Fréttablaðið - 05.09.2019, Side 18
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-innar sem birt var 30. nóvember árið 2017 stendur eftirfarandi
setning: „Einnig verður hugað
að því að styrkja rekstrargrund-
völl hjúkrunarheimila en áhersla
verður einnig lögð á aðra þjónustu-
þætti, svo sem heimahjúkrun, dag-
þjálfun og endurhæfingu.“ Ýmis-
legt hefur gengið eftir sem boðað
er í stefnuyfirlýsingunni, en ekki
sá þáttur sem snertir rekstrar-
grunn hjúkrunarheimila og dag-
þjálfun og vitnað er til hér að ofan.
Nú er kjörtímabilið nær hálfnað
og á þeim tveimur árum sem ríkis-
stjórnin hefur setið við völd hefur
hún hrint í framkvæmd stöðugum
skerðingum á rekstrarframlagi til
hjúkrunarheimila og hefur að auki
boðað að svo verði áfram til og
með árinu 2021, en áætlunin gildir
til 2024. Samkvæmt áætluninni fá
aðrar heilbrigðisstofnanir en hjúkr-
unarheimili aukið framlag og því
ber auðvitað að fagna.
Róðurinn þyngist ár frá ári
Eins og Ríkisendurskoðun hefur
bent á í skýrslum sínum er rekstur
hjúkrunarheimila almennt mjög
þungur og hefur róðurinn þyngst
ár frá ári í samræmi við fjárhags-
skerðingar ríkisstjórnarinnar. Í
því sambandi skiptir einnig máli
að ekki er lengur í gildi ramma-
samningur milli hjúkrunarheimil-
anna og Sjúkratrygginga Íslands,
en síðasti samningur sem tók gildi
2016 rann sitt skeið í árslok 2018
þegar Sjúkratryggingar breyttu
aðferðafræði sinni við útgreiðslu
fjármagns tengt RAI-mati og einn-
ig vinnubrögðum við úthlutun
smæðar álags. Ákvörðun Sjúkra-
trygginga var tekin einhliða og án
viðræðna við hjúkrunarheimilin,
Samtök fyrirtækja í velferðarþjón-
ustu (SFV) eða Samband íslenskra
sveitarfélaga. SFV og sveitarfélögin
starfrækja sameiginlega samninga-
nefnd f.h. öldrunarstofnana við hið
opinbera og ríkir mikill og góður
samhljómur í þeim hópi.
Galin fjármálaáætlun?
Í fyrrnefndri fjármálaáætlun kemur
fram að stærsta verkefni ríkissjóðs
í tengslum við málefnasvið hjúkr-
unar- og endurhæfingarþjónustu sé
átak sem felst í fjölgun hjúkrunar-
rýma bæði með endurgerð eldri
rýma og byggingu nýrra, m.a. með
byggingu hjúkrunarheimila. Er um
að ræða rúmlega 900 rými í heild.
Stjórnvöld hafa boðað að 717 rými
verði byggð til 2024 þegar áætlað
er að þau verði orðin 3.433 í heild,
sem er 26% aukning frá árinu 2018.
Á sama tíma gerir ríkisstjórnin ráð
fyrir aðeins 6% auknu fjármagni
til rekstrar málefnasviðsins, enda
viðurkennt að í fjármálaáætluninni
hefur lítið tillit verið tekið til bygg-
ingar eða rekstrar nýju hjúkrun-
arrýmanna.
Fyrirheitin reynst orðin tóm
Þau fyrirheit ríkisstjórnarinnar 30.
nóvember 2017 um að hugað skyldi
að styrkingu rekstrargrundvallar
hjúkrunarheimila landsins, hafa
á þeim 21 mánuði sem stjórnin
hefur setið við völd að miklu leyti
reynst orðin tóm enda áframhald-
andi raunskerðingar boðaðar til og
með árinu 2021 ár í það minnsta.
En lengi skal manninn reyna. Því
skora ég á Alþingi og ekki síst fjár-
veitingavaldið að fara alvarlega
ofan í saumana á fjárhagsgrunni
hjúkrunarheimilanna og rýna betur
skýrslur Ríkisendurskoðunar um
málefnasviðið. Trúverðugt samtal
milli fulltrúa heilbrigðisráðuneytis-
ins, Sjúkratrygginga Íslands, öldr-
unarstofnana og sveitarfélaga væri
gott fyrsta skref. Forsenda árangurs
og breiðari sáttar um málaflokkinn
er stóraukið samráð og skilningur
á eðli rekstrar hjúkrunarheimila
sem eru ein af mikilvægustu grunn-
stoðum íslenska velferðarkerfisins.
Orð á blaði duga ekki ein og sér.
Orðin ein og sér duga ekki
Björn Bjarki
Þorsteinsson
framkvæmda-
stjóri
Brákarhlíðar
og varafor-
maður Samtaka
fyrirtækja í vel-
ferðarþjónustu
Sæll, borgarstjóri. Ég veit ekki hversu vel þú þekk-ir til barna með fötlun, foreldra
þeirra og fjölskyldna. Ég vona að þú
misvirðir það ekki við mig þótt ég
upplýsi þig um að það krefst styrks,
þolgæðis og endalausrar ástar og
umburðarlyndis að annast fatlað
barn, á hvaða aldri sem er. Það
krefst mikils tíma og orku og því
fylgir mikið álag. Það er sjaldnast
orka aflögu til að berjast fyrir rétt-
indum barns síns þótt margir hafi
gert það af miklu hugrekki og seiglu.
Ég trúi að börn með þroska-
hömlun gegni mikilvægu hlutverki
í lífi okkar allra. Þau kenna okkur
skilyrðislausan kærleik, þau vekja
hlýjar tilfinningar í brjóstum fólks
með falsleysi sínu og einlægni.
Þau kenna okkur umburðarlyndi,
lækna okkur af fullkomnunaráráttu
og þau minna okkur á hvað skiptir
mestu máli í lífinu. Þau eru mikils
virði. Þau eru dýrmæt og þau þurfa
á okkur að halda. Samfélag með
gott siðferði annast þá sem minnst
mega sín og ég er þakklát fyrir allt
sem samfélag okkar, ríki og borg,
gerir fyrir fötluðu börnin okkar. Við
verðum þó að vita hvaða þjónusta
er í boði til að geta nýtt okkur hana.
Við, sem erum ekki dugleg að leita á
vefsíðum eða láta okkur detta í hug
eitthvað sem barnið okkar gæti
hugsanlega átt rétt á, eigum á hættu
að fara á mis við ýmsa þjónustu. Oft
höfum við ekki orku til að standa í
slíku og ekki er hægt að gera þá
kröfu til barnanna okkar sem hafa
ekki færni til þess sökum fötlunar
sinnar.
Þegar sonur minn, sem er með
þroskahömlun, var lítill, áttaði ég
mig á því að upplýsingar um rétt-
indi og þjónustu komu oftar en
ekki frá öðrum foreldrum fatlaðra
barna frekar en frá hinu opinbera.
Það þarf ekki að hafa mörg orð um
það að þetta er ekki nógu gott.
Það ætti ekki að vera f lókið að
útbúa bækling fyrir foreldra þar
sem væri að finna allar upplýsingar
um þjónustu og réttindi, bæði fyrir
barnið og foreldrana. Þá ætti heldur
ekki að vera flókið að setja upp vef-
síðu með sömu upplýsingum.
Þegar minnihlutinn í borgar-
stjórn bar fram tillögu þessa efnis
var henni vísað frá.
Nú vil ég biðja þig, borgarstjóri,
að útskýra fyrir mér og öðrum sem
málið varðar, hvers vegna borgin
vill ekki eða getur ekki bætt upplýs-
ingagjöf til fatlaðra og aðstandenda
þeirra, með eins einföldum hætti og
að útbúa bækling.
Opið bréf til borgarstjóra
Ásta Kristrún
Ólafsdóttir
móðir ungs
manns með
fötlun, sál-
fræðingur og
kennari.
Við verðum þó að vita hvaða
þjónusta er í boði til að geta
nýtt okkur hana.
Forsenda árangurs og breið-
ari sáttar um málaflokkinn
er stóraukið samráð og
skilningur á eðli rekstrar
hjúkrunarheimila sem eru
ein af mikilvægustu grunn-
stoðum íslenska velferðar-
kerfisins. Orð á blaði duga
ekki ein og sér.
5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
6
-2
E
7
4
2
3
B
6
-2
D
3
8
2
3
B
6
-2
B
F
C
2
3
B
6
-2
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K