Skessuhorn


Skessuhorn - 14.01.2004, Qupperneq 7

Skessuhorn - 14.01.2004, Qupperneq 7
^nl,SSUnu>.. MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 2004 7 Verktakar vilja verslunarhús Hvítanesið var rifið réttfyrir áramót og líklegt að eins verði með Nýju Línuna og Piccadilly á nœstunni. Það lítur út fyrir að nokkur samkeppni sé að skapast um uppbyggingu verslunarmið- stöðva á Akranesi. Eins og áður hefur verið fjallað um eru uppi stórhuga hugmyndir um að byggja smækkaða Smáralind á Skagaverstúni og er bæjarstjórn þegar búin að sainþykkja deiliskipulagstillögur Skaga- torgs ehf þessa efnis eftir nokk- uð langan aðdraganda. Nú í haust vann arkitektastofan Gylfi og félagar greiningu á gamla miðbænum og hug- myndir um uppbyggingu þar m.a. á svonefndum Hvítanes- reit við Kirkjubraut. Nokkur hreyfing er nú komin á það mál því tveir bygginga- verktakar, Sveinbjörn Sigurðs- son ehf. og Skagatorg ehf. sækjast eftir byggingarrétti. Heyrst hefur að Sveinbjörn hafi þegar tryggt sér reitinn og er ýmislegt sem styður þær álykt- anir. Fyrirtækið hefur keypt Kirkjubraut 14, eða Piccadilly svokallað, og hafið viðræður við eigendur Nýju Línunnar um sölu hússins. Einnig hefur það látið Hönnun hf. vinna tillögur að verslunarhúsi á þessu svæði. A síðasta fundi skipulags- og umhverfisnefhdar voru svo hug- myndir Hönnunar um deiliskipulagsbreytingu á Hvíta- nesreit til umfjöllunar og sam- þykkt að leggja þær fyrir nefnd- ina næsta mánudag. Bæjarráð úthlutaða svo á s.l. fimmtudag Sveinbirni lóðina við Sunnu- braut 2 sem er gegnt Hvítanes- reimum. Björn S. Lárusson hjá Skaga- torgi ehf. sagði í samtali við Skessuhorn að þeirra hug- myndir hefði verið að byggja í- búðir á reitnum því augljóst sé að verslunin í bænum standi ekki undir tveimur verslunar- kjörnum. „Eg á erfitt með að meta stöðuna en það kæmi mér mjög á óvart ef Akraneskaup- staður ætlar að leggja til lóðir undir tvær verslunarmiðstöðvar á sama tíma. Það hlýtur að vera í andstöðu við hag bæjarins að standa þannig að málum.“ Magnús Guðmundsson for- maður skipulags- og umhverf- isnefndar taldi að ekki væri um eiginlega verslunarmiðstöð að ræða. „A þessu stigi vil ég sem minnst segja um þetta mál. Hugmyndin er sú að fylla uppí það skarð sem er á Kirkjubraut- inni og styrkja götumyndina með þriggja hæða húsi með verslunar- og þjónusturými á 1. hæð en íbúðum á efri hæðum.“ Ekki náðist í Sveinbjörn Sig- urðsson þar sem hann var staddur á Italíu. Ellert Jón kominn heim Kantmaðurinn knái Ellert ing við IA um að leika með lið- Jón Björnsson sem gekk til liðs inu næsta sumar. Koma Ellert við Val á síðustu leiktíð hefur Jóns mun styrkja liðið og auka nú skrifað undir eins árs samn- á breiddina á sumri komanda. Holtavörðuheiði lokuð Holtavörðuheiðin lokaðist á mánudag vegna óveðurs og fannfergis. Um miðjan dag fór lögreglan að vísa fólki á Bröttu- brekku og Laxárdalsheiði í stað Holtavörðuheiði en þar var veðurhæðin ekki eins mikil. Bröttubrekku var haldið opinni fram eftir kvöldi en snjómokst- ursmenn á Holtavörðuheiði gáfust upp á sjötta tímanum í gærkvöldi þar sem þeir sáu varla fram á tönnina á snjó- plógnum. Holtavörðuheiðin var opnuð aftur fyrir umferð á þriðjudagsmorgun. Ekki er vit- að til að neinn hafi lent í veru- legum hrakningum vegna veð- urs á þessum slóðum að sögn lögreglu. 40 ár frá fyrsta útíbúi Þann 4. janúar sl. voru 40 ár síðan fyrsta bankaútibú var sett á stofn á Vestur- landi en Samvinnubankinn opnaði útibú að Suðurgötu 36 á Akranesi þann dag 1964 sem jafnframt var fyrsta útibú bankans. Uti- búið á Akranesi var jafn- framt stærsta útibú Sam- vinnubankans á landinu. Samvinnubankinn flutti síðar í það húsnæði sem KB banki er nú í við Kirkju- braut. Hinu margslungnu breytingar sem orðið hafa á bankakerfinu leiddu til þess a Samvinnubankinn fór undir Landsbankann sem seldi Búnaðarbankanum útibúið að Kirkjubraut 40 sem varð svo að KB banka í lok síðasta árs. En þræðirn- ir liggja víða því sonur fyrr- um bankastjóra Samvinnu- bankans er nú stjórnarfor- maður KB bankans. Akraneskaupstaður Auglýsing um lóöir a Akranesi Einbýlishúsalóbir í klasa 1 og 2 í Flatahverfi á Akranesi Auglýstar eru til umsóknar einbýlishúsalóbir í klasa 1 og 2 í Flatahverfi á Akranesi. Um er að ræba 6 lóbir vib Eyrarflöt skv. deiliskipulagsbreytingu sem er í auglýsingu. Við úthlutun lóbanna er farib eftir vinnureglum sem samþykktar voru á fundi bæjarrábs Akraness þ. 27. febrúar 2003. Sérstök athygli er vakin á því að meb umsókn þarf að fylgja kvittun fyrir staðfestingargjaldi og skulu einstaklingar sem sækja um lób skila inn skriflegri stabfestingu frá banka eba lánastofnun um greibsluhæfi og mögulega lánafyrirgreibslu umsækjanda vegna fyrirhugabrar byggingar. Jafnframt er vísab til samþykktar bæjarrábs frá 27. febrúar s.l. um ab vib greibslumat vegna einbýlishúsa verbi lágmarksvibmib 15.0 mkr. og greiðslumat vegna annarra íbúba 10.0 mkr. Varbandi skriflega stabfestingu um greibsluhæfi er umsækjendum bent á 3 ab snúa sér til vibkomandi lánastofnunar. o j Esjubraut 49 ibnabarlób jj Jafnframt er auglýst til umsóknar iðnaðarlób, Esjubraut 49 (um 2800fm), skv. deiliskipulagsbreytingu sem er í auglýsingu. Bæjarráb hefur samþykkt ab auglýsa lóbina Esjubraut 49 lausa til umsóknar meb þeirri kvöb ab umsækjendur geri grein fyrir útliti fyrirhugabra bygginga og þeirri starfsemi sem verbi í þeim. Bæjarráb mun á grundvelli fyrirliggjandi umsókna meta hverjum úthluta skal lóbinni verbi umsóknir fleiri en ein. Framangreindum lóbum verbur úthlutab meb fyrirvara um gildistöku deiliskipulagsbreytinganna og verða þær ekki afhentar fyrr en samþykktar breytingar hafa tekiö gildi. Frestur til ab skila inn umsóknum er til og meb 29. janúar 2004. Vinnureglur og umsóknareybublöb eru á heimasíbu Akraneskaupstabar og erslóbin www.akranes.is. Gögn liggja einnig frammi hjá skipulagsfulltrúa á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs, Dalbraut 8. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu tækni- og umhverfissvibs ab Dalbraut 8. Umsóknir berist á skrifstofur Akraneskaupstaöar, Stillholti 16-18, 3. hæb. Sviösstjóri tœkni- og umhverfissviös F.v. Asgeir Magnússon forstjóri Samvinnutiygginga, Sveinn Kr. Guómundsson útibú- stjóri Samvinnubankans og Einar Agústsson bankastjóii Samvinnubankans og síðar ráðheiTa. Myndina er í eigu Ljósmyndasajiis Akraness en hana tók Olajhir Arnason.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.