Skessuhorn - 14.07.2004, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 2004
3
L^ifshátíð m^ð fornaufirbrdgð]
Leifshátíðin var haldin í
fjórða skipti á Eiríksstöðum í
Haukadal um síðustu helgi.
Voru gestir um 500 talsins og
fór hátíðin friðsamlega fram,
að sögn Helgu Agústsdóttur
staðarhaldara.
Skemmtiatriði voru að
mestu leyti í höndum heima-
manna. Sönghópar, kórar og
harmonikkuklúbburinn Nikk-
ólína og hljómsveitin Abrestir
komu fram. Trúbadorinn Halli
Reynis, sem Dalamenn hafa
eignað sér, kom og spilaði á
laugardagskvöldinu. Þá bauð
Stoppleikhópurinn upp á leik-
sýningu um landafundina og
Erla Stefánsdóttir sjáandi
sagði gestum allt um álfa-
byggðir í Haukadal. Einnig var
gestum boðið að rekja ættir
sínar aftur til Eiríks og sam-
tímamanna hans og sá ætt-
fræðingur um þann hluta.
Guðmundur Olafsson forn-
leifafræðingur var að stöfum
við uppgröft á jarðhýsi sem er
að fínna á Eiríksstöðum og er
talið hafa verið vinnustaður
kvenna. Einhver smábrot fann
hann sem gæti verið úr snældu
frá víkingaöld, en eftir er að
rannsaka það betur og aldurs-
greina. Ef snældubrotið reyn-
ist við aldursgreiningu frá vík-
ingatímabilinu, gæti hér verið
komin í leitirnar snælda Þjóð-
hildar.
Víkingar settu svip sinn á
hátíðina. Voru þar víkingahóp-
urinn Hringhorni frá Akranesi
sem sérhæfir sig í leikjum fýrir
börn og víkingakonur frá
Þingeyri sem sérhæfa sig í
handverki. Dalamenn hafa ný-
verið stofnað víkingahóp og
tók hann þátt í hátíðinni sem
slíkur í fyrsta skipti og var við
ullarþvott, brauðbakstur og
handverkssölu. I sjálfum Ei-
ríksstaðabænum bjó víkinga-
fjölskylda alla helgina, en það
var sjálfur Eiríkur rauði ásamt
komu og barni. Þau er „al-
vöru“ víkingar og starfa sem
slík og koma frá Danmörku.
Veðrið var gott fyrir utan
nokkra dropa á laugardags-
kvöldið þegar Brennu-Flosi
kveikti upp í varðeldinum.
MM/Mytidir: SigJ
Meðferð boga og örva var sýnd á hátíðinni.
Eiríkur rauði og kona hans bjuggu í bænum um helgina og tóku á
móti gestum.
Víkingar sýndu handverk og gömui leikföng.
Börn fengu leiðsögn f leikjum vfkinga.
Borgarfjardarsveit
Tilkynning
Borgarfjarðarsveit hefur ráðið Snorra
Jóhannesson, Björn Björnsson og Bircjir
. Hauksson sem refaskyttur fyrir sveitarfelagið
j árið 2004 og verður öðrum ekki greitt fyrir
I refaveiðar á árinu.
Sveitarstjóri Borgarfjarðarsveitar
f \
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
FASTEIGN í B0RGARNESI
Þórðargata 26, Borgarnesi
Tveggja hæða raðhús með innbyggðum bilskúr, samtals
180 fm, byggt 1973.
Forstofa nýlega flísalögð, hol á báðum hæðum og
stofa m/plastparketi. 5 herbergi öll m/plastparketi.
Eldhús m/korkflísum á gólfi, upprunaleg innrétting.
Baðherbergi m/dúk á gólfi og á veggjum, kerlaug/sturta.
Þvottahús. Gróinn garður. Nýr sólpallur, nýlegir
þakkantar og hús málað að utan 2003. Eignin er laus
til afhendingar 15. ágúst 2004.
Verð: kr. 14.000.000
| Húsið verður til sýnis fimmtudaginn 15. júlí nk.
i milli kl. 16:00 og 19:00. (Halla og Sigurður)
*
| Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
Ingi Tryggvason hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61, 310 Borgarnes,
s. 437 1 700, 860 2181, fax 4371017,
netfang: lit@isholf.is veffang: simnet.is/lit
5M5 LEIKUR
VINNINGAR: SNJÓSLEÐI, FJÓRHJÓL, ÆVINTÝRAFERÐIR
Þú kaupir rétta kippu og geymir kvittunina
sendir SMS skeyti með fjölda kippa í 1919 - t.d. becks(bil)2
og þú ert kominn í pottinn
Allar nánari upplýsingar á becks.is
■
Auglýsingastofa Guðn