Skessuhorn - 14.07.2004, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 14. TULI 2004
^aiissunu^
:áKk Vectyrhorftvr
Um helgina er búist við
rólegu og hlýju veðri um allt
Vesturland þó mun sólin
skína skærast á noröanverðu
Snæfellsnesi. Hiti fró 11-16
gráður yfir daginn, sum sé,
besta veðrið um helgina hér
á Vesturlandi.
SpMrntruj viki^nnar
I síöustu viku var spurt:
„Beröu traust til ríkisstjómar
íslands?" Niðurstaða var eft-
irfarandi: „Já, fullt traust
33,3%,Hlutlaus 4,9%, Nei, al-
deilis ekki 54,3%, Hverjir eru í
ríkisstjórn?7,4%
í þessari viku spyrjum viö:
„Hvernig finnst þér
Vesturland standa sig í
ferðaþjónustu?"
Toktu afstööu á
skessuhorn.is
Til minnis
Við minnum á: Sandaragleð-
ina 2004 á Hellissandi.
Gleðin í ár verður með hefð-
bundu sniöi en hámark
hennar verður á laugardag,
17. júlí, kl. 16.00 en þá verö-
ur endurflutt dagskrá Sand-
ara á þjóðhátið Snæfellinga
árið 1974. Um kvöldið verður
svo annar dansleikur með
hljómsveit staðarins, Bít og
tveimur gömlum hljómsveit-
um, Útrás og Júnísvítunni.
Við minnum ennfremur á
allt annað sem er á döfinni á
Vesturlandi og er útlistað á
bls 13.
Vestlenoiincjivr
vikiinnar
Vestlendingur
-Va! vikunniir 'i
pO arfjarðar sem
I ;i* þessa dagana
er að skipa
hátt í tug umhverfisráðherra
í sveitarfélaginu. Grundflrð-
ingar hafa lengi haft metnað
til að hafa snyrtilegt í kring-
um sig og síöan er þetta líka
leið sem Framsóknarmenn
gætu farið þegar þeir tapa
umhverfisráðuneytinu í
haust að hafa marga ráð-
herra í hverju ráðuneyti.
Utboð vegna skólaksturs Varmalandsskóla kært
Kærunefnd útboðs-
mála hefur fengið til
umfjöllunar kæru
vegna þess hvernig
staðið var að útboði í
skólaakstur fyrir
grunnskólann á
Varmalandi. Þar var
samið við lægstbjóð-
anda en einn af þeim
sem átti tilboð í verldð
hefur lagt fram kæru á
þeim forsendum að lægstbjóð-
andi hafi eleki sldlað inn réttum
gögnum á réttum tíma.
Sæmundur Sigmundsson átti
lægsta boð í allar fimm akst-
ursleiðirnar í Varmalandsskóla
en hann hefur undanfarin ár
haft þrjár af leiðunum en Dag-
leið ehf, fyrirtæki Sindra Sig-
urgeirssonar, tvær.
„Staðreyndin er sú að við
opnun útboða skilaði Sæmund-
ur ekki staðfestingu á að hann
skuldaði ekki opinber gjöld
eins og ber að gera samkvæmt
reglunum,“ segir Sindri.“
Sindri Sigurgeirsson Helga Halldórsdóttir
Menn fengu frest til að skila
þessum gögnum og áttu þau
samt sem áður að miðast við
opnunardaginn. Þegar Sæ-
mundur skilar inn gögnunum
eru þau miðuð við dagsetningu
sem er löngu síðar. Þar með
hefur hann tvívegis brotið
gegn útboðsreglunum en samt
er samið við hann. Eg ráðfærði
mig við minn lögfræðing sem
taldi þetta kolólöglegt og því sá
ég mér ekki annað fært en að
kæra,“ segir Sindri.
Helga Halldórsdóttir for-
maður skóla og rekstrarnefnd-
ar Varmalandsskóla segir
nefndina hafa ákveðið að
óska eftir viðbótargögnum
frá tilboðsgjöfunum eftir
að tilboðin hafi verið opn-
uð þar sem gögn hafi vant-
að frá þeim öllum. „Við
ráðfærðum okkur við Rík-
iskaup, Samband íslenskra
sveitarfélaga og bæjarlög-
mann og var álit allra þess-
ara aðila að við værum að
fara að lögum. Við teljum okk-
ur vera að semja við aðila sem
skilar inn gildu tilboði og erum
mjög sátt við það enda er
kostnaður fyrir báða skólana,
Varmaland og Borgarnes, að
lækka um tugir milljóna,“ segir
Helga.
I Borgarnesi var ekki samið
við lægstbjóðanda um skóla-
akstur þar heldur þann sem átti
næstlægsta tilboðið, Þorstein
Guðlaugsson, en Sæmundur
átti einnig lægsta boð í það
verk. Helga segir rökin hafa
verið þau að tilboðin hafi verið
Stýríð úr sambandi
Sjö umferðaróhöpp urðu í
umdæmi Borgarneslögreglu um
helgina en allir hlutaðeigandi
sluppu án teljandi meiðsla að
sögn lögreglu.
A föstudag fór bíll útaf vegin-
um við Hreðavatnsskála en or-
sök slyssins var að stýrið fór úr
sambandi. Að sögn lögreglu er
um viðurkenndan fram-
leiðslugalla að ræða og hefur
umboðið innkallað alla bíla sem
eru með þessum galla. Nokkrir
eigendur munu hinsvegar ekki
hafa sinnt því kalli. Að sögn
lögreglu hafði núverandi eig-
andi bílsins ekki hugmynd um
gallann og því ekki við hann að
sakast. Mesta mildi má telja að
ekki fór verr í þessu tilfelli og
má segja að óhappið hafi orðið
á heppilegum stað ef svo má að
orði komast því ökumaður var
búinn að hægja verulega ferðina
þegar hann ók í gegnum hlaðið
Mikla mildi má telja að engan sakaði þegar stýri bifreiðar fór úr sam-
bandi við Hreðavatnsskála. Mynd: G.Bender
við Hreðavatnsskála.
Á laugardag fór vörubifreið
útaf veginum við Hítardal og
valt á hliðina en ökumaður mun
hafa dottað við stýrið að sögn
lögreglu. Leitað var aðstoðar
björgunarsveitarinnar Brák í
Borgarnesi við að ferja fiskinn í
annað farartæki.
Á laugardag varð einnig bíl-
velta við Stóra As í Hálsasveit
og önnur við Húsafell. Þá varð
árekstur á Geldingadraga.
Á sunnudag varð lítilsháttar
árekstur við Hyrnuna í Borga-
nesi og þriggja bíla árekstur við
Hvassafell.
Sem fyrr segir urðu ekki telj-
andi meiðsl í ofangreindum
umferðaróhöppum. GE
Sameining samþykkt við Fit
Þann 1. ágúst n.k. gengur í
gildi sameining Sveinafélags
málmiðnaðarmanna á Akranesi
(SAIA) og Félags iðn- og tækni-
greina (Fit). Félagsmenn
Sveinafélagsins samþykktu sam-
einingu með nærri 80%
greiddra atkvæða í atkvæða-
greiðslu sem ffam fór í byrjun
júní en Fit gekk formlega frá
sínum málum varðandi samein-
inguna þann 30. júní. A fram-
haldsaðalfundi SMA sem hald-
inn var 8. júlí var svo endanlega
gengið frá því að sameiningin
tæki gildi 1. ágúst.
Að sögn Hermanns Guð-
mundsson, formanns Sveinafé-
lagsins, munu allir þeir sem
greitt hafa til félagsins færast til
Fit við sameininguna. Að Fit
standa bíliðnamenn, blikksmið-
ir, trésmiðir, málarar og garð-
yrkjumenn en nú bætast málm-
iðnaðarmenn í þennan hóp.
Með sameiningunni verður Fit
með nærri 2300 félagsmenn, 21
orlofshús auk tjaldvagna og í-
búðar á Spáni. Fit er aðili að
þjónustuskrifstofum á Selfossi
og í Reykjavík en nú bætist við
skrifstofa á Akranesi á sama stað
og Sveinafélagið var áður, á
Kirkjubraut 40 enda renna nú
allar eigur Sveinafélagsins til
Fit.
Hermann Guðmundsson
kvaðst í samtali við Skessuhorn
vera ánægður með þessa niður-
stöðu. „Þetta þýðir m.a. að slag-
kraftur félagsins ætti að aukast
verulega, m.a. með stórauknu
úrvali orlofshúsa en ekki síst
auknum rétti félagsmanna til
dagpeningagreiðslna vegna
veikinda. Félagsmaður í Fit fær
t.d. greidd 80% af launum sem
viðkomandi hafði haft mánuð-
ina áður en hann veikist. Til
samanburðar þá var hámarks-
greiðsla sem menn gátu fengið
mjög svipuð og málið hafi ver-
ið metið þannig að það væri
ekki íþyngjandi fyrir rekstur
Sæmundar Sigmundssonar að
semja ekki við hann í því til-
felli.
Aðeins eitt tilboð barst í
hverja akstursleið á Mýrunum,
frá þeim sem sinnt hafa því
verki síðustu ár en þeir eru
Guðjón Gíslason, Jóhann Páls-
son, Guðbrandur Guðbrands-
son, Sturla Stefánsson og Ein-
ar Karelsson.
Helga vildi að fram kæmi að
mikil ánægja væri með störf
allra sem séð hefðu um
skólakstur við Grunnskólana
tvo í Borgarbyggð, síðustu ár.
GE
vegna veikinda frá SMA áður
tæpar 140 þúsund krónur á
mánuði. Á móti kemur þó að
Fit greiðir ekki sérfræðikostnað
vegna veikinda. Þetta þýðir að
tekjuöryggi manna eykst veru-
lega eftir sameininguna,“ segir
Hermann. „Eg er ánægður með
þessa niðurstöðu og sérstaklega
hversu kosningin var afgerandi
meðal félagsmanna okkar. Það
er mikilvægt að afgerandi vilji
félagsmanna sé til staðar við svo
veigamiklar breytingar þannig
að sátt haldist innan félagsins,“
sagði Hermann að lokum.
MM
Háskóla-
ráð LHÍ
Háskólaráð Landbúnað-
arháskóla Islands á Hvann-
eyri hefur verið skipað. Eft-
irtaldir aðilar sitja í ráðinu:
Baldur P. Erlingsson, lög-
fræðingur, formaður, skip-
aður af landbúnaðarráð-
herra til bráðabirgða þar til
nýskipaður rektor tekur
sæti formanns skv. bráða-
birgðarákvæði breyttra laga
um búnaðarfæðslu (nr.
71/2004).
Hákon Sigurgrímsson,
skrifstofustjóri í landbúnað-
arráðuneytinu, tilnefndur af
landbúnaðarráðherra.
Jón Torfi Jónasson, pró-
fessor, Reykjavík, tilnefndur
af háskólaráði Háskóla
Islands.
Stefán Kalmansson, að-
júnkt við Viðskiptaháskól-
ann á Bifröst, tilnefndur af
Samtökum atvinnulífsins.
Haraldur Benediktsson,
formaður Bændasamtaka Is-
lands, tilnefndur af Bænda-
samtökum íslands.
Ari Teitsson, ráðunautur,
tilnefndur af Bændasamtök-
um Islands.
Brynhildur Einarsdóttir,
Reykjavík, tilnefnd af
menntamálaráðherra.
Olafur Arnalds, náttúru-
fræðingur, tilnefndur til
bráðabirgða með sameigin-
legri kosningu allra fastráð-
inna starfsmanna LBH,
RALA og Garðyrkjuskól-
ans.
Jón Orvar Jónsson, for-
maður skólafélags LBH, til-
nefndur til bráðabirgða af
nemendafélagi LBH.
Landbúnaðarráðherra
skipar rektor hinnar nýju
stofnunar frá og með 1.
ágúst nk. að fenginni um-
sögn háskólaráðs.