Skessuhorn - 25.08.2004, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST 2004
Nýr framhaldsskóli verður settur í fýrsta sinn næstkomandi mánudag
Spennandi verkefni og mikil áskorun
Rætt við Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Guðbjörg Aðalbergsdóttir var
valin úr hópi umsækjenda sem
íyrsti skólameistari Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga í Grundarfirði
sem settur verður í fyrsta sinn
næstkomandi mánudag. I tilefni
af þessum miklu tímamótum í
skólasögu Snæfellsness ræddi
Skessuhorn við Guðbjörgu og
innti hana fyrst eftir því hvað
vakið hefði áhuga hennar á starfi
skólameistara í nýjum og ómót-
uðum skóla.
„Eg er búin að vera stjómandi
í ffamhaldsskóla síðustu sex ár
en síðan 1998 hef ég starfað sem
áfangastjóri í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja eða þar til í vor að ég
kom hingað vestur. Ég held að
það sem vakri ekki síst áhuga
minn var að þetta er svolítil á-
skorun og það gerir starfið að-
laðandi. Mér fannst líka hug-
myndin á bak við þennan skóla
mjög spennandi, semsagt að hér
á að þróa nýjar leiðir og nýjar
aðferðir við að kenna. Það felst
vissulega áhætta í að ætla að
bjóða upp á svo fjölbreytt nám
sem raun ber vitni í svona litlum
skóla en í því felst áskorunin
meðal annars. Um leið og verið
er að útfæra nýjar aðferðir í
kennslunni er verið að reyna að
finna leið til að reka lítinn fram-
haldsskóla úti á landi og það er
ekki leiðinlegt að fá að taka þátt
í því.“
Þarf tíma til að þróast
Um leið og iðnaðarmenn hafa
unnið hörðum höndum við að
koma nýju skólahúsi fyrir nýjan
skóla upp úr jörðinni við aðal-
götuna í Grundarfirði, á svoköll-
uðu Jeratúni, hafa Guðbjörg og
aðrir starfsmenn skólans þróað
og útfært hugmyndir um skipu-
lag skólastarfsins útfrá þeirri
hugmyndavinnu sem verið hefur
í gangi síðustu misseri. „Þetta
hefur gengið ágætlega en auðvit-
að er það samt þannig að þegar
verið er að vinna eftír nýjum
leiðum þá er tekin einhver á-
kvörðun og að sjálfsögðu eftir
bestu vitund en um leið er nauð-
synlegt að vera opinn fyrir því að
sumt mun takast vel og annað
miður. Fólk verður því að vera
tilbúið að skipta um skoðun og
breyta kúrsinum örlítíð í takt við
reynsluna. Allir nýir hlutir þurfa
tíma til að þróast og því er þolin-
mæði nauðsynleg í þróunarstarfi
af þessu tagi.“
Mikil eftirvænting
Guðbjörg segir að vissulega sé
kominn hugur í mannskapinn
enda ekki nema tæp vika þar til
skólastarfið hefst. „Leikurinn er
aðeins farinn að æsast og að
sjálfsögðu er fólk spennt. Það er
hinsvegar enginn kvíði í fólki
heldur er metnaðurinn alls ráð-
andi og tilhlökkunin yfir að
takast á við alvöru lífsins. Það er
mikill hugur í starfsfólki og ég
finn ekkert annað en jákvæða
strauma úr samfélaginu. Flafi
verið einhverjar efasemdir þá
heyrast þær raddir ekki lengur.
Við heyrum mikið frá nemend-
um og þeir óþreyjufullir að setj-
ast á nýsmíðaða skólabekkina
þannig að það er allt á eina leið.
Við ætlum að setja skólann með
svolítilli viðhöfn núna á mánu-
daginn enda verður þetta mikill
hátíðisdagur."
Nýjar leiðir
Sem fyrr segir verða farnar
nýjar leiðir í skólastarfinu í Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga. En
hvaða leiðir? „Það sem aðallega
skilur okkar skóla ffá öðrum er
fyrirkomulag kennslunnar. Allt
nám fer fram í einskonar dreif-
kennslu, þ.e.a.s. það skiptast á
hefðbundnar kennslustundir og
opnir tímar. Með opnum tím-
um er átt við að að námið færist
úr beinni miðlun kennarans yfir
í verkefnavinnu meira en hefð-
bundið er. Kennarinn verður á
staðnum en fyrst og fremst til
aðstoðar og nemendur geta leit-
að til hans hver fyrir sig. Það
sem við viljum er að nemendur
læri af því sem þeir gera í gegn-
um verkefnavinnuna. Þá koma
tölvur til með að spila stórt
hlutverk. Við skipuleggjum allt
nám í gegnum kennsluumv-
herfið Angel sem notað hefur
verið með góðum árangri í
nokkrum öðrum skólum. Tölv-
urnar verða líka notaðar til sam-
skipta, m.a. við gestakennara en
við verðum með fjóra kennara
sem kenna sín fög með fjarnámi
að mestu en koma í heimsókn
tvisvar til þrisvar á önn. Þeir sjá
um greinar sem við höfuin ekki
kennara í á staðnum en við höf-
um átta kennara að stundakenn-
uruin meðtöldum,“ segir Guð-
björg.
Iðnnám í framtíðinni?
I Fjölbrautaskóla Snæfellinga
veður boðið upp á níu brautir og
verður Iangstærsti hópurinn á al-
mennri braut og stúdentsbraut. I
vetur er aðeins boðið upp á nám
fyrir þá sem eru á 1. og 2. ári en
seinni tvö árin koma inn næsta
vetur. Til að byrja með verður
ekki boðið upp á iðnnám við
skólann en það kann að breytast
að sögn Guðbjargar. „Það eru
hugmyndir um að þróa iðnnám í
samvinnu við stærri skóla og
bjóða þá upp á þær bóklegu fag-
greinar sem hægt er að kenna í
fjarnámi og miðað þá við að
nemendur geti farið í þann skóla
í eina önn til að taka sérgrein-
arnar.“
Ríflega 100 nemendur stunda
nám við Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga á þessum fyrsta vetri en
áætlanir gerðu ráð fyrir 50 til 70
þannig að aðsóknin fór ffam úr
björtustu vonum. Skólahúsnæð-
ið er hinsvegar byggt fyrir 200
nemendur og Guðjbörg segir
ljóst að það muni fyllast í fram-
tíðinni. Húsið sem byggingafyr-
irtækið Loftorka í Borgarnesi
reisir er hannað með hliðsjón af
sérstöðu skólans. Þar eru engar
eiginlegar kennslustofur heldur
fyrst og ff emst opin rými og skot
fyrir hópavinnu. Tæplega helm-
ingur hússins á að vera tilbúinn á
mánudaginn þegar skólinn verð-
ur settur en húsinu verður skilað
fúllbúnu í desember.
Jökullinn
Þess má geta að í tilefni af
„fæðingu11 skólans hafa kennarar
ákveðið að hafa eitt stór þverfag-
legt verkefni á önninni sem allir
nemendur og allir kennarar taka
þátt í. „Það heitir að sjálfsögðu
Jökullinn og snýst um Snæfells-
jökul. Við munum fjalla um
hann á allan mögulegan hátt í
öllum mögulegum námsgrein-
um hvort sem þar er saga, effia-
ffæði, náttúruffæði eða danska
og síðan ætlum við að sýna af-
raksturinn áður en önnin er
búin. Við vitum að fólk fylgist
spennt með okkur og við ætlum
að leyfa fólki að fylgjast með því
sem við erum að gera,“ segir
Guðbjörg skólameistari að lok-
um og þar með er hún rokin til
að fylgjast með ffamkvæmdum á
Jeratúni.
GE
Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Grundargötu 44 - 350 Grundarfjörður - Síml: 430 8400
Upphaf skólastarfs á haustönn 2004
Töfluafliending í Sögumiðstöðinni
Föstudaginn 27. ágúst kl. 10:00 verða stundatöflur
afhentar í Sögumiðstöðinni við Grundargötu. Að því
loknu, um kl. 11:00, munu nemendur hitta
skólameistara og umsjónarkennara. Minnt er á að
bókalisti er birtur á vef skólans, www.fsn.is .
Rútur fara frá Hellissandi kl. 9:20 (Hraöbúd Esso),frá
Rifi kl. 9:25, frá Ólafsvík (Olís stöðin) kl. 9:35 og frá
Stykkishólmi kl. 9:20 (KB banki og Olís stöðin).
Rúturnar fara til baka frá Sögumiðstöðinni kl. 13:30
Fyrsta skólasetning
Fjölbrautaskóla Snœfellinga
Fyrsta skólasetning Fjölbrautaskóla Snœfellinga fer
fram í skólanum mánudaginn 30. ágúst kl. 15:30.
Foreldrar og forráðamenn eru boðnir sérstaklega
velkomnir og eru hvattir til aðfylgja nemendum á
skólasetninguna.
Rúturfara frá Hellissandi kl. 14:50 (Hraðbúð Esso),
fráRifi kl. 14:55, frá Ólafsvík (Olís-stöðin) kl. 15:05
ogfrá Stykkishólmi kl. 14:50 (KB banki og Olís-
stöðin).
Rúturnar fara til baka frá skólanum ki. 17:30.
Skólameistari