Skessuhorn - 14.07.2004, Page 15
.,»r.r-<iinn..
MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 2004
15
oidAi
svtp.igm
Sveit HSH marserar inn á völlinn við setningarathöfnina.
Sveit UDN marserar inn á völlinn við setningarathöfnina.
Kvennalið HSH í körfubolta nældi sér í silfurverðlaun
Hallbera Eiríksdóttir sigraði i kringlukasti
Jafntefli
á Ólafs-
víkurvelli
Það stefnir í mikla baráttu á
milli Víkings Ólafsvík og KS á
Siglufirði um annað sætið í
annarri deildinni og þar með
sæti i þeirri fyrstu á komandi
leiktið. Víkingar tylltu sér í 2.
sætið um tima á fimmtudag
þegar þeir gerðu jafntefli vð
topplið Leiknis, 1 -1 á Ólafsvik-
urvelli. Gestirnir komust yfir
snemma í leiknum er þeir
fengu umdeilda vítaspyrnu.
Hemann Geir Þórsson jafnaði
siðan undir lok fyrri hálfleiks og
þar við sat. Siglfirðingar endur-
heimtu hinsvegar annað sætið
þegar þeir unnu stórsigur á
Víði, 7 - 1 á laugardag. GE
Skallarnir
skora
Skallagrimsmenn halda áfram
að sanka að sér stigum iA riðli
3. deiidarinnar i knattspyrnu
en liðið hefur ekki tapað stigi
frá því í fyrstu umferðinni. Það
var gegn Árborg en þeir hinir
sömu voru engin fyrirstaða fyr-
ir Skallana þegar þeir mættu í
Borgarnes á þriðjudaginn í
síðustu viku. Skallanir unnu
öruggan sigur, 5 - 0 og hafa nú
skorað 21 mark í síðustu
þremur leikjum. Gamla brýnið
Hilmar Þór Hákonarson skor-
aði tvö mörk fyrir Borgnesinga
gegn Árborg og þeir Svein-
björn G Hlöðversson, Finn-
bogi Llores og Guðni Albert
Kristjánsson sitt markið hvor.
Skagamenn á ný í toppbaráttunni
Eigum góðan möguleika á titlinum
segir Ólafur Þórðarson þjálfari
Skagamenn gerðu góða ferð
til Vestmannaeyja á laugardag
þegar þeir unnu sinn fyrsta
sigur á ÍBV í níu ár. Leikurinn
var fjörugur og mikil barátta
allan tímann eins og jafnan
þegar þessi lið eiga við.
Skagamenn fengu þó fleiri
marktækifæri en það var ekki
fyrr en á 88. mínútu sem úrslit-
in réðust en þá fengu Skaga-
menn vítaspyrnu sem Hjörtur
Hjartarson skoraði úr af öryggi
en hann hafði komið inn á sem
varamaður skömmu áður. Með
sigrinum hafa Skagamenn
blandað sér í toppbaráttuna
og sitja nú í þriðja sæti með 16
stig, aðeins þremur stigum á
eftir Fylki sem er í toppsætinu.
Óneitanlega minnir staðan í
deildinni að undanförnu á mót-
ið 2001 þegar Skagamenn
urðu síðast íslandsmeistarar
Skagamenn leika fyrri leik
sinn í fyrstu umferð UEFA bik-
arsins gegn eistneska liðinu
TVMK á morgun (fimmtudag).
Leikurinn fer fram á Akranes-
velli og hefst kl. 19.15. Ólafur
Þórðarson þjálfari ÍA sagði í
samtali við Skessuhorn að sín-
ir menn færu í leikinn til að
vinna hann og ekkert annað
kæmi til greina. „Við verðum að
en þá stungu Fylkismenn af
um tíma en síðan náðu Skaga-
menn að saxa jafnt og þétt á
forystu þeirra og tryggðu sér
titilinn í síðustu umferðinni. Ó-
lafur Þórðarson þjálfari ÍA seg-
ir ekkert því til fyrirstöðu að
sínir menn geti endurtekið
þann leik. „Við erum sannar-
lega á réttri leið. Það var hins-
vegar grátlegt að vera rændir
sigrinum í Árbænum um dag-
inn en við sætum á toppnum
ef við hefðum ekki sofnað á
verðinum þar. Það er hinsveg-
ar nóg eftir af mótinu og ef við
spilum eins og við höfum gert í
síðustu tveimur leikjum þá eig-
um við ágætan möguleika á
titlinum."
Sem kunnugt er hefur Garð-
ar Gunnlaugsson, framherji
skipt yfir í Val og Hiörtur Hjart-
arson, sem skoraði sigurmark-
fara með þrjú stig út til Eist-
lands ef við ætlum okkur áfram
en vissulega hefði verið betra
fyrir okkur að fá útileikinn á
undan og eiga heimaleikinn til
góða þegar við værum aðeins
búnir að kynnast þeirra leik.
Mér skilst að þetta sé sterkt lið
með leikna stráka innanborðs
þannig að það má búast við
hörkuleik," segir Ólafur.
Ólafur Þórðarson.
ið í Eyjum, fer aftur til náms í
Bandaríkjunum um miðjan á-
gúst en þá verður Stefán Þórð-
arson eini framherji liðsins.
„Við höfum kannað möguleika
á að fá framherja en það er
bara of dýrt og mikið happ-
drætti. Það er engin óskastaða
að leika með einn framherja en
við verðum að spila úr því sem
við höfum," segir Ólafur.
Stórsigur
stúlknanna
Skagastúlkurnar halda á-
fram á sigurbrautinni í 1.
deildinni en þær unnu sinn
áttunda sigur í sumar á mánu-
dag er þær völtuðu yfir ÍR
inga, 8 - 0. Skagastúlkur hafa
fullt hús stiga og hafa skorað
51 mark en aðeins fengið á
sig 9. Eins og staðan er núna
er því ekki hægt að segja ann-
að en að þær sigli hraðbyri í
átt að úrvalsdeildinni.
Skagamenn gegn
Eistum annaðkvöld
Kolbrún Ýr
með íslands-
metog
Ólympíulág-
mark
Tvö íslandsmet voru sett hjá
íslensku landsliðskonunum
sem tóku þátt í Croatia Open
Internationals um helgina.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir
setti Islandsmet í gær þegar
hún endaði í 5. sæti í 100 m
flugsundi á tímanum 1.02,07
(29,61-32,46). Eldra metið
átti Eydís Konráðsdóttir
1.02,93 sett árið 2000. Tími
Kolbrúnar er jafnframt vel
undir ÓL-lágmarkinu sem er
1.02.65.
Kolbrún náði einnig inn í und-
anúrslitin í 50 skrið um morg-
uninn á tímanum 27,11 sek,
en var ákveðin í því að synda
ekki skriðsundið í úrslitunum.
Kolbrún synti undanúrslitin í
flugsundinu á laugardeginum
og fann sig vel, synti á tíman-
um 1:02,99 sem var bæting
og aðeins 6/100 frá íslands-
metinu.
(af www.ia.is)
Staðan f
Landsbankad. karla
í knattspyrnu
Félag L U J T Mörk Stig
1 Fylkir 10 5 4 1 15:8 19
2FH 10 4 5 1 16:11 17
3ÍA 10 4 4 2 12:9 16
4KR 10 3 4 3 13:12 13
5 ÍBV 9 3 3 3 14:11 12
6 KA 9 3 2 4 10:12 11
7 Keflavík 9 3 2 4 10:15 11
8 Víking.R. 9 3 1 5 9:12 10
9 Grindavík 9 2 4 3 9:13 10
10 Fram 9 1 3 5 9:14 6
Staðan í 2. deild
knattspyrnu karla
Félag L U J T Mörk Stig
1 Leiknir R. 9 7 1 1 25:7 22
2KS 9 6 1 2 23:14 19
3 Vík. Ó. 9 5 2 2 15:7 17
4ÍR 9 3 3 3 12:12 12
5 Leift./Dalv.9 4 0 5 18:21 12
6 Aftureld. 9 3 2 4 16:14 11
7 Víðir 9 3 2 4 13:22 11
8 Selfoss 9 2 3 4 15:20 9
9 Tindastóll 9 2 3 4 16:22 9
10 KFS 9 0 3 6 10:24 3
Staðan í B riðli 1.
deildar kvenna í
knattspyrnu
Félag L U J T Mörk Stig
1 ÍA 8 8 0 0 51:9 24
2 Þróttur R. 7 5 0 2 36:10 15
3 Fylkir 7 3 0 4 23:28 9
4ÍR 7 2 0 5 17:29 6
5 Hv./Tind.st.7 0 0 7 4:55 0
Staðan í
A riðli 3. deildar
karla í knattspyrnu
Félag L U J T Mörk Stig
1 Skallagr. 7 6 1 0 28:4 19
2 Deiglan 7 5 0 2 24:9 15
3 Númi 7 4 1 2 34:10 13
4 Árborg 7 3 3 1 17:13 12
5 Grótta 7 2 14 14:13 7
6 Afríka 6 1 0 5 7:25 3
7 Freyr 7 0 0 7 1:51 0