar kringumstæður, en ekki Witt-
genstein. Hann fékk tónskáld til að
semja verk fyrir sig. Þar standa upp
úr tveir píanókonsertar eftir önd-
vegistónskáld, þau Ravel og Próko-
fíev.
Í þessum tónsmíðum er nánast
ógjörningur fyrir venjulegan leik-
mann að heyra að aðeins sé leikið
með annarri hendinni. Hægri
pedallinn er notaður ríkulega til að
tengja saman nótur og hljóma, og
vinstri höndin fer út um allt hljóm-
borð, oft á ógnarhraða.
Að þessu sinni fáum við að heyra
konsertinn eftir Ravel um miðjan
september. Áhugasamir eru hvattir
til að sjá undrið frekar en að hlusta
bara á það í útvarpinu. Það er Jean-
Eff lam Bavouzet sem leikur ein-
leik. Hann spilaði hinn konsertinn
eftir Ravel, í það skipti fyrir báðar
hendur, með Sinfóníunni fyrir ekki
löngu síðan. Það kom vel út.
Draumfagrar laglínur
Fleiri píanókonsertar eru á dag-
skrá hljómsveitarinnar í vetur.
Sérstaka athygli vekur annar kons-
ertinn eftir Brahms. Hann verður á
dagskrá í október og er óvanalega
viðamikill, í rauninni eins og heil
sinfónía. Tónlistin skartar draum-
fögrum laglínum og stórkostlegum
hápunktum sem framkalla gæsa-
húð ef vel er gert.
Einleikari verður Stephen Hough,
en hann er frábær píanisti sem
ávallt nálgast viðfangsefni sitt af
frumleika og skáldskap. Undirrit-
uðum er enn í fersku minni túlkun
hans á Rapsódíunni eftir Rakhman-
ínoff. Hún var svo óvanaleg og jafn-
framt svo sannfærandi að það var
eins og að heyra þessa útjöskuðu
tónsmíð í fyrsta sinn.
Fiðlukonsert eftir
leikhústónskáld
Annar forvitnilegur einleikskons-
ert er fyrir fiðlu og eftir Kurt Weill.
Hann verður f luttur af Erin Keefe
í mars. Fæstir þekkja tónsmíðina,
sem er þó skemmtileg, enda er Weill
fyrst og fremst kunnur fyrir leik-
hústónlist sína.
Einnig má nefna fiðlukonsertinn
Offertorium eftir Sofiu Gubaidulina
í meðförum Vadim Gluzman aðeins
síðar. Tónlist hennar er reyndar
ekki fyrir hvern sem er. Hún er yfir-
leitt trúarlegs eðlis og gríðarlega
alvöruþrungin, gjarnan myrk og
drungaleg, en ávallt áhugaverð.
Ekki þessa heims
Það verður draugagangur í föstu-
dagsröðinni á einum tímapunkti,
en tónleikarnir eru alltaf klukkan
sex á föstudögum. Annar kaf linn
í Tónlist fyrir strengi, selestu og
slagverk eftir Bartók var notaður
á áhrifaríkan hátt í kvikmyndinni
The Shining eftir Stanley Kubrik.
Þetta er einhver óhugnanlegasta,
en jafnframt mest grípandi tónlist
sem um getur. Maður bókstaflega
séð afturgöngurnar – og þær eru
ekki fallegar.
Fleira annarsheimslegt verður
á dagskrá Sinfóníunnar í vetur, þ.
á m. Aion eftir Ernu Ómarsdóttur
og Önnu Þorvaldsdóttur. Dansverk
Ernu vekja ætíð athygli fyrir kynngi
og frumleika, og tónlist Önnu er
myrk og seiðandi.
Nýir íslenskir konsertar
Alltaf ber til tíðinda þegar nýr
einleikskonsert lítur dagsins ljós.
Frumf luttur verður harmóníku-
konsert eftir Huga Guðmundsson
og konsert fyrir hljómsveit eftir
Snorra S. Sigfússon á Myrkum mús-
íkdögum. Konsert fyrir hljómsveit
án einleikara þýðir að einleikshlut-
verkið er í höndum mismunandi
hljóðfærahópa hljómsveitarinnar.
Gaman verður að heyra konsertana;
nýsköpun er mikilvæg ef klassísk
tónlist á ekki að staðna.
Ollikainen og Wagner
Sinfónían fagnar 70 ára afmæli
þann 9. mars. Á þessum hátíðar-
tónleikum mun Eva Ollikainen
stjórna, en hún hefur verið ráðin
aðalstjórnandi sveitarinnar frá
hausti 2020. Hún er fyrst kvenna til
að gegna þessari stöðu. Ollikainen
hefur stjórnað hér áður og ávallt
staðið sig með sóma. Á tónleikun-
um verður m.a. f lutt fyrsta sinfónía
Mahlers, sem er full af hrífandi nátt-
úrustemningu.
Loks verður að nefna uppfærslu
Íslensku óperunnar á Valkyrju
Wagners í samvinnu við Sinfóní-
una í vor, en óperur tónskáldsins
eru sjaldséðar hér á landi. Nif l-
ungahringurinn var f luttur í mjög
styttri mynd á Listahátíð 1994, og
löngu síðar var Hollendingurinn
fljúgandi settur upp. Núna er komið
að Valkyrjunni í heild sinni, sem
er annar hluti Nif lungahringsins
(þeir eru alls fjórir). Valkyrjan er
ein stórbrotnasta ópera tónbók-
menntanna. Gaman verður að sjá
og heyra hvernig til tekst.
Jónas Sen
Spáð í vetrardagskrá
Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Margir áhugaverðir tónleikar eru fram undan hjá Sinfóníuhljómsveitinni í vetur, að mati Jónasar Sen. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Tónlist úr The
Shining, harmón-
íkukonsert og Val-
kyrjur Wagners eru
meðal atriða.
5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R28 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
5
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
6
-0
2
0
4
2
3
B
6
-0
0
C
8
2
3
B
5
-F
F
8
C
2
3
B
5
-F
E
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K