Fréttablaðið - 05.09.2019, Qupperneq 17
Stokkhólmi – Fimm lönd sem Evrópusambandið kallar umsóknarlönd (e. candidate
countries) bíða þess nú að vera
tekin inn í sambandið. Þau eru
Albanía, Norður-Makedónía,
Serbía, Svartfjallaland og Tyrk-
land. Tvö lönd enn, Bosnía og
Hersegóvína og Kósóvó, bíða þess
að komast á biðlistann. Öll löndin
sjö eru í Suðaustur-Evrópu, sum
þeirra tilheyrðu gömlu Júgóslavíu.
Ísland er ekki á biðlistanum, en
ESB hefur þó látið á sér skiljast að
umsókn Alþingis frá 2009 sé enn
í gildi tæknilega séð þótt hún hafi
legið í salti frá 2013.
Langur aðdragandi
Samningaviðræður einstakra
landa á listanum við ESB munu
skera úr um hvort þau eru í stakk
búin að semja sig að lögum og
reglum sambandsins og hversu
langan aðlögunartíma þau þurfa
til að ná því marki. Albanía sótti
um aðild 2009 og komst á listann
2014. Norður-Makedónía hefur
verið á listanum frá 2005. Serbía
sótti um aðild 2009, komst á
listann 2012 og hóf aðildarvið-
ræður 2014. Svartfjallaland sótti
um aðild 2008, komst á listann
2010 og hóf viðræður 2012. Tyrk-
land sótti um aðild 1987, komst á
listann 1999 og hóf viðræður 2005,
en þær hafa gengið hægt vegna
ýmislegra efasemda um ráðahag-
inn af beggja hálfu.
Albönum, Norður-Makedónum,
Serbum og Svartfellingum er
mikil alvara með eftirsókn sinni
eftir aðild að ESB. Við þeim blasir
hversu miklu betur Eistlandi,
Lettlandi og Litháen hefur vegnað
að f lestu leyti en hinum tólf fv.
Sovétlýðveldunum sem höfnuðu
Evrópu sem fyrirmynd einmitt
til að geta farið sínu fram heima
fyrir án tillits til lýðræðis og
mannréttinda sem eru ær og kýr
ESB. Suðaustur-Evrópuþjóðirnar
sækjast eftir aðild að ESB ekki
bara af efnahagsástæðum heldur
einnig gagngert til að treysta lýð-
ræði og mannréttindi í sessi.
Lýðræði, lög og réttarbætur
Tökum dæmi. Til að styrkja
umsókn sína um aðild að ESB
réðust Albanar með erlendri hjálp
í rannsókn á dómskerfi landsins
með því m.a. að fela sjálfstæðri
nefnd undir eftirliti bandarískra
og evrópskra dómara að meta
hæfi þeirra u.þ.b. 800 dómara og
saksóknara sem starfa í Albaníu.
Nefndin leggur mat á starfs-
hæfni þeirra, heiðarleika og hvort
þeir hafi brotið lög (e. criminal
background). Nær helmingur
þeirra dómara og saksóknara sem
lentu undir smásjá hefur látið af
störfum m.a. vegna þess að þeir
gátu ekki gert grein fyrir eignum
sínum eða sýnt fram á hæfni til
að gegna störfum sínum. Mark-
mið nefndarinnar er að tryggja að
dómskerfið geti starfað sjálfstætt
og heiðarlega óháð þrýstingi af
hálfu stjórnmálamanna og ann-
arra sem eiga hagsmuna að gæta.
Vandinn var og er ærinn. Skýrsla
Sameinuðu þjóðanna 2017 greindi
frá spillingu í dómskerfi Albaníu
og megnu vantrausti fólksins
í landinu í garð dómskerfisins
(70% vantraust í Albaníu á móti
53% á Íslandi). Einn kosturinn við
væntanlega aðild Albaníu að ESB
er að hreingerning í dómskerfi
landsins er að heita má meðal inn-
gönguskilyrðanna.
Albanar taka til hendinni
Lýðræðiseinkunnin sem Free-
dom House gefur Albaníu nú er
6,8 borið saman við 8,7 til 9,4 í
Eystrasaltslöndunum þrem og 2,0
í Rússlandi. Einkunnin sem World
Justice Project, stofnun á vegum
Bandaríska lögfræðingafélagsins,
gefur Albaníu fyrir lög og rétt er
6,2 á móti 8,1 í Eistlandi og 4,7 í
Rússlandi. Albanía notar væntan-
lega aðild að ESB markvisst til að
snúa niður afturhalds- og glæpa-
öflin heima fyrir.
Ég var í Albaníu 1993, tveim
árum eftir fall kommúnista-
stjórnar Envers Hoxha sem
skildi við landið í rjúkandi rúst.
Húsakostur landsmanna var í
reyndinni handónýtur. Rennandi
vatn var sjaldséð, rafmagn var
stopult og loftkæling var óþekkt
þótt sumarhitinn þarna sé 35-40
gráður. Sex fjölskyldur af hverjum
sjö áttu hvorki ísskáp né þvottavél.
Sinfóníuhljómsveitin var fölsk því
hljóðfæraleikararnir höfðu fæstir
efni á gleraugum og gátu því ekki
lesið nóturnar. Annað var eftir
þessu. Ekkert land álfunnar var
verr á vegi statt en Albanía.
En Albönum tókst að snúa
taflinu við. Þeir settu markið á ESB
gagngert til að þurfa að fullnægja
þeim kröfum sem sambandið gerir
til aðildarlanda eða réttar sagt
þeim tilmælum sem ESB beinir til
þeirra. Það verður að segjast eins
og er að ESB hefur ekki orðið vel
ágengt við að uppræta spillingu í
Búlgaríu, Ítalíu og Rúmeníu sem
75% til 86% heimamanna lýsa sem
morandi í spillingu skv. rann-
sókn Gallups (Búlgaría 75%, Ítalía
86% og Rúmenía 80% á móti 67%
á Íslandi). Ekki hefur ESB heldur
tekizt að hemja ofríki yfirvalda í
Póllandi og Ungverjalandi undan-
gengin ár. Og ekki fórst ESB heldur
vel við Grikkland í kreppunni þar.
Albanar setja þó ekkert af þessu
fyrir sig og það gera Norður-Make-
dónar, Serbar og Svartfellingar
ekki heldur. Meiri hluti fólksins í
þessum löndum kýs helzt að semja
sig að siðum annarra Evrópu-
þjóða.
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
REVITALIFT
[+ HYALURONIC ACID]
7 DAGA HÝALÚRÓNKÚR
NÝTT
ÞYKKNI ÚR HÝALÚRÓNSÝRU
FYLLIR HÚÐINA ÞÍNA AF RAKA
+ Þykkni úr hýalúrónsýru
+ Án ilmefna
INNIHALD
Eftir 1 ampúlu: Húðin fær öflugan raka
og frísklegra útlit.
Eftir 2 ampúlur: Húðin hefur endurnýjast
og er þéttari og stinnari viðkomu.
ÁRANGUR
ANDLITSLYFTING MEÐ AMPÚLUM
D
AY
1
D
AY
2
D
AY
3
D
AY
4
D
AY
5
D
AY
6
D
AY
7
Ev
ÚÐ
Á 7 D
BECAUSE Y
a L
FÁÐU STINNARI H
ÖGUM
OU’RE WORTH IT
ongoria.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
0
5
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
6
-2
9
8
4
2
3
B
6
-2
8
4
8
2
3
B
6
-2
7
0
C
2
3
B
6
-2
5
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K