Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2004, Side 4

Skessuhorn - 25.08.2004, Side 4
4 onbssunui.. MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2004 WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Sædís Helga ásamt dóttur sinni á palli annars hússins. Ljósm: Sverrir Karlsson. Hálsaból við rætur Kirkjufells Útgefandi: Skessuhorn ehf Framkv.stj. og blm. Mognús Mognússon Ritstjóri og úbm: Gísli Einarsson Augl. og dreifing: íris Arthúrsdóttir Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir Prentun: Prentmet ehf. 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is 894 8998 mognus@skessuhorn.is 899 4098 ritstjori@skessuhorn.is 696 7139 iris@skessuhorn.is 437 1677 gudrun@skessuhorn.is Nýtt fyrirtæki, Hálsaból ehf., tók til starfa fyrr í sumar í Grundarfirði. Það sérhæfir sig í rekstri og útleigu sumarhúsa sem sett hafa verið niður á jörð- inni Hálsi, vestan Kirkjufells. Það eru systkinin Sædís Helga og Hjörtur Guðmundsbörn sem eiga fyrirtækið en jörðin Háls er í eigu foreldra þeirra og er sauðfjárbúskapur á henni. Fyrstu tvö húsin á Hálsi voru reist í júní. Þau eru hönnuð af Islendingum og uppfylla allar kröfur sem gerðar eru til heils- árshúsa við íslenskar aðstæður. Þau eru smíðuð í Litháen en koma hingað til lands í eining- um sem reistar eru á staðnum. Eiginmaður Sædísar Helgu, O- lafur Marinósson, sá um upp- setningu húsanna og hafði um- Endurskoðunarskrifstofa Konráðs Konráðssonar í Borg- arnesi og KPMG endurskoðun hafa gert með sér samstarfs- samning um reksmr nýs fyrir- tækis, Skrifstofuþjónustu Vest- urlands. Nýja fyrirtækið er í húsakynnum KPMG í Borgar- nesi, að Bjarnarbraut 8, efri hæð. Oddur Gunnar Jónsson hjá KPMG er framkvæmdastjóri fyrirtækisins og segir hann til- gang þess vera að sinna alhliða skrifstofuþjónustu fyrir stærri og smærri fyrirtæki á öllu Vest- urlandi. „Samstarfið við KPMG gerir það að verkum að fyrirtæk- ið getur tekið að sér alla sér- hæfða vinnu varðandi bókhald og uppgjör og ekki má heldur gleyma að á báðum stöðum var gríðarleg reynsla til staðar. Við sjón með smíðavinnu á staðn- um. I samtali við Skessuhorn sagði Sædís Helga að húsin hefðu verið stöðugt í útleigu frá því þau hófu starfsemi 1. júlí. „Það er bókað hjá okkur út á- gústmánuð og miklar fyrir- spurnir hafa borist okkur um á- framhaldið. Það er greinilegt að mikil eftirspurn er eftir þess- um gistimöguleika hér á Snæ- fellsnesi ef marka má fyrstu við- tökur sem við höfum fengið," sagði Sædís Helga. I framtíð- inni gera þau ráð fyrir að fjölga húsunum eftir því sem eftir- spurn skapast. Áður rak Sædís Helga vikublaðið Þey sem gefið er út í Grundarfirði, en þann rekstur seldi hún sl. vor. höfum fulla trúa á að mikill vöxtur sé framundan í atvinnu- lífinu á Vesturlandi og því mikil þörf fyrir þjónustu af þessu tagi. Við bjóðum fyrirtækjum að losa sig við þennan rekstrarþátt og þar með þá fjárfestingu sem því fylgir í tölvum og hugbúnaði. Við getum líka boðið upp á að okkar fólk korni í fyrirtækin og sinni þessari þjónusm þar. Þegar upp er staðið viljum við meina að fyrirtæki geti náð umtals- verðum sparnaði með því að kaupa sérhæfða bókhalds- og skrifstofuþjónustu af fagmönn- um þótt margir álíti annað.“ Þrír starfsmenn, auk fram- kvæmdastjórara, starfa nú hjá Skrifstofuþjónustu Vesturlands og segir Oddur að markmiðið sé að þeim fjölgi innan tíðar. GE Vilja hraða- hindranir burt Sjórn Egils, félags ungra Sjálfstæðismanna í Borgar- byggð, samþykkti á síðasta fundi sínum eftirfarandi álykt- un: „Egill, félag ungra sjálf- stæðismanna í Borgarbyggð fagnar þeirri miklu uppbygg- ingu íþróttamannvirkja sem meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Borgarbyggðarlistans hafa staðið fyrir að undanförnu við grunnskóla og Iþróttamiðstöð bæjarins. Enn fremur skorar Egill ein- dregið á bæjaryfirvöld að fjar- lægja án tafar þær hraðahindr- anir sem komið hefur verið upp við Skallagrímsgötu, Þorsteins- götu, Böðvarsgötu og í Hrafha- kletti. Hafa þessar hraðahindr- anir mælst mjög illa fyrir meðal bæjarbúa vegna þeirra óþæg- inda sem þær hafa valdið. Er það skylda bæjaryfirvalda, um leið og þau tryggja öryggi íbúa, að valda sem minnstum óþæg- indum fyrir akandi vegfarend- ur.“ ’ GE Umferðaróhöpp Þrjú umferðaróhöpp urðu í umdæmi Borgarneslögreglu í síðustu viku. Eitt uinferðarslys varð á Melasveitarvegi við Eystra Súltmes, á föstudegin- um, þar valt bíll með þremur stúlkum í og sluppu þær allar án teljandi meiðsla. Bifreiðin er talin gjörónýt. Ökumaðurinn missti stórn á bflnum sem rann út í vegkantinn, lenti þar á vegstikum og loks á umferðar- skilti og valt síðan tvær til þrjár veltur áður en hann stöðvaðist. Síðdegis á laugardeginum misstu erlendir ferðamenn á leið norður Kaldadal bifreið sína út í lausamöl, biffeiðin snarsnerist og fór útaf og valt. Okumaður og farþegar sluppu án meiðsla. Bifreiðin var óöku- fær eftir veltuna og var tjarlægð með kranabfl. Þriðja umferðaróhappið var minniháttar árekstur tveggja bifreiða í Borgarnesi. GE Hjólabretta- garður í skoðun Til skoðunar er hjá Akranes- kaupstað möguleikar á upp- setningu hjólabrettagarðs í bænum líkt og víða þekkist m.a. í sveitarfélögum á höfuð- borgarsvæðinu. Einkum hefur svæðið við Grundaskóla verið nefnt í þessu sambandi sem á- kjósanlegur staður. Að sögn Aðalsteins Hjartarsonar sviðs- stjóra æskulýðs- og tómstunda- mála liggur fyrir æskulýðs- og forvarnarnefnd bæjarins að fjalla um möguleika og út- færsluleiðir á slíkri ffamkvæmd og leggja ffam tillögur fyrir bæjarráð. MM Skessuhorn kemur ú) alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 l-:i:..j-gum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega. Skiíafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð í fausasölu er 300 kr. 433 5500 Verkföll og önnur föll Gísli Einarsson, ritstjóri. Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að skólar landsins eru að hefja sitt starf og er ekkert nema gott og bless- að um það að segja. Á mínu heimili háttar því þannig til að um- ræðan um nýtt skólaár er á afskaplega misjöfnu plani. Dóttirin er eins og pabbi, hennar, tekur öllu með jafnaðar- geði og gerir það sem henni er sagt. Yngri sonurinn sem á að hefja skólagönguna í haust sver sig hinsvegar meira í skagfirska móðurættina og þverskallast við. Hann telur sig enda hafinn yfir íslenskt skólakerfi og hefur engin áform um að fara í skóla hvorki fyrr né síðar. Eldri sonurinn, sem er átta ára gamalla, er hinsvegar búinn að undirbúa veturinn síðustu vikur en það eina sem hann hefur áhuga á varðandi komandi skólaár er kennara- verkfall og hefur hann rætt það fram og aftur við litlar undir- tektir. Nú er hinsvegar svo komið að foreldrar hans hafa velt fyrir sér að rölta í apótekið og athuga hvort ekki sé hægt að fá eitthvað við þessu. Kannski er það hinsvegar ekki skrítið börnin séu farin að huga að verkfalli því ef marka má fréttir síðustu daga þá eru kennarar sjálfir búnir að setja það í skólanámskrána og manni skilst að sumarið hafi farið í að reikna út hvað þeir geta verið lengi í verkfalli án þess að bera skaða af. Nú er það svo að ég er afar vel kunnugur kjörum kennara því þannig vill til að þrír fjórðu af mínum systrum, nákvæmlega 75% eru kennarar. Meint slæm kjör kennara eru því vinsælt umræði í fjöskylduboðum og oftar en ekki hafa systurnar eyði- lagt matarlist okkar bræðra með harmsögum af þeirri örbirgð sem kennarar þessa lands mega búa við enda megum við bræð- urnir ekkert aumt sjá eða heyra. Eg hef því fulla samúðmeð kennurum og iúllan skilning á kröfum þeirra um hærri laun og ekki síður styttri vinnutíma þótt ég geri mér ekki alveg grein fyrir hversu mikið meira er hægt að stytta hann öðru vísi en að klára hann alveg. Eg geri hinsvegar athugasemd við að einstak- ar starfsstéttir geti haldið samfélaginu í heljargreipum með sí- felldum hótunum um verkfall og minna aðgerðir þeirra stund- um á vinnubrögð flugræningja og annarra álíka stétta. Til sam- anburðar má geta þess að ég gæti lagt niður penna til að leggja áherslu á kröfu mína um frían bjór á föstudögum sem ekki er óeðlileg krafa af hálfu blaðamanns. Eg er hinsvegar ekki viss um viðbrögðin. Því er það ljóst að aðstaða manna er misjöfn og því ber að fara varlega í að misnota hana. Gísli Einarsson, í verkfalli þar til í næstu viku. MM Konráð Konráðsson, Eyjólfur Torfi Geirsson og Oddur Gunnar Jónsson. Skrifstofuþj ónusta Vesturiands í Borgamesi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.