Skessuhorn - 25.08.2004, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 25. AGUST 2004
aoi:asunu>^
Fulltrúar verktaka frá vinstri: Kristján Pétursson, Svava Kristjánsdóttir
og Pétur Jónsson. Fyrir hönd Nemendagarða veitti Magnús B Jóns-
son lyklunum viðtöku og við hlið hans er Steinunn Ingólfsdóttir.
Nýir nemendagarðar
Sjálfseignarstofmminni Nem-
endagörðum Búvísindadeildar á
Hvanneyri var sl. föstudag af-
hent lyklavöld að nyjustu nem-
endagörðunum á Hvanneyri og
er þar um að ræða hús við
Skólaflöt 12. Húsin eru eininga-
hús ffá Loftorku í Borgarnesi en
byggingaverktakinn er P.J.
byggingar ehf á Hvanneyri.
Brúttóflatarmál hússins er um
1.150 fermetrar á tveimur hæð-
um auk riss. Afhentar vora tvær
hæðir núna með alls 12 íbúðum.
Tvær risíbúðir verða afhentar
um áramót og era þær fjögurra
herbergja hvor. Framkvæmdir
við húsið hófust í janúarbyrjun á
þessu ári og hafa gengið mjög
vel að sögn Péturs Jónssonar
húsasmíðameistara. Er þetta
þriðja húsið sem byggt er við
Skólaflöt á Hvanneyri eftir svip-
aðri teikningu og af sömu aðil-
um. Það fyrsta var afhent árið
2002 og annað ári síðar. Alls era
því í þessum þremur húsum 51
íbúð frá einstaklingíbúðum upp
í fjögurra herbergja.
Greinilegt er að sérlega hefur
verið vandað er til verks við
byggingu og frágang nemenda-
garðanna enda sá úttektaraðili I-
búðalánasjóðs sérstaka ástæðu
til að geta þess eftir að vandlegri
úttekt á húsinu lauk. MM
Nemendur að leik á skólalóðinni.
Heiðarskóli
Raungreinar í öndvegi
Engar breytingar urðu á
kennaraliði Heiðarskóla fyrir-
þetta skólaár en af fimmtán
kennururm eru tíu með
kennsluréttindi og að auki eru
þrír í námi við Kennaraháskóla
Islands. Nemendum fjölgar um
þrjá á milli ára og verða þeir 113
í vetur. Að sögn Helgu Stefaníu
Magnúsdóttur skólastjóra verð-
ur mikil áhersla lögð á raun-
greinarnar í skólastarfinu í vet-
ur. „Við ætlum að gera náttúra-
fræði og stærðffæði sérstaklega
hátt undir höfði og ætlum að
bæta okkur veralega þar. Við
höfum fengið nýja náttúrafræði-
stofu og hún mun væntanlega
nýtast okkur vel í því starfi."
Helga Stefanía segir útlit fyrir
líflegan vetur í Heiðarskóla. „I
félagslífinu era að vanda fjöl-
margir viðburðir yfir veturinn
s.s. 1. des, þorrablót, hæfileika-
keppni, árshátíð og íþróttadag-
ur. Þá eram við að hefja 40.
starfsár skólans sem reyndar
verður ekki minnst formlega
fýrr en næsta haust en það verð-
ur undirbúið og minnt á það í
vetur.“
GE
Tj amarlundarskóli
Fimmta starfsárið
Yngsti grunnskóli Vestur-
lands er Grunnskólinn í
Tjarnarlundi í Saurbæ í Döl-
um. Þar er nú að hefjast
fimmta starfsárið og verða
nemendur 15 en voru einum
fleiri síðasta vetur. Kennarar
eru þrír í fullu starfi og er
kennt í þremur nemendahóp-
um. „Þetta hefur gengið alveg
ágætlega enda er þetta það lít-
ill hópur að vandamálin verða
aldrei stór,“ segir Guðjón
Torfi Sigurðsson skólastjóri.
Skólinn í Tjarnarlundi verð-
ur settur í dag (miðvikudag).
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
Sex hundmð manna byggð á Bifiröst
„Sá nemendahópur sem nú
hefur nám hér við Viðskiptahá-
skólann á Bifröst er stærri og
öflugri en nokkru sinni fyrr eða
alls um 480 manns, þar af tæp-
lega 100 í meistaranámi og um
80 í fjarnámi,“ segir Auðbjörg
Agnes Gunnarsdóttir kynning-
arstjóri Viðskiptaháskólans á
Bifröst. I heild munu um 600
manns búa eða starfa í háskóla-
þorpinu á Bifföst nú í vetur og
er þorpið þar með orðið stærra
en Hvammstangi svo dæmi sé
tekið.
„Umfangsmesta framkvæmd-
in á Bifföst næsta árið verður
nýtt rannsóknarhúsnæði norðan
háskólatorgs en þar verða einnig
51 stúdíóíbúð fyrir einstaklinga
og pör sem mun bæta úr brýnni
þörf og gera Nemendagörðum
kleiff að bjóða nær öllum ný-
nemum upp á húsnæði innan
svæðis," segir Auðbjörg. Hún
segir ennffemur að mikil áhersla
hafi verið lögð á að auka rann-
sóknir við skólann. „Nú hefur
verið starfrækt í eitt ár Rann-
sóknarsetur í
húsnæðismálum,
auk þess að nú
innan skamms
mun taka til
starfa hér á Bif-
röst Rannsókn-
arsetur verslun-
arinnar, sem er
samvinnuverk-
efni skólans, við-
skiptaráðuneytis,
SVÞ-samtaka
verslunar og
þjónustu auk
fjölda verslunar-
fyrirtækja. Þessi
tvö setur tengjast
starfi viðskipta-
deildar á þann
hátt að forstöðu-
menn þeirra era
hluti af starfsliði
deildarinnar,
sinna kennslu
við hana og sitja
deildarfundi.“
GE
Góður, fróður í Brekkubæjarskóla
I vetur munu um 440 nem-
endur setjast á skólabekk í
Brekkubæjarskóla í 22 bekkjar-
deildum. Þar af era 47 nemend-
ur í 1. bekk, en þann 6. septem-
ber verður foreldrum 6 ára
barna boðið upp á námskeið þar
sem þeim gefst kostur á að
kynna sér fyrirkomulag og starf-
semi skólans. Undir lok síðasta
skólaárs var nýtt mötuneyti opn-
að svo nú stendur bæði nemend-
um og kennurum til boða heitur
matur í hádeginu. Auður
Hrólfsdóttir, skólastjóri, segir
þetta sérstaklega ánægjulegt þar
sem það hljóti að stuðla að auk-
inni vellíðan barna í skólanum
að eiga kost á heitum og næring-
arríkum mat og vellíðan barn-
anna sé ávalt í fyrirrúmi í skóla-
starfinu.
Brekkubæjarskóli hefur á und-
anförnum árum unnið sam-
kvæmt manngildisstefnunni
„Góður fróður,, sem miðar að
því að efla lífsleikni, ábyrgð,
sjálfstraust og samkennd nem-
enda. Allir starfsmenn skólans
sóttu í haust lífsleikninámskeið
um hvernig efla megi lífsleikni í
skólastarfinu og í vetur verður
unnið að því, með styrk frá
menntamálaráðuneytinu, að
gera Brekkubæjarskóla að lífs-
leikniskóla. Auður segir að síð-
ustu ár hafi skólinn unnið að því
að þróa manngildisstefnuna og
marka skýra skólasýn og nú sé
komið að því að kynna niður-
stöður þessarar þróunarvinnu út
á við og koma henni á framfæri.
Skipað var í sérstakt upplýs-
ingateymi sem hefur það hlut-
verk m.a. að kynna stefhumálin
og miðla upplýsingum innan
skóla og utan, meðal annars með
útgáfu skólastefnunnar og mark-
vissrar nýtingar upplýsinga-
tækninnar. Nýlega var tölvu-
kostur skólans endurnýjaður, en
við það stóraukast möguleikar á
notkun og aðgengi að upplýs-
ingatækni. Þetta gagnast bæði
nemendum og kennuram í því
að gera skólastarfið áhrifaríkara.
Af öðrum stefnumótandi
verkefnum í vetur má nefna
kosningu í umhverfisráð sem
hefur það verkefni að skýra og
skilgreina umhverfisstefnu skól-
ans og vinna að því að komast á
„græna grein“ til þess að öðlast
rétt til þess að flagga „græn-fán-
anum“ sem er umhverfismerki
sem nýtur virðingar víða í Evr-
ópu og er tákn um góða fræðslu
og umhverfisstefnu í skólum.
I vetur verður tilraunakennt
verkefni sem sérkennarar
Brekkubæjarskóla unnu síðast-
liðinn vetur undir stjórn Ast-
hildar Snorradóttur talmeina-
fræðings sem lýtur að óhefð-
bundinni tjáningu og miðar að
því að greina þarfir og getu
barna sem ekki geta tjáð sig á
hefðbundinn hátt. Þetta verk-
efni lofar mjög góðu og getur
skipt sköpum fyrir þau börn sem
ekki er unnt að meta samkvæmt
þeim mælikvörðum sem notaðir
hafa verið fram til þessa.
Nokkuð hefur verið unnið í
umhverfismálum skólans og á
næstu dögum verður nýr
sparkvöllur tekinn í notkun á
skólalóð Brekkubæjarskóla.
Þessi nýi völlur er hluti af átaks-
verkefni KSÍ og sveitarfélaganna
sem miðar að því að fjölga
sparkvöllum á Islandi. Einnig
bindur Auður vonir við að gert
verði átak í merkingum og girð-
ingu skólalóðar, þar sem bíla-
stæði skarast við leiksvæði barn-
anna svo gera megi leiksvæðið
eins öruggt og kostur er.
ALS