Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2004, Síða 10

Skessuhorn - 25.08.2004, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST 2004 anI2ISUnu>.. 10_____ _______ Stórmót grunnskóla Þann níunda september verður haldið stórt íþróttamót á vegum tíu vestlenskra skóla í íþróttamiðstöðinni í Borgar- nesi. Undanfarin ár hafa sveitaskólarnir á Vesturlandi haft með sér samstarf á ýmsum sviðum og í fyrra kom Grunn- skólinn í Borgarnesi inn í það samstarf. Auk skólans í Borgar- nesi eru í þessu samstarfi, Heiðarskóli, Varmalandsskóli, Kleppjárnsreykjaskóli, Anda- kílsskóli, Grunnskólin í Búðar- dal, Grunnskólinn Tjarnar- lundi, Lýsuhólsskóli, Lauga- gerðisskóli og Reykhólaskóli. A mótinu í Bórgarnesi verð- ur keppt í sundi og frjálsum íþróttum. GE Aðgát skal hölð Núna þegar skólarnir eru byrjaðir verða ökumenn að temja sér aukna árvekni í grennd við gönguleiðir barna á leið í skóla og aka alveg sér- staklega gætilega. Hafa ber í huga að þar eru ungar mann- sekjur á ferðinni, jafnvel á sínu fyrsta skólaári. Börn eru skilj- anlega sumhver mjög spennt og þá jafhvel óútreiknanleg á meðan þau eru að temja sér á- kveðna hegðun fyrstu dagana í umferðinni. Þá verða öku- menn að sýna alveg sérstaka aðgát í kring um biðskýli og aðra þá staði þar sem börnin fara inn í skólabílana og út úr þeim. Allir skólabílar eiga að vera auðkenndir með sérstök- um stórum skólabflamerkjum. Bílstjórar skólabílanna bera mikla ábyrgð enda eru þeir með dýrmætan farm. Þeir verða að sjá til þess að börnin noti öryggisbeltin og hagi sér skikkanlega í bflunum. Foreldrar þeirra barna sem fara gangandi í skólann eru hvattir til þess að fara fyrstu dagana með yngstu börnunum og sýna þeim öruggustu leiðina í skólann og hvað beri helst að varast í umferðinni, því það er margsannað að það læra börn- in sem fyrir þeim er haft. Lögreglan mun vera með sérstakt efdrlit í grennd við skólana, fylgjast með ökuhrað- anum og athuga með notkun öryggisbúnaðar í bílum, jafnt hjá börnum sem og fullorðn- um. Foreldrum er bent á að kanna sérstaklega hvort að ekki séu örugglega áföst endur- skinsmerki á nýju skólatöskun- um og nýju skólafötunum sem að verið er að kaupa á börnin. Bestu endurskinsmerkin eru þau sem að detta ekki af þegar mest á reynir. Við viljum hafa börnin vel upplýst jafht í skól- anum sem utan hans. Lögreglan. Grunnskóli Snæfellsbæjar Mikill hugur í fólki í nýjum grunnskóla segir Sveinn Þór Elínbergsson skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar „Byrjunin leggst mjög vel í okkur og við erum full tilhlökk- unar enda eru þetta spennandi tímar sem eru framundan,“ seg- ir Sveinn Elínbergsson skóla- stjóri nýs sameinaðs Grunnskóla í Snæfellsbæ, Grunnskóla Snæ- fellsbæjar sem tekur yfir Grunn- skóla Olafsvíkur og Grunnskóla Hellissands. „Við höfum lagt á- herslu á að þetta sé nýr skóli þótt hann sé byggður á grunni tveggja rótgróinna skóla. Við getum ekki sagt annað en fyrstu skrefin séu farsæl því félags- heimilið Klifi var fullt þegar við settum skólann í fyrsta sinn nú á mánudag og héldum um leið nokkurskonar stofnsetningar há- tíð. Þetta var hátíðleg og tákn- ræn athöfn og síðan tók skóla- starfið við.“ Eins og ffam hefur komið í Skessuhorni verður verkaskipt- ingin þannig að á Hellissandi verða yngstu nemendurnir, 1. - 4. bekkur en aðrir bekkir í skól- anum í Olafsvík. Það eru helstu breytingarnar auk þess sem ein stjórn er yfir báðum skólunum. En fleira mun breytast. „Það verða ýmsar áherslubreytingar. Við ætlum að setja staðbundin markmið og þróa kennsluhætti frá því sem er hefðbundið og rígbundið. Við munum fikra okkur áfram í vetur við að finna hverjum og einum nemanda nám og kröfur við hæfi og fá þannig ffam það besta í hverjum og einum. Við stillum m.a val- greinum í 10. bekk þannig upp að nemendur hafa mikið val og sveigjanlega. Verklegi þáttturinn verður t.d. aukinn með þáttöku atvinnulífsins. Vélsmiðjan í Rifi kemur inn í þetta með okkur, fiskiðjan Bylgja og fleiri fyrir- tæki. Þá ætlar Sparisjóður Ölafs- víkur að leggja okkur til kennara í fjármálafræðslu og Taflfélag Snæfellsbæjar tekur að sér skák og bridskennslu. Auk þess þá bjóðum við m.a. upp á spænsku og þýsku sem valgreinar og framboðið er því mjög gott.“ Eining um breytingamar Sveinn segir að skólinn sé vel mannaður. Leiðbeinendur eru lítill hluti af kennaraliðinu og flestir þeirra eru í fjarnámi við Kennaraháskóla Islands. Nem- Fluttu skólann Ingi Hansjónsson, forstödumaöur Sögumiðstöövarinnar í Grundarfirði „Minningar mínar úr skóla eru vart prenthæfar. Efst í huga eru mér kannski minn- ingar úr unglingaskólanum sem endaði með brottrekstri,“ segir Ingi hans Jónsson, for- stöðumaður Sögumiðstöðvar- innar í Grundarfirði. „Það var reyndar í síðasta skipti sem ég hef verið rekinn en síðan hef ég haft vit á að gefast upp áður en aðrir gefast upp á mér. Eg rifjaði hinsvegar einhverntíma upp fyrsta skóladaginn minn sem er reyndar nokkuð eftir- minnilegur. Ég var nefnilega í fyrsta árganginum sem gekk í nýjan barnaskóla í Grundar- firði. Það var gríðarlega merkilegt að byrja í þessu nýja og fína húsi. Fyrsti skóladag- urinn fór í að flytja úr sam- komuhúsinu og í nýja barna- skólann. Við bárum húsgögn- in með okkur og gengum í beinni röð alla leiðina með dótið með okkur. Fremstur gekk Runólfur Guðmundsson með kennarapúltið en ég síð- astur með krítina. Þegar við komum í húsið þá blöstu við sandblásnar rúður og mósaík á gólfiim. Hvílík dýrð hafði ekki sést í hinu fá- tæka Grafarnesi. Inni voru síðan snagar úr silfurlitum rörum og tekki og sér klósett fyrir stráka og sér fýrir stelpur. Síðast en ekki síst voru á strákaklósettinu heljarmikið stálmigildi, glitrandi, þar sem strákarnir gátu migið í kross. Alveg hreint ótrúleg uppfinn- ing,“ segir Ingi Hans um fyrsta skóladaginn sinn fýrir allmörgum árum. GE endur verða 250 í vetur og að sögn Sveins er mikill hugur í þeim og foreldrum þeirra ekki síður en kennurum. „Það voru margir skeptískir á það í upphafi að börnunum yrði ekið á milli staðanna en í dag virðist vera orðin eining um þessar breyt- ingar. Það er vissulega mildl eft- irvænting enda breytingin um- talsverð fyrir börnin. Við vonum að þau aðlagast fljótt og vel og ekki spillir fyrir að að- stæður hafa batnað til muna. Við f e n g u m fimm millj- óna auka- fjárveitingu frá bæjar- stjórn til að bæta að- stöðu fyrir nemendur og kennnara og eydd- um þeim að sjálfsögðu fljótt og vel þannig að nýi skólinn er mun betur búinn en forverarnir tveir.“ Sem fyrr segir er Sveinn Þór Elínbergsson skólastjóri hins nýja skólastjóra en aðstoðar- skólastjóri er Þorkell Cýrusson og er hann jafnffamt deildar- stjóri elsta stigsins. Deldarstjóri yngsta stigsins er Guðrún Anna Oddsdóttir og er hún jafnffamt annar aðstoðarskólastjóri en þessi þrjú mynda þriggja manna skólastjórn. Auk þess er Vilborg Lilja Stefánsdóttir deildarstjóri sérdeildar og Guðrún Svein- björndóttir deildarstjóri mið- stigsins. GE Comenius- arstyrkur til Grunnskóla Grundar- fjarðar Grunnskóli Grundar- fjarðar fékk nýlega Comeni- usarstyrk frá Alþjóðaskrif- stofu háskólastigsins, alls 18.000 evrur (1,5 millj. ísl.kr.). Comeniusarstyrkir eru veittir til þess að efla evrópskt skólasamstarf og styrkja tungumálaverkefni og skólaþróunarverkefni. Grunnskóli Grundar- fjarðar sótti um styrk til samstarfsverkefnis milli skólans og skóla í Paimpol í Frakklandi þar sem mikil tengsl og samskipti hafa ver- ið milli þessara staða. 9. bekkur tekur þátt í þessu verkefni. Undirbúningur er þegar hafinn og verður verk- efnið unnið í vetur milli þessara skóla. Nemendur frá Paimpol koma í heim- sókn í Grundarfjörð í vor en 9. bekkur fer síðan út til Frakklands í byrjun júní. Fyrsti skóladagurinn Söngkennari á blöðruskóda Runólfur Agústsson rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst „Eg er nú hræddur um að ég muni eftir fyrsta skóladeg- inum í Barnaskóla Flótshlíð- arhrepps í félagsheimilinu Goðalandi,“ segir Runólfur Ágústsson rektor Vðskipta- háskólans á Bifröst. „Eg mætti og fór á fyrsta degi í söngtíma hjá Rúnka í Fljótsdal. Hann var og er enn sauðfjárbóndi þarna í sveitinni og var á sín- um tíma afar eftirminnilegur söngkennari. Menn voru hinsvegar misbrattir þegar þeir mættu í fyrsta sinn í skól- ann og ég man að félagi minn sem bjó nokkrar bæjarleiðir í burtu skreið undir borð sem staflað var úti í horni í söngstofunni og það þurfti að sækja skólastjórann til að ná honum fram. Þetta er svona það eftirminnilegasta og reyndar einnig blöðruskódi söngkennararns sem mér þótti stórmerkileg bifreið. Hinsvegar var árangurinn af söngkennslunni ekki varan- legur, svo mikið er víst,“ segir Runólfur.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.