Fréttablaðið - 05.09.2019, Side 44

Fréttablaðið - 05.09.2019, Side 44
NÝTT! Óðals Havarti krydd og Cheddar í smærri pakkningum Nokkrir af þekktustu f a t a h ö n n u ð u m landsins hafa tekið höndu m sa ma n og eru með svo-kallaðan pop-up markað á Laugavegi næstu þrjá daga. Markaðurinn verður opn- aður í dag klukkan tíu og úrvalið verður glæsilegt að sögn Helgu Lilju Magnúsdóttur, sem er ein af skipu- leggjendum markaðarins. Urðu að víkja fyrir túristabúð „Mig langaði að halda svona mark- að af því að ég á ekki lengur búð,“ segir Helgja Lilja hlæjandi. Hún rak áður búðina Kiosk, fyrst á Laugavegi og síðan í Ingólfs- stræti, með fleiri hönnuðum sem margir hverjir selja varning sinn á markaðinum næstu daga. „Já, stór partur af þeim sem ráku Kiosk með mér er að selja núna á pop-up markaðinum. Ég sakna þess mjög að reka búð en það er erfitt í miðbæ Reykjavíkur. Húsnæðið var alltof dýrt. Fyrst vorum við á Laugaveginum, þar sem nóg var að gera.“ Síðan kom upp sú staða að rífa átti húsnæðið sem búðin var í. „Svo átti auðvitað að byggja hótel. Síðan var hætt við þar og í dag er túristabúð í gamla hús- næðinu okkar.“ Búðin flutti í Ingólfsstræti „Það var mjög erfitt, því þá var hún svo- lítið úr alfara leið. Túristarnir löbb- uðu ekki hliðar- götur nar eða Erfitt að reka búð í miðbænum Í dag opna nokkrir af fremstu fatahönn- uðum landsins fatamarkað á Laugavegi 7. Einn af skipuleggjendum markaðarins segir erfitt að reka hönnunarbúð í miðbænum. Vörur frá eftirtöldum hönnuðum verða til sölu á markaðinum n Bið að heilsa niðrí Slipp n Eygló n Helicopter n Hlín Reykdal n Huginn Muninn n Hugleikur Dagsson n Kismet n Kyrja n Milla Snorrason n Sævar Markús Vörurnar frá Bið að heilsa niðrí Slipp verða til sölu næstu daga á Laugavegi, bæði nýjar og eldri línur. MYND/RUT SIGURÐAR Helga Lilja hannar undir merkinu Bið að heilsa niðrí Slipp ásamt Stephan Stephensen. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK fram hjá okkur til að mynda, en svo var leigan líka alltof há. Það var eiginlega bara engin leið að halda úti verslun á þessu svæði.“ Erfitt að selja eldri línur Hún og hönnuðirnir sem standa að markaðinum sakna margir þess að vera með sjálfstæða sölu, því þá er auðveldara að selja eldri línur. Séu flíkurnar seldar í búðum annarra er sjaldnast í boði að vera með eldra dót á tilboðsverði. „Þótt varan sé ekki úr nýj- ustu línunni eða glæný þá er hún samt kannski klassísk og falleg. En sé maður ekki með eigin búðarrekstur, getur maður varla selt hana lengur.“ Helga segir lítið um sjálfstæðar hönnunarbúðir og það séu þá helst íslenskir skartgripahönnuðir sem nái að láta það ganga. „Það er engin svona samstarfsbúð í miðbænum núna held ég, minnir að það sé ein í Hafnarfirðinum en það gæti verið að ég sé að fara með fleipur.“ Hún segir það þungan róður að vera fat ahönnuður á Íslandi. „Það þarf að flytja allt inn til landsins líka.“ Vildi frekar hanna á umhverfisvænni hátt Helga var áður með fatalínuna Helicopter sem naut mikilla vin- sælda meðal tískudrósa landsins, en f líkur frá merkinu verða til sölu á markaðinum. „Sú lína er í dvala og ég er mest að hanna undir línunni minni Bið að heilsa niðrí Slipp. Ástæða fyrir því er að BAHNS er mun umhverf- isvænna. Með Helicopter var ég mikið að prenta á efni og svo var kannski efni afgangs sem ekki var hægt að nýta í neitt. Í BAHNS er garn sem er alltaf hægt að nota áfram svo nýtingin er betri. Þetta er kallað „slow fashion“. Á markaðinum verða bæði eldri vörur á góðu verði en nokkrir a f hön nuðu nu m verða l í k a með nýjustu línur sínar til sölu. Hann verður opinn næstu þrjá daga frá og með deginum í dag og er á Laugavegi 7. steingerdur@frettabladid.is Skart frá Hlín Reykdal verður meðal þess sem verður til sölu á markaðinum. MYND/ANNA MAGGÝ 5 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 5 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 B 6 -1 F A 4 2 3 B 6 -1 E 6 8 2 3 B 6 -1 D 2 C 2 3 B 6 -1 B F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.