Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2004, Qupperneq 9

Skessuhorn - 25.08.2004, Qupperneq 9
 MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST 2004 9 Umsjon: Gunnar Bender UeiSi/ujznið Frábær gangur í Búðardalsá Veiðimaður mundar flugustöngina við Lækjarfoss í Grímsá um sl. helgi. Ljósm: MM Laxveiðin gengur víða vel, þrátt fyrir þurrk dag eftir dag og það að riging sé orðin fá- séðari en hvítir hrafnar. Arnar hafa gefið vel og mikið er af fiski í þeim mörgum. Þetta komust við að raun um dag- inn þegar Búðardalsá á Skarðsströnd var skoðuð. Það eru laxar víða í henni og margir á sumum stöðum. Það sama má einnig segja um Krossá og Flekkudalsá. „Veiðin hefur gengið vel hjá okkur, við fengum 10 laxa og það eru víða fiskar í ánni, mest fyrir ofan brú. I einum hyl hennar eru líklega á milli 150 og 200 fiskar,“ sagði Þór- arinn Jóhannesson Iögreglu- maður á Akureyri sem var að hætta veiðum í ánni fyrir fáum dögum, við þriðja mann. Fyrir neðan brúna á þjóðveginum voru tugir laxa rétt fyrir neðan laxastigann og fóru hvergi, þrátt fyrir að farið væri nálægt þeim með myndavélina. „Eg veiddi þrjá laxa á fluguna og áin er skemmtileg finnst mér, enda mikill fiskur," sagði Þórarinn og tók saman veiðidótið. Næsta veiðiá beið hjá honum. Nokkrum dögum seinna veiddi hann lax númer 600 í Elliðaánum en veiðin hefur verið fín þar og í ánni eru lax- ar víða. Veiðimenn víða að skjóta Gæsaveiðitíminn er hafinn og veiðimenn hafa víða farið síðustu daga. Við fréttum af mönnum vestur í Dölum sem fengu 8 gæsir og öðrum sem fengu 12. Töluvert hefur sést af fugli en hann varð styggur um leið og fyrstu veiðimenn byrjuðu að skjóta. Stór hluti af fuglinum heldur sig í berj- um upp til fjalla, en nóg er af berjunum alls staðar þessa dagana. Skotveiðifélag Islands hef- ur verið að bjóða fé- lagsmönnum veiði- leyfi á kornakra vest- ur í Dölum, í Magn- ússkógum. Það hefur mælst vel fyrir. Mikið hefur víða sést af rjúpunni en hún er alfriðuð eins og staðan er núna. Fjöldi unga virðist hafa komist á legg eftir mjög gott sumar og frábært tíðarfar. „Eg hef sjaldan séð eins mikið af ung- um og núna eftir þetta sumar, þeir eru allsstaðar,“ sagði veiðimaður sem var svekktur yfir að fá ekki að skjóta rjúp- ur í jólamatinn. Skessuhorn/Gunnar Bender. Allt í veiðiferðina Hyman, bensínstöð sími 430-5565 Pizzahlaðborð R alla fimmtuðaga tráW* 18:00 M vM Cjisti- 0£ veitinfiastaður Sími 437 2345 www.motelvenus.net Alltafmeð bestu pizzatilboðin..! Hangiálegg Salami m/hvítlauk Franskt pepperoni Frönsk spægipylsa Lúxus skinka Frönsk sveitaskinka Skinka Skólaskinka Lúxus beikon Beikonbitar Pepperonibitar Skinkubitar Einnig til í heilu fyrir veitingahús og mötuneyti ||i V ■% ^ • ™ !J V Framleiðandi: Borgarnes kjötvörur ehf. - Brákarey- 310 Borgarnesi - S. 430-5600 J

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.