Skessuhorn - 14.01.2004, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 14. TANUAR 2004
jntaatnu,..
VarmaLandsliðið
og Lao Tse
Ágreiningur um hvemig taka skuli á ijárhagsvanda
Vaðið blint í sjóinn í
málefnum Safiiahússins
Vegna mistaka við vinnslu síðasta tölublaðs Skessuhoms vantaði hluta A mynd af fríðum. flokki útskriftamema fiú
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Við biðjumst velvirðingar á mistökunum og birtum hér myndina í heild sinni.
Theodór Þórðarson var um síð-
ustu áramót skipaður yfirlögreglu-
þjónn í Borgarnesi. Hann hefur um
árabil starfað sem lögregluþjónn í
Borgarnesi en auk þess verið frétta-
ritari Morgunblaðsins í Borgarnesi
og áhugakvikmyndaleikari. Nú síð-
ast lék hann lögregluvarðstjóra í
mynd Hrafns Gunnlaugssonar; op-
inberun Hannesar.
Nafn: Theodór Kristinn Þórðarson
Fteðingardagur og ár: 01.03.1952
Starf: Yftrlögregluþjónn
Fjölskylduhagir: Giftur Maríu Erlu Geirsdóttur
Flvernig bíl áttu: Nissan jeppa og Izusu pallbíl
Uppáhalds matur: Rjúpur að hætti Maríu Erlu
Uppáhalds drykkur: Vatnið á Arnarstapa undir Jökli.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Breskir sakamálaþættir
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Omar Ragnarsson
Uppáhalds leikari innlendur: Ingvar E Sigurðsson
Uppáhalds leikari erlendur: Gene Hackman
Besta bíómyndin: Oðal feðranna
Uppáhalds íþróttamaður: Jón Arnar Magnússon
Uppáhalds íþróttafélag: VarmaLandsliðið
Uppáhalds stjórnmálamaður: Davíð Oddsson
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Tómas R Einarsson
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: John Lee Hooker
Uppáhalds rithöfundur: Lao Tse
Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjórninni: Hlynntur
Hvað meturðu mest ífari annarra: Heiðarleika
Hvaðfer mest í taugarnar á þér ifari annarra: Oheiðarleiki
Hver þinn helsti kostur: Bjartsýni
Hver er þinn helsti ókostur: A það til að vera óþolinmóður.
Munt þú leggja Jýrir þig kvikmyndaleik í auknum mœli?
Eg heffengið tækifæri til þess á 10 til 12 ára fresti hingað til og
hef látið það nægja.
Má biiast við sýnilegum breytingum á starfi yfirlögreglu-
þjóns? Ekki miklar en það verða eflaust einhverjar áherslubreyt-
ingar hjá lögregluliðinu.
Hvernig leggst nýja árið í þig? Mjög vel
Eitthvað að lokum: Eg vil óska Borgfirðingum og öðrum lesend-
um blaðsins gleðilegs árs ogfriðar.
segir Axel Kristinsson fyrrverandi forstöðumaður
Eins og fram kom í síðasta
tölublaði Skessuhorns hefur
forstöðumaður Safnahúss
Borgarfjarðar sagt starfi sínu
lausu og í framhaldi af því er
fyrirhuguð endurskoðun á
rekstri hússins. Axel Kristins-
son fráfarandi forstöðumaður
er ósáttur við þróun mála
kveðst hefði viljað skilja við
starfið með öðrum hætti. Hann
segir sín starfslok snúast um
það að hann hafi ekki viljað
beygja sig að vilja stjórnar
stofnunarinnar og gagnrýnir
hana fyrir ófagleg vinnubrögð.
„Málið snerist að stórum
hluta um hvernig ætti að bregð-
ast við fjárhagsvanda stofnunar-
innar. Eg taldi að við ættum að
fara okkur hægt í niðurskurði
og stefna að því að halda í horf-
inu á næsta ári en um leið að
finna leiðir til að ná rekstrar-
hallanum niður. Agreiningur-
inn snerist um að stjórnin vildi
fara á fullt í niðurskurð án þess
að kanna málið. Hún vildi fella
niður rannsóknarstöðu mína en
samkvæmt ráðningarsamningi
innifelur starfið 50% rannsókn-
arhlutfall þótt ég hafi í raun
ekki nýtt nema 25%. Þá vildu
þeir segja öðrum starfsmanni
upp á móti. Við þetta gat ég
ekki sætt mig enda var rann-
sóknarhlutinn forsendan fyrir
því að ég flutti hingað í upphafi.
Stjórnin reyndi að þvinga mg til
að samþykkja þessar breytingar
þrátt fyrir að ég hefði gert þeim
grein fyrir að það kæmi ekki til
greina,“ segir Axel.
Hallarekstur
Axel segir að hallarekstur
hafi verið á Safnahúsinu frá ár-
inu 2001. Hann segir ástæðuna
ver m.a. þá að safnahúsið hafi
verið undirmannað lengi og að
tíðkast hafi að fjármagna rekst-
ur bókasafns með framlögum
annarra safna á vegum hússins.
„Eg reyndi hinsvegar að láta
hvert safn njóta þeirra fram-
laga sem þeim var ætlað. Við
þurftum að bæta við einum
starfsmanni á bókasafni og þá
er farið í að kaupa neðri hæð
hússin og setja þar upp nýjar
sýningar.
Allt var þetta gert með sam-
þykki sveitarfélaganna sem að
Safnahúsinu standa en menn
voru hinsvegar ekki tilbúnir að
greiða kostnaðinn sem þessu
fylgir"
Ljóst er að aðsókn að Safna-
húsinu hefur verið dræm og
m.a. brást skógarsýning sem
sett var upp sumarið 2002 al-
gjörlega vonum manna. Axel
segir að skortur á safngestum
vegi ekki þungt í rakstrarhalla
Safnahússins. Hann segir að í
raun séu ekki nema tvö eða
þrjú söfn á landinu sem skili
tekjum af aðgangseyri sem
eitthvað munar um.
Tilraun til þvingunar
„Það er ljóst að eitthvað þarf
að gera bæði hvað varðar að-
sókn og rekstur safnsins. Mér
finnst koma til greina að end-
urskoða staðsetningu hússins
og jafvel að skipta upp starf-
seminni eins og hugmyndir
hafa verið uppi um. Þetta ætti
vissulega að skoða en það þarf
að gera það á yfirvegaðan hátt í
stað þess að hlaupa út í van-
hugsaðan niðurskurð. Þá skil
ég ekki þá ákvörðun sem var
tekin með viku fyrirvara að láta
mig hætta frá áramótum í stað
þess að ég ynni uppsagnar-
frestinn. Eg veit ekki hvernig
það var hugsað af hálfu stjórn-
arinnar og mér dettur helst í
hug að það hafi átt að vera hót-
un í því skini að þvinga mig til
að vinna með stjórninni að
niðurskurðartillögum hennar.
Eg kærði mig ekki um það
enda er ég ekki tilbúinn að fara
að rífa niður það sem ég hef
verið að byggja upp. Eg átta
mig heldur ekki á því hvað
stjórnin er að hugsa með því að
ráða engan í staðinn fyrir mig
né fyrir Jónu Guðbjörgu
Torfadóttur sem einnig hefur
ákveðið að hætta. Þetta verður
höfuðlaus her sem veldur því
að ýmis mál munu klúðrast.
Stærsta málið er Destination
Viking, fjölþjóðlegt verkefni
sem Safnahúið er aðili að. Það
er ljóst að eftir að við hættum
hefur Safnahúsið ekki bolmagn
til að sinna þessu verkefni og
jafnvel kemur til greina að það
sé skaðabótaskylt vegna skuld-
bindinga þar að lútandi. Þá
hefur verið talað um að loka
byggðasafninu í sumar en
hvort af því verður veit ég ekki.
Ef það verður gert missir húsið
af rekstrarstyrk frá ríkinu upp á
eina milljón. I rauninni veit
enginn hvað er framundan og
ekki stjórnin heldur. Það er ein-
faldlega vaðið blint í sjóinn,"
segir Axel. Hann segir enn-
fremur að stjórnin sé meðal
annars skipuð sveitarstjórnar-
mönnum sem hafi tilhneigingu
til að horfa fyrst og fremst á
peningalega hagsmuni sveitar-
félagsins og einnig séu þar inni
menn sem séu tengdir öðrum
sambærilegum stofnunum í
héraðinu sem séu að berjast um
sömu fjármuni og Safnahúsið.
Myndarleg framlög
Ekki náðist í Guðrúnu Völu
Elísdóttur, formann stjórnar
Safnahússins áður en blaðið
fór í prentun en í samtali við
Skessuhorn sagði Páll S.
Brynjarsson bæjarstjóri Borg-
arbyggðar, eitt sveitarfélag-
anna sem aðild á að Safnahús-
inu að ákvarðanir stjórnar
hússins hefðu verið teknar í
samráði við viðkomandi sveit-
arstjórnir. „Stjórnin hefur lagt
aðáherslu á að hagræða í
rekstri eftir mætti því það hef-
ur verið halli á rekstri stofnun-
arinnar sem menn eru ekki
sáttir við. Þá liggur það fyrir að
þær væntingar sem forstöðu-
maðurinn hafði um fjárframlög
til Safnahússins voru ekki í
samræmi við það sem sveitar-
stjórnirnar vildu. Það breytir
því ekki að Borgarbyggð hefur
lagt myndarlegar fjárhæðir í
menningarmál, bæði í gegnum
Safnahúsið og aðra starfsemi,
og það eru engar blikur á lofti
um að það sé að breytast. Þar
komum við mjög vel út í sam-
anburði við önnur sveitarfé-
lög,“ segir Páll.
Að sögn Páls er það næst á
döfinni í málefnum Safnahúss-
ins að ráða rekstrarstjóra til
skamms tíma til að gera upp
árið 2003 og gera áætlun fyrir
árið 2004.