Skessuhorn


Skessuhorn - 14.01.2004, Qupperneq 14

Skessuhorn - 14.01.2004, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 2004 Ferð unglingdeildar Snæfellings til Ipn-Roderatfis Þýskalandi I sumar fóru 15 unglingar á vegum unglingadeildar Snæfell- ings í heimsókn til Þýsklands. Þetta er liður í samstarfi hesta- mannafélaganna IPN Roderath og Snæfellings. Unglingarnir heimsækja hvom annan til að kynna sér aðstæður og notkun íslenska hestsins. Þessi ferð er sú önnur sem er farin til Þýskalands og höfum við fengið þjóðverjana tvisvar í heimsókn til okkar. Aðfaramótt 8. ágúst lagði hóp- urinn af stað til Keflavíkur og lent var í Frankfurt um hádegis- leitið. Þar tóku þýsku hópstjór- amir á móti okkur. Fyrsti dagur- inn fór í að koma sér fýrir en unglingarnir sem tóku á móti okkur höfðu allir komið til Is- lands síðastliðið sumar, svo þarna urðu skemmtilegir endurfundir. Þennan fyrsta dag okkar í Þýska- landi var 32 stiga hiti í forsælu og þótti flestum nóg um en þetta átti þó eftir að versna. Um kvöldið var svo hópnum skipt upp en tveir gistu hjá hverjum Þjóðverja, nema að 3 strákar fóra saman á einn staðinn. Þarna vom krakk- amir þegar farin að læra ýmislegt um annað land eins og að maður stekkur ekki inn í brennusólar- svæði á stuttbuxum. Það gæti orðið vont. Daginn eftir komu krakkamir svo saman aftur í Nettersheim, haldið var að stað í rútu til Nurn- burgring, flestir vom spenntir enda séð brautina í Formulu 1 í sjónvarpinu. Þar var skoðað safn sem geymdi marga af formúlubíl- um seinustu aldar ásamt því að hægt var að fara í go kart. Þar fóm krakkarnir í sannkallaðan ham og virtust lifa sinn inn í hlutverk Schumachers og Rai- koners af mikilli innlifun. Um miðjan dag var orðið svo heitt að ákveðið var að fara í sund enda var það kærkomið. Eftir sundið var svo haldið á Gestut Forstwald en þar búa Karly Zingsheim og Rúna Einarsdóttir. Rúna tók vel á móti okkur og sýndi okkur svæðið og hélt smá fyrirlestur um hestamennkuna hjá þeim og hrossaræktina. Einnig fengum við að sjá Dökkva ffá Miðfelli en hann var nýkominn heim frá Heimsmeistamótinu. Að lokum var svo sungið fyrir Rúnu til að þakka henni fyrir móttökurnar. Dagurinn endaði svo með Grilli í Nettesheim hjá Onju sem er einn af hópstjómm Þjóðverjanna. Þar var fótboltinn tekinn frarn og endaði það með því að ákveðinn var óformlegur landsleikur milh Islands og Þýskalands seinna í vikunni. Spennan var farin að hlaðast upp vegna landsleikjanna í haust. Síðan fóra hver til síns „heima“. Þriðji dagurinn kom með enn einni blíðunni. Og krakkarnir söfhuðust aftur sarnan í Netters- heim, nú skildi dagurinn hafinn á að fara í lítinn skemmtigarð. Að því loknu var svo skoðuð blý- náma. Var farið með okkur und- ir yfirborð jarðar og vom við ca. 30 metrum undir yfirborði jarðar. Leiðsögumaðurinn var um 79 ára gamall og hafði byrjað fyrir seinna stríð að vinna þarna. í göngunum var íslenskur sumar- hiti svo að flestir vom fegnir að komast úr nimlega 30 stiga hita á yfirborðinu. Gamli maðurinn sagðist þekkja íslenska hestinn, hann væri lítill enda væm íslend- ingar litlir. Var honum þá bent á íslenska hópinn sem var alltaf að reka höfuðið í þak ganganna. Ekki stóð á svari hjá honum, hann átti við í gamla daga. Eftir þessa áhugaverðu skoðunarferð var haldið að stað á loka áfanga- stað en það var sundlaugagarður. Hann var feikna stór með mörg- um sundlaugum. Höfðu allir gaman af hvort sem var verið að leika sér á stökkbrettum eða að ná sér í sólbrúnku. Eftir Pizza- veislu um kvöldið fóru svo krakk- arnir aftur heim. Mánudagurinn sem var fjórði dagurinn í ferðinni mætti okkur með enn meiri hita. Haldið var til Hestahvíslara sem heitir Josef Stamm. Hann sérhæfir sig í að kenna hestum að tölta, hann sýndi okkur sínar þjálfunarað- ferðir og nokkra stóra hesta af kyni brokkara og araba sem töltu. Einnig var hann með einn ís- lenskan stóðhest. Þetta var mjög áhugavert en tveir strákar í hópn- um vom búnir með fyrsta ár á Hólum og æduðu að nýta sér þessa þekkingu á seinna árinu. Af sýningunni lokinni fengu allir að pmfa þessa stóm hesta og þá var tekið til kostanna. Reyndar fannst mörgum að íslenski stóð- hesturinn væri ffekar lítíll þegar hann var við hliðina á þessum ris- um. Eftir þetta vom svo skoðaðir 10 asnar hjá Irenu og þóttu þeir skrítnir og svo var hesthúsið skoðað hjá Onju. Það vildi svo til að ein stelpan í þýska hópnum átti afmæli svo að farið var saman og borðaður ís í tilefni afmælis- ins, síðan fóm krakkarnir allir sarnan til síns heima. A fimmta ferðadegi var svo far- ið til Kölnar með Iest. Þar var byrjað á því að skoða Dómkirkj- una og farið svo upp í annan tum hennar. Sumir hlupu upp en aðr- ir gengu enda tröppurnar 509. Síðan var tekin lítil túristalest og farið í súkkulaðisafn og Olymp- íusafhið. Gengið var svo með- fram Rín til baka í miðbæinn. A leiðinni sáum við hitamæli sem sýndi 43 stiga hita. Reyndist þetta heitasti dagurinn okkar, ff éttum við síðan að fólk hafi ver- ið sent heim úr vinnu vegna hita þennan dag í Köln. Það sem eft- ir var af deginum var svo nýttur til verslunar enda Köln þekkt fýr- ir margar verslanir. Það vora ánægðir en þreyttir krakkar sem sátu í lestinni um kvöldið. Sjötta daginn var farið snemma af stað enda stefiit á að fara í Stóran skemmtigarð, einn af þeim stærri í Evrópu. Pfantasi- aland eða Ævintýraland. Svipað- an og Tívoli í Kaupmannahöfn. Voram við þar allan daginn en þrátt fýrir það náðu ekki allir að prófa öll tækin eða sjá allar sýn- ingarnar. Skemmtu sér allir vel. Fimmtudagurinn kom og nú var á dagskránni að fara í hjól- reiðatúr, mættu allir við náttúr- miðstöð Nettersheim og byrjað var að skoða safnið þar. Síðan fengu allir sitt hjól og haldið var af stað um sveitir Eifel (héraðið sem við vomm í). Nú hafði hita- bylgjan aðeins rénað svo að allir höfðu gaman af þessu. Sáum við hin ýmsu dýr á leiðinni. I lokin voru skoðaðir nokkrir hellar. Eftir hjólreiðatúrinn var svo farið í sund. Eftir sund var svo komið að landsleiknum, fengu þjóð- verjarnir smá liðsstyrk frá félags- liði en við þurftum að fá lánaðan markmann til að fýlla liðið. Hart var tekist á og ekkert gefið eftír, en eftír leiktímann vom úrslitín þessi: 6 -2 fýrir Island. Okkur hafði tekist það sem A- landliðinu tóks ekki. Að leggja Þjóðverjana. A leikinn flykktist fólk til að horfa á og á eftir fóm við öll í grill- veislu. Þar vora íslendingar mjög kátir enda ekki búnir að gleyma úrslitunum þó Þjóð- verjamir vildu sennilega gleyma þeim sem fýrst. Föstudagurinn var frjáls eða þá gerðu krakkarnir eitthvað með sinni fjölskyldu þar sem þeir gistu. Sumir fóm í dýragarð aðr- ir á hestbak. Og allt þar á milli. Síðan komu allir saman um kvöldið og fóra á Froðudiskótek. A Laugardagsmorgun komu svo allir saman hjá Onju í Nett- ersheim. Það var komið að kveðjustund. Skipst var á síma- númerum og emailum og vora margir sem vildu vera eftír enda margt sem heillaði. Þrátt fýrir það hafðist að koma öllum í rút- una og lagt var af stað til Frank- furtflugvallar. Það vora þreyttir en ánægðir unglingar sem sváfu í rútunni á leiðinni. Enda dagskrá- in verið þétt allan tímann. Þessi ferð heppnaðist einstaklega vel og stóðu allir í hópnum saman að því að gera þessa ferð efirminni- lega. Islenski hesturinn var á- stæðan fýnr því að þessi ferð var farin og núna era komin mikil og góð kynni á milli unglinganna hjá Snæfelling og Ipn-roderath. Væntanlega verður framhald á þessu samstarfi vinafélaganna á næstu áram. Sjá má upplýsingar um Ipn-Roderath á heimasíðu þess. www.ipn-roderath.de Við þökkum öllum sem gerðu þessa ferð mögulega en hún var fjármögnuð að stóram hluta af verkefninu „Ungt fólk í Evrópu“ F. h. Unglingadeildar Snæfellings Illugi G. Pálsson og Dóra Aðalsteinsdóttir fararstjórar. Ævintýraland á Hvanneyri Heimavistarhúsið á Hvann- eyri hefur verið leigt út til rekstrar sumarbúða fýrir börn frá júní til ágústbyrjunar næsta sumar. Leigutakar eru félaga- samtökin Sumarbúðirnar Æv- intýraland sem stofnuð vora 1998 og hafa verið starfrækt á Reykjum í Hrútafirði. Svan- hildur Sif Haraldsdóttir ffam- kvæmdastjóri sagðist í samtali við Skessuhorn vera mjög á- nægð með alla aðstöðu á Hvanneyri. Síðasta sumar dvöldu vikulega um 100 börn í sumarbúðunum og bendir allt til að um svipaðan fjölda verði um að ræða næsta sumar. Mik- ið er lagt upp úr því að efla sjálfstraustið hjá börnum og er þéttskipuð dagskrá allan dag- inn. Börnin velja sér námskeið sem þau eru á alla dagana, tvo tíma í senn. Námskeiðin sem hægt er að velja um era: leik- list, myndlist, kvikmyndagerð, íþróttir, grímugerð og tónlist og dans, síðasta kvöldið sýna börnin afrakstur námskeið- anna með sýningu á lokakvöld- vöku. Um verslunarmanna- helgina era svo eldri börn eða unglingatímabil og líkur sum- arbúðunum að því loknu. Að sögn Svanhildar er stefnt að því að Ævintýraland verið í framtíðinni staðsett á Hvann- eyri og að næsta sumar verði einungis upphafið að góðu samstarfi. Eftir góðan dag í phantasialandi með gestgjöfutn okkar. Landslið Þýskaland - Island. Island ígidum búningum. Leikurinnfór 4-6.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.