Skessuhorn - 25.08.2004, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2004
Ingibjörg Melkorka Ásgeirs-
dóttir er að byrja í 1. bekk í
Brekkubæjarskóla og er orðin
nokkuð spennt. „Eg held að
það verði skemmtilegast að
Skemmtilegast
að læra
að lesa
læra að lesa og ég er byrjuð að
æfa mig. Ásdís systir mín er að
kenna mér svolítið að lesa í bók
með risastórum stöfum. Svo er
ábyggilega líka mjög skemmti-
legt í frímínútum því þá eru
svo margir krakkar úti að leika
sér saman.“ Ingibjörg segist
bráðum fara að kaupa tösku,
pennaveski og skæri en nýverið
sendi bankinn henni poka und-
ir leikfimiföt og endurskins-
merki. Hún verði því bráðum
tilbúinn í slaginn.
Svanhildur Alexzandra er að
byrja í 4. bekk í Brekkubæjar-
skóla og var £ Pennanum á
Akranesi að máta skólatöskur
fyrir veturinn. Hún hlakkar til
að fara aftur í skólann að hitta
krakkana og kennarann sinn.
Aðspurð að því hvað sé
skemmtilegast í skólanum
segir hún frímínútur, föndur
og fótbolta í frímínútum í sér-
stöku uppáhaldi þó hitt sé allt
frekar skemmtilegt líka. Með
Skemmtilegast
í föndri og
fótbolta
henni í búðinni voru mamma
hennar, Ellý Halldórsdóttir og
systir, Halldóra Vera sem er að
hefja síðasta veturinn sinn í
leikskóla. Hún segist hlakka
svolítið til að fara í 1. bekk
næsta vetur, enda fái
skólakrakkar svo
fínt dót, töskur
og pennaveski
og svoleiðis,
þegar þau fara í
grunnskóla.
Hún bætir því
þó við að leik-
skólinn sé ör-
ugglega jafn
skemmtilegur
og það væri á-
gætt ef leik-
skólabörn
fengju líka
svona flott
skóladót.
ALS
Halldóra Vera oa Svanhildur Alexzandra
Skemmtilegast
í leikfimi og
sundi
Ásdísi Ösp Ásgeirsdóttur,
sem fer í 3. bekk í Brekkubæj-
arskóla, finnst ekkert sérstak-
lega gaman að vera að byrja
aftur í skólanum því það er svo
gaman að vera í sumarfríi.
„Það verður samt ágætt að
hitta krakkana og fara í leik-
fimi og sund, mér finnast það
skemmtilegustu greinarnar.“
Nýr skólavefiir
Hinn nýji sameinaði Grunn- Snæfellsbæ og er vefurinn bæði
skóli Snæfellsbæjar hefur feng- ætlaður foreldrum og nemend-
ið nýjan vef, www.gsnb.is. Á um eða hverjum þeim sem hafa
vefnum er að finna allar helstu áhuga að fylgjast með upp-
upplýsingar um skólastarf í fræðslu í Snæfellsbæ. GE
Kennarar leggja áherslu á vinnutúnann
Ekki er laust við að
talsverður uggur sé í
fólki vegna stöðu kjara-
viðræðna kennara við
fulltrúa sveitarfélag-
anna. Boðað verkfall
kennara hefst 20. sept-
ember í haust hafi ekki
samist fyrir þann tíma. I
dag liggur fyrir að mikið
ber á milli í kröfum
kennara og viðsemjenda
þeirra og eru margir
svartsýnir á að sættir
takist í kjaradeilunni í
tæka tíð. Þegar Skessu-
horn fór í prentun var á-
formað að næsti form-
legi sáttafundur í kjara-
viðræðunum verði hald-
inn næstkomandi
fimmtudag [á morgun].
Aformað var einnig að fámenn-
ur vinnuhópur skipaður fulltrú-
um beggja samningsaðila ræði
óformlega um vinnutíma og
verkstjórnarmál nú í vikunni og
gefi skýrslu um vinnu sína á
sáttafundi á fimmtudag.
Vegna þess að Skessuhorn
þessa vikuna er tileinkað skóla-
haldi í haust og skólabyrjun var
slegið á þráðinn til Eiríks Jóns-
sonar formanns KI og hann
spurður hverjar hann teldi lík-
urnar á að samningsaðilar næðu
saman fyrir 20. september nk?
„Eg held að það ráðist mikið af
hvernir gengur að semja um
vinnutímaþáttinn í þessum
samningum. Við leggjum tölu-
vert mikla áherslu á að það ná-
ist samkomulag um vinnutím-
ann og framkvæmd hans en ef
það tekst er ég bjartsýnn á að
náist að semja um launaþáttinn
í framhaldinu.“ I kröfugerð KI
kemur m.a. fram að farið er
fram á að störf innan skólanna
verði endurskilgreind með það
að markmiði að vinnutími verði
skýr og öllum kennurum, skóla-
stjórnendum og námsráðgjöf-
um sé tryggður nægur tími til
að sinna kennslu og/eða stjórn-
unarstörfum og undirbúningi
kennslu í samræmi við ákvæði
laga og námskrár. Einnig er far-
ið fram á að vinnuvikan verði
framvegis 37,5 klst.
Eiríkur telur ólíklegt að
samningum ljúki fyrr en rétt
fyrir boðað verkfall. „Annað-
hvort náum við að semja á síð-
ustu dögunum eða það gæti
brostið á með löngu verkfalli.
Það tókst að afstýra verkfalli
1997 og það gæti allt eins tekist
núna. Ef hinsvegar verkfall
verður raunin þá tekur við
hefðbundið „kuldatímabil“ þar
sem samningsaðilar talast lítið
sem ekkert við í einhvern tíma.
Sagan segir okkur að þá verður
spennufall í viðræðunum sem
gæti jafnvel þýtt 6-8 vikur,“
sagði Eiríkur Jónsson í samtali
við Skessuhorn. MM
Níundi bekkurinn leggst vel
í Ernu Frímannsdóttur
Erna Frímannsdóttir byrjar í
9. bekk í Brekkubæjarskóla
þegar skólinn verður settur
fimmtudaginn 26. ágúst. Hún
segir að veturinn leggist vel í
sig og að það verði gaman að
hitta skólafélagana afiur eftir
langt hlé þó hana kvíði svolítið
fyrir því að vakna snemma á
morgnana £ vetrarmyrkrinu. I
sumar hefur Erna verið £ vist
með tveggja ára bróður sinn,
Andra Þór, sem hún segir frek-
ar skemmtilegt starf, en það
verði ágætt að komast f skól-
ann aftur. Hún er þó ekki farin
að huga að kaupum á skóladóti
enn, segist fara £ það eftir
skólasemingu þegar kennarar
hafa útdeilt lista yfir þá hluti
sem þurfa að vera til reiðu fyr-
ir veturinn. Aðspurð segir
Erna stærðfræði skemmtileg-
ustu námsgreinina en er þó
ekki viss um að hún vilji alfarið
leggja hana fyrir sig. I raun sé
hún lftið farin að velta þvi fyr-
ir sér hvað hún ætli að gera f
ffamtiðinni. Hún er þó stað-
ráðin í þvf að fara í fjölbrauta-
skóla að loknu námi í 10. bekk.
ALS
Hafdís Dóra og Guðlaug Marín
Systurnar Hafdís Dóra og
Guðlaug Marín Gunnarsdætur
eru að byrja í 2. og
6. bekk í Grunda-
skóla. Þær voru
með mömmu
sinni, Lilju Hall-
dórsdóttur, í
bókabúðinni að
kaupa stílabækur,
blýanta og annað
skóladót sem ekki
má vanta fyrir vet-
urinn. Hafdís
Dóra segir að það
sé gaman í skólan-
um og gott að vera
að byrja aftur en systir hennar
Hafdis
Dóra og
Guðlaug
Marín
hefði getað þegið lengra sum-
arfrí, enda sé skólinn að verða
pínu-erfiður þegar komið er í
6. bekk.
ALS