Skessuhorn


Skessuhorn - 14.07.2004, Side 6

Skessuhorn - 14.07.2004, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. TULI 2004 ^niisaunu^ /'i/tuinar Umsjón: Iris Arthúrsdóttir. Þeir sem hafa áhuga á að láta birta uppáhalds uppskriftina sína geta sent hana inn ásamt ljósmynd af sjálfum sér eða réttinum (500 kb eða stærri), fullu nafni, heimilisfangi og síma á netfangið iris@skessuhorn.is HÚSRÁÐ Til að rjóminn þeytist betur er gott að kæla skálina og þeytispaðana í ísskápnum áður en þeytt er. Islandsmót í golfi í fyrsta sinn á Akranesi Reykholtshátíð helgina 23 Reykholtshátíð verður hald- in í áttunda sinn í ár, en hátíð- in hefur getið sér orð fyrir að vera ein vandaðasta tónlistar- hátíð landsins. Hátíðin hefur mælst vel fyrir erlendis og þyk- ir eitirsóknarverður vettvangur fyrir þekkta norræna og evr- ópska tónlistarmenn. Hún dregur að sér vaxandi fjölda ferðamanna sem sumir koma sérstaklega til að njóta hátíðar- innar jafnvel langt að og dvelja þá gjarnan áfram til að kynna sér land og þjóð. Hátiðin fer fram í Reyk- holtskirkju dagana 23. -25. júlí og hefst á opnunartónleikum föstudaginn 25. júlí kl 20:00 þar sem flutt verður tónlist eft- ir Wolfang Amadeus Mozart. A tónleikunum koma fram Auður Hafsteinsóttir fiðluleik- ari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari, Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari og Þórunn Osk Marinósdóttir víóluleikari. Auk þess mun Trio Polskie frá Varsjá flytja píanótríó eftir meistarann. Þann 24. júlí kl 15:00 verða söngtónleikar þar sem Elín Osk Oskarsdóttir sópran mun flytja íslensk og norræn ljóð á- samt þekktum óperuaríum með Steinunni Birnu Ragnars- dóttur píanóleikara. Elín Osk Oskarsóttir hefur um árabil verið í hópi fremstu söngvara landsins og hlotið margvísleg verðlaun og viðukenningar fyr- ir söng sinn. Að kvöldi 24. júlí kl 20.00 mun Trio Polskie frá . - 25. júh Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran kemur fram á Reykholtshátíð. Varsjá flytja þrjú píanótríó eftir Haydn, Beethoven og SchubertTríóið skipa; Tomasz Bartoszek píanó, Sebastian Gugala fiðla og Arkadiusz Dobrowolski selló. Lokatón- leikar hátíðarinnar verða svo á sunnudaginn 25. júlí kl 16.00 og verða þar flutt verk eftir Beethoven, Grieg og Schumann auk þess sem frum- flutt verður verk eftir Þórð Magnússon fyrir sópran, píanó og selló við texta Snorra Sturlusonar. Þórður var nýlega tilnefndur til Tónlistarverð- launa Norðurlandaráðs. Flytj- endur á lokatónleikunum verða allir þátttakendur hátíð- arinnar en þeir eru; Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Elín Osk Oskars- dóttir, Steinunn Birna Ragn- arsdóttir, Þórunn Ósk Marin- ósdóttir og Trio Polskie. Miðar á tónleikana verða seldir við innganginn. Einnig er hægt að panta miða í síma 552-3208 eða 891-7677 eða á samhljomur@simnet.is MM Konfektterta Á Akranesi verður síðar í þess- um mánuði haldið Islandsmótið í golfi, nánar tiltekið dagana 22. til 25. júlí. Ljóst er að mikið mæðir á heimamönnum þegar haldið er mót af þessari stærð- argráðu og ræddi Skessuhorn stutdega við Brynjar Sæmunds- son framkvæmdastjóra Leynis um mótið og önnur verkefni sumarsins. Golfklúbburinn Leynir á Akranesi er elsti og stærsti golf- klúbburinn á Vesturlandi. Vöxt- ur hans hefur verið mikill und- anfarin ár bæði þegar litið er til uppbyggingar Garðavallar og fjölgun kylfinga. Golfvöllurinn var stækkaður í 18 golfholur árið 2000 og félagafjöldinn hefur þrefaldast á stuttum títna. „Nú eru um 400 félagsmenn skráðir í golfklúbbinn, þar af 120 börn og unglingar,“ segir Brynjar. Að- spurður um verkefhi sumarsins segir hann að af nógu sé að taka. „Þetta er óneitanlega viðburða- ríkt ár hjá okkur. Fjöldi stórra móta hefur þegar farið frarn, svo sem opin golfmót, stigamót unglinga var haldið í byrjun júní og margir fyrirtækjahópar hafa verið bókaðir á völlinn. Eftir að Garðavöllur var stækkaður í 18 holur hafa nokkur stigamót á Toyota mótaröðinni verið haldin hér á Akranesi og hafa þau geng- ið mjög vel. Við höfum því nasa- þefinn af því sem koma skal á ís- landmótinu sem verður há- punktur sumarsins en þetta er í fyrsta skipti sem landsmót verð- ur hér á Akranesi í 39 ára sögu golfklúbbsins. Gert er ráð fyrir 150 þátttakendum á mótinu og öðrum eins fjölda aðstoðar- manna keppenda. Beinar út- sendingar verða frá því á sjón- varpsstöðinni Sýn og vænta má fjölda áhorfenda á síðasta keppn- isdegi ef veður verður gott. Þetta er án efa stærsta verkefhi sem klúbburinn hefur tekið að sér í mótahaldi til þessa og verður tví- mælalaust mikil kynning fyrir Akranes," segir Brynjar. Sýnt beint á Sýn Brynjar segir allan undirbún- ing hafa gengið mjög vel. „Is- landsmótið í golfi er stærsti golf- viðburðurinn hér á landi ár hvert. Það sem er nýtt í þessu fyrir okkur núna er bein útsend- ing af mótinu á 3. og 4. keppnis- degi en því fylgja ýmis verkefni sem við ætlum okkur að leysa vel. Við höfum byggt sérstakt stæði úti á vallarsvæðinu fyrir út- sendingarbíl Sýnar og lagður verður 400 metra rafmagns- strengur að bílnum í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur. Einnig munum við vera með 2-3 lyftupalla frá Gísla Jónssyni til að Sýnarmenn nái sem bestu myndefhi af mótinu úr 10 til 17 metra hæð og svo minni palla á nokkrum stöðum á vellinum. Aðal áskorunin í framkvæmd þessa móts verður þó ef til vill þátttaka okkar félagsmanna í sjálfboðavinnu við mótið. Við geram ráð fyrir að þurfa allt að 50 manns til að vinna með móts- stjórninni í ýmsum verkefhum, sérstaklega síðustu tvo dagana þegar beina útsendingin fer ffam en þá liggur mest við að allar upplýsingar komist sem fyrst í loftið t.d. með færanlegum skortöflum úti á golfvelli og Þessi terta er ffekar þung og þétt í sér og algjör nauðsyn að bera fram þeyttan rjóma eða vanillu ís með. Botn: 100 g sykur 350 g Síríus suðusúkkulaSi (konsum), brætt 200 g hakkaðar möndlur 150 ghveiti 5 egg aðskilin 50 g sykur Þeytið vel saman 100 g sykur og eggjarauður, bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og blandið saman við ásamt möndlum og hveiti. Þeytið eggjahvímrnar og 50 g af sykri vel saman og blandið saman við súkkulaðiblönduna með sleikju. Brynjar Sæmundsson framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis. upplýsingagjöf til sjónvarpsmanna. Ef veður verður gott þurfum við að vera undir það búin að hingað komi verulegur fjöldi áhorfenda sem kallar á um- ferðastjórnun bæði hvað varðar bílastæði og um- ferð áhorfenda inn á golfvellin- urn. Við höfum óskað eftir sjálf- boðaliðum til starfa úr okkar röðum og eru margar vinnufúsar hendur sem hafa boðið fram krafta sína,“ segir Brynjar. Styður mjög við ferðaþjónustu I tilefni Islandsmótsins var farið í bygginu 12 bása æfinga- skýlis á golfvallarsvæðinu og endurbyggingu bílastæðis með bundnu slitlagi við golfskálann og er báðum þessum fram- kvæmdum nú lokið. Búið er að leggja mikla vinnu í að bæta að- stöðuna á golfvallarsvæðinu nú í vor og sumar. Brynjar segir golfíþróttina styðja mjög aðra ferðaþjónustu í bæjarfélaginu. „Við erum að sjá mikla aukningu í aðsókn gesta- spilara eftir að golfvöllurinn var stækkaður í 18 holur. Þetta eru bæði einstaklingar og fyrir- tækjahópar og svo eru erlendir ferðamenn farnir að boða komu sína til okkar. Sú golfaðstaða sem hefur verið í uppbygginu á Akranesi undanfarin ár hefur vakið mikla athygli golfáhuga- fólks. Ef það næst að halda þeirri uppbyggingu áfram á næstu árum á Golfklúbburinn Leynir eftir að vega þungt í ferðatengdri þjónustu á Akra- nesi og verða bæjarfélaginu til framdráttar og sóma á þessu sviði á komandi árum og á um- fjöllunin um íslandsmótið án efa eftir að verða mjög góð kynning fyrir staðinn,“ segir Brynjar Sæmundsson að lokum. MM Setjið í eitt form. Bakið við 180°C í 30 mín. Fletjið út marsipanið og leggið yfir kökuna. Hitið rjómann að suðu og hellið yfir saxað súkkulaðið. Kælið áður en tertan er hjúpuð með súkkulaðinu. Hjúpwr: 200 g hjúpmarsipan 200 g Síríus suðusúkkulaði (konsum), saxað 3/4 dl rjórmi Síróp: 1/2 dl vatn 60 g sykur 3-4 msk. romm Sjóðið vatn og sykur saman í u.þ.b. 5-7 mín., blandið út í örlitlu af rommi 3-4 msk. eða 1 msk. af dropum. Smyrjið yfir botninn.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.