Fréttablaðið - 05.09.2019, Síða 30
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Margrétar Sveinsdóttur
áður Baldursgötu 26.
Innilegar þakkir til starfsfólks Hrafnistu
Laugarási fyrir umhyggju og umönnun.
Gunnar V. Guðmundsson Pétrína Ó. Þorsteinsdóttir
Karl B. Guðmundsson Guðrún Vilhjálmsdóttir
Björgvin G. Guðmundsson Hildur Pálmadóttir
Þórir B. Guðmundsson Hafdís Ingimundardóttir
barnabörn og langömmubörn.
Systir okkar,
Hulda Guðfinna Pétursdóttir
hjúkrunarfræðingur,
Snælandi 2, Reykjavík,
lést að Hrafnistu í Laugarási
fimmtudaginn 22. ágúst.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Ingibjörg Sigurðardóttir Kolbeins
Þórdís Sigurðardóttir
Þökkum fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför
okkar ástkæru eiginkonu, móður,
fósturmóður, tengdamóður,
systur og ömmu,
Þóru Ólafsdóttur
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi og
gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut.
Aad Groeneweg
Ólafur Þór Jóelsson Margrét Sif Hákonardóttir
Jón Pétur Jóelsson
Harold Groeneweg Bodil Groeneweg
Íris Anna Groeneweg Þórarinn R. Pálmarsson
Helga Jóna Ólafsdóttir Ásgeir Friðsteinsson
Edda Ólafsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Tryggvi Brandr Jóhannsson
lést á sjúkrahúsinu á Húsavík 28. ágúst
sl. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju
laugardaginn 7. september kl. 14.
Guðlaug Sigmarsdóttir
Sigmar Tryggvason Þorbjörg Björnsdóttir
Guðrún Tryggvadóttir Jón Ragnars
Ágústa Tryggvadóttir Jóhann Kristinn Gunnarsson
og barnabörn.
540 3320 • gardheimar.is
blomabud@gardheimar.is
Leyfðu okkur
að aðstoða þig!
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Björn Geir Jóhannsson
lést í Stavanger, Noregi, þann 16. ágúst.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
9. september klukkan 13.
Anna Antonsdóttir
Eyrún Erla Björnsdóttir Ívar Húni Jóhannesson
Jóhann F. Björnsson
Logi Freyr og Guðbjörg Tara
Sjö ungir menn fóru í skemmtiferð til Svíþjóðar á dögunum. Þeir mynda góðan vinahóp eftir að hafa hist
oft í sumarbúðunum sem Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra rekur í Reykjadal í
Mosfellsdal. Í ferðinni heimsóttu þeir
sumarbúðir fatlaðra á Ågrenska, eyju úti
fyrir Gautaborg, enda fengu þeir fengu
styrk til þess frá Erasmus+.
„Það var alger draumur að vera á
Ågrenska. Þar var hugsað fyrir öllum
þörfum fatlaðra,“ segir Andrea Ósk
Sigurbjörnsdóttir, einn aðstoðarmann-
anna sjö frá Reykjadal sem voru með í
för til aðstoðar. Félagarnir fóru í rat-
leik í Gautaborg en einn af hápunktum
ferðarinnar var þegar þeir fóru í Tívolíið
Liseberg. Þeir fóru meðal annars í öll
tækin – aftur og aftur! Flestir höfðu farið
í rússíbana áður en sumir aldrei. - gun
Skemmtu sér best í tívolíinu Líseberg
Allir nota félagarnir hjólastól en höfðu hver sinn aðstoðarmann.
Guðný Einarsdóttir er org-anisti Háteigskirkju. Hún er að skipuleggja tón-leika þar fyrsta laugardag hvers mánaðar í vetur klukkan 17. Þeir fyrstu
eru nú á laugardaginn, þá spilar Gunn-
ar Kvaran sellóleikari með henni. Ekk-
ert kostar inn en baukur hafður opinn
fyrir orgelsjóð. „Ég er búin að vera eitt ár
hér í Háteigskirkju og mér fannst strax
áhugavert og mikilvægt að endurlífga
orgelsjóð sem búinn er að vera til í mörg,
mörg ár. Það hefur alltaf staðið til að fá
vandað orgel á svalirnar, eins og gert var
ráð fyrir við hönnun kirkjunnar.“
Hljóðfærið sem nú er notað keypti
Marteinn Hunger til bráðabirgða
þegar hann var organisti kirkjunnar á
sínum tíma. Það er lítið sjö radda orgel
sem hefur ágætan hljóm en ekki mikla
breidd, að sögn Guðnýjar.
„Þessi kirkja ber alveg stærra hljóð-
færi og meiri fjölbreytileika. En það
er ekki búið að ákveða hvernig orgel
verður keypt og ég vil byrja söfnunina
með frjálsum framlögum tónleikagesta
og sjá hvernig það gengur. Býst ekki við
að ég safni fyrir öllu hljóðfærinu með
þessari tónleikaröð, því sjóðurinn er
ekki stór fyrir. Þetta verður brekka en
skemmtileg brekka því það skapaðist
strax góð stemning fyrir málefninu og
margir velunnarar og listamenn vilja
leggja sitt af mörkum.“
Kór kirkjunnar stendur þétt við
bakið á Guðnýju. „Þetta er bara dásam-
legur kór, þegar ég bar hugmyndina var-
færnislega undir hann, hvort við gætum
hugsanlega, mögulega, haft tvenna eða
þrenna tónleika fyrir jól þá voru allir til
í það. Þarna er hæfileikafólk sem er til-
búið að spila á hljóðfæri og syngja ein-
söng,“ lýsir hún.
„Ég lagði líka upp með að stemningin
á tónleikunum þyrfti ekki að vera alltof
hátíðleg, heldur mætti vera heimilisleg,
það féll í góðan jarðveg. Við erum að
gera þetta fyrir málefnið og því skapast
sérstakt andrúmsloft.“
Guðný segir þau Gunnar Kvaran verða
á klassískum nótum á laugardaginn,
með Bach og fegurð. „Það hefur staðið
til að við héldum tónleika saman og ég
stakk upp á að hann opnaði með mér
þessa tónleikaröð, honum leist vel á
það.“ gun@frettabladid.is
Fríir söfnunartónleikar
Allt frá því að Háteigskirkja var hönnuð og tekin í notkun hefur verið gert ráð fyrir
stóru orgeli þar. Nú er að fara af stað tónleikaröð til styrktar kaupum á því.
Guðný og Gunnar Kvaran ætla að hefja leikinn á laugardaginn.
1882 New York-borg er raflýst, fyrst allra borga í heiminum, að
tilstuðlan uppfinningamannsins Edisons.
1943 Íslandsklukkan eftir Halldór Kiljan Laxness kemur út og
hlýtur mjög góðar viðtökur.
1949 Vígð er kirkja í Möðrudal á Fjöllum.
1954 Þverárvirkjun í Steingrímsfirði er vígð.
1969 Björgvin Halldórsson,
18 ára, er kosinn poppstjarna
ársins á popphátíð í Laugardals-
höll í Reykjavík.
1973 Menntamálaráðherra
ákveður að fella bókstafinn
z brott úr opinberu íslensku
ritmáli.
1984 Níunda hrina Kröfluelda
hefst, kraftmeiri en hinar.
1995 Fjórða heimsráðstefna
kvenna er sett í Peking í Kína.
Merkisatburðir
5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R22 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
5
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
B
6
-2
E
7
4
2
3
B
6
-2
D
3
8
2
3
B
6
-2
B
F
C
2
3
B
6
-2
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K