Skessuhorn - 14.07.2004, Síða 11
cml,S9Ullu^
MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 2004
11
Frábært Skagamót
Eitt stærsta knattspyrnumót
ársins fór fram á Akranesi um
nýliðna helgi. Skagamót KB
banka og Coke kallast það nú
en það er fyrir knattspymufólk
á aldrinum 6-8 ára eða 7. flokk.
Undanfarin ár hefur mótið jafn-
an verið nefnt Lottómótið en
hefur nú fengið nýja styrktar-
aðila og þar með nýtt nafn.
Mest voru þetta piltar sem þátt
tóku í mótinu en þó voru ein-
staka stúlka með í liðunum og
eitt lið ÍA var eingöngu skipað
stúlkum.
Að þessu sinni mættu til
leiks um 850 keppendur ásamt
þjálfurum, liðsstjórum og að-
standendum. Til leiks voru
skráð 92 keppnislið frá 25 fé-
lögum víðsvegar að af landinu.
Talið er að heildarfjöldi gesta á
Akranesi vegna mótsins hafi
verið um 2.500 manns þegar
taldir eru þátttakendur, starfs-
menn, foreldrar og aðstand-
endur. Þegar þessi fjöldi bætist
við aðra gesti sem í bænum
voru vegna írskra daga má
gera ráð fyrir að heildargesta-
fjöldi hafi verið hátt í 10 þúsund
manns, að sögn Sigrúnar Ósk-
ar Kristjánsdóttur markaðsfull-
trúa Akraneskaupstaðar.
Það er Unglinganefnd ÍA
sem stóð fyrir mótinu. Magnús
Óskarsson er formaður nefnd-
arinnar og var hann að vonum
hæstánægður eftir helgina.
„Mótið gekk alveg glimrandi
vel í alla staði hvernig sem á
það er litið. Tímasetningar
stóðust, veðrið lék við okkur
og skipulagning öll gekk upp,“
sagið Magnús. Á grillskemmt-
un sem haldin var á laugar-
dagskvöldinu kom allur hópur-
inn saman og voru forráða-
menn unglinganefndar ÍA hyllt-
ir af gestum og klappað lof í
lofa fyrir sérlega gott mót í alla
staði. Má þetta fólk vera stolt
af vinnu sinni.
Megin markmið Skagamóts-
ins er að þátttakendurnir upp-
lifi knattspyrnu á jákvæðan
hátt og fari heim með góðar
minningar um skemmtilega
daga á Akranesi. Til þess að ná
þessu markmiði hefur stjóm
Unglinganefndar ÍA þróað
keppnisfyrirkomulag sem m.a.
kemur í veg fyrir þá þætti sem
helst geta dregið úr jákvæðri
upplifun þátttakenda. Þannig
er reynt að koma í veg fyrir full-
ÍR-ingar fylgjast með frá hliðarlínunni.
Stund milli stríða.
Nei, þetta eru ekki randaflugur eða strokufangar, heldur vaskir kappar
úr vesturbæ Reykjavíkur.
yrðingar á borð við: „Þeir voru
burstaðir", „krafan um árangur
var ofar leikgleði" og „leikirnir
tóku alltof langan tíma“. Magn-
ús Óskarsson segir að þessi
breyting hafi komið sér vel og
bætt mótið frá því sem verið
hafði. „Við breyttum á síðasta
ári keppnisfyrirkomulagi
Skagamótsins. Helstu breyt-
ingarnar fólust í því að leikir eru
spilaðir þéttar, viðvera á vallar-
svæði styttist en leikmínútur á
mótinu haldast óbreyttar. Þetta
gerir það að verkum að lið frá
fleiri andstæðinga við hæfi,
ekki eru leiknir eiginlegir úr-
slitaleikir og ekkert lið lendir
neðar en í 6. sæti,“ sagði
Magnús að lokum.
MM
Keppendur frá ÍA á leið á völlinn en allir þátttakendur gengu fylktu liði
frá Akratorgi á föstudagsmorgninum. Myndir: Hilmar S og MM
Rúlluplast
MR selur
umbúðir fyrir
hey í hæsta
gæðaflokki
frá Hollenska
fyrirtækinu
VISSCHER
HOLLAND.
Umbúðir fyrir hey Magn pr. paíl. Þyngd pr. Rúllu Verð án vsk Verð m.vsk
Rúlluplast:
Grænt 75 cm 30 rl 29 kg 5.995,- 7.464,-
Hvítt 75 cm 30 rl 29 kg 5.995,- 7.464,-
Rúllunet 12grx 3000m 47 kg 13.900,- 17.306,-
Garn (2 rl í pakka) 9 kg 1.990,- 2.478,-
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Korngarðar 5 • 104 Reykjavík
Símar: 5401100 • Fax: 5401101
Réttci plostið tryggirgœðin