Skessuhorn - 28.09.2005, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005
Versta
vetramki
Þegar vinnslu blaðsins lauk í
gær var víða versta veður á
norðanverðu Vesturlandi. Lög-
reglan í Búðardal varaði í gær-
morgun fólk við að fara að
nauðsynjalausu um Svínadal
vegna mjög slæms veðurs. Mjög
hvasst var, sviptivindar og krapi
á vegum. Þá var vitað um eitt ó-
happ þegar fjárflutningabifreið
fauk útaf veginum um Svínadal.
Tveir slösuðust í því óhappi en
það varð við Njálsgil á Svínadal
rétt fyrir hálfátta á þriðjudags-
morgun. Lögreglubíll frá Búð-
ardal fauk út af veginum þegar
hann var á leið á vettvang og
minnstu munaði að sjúkrabíll-
inn, sem sótti farþega bílsins,
hafi fokið út af í tvígang.
Einnig var varað við ferðum á
sunnanverðu Snæfellsnesi, á
Fróðárheiði og í Gufudalssveit
vegna veðurs. Rafmagnsbilanir
voru nokkrar á Snæfellsnesi í
gær beggja vegna fjallgarðsins
og þurftu viðgerðarmenn m.a.
frá að hverfa í Staðarsveit vegna
illviðris. Spáð er áframhaldandi
umhleypingum næstu daga og
er því full ástæða til að fara var-
lega á vegum úti og ekki síst á
akstri upp til heiða.
-mm
Lida búðin
t
opnar
AKRANES: Næstkomandi
laugardag opnar Litla búðin á
Akranesi á nýjum stað að
Kirkjubraut 2 í margfalt stærra
og betra húsnæði en fyrr. Vöru-
val og þjónusta eykst og verður
höfðað til fleiri aldurshópa en
áður í fatnaði, undirfatnaði,
snyrtivörum og fleiru. Verslun-
in er til húsa þar sem síðast var
verslun Perlunnar og Kastalans
og hefur verið opnað á milli í
verslunarrými því sem þessar
búðir höfðu til afnota.
-mm
Stækka húsnæði
slökkviliðsins
DALIR: Dalabyggð hefur fest
kaup á húsi Björgunarsveitar-
innar í Búðardal með það í
huga að stækka húsnæði
Slökkviliðs Dalasýslu sem er á-
fast björgunarsv.húsinu. Björg-
unarsveitin hefur þegar keypt
nýtt hús fyrir starfsemi sína.
Björgunarsveitin er vel tækjum
búin, á m.a. góðan vélsleða, bát
og bíl. -mm
Sólborg til sölu
STYKKISHOLMUR: Sól-
borg hf., útgerðarfélag Gunn-
laugs Arnasonar í Stykkishólmi
er til sölu en félagið hefur árum
saman gert út bátinn Arsæl. A-
form um sölu hafa verið kynnt
bæjarstjórn Stykkishólms því
ætlunin er að kanna áhuga
heimamanna á fyrirtækinu áður
en leitað verður annað.
~ge
Ljósleiðari í Borgarfjörð
Næstkomandi föstudag verður
undirrituð viljayfirlýsing milli Borg-
arbyggðar og Orkuveitu Reykjavík-
ur um lagningu ljósleiðara í Borgar-
fjörð. Samkomulagið felur í sér ljós-
leiðarasamband fyrir háskólana á
Bifröst og Hvanneyri. Þá er gert ráð
fyrir að á næstu árum verði lagður
ljósleiðari í allar gömr í Borgamesi.
„Þetta er fullkomnasti og öflug-
asti fjarskiptabúnaður sem til er og
það er mikils virði að Orkuveitan sé
tilbúin að ráðast í þetta verkefni,“
segir Páll S Brynjarsson bæjarstjóri
Borgarbyggðar. „Þessar fyrirætlam-
ir styrkja svæðið sem góðan búsetu-
kost og það er ástæðan fyrir þátttöku
Borgarbyggðar í verkefhinu.“
Sem fyrr segir verður undirrituð
viljayfirlýsing á föstudag og í ffam-
haldi verður unnið að samningsgerð
milli Orkuveitunnar og Byrgar-
byggðar.
GE
Múlavirkjun tekin í notkun
í lok nóvember
Séð niður að seinni stíflumannvirkjunum sem eru á milli Hraunrfjarðarvatns og Baulárvallavatns.
Eins og greint hefur
verið frá í Skessuhorni
hófust fyrir um einu ári
síðan framkvæmdir við
vatnsaflsvirkjun við
upptök Straumfjarðarár
á Snæfellsnesi, svoköll-
uð Múlavirkjun, en
undirbúningur verksins
hófst í janúar árið 2003.
Hér er um einkafram-
kvæmd að ræða sem fé-
lag í eigu þriggja aðila á
Snæfellsnesi, þeirra
Eggerts Kjartanssonar
bónda á Hofsstöðum,
Bjarna Einarssonar á
Tröðum í Staðarsveit
og Astþórs Jóhanns-
sonar í Dal. Samið hefur verið um
sölu allrar orkunnar sem virkjunin
mun skila, eða að gmnnafli um 1,9
MW til Hitaveitu Suðurnesja en
dreifing hennar fer um dreifikerfi
Landsnets eins og önnur raforku-
dreifing hér á landi. Framkvæmdir
við virkjunina em nú komnar vel á
veg og er áætlað að þeim ljúki í lok
nóvember á þessu ári og verður
virkjunin þá vígð.
Að sögn Eggerts Kjartanssonar
er umhverfið við virkjunina óðum
að taka á sig endanlega mynd.
„Staðan í dag er sú að verið er að
vinna úr ýmsum vandamálum sem
komið hafa upp og í frágangi
svæðisins. Meðal annars hækkaði
vatnsborð í Baulárvallavami tíma-
bundið vegna bilunar í búnaði.
Starfsmenn frá Umhverfisstofnun
fóra í vettvangsferð á svæðið þann
23. ágúst sl. og gerðu nokkrar at-
hugasemdir við frágang og er nú
verið að vinna að lagfæringum
m.a. vegna rasks á svæðinu. Helsta
athugasemd Umhverfisstofnunar
snéri að hækkun sem orðið hefur
tímabundið á vatnsborði Baulár-
vallavatns. Ekki reyndist unnt að
hamla á móti þeirri hækkun vegna
þess að botnloki í stíflunni reynd-
ist of veikbyggður og þurftum við
því að setja upp hlera að innan-
verðu á meðan gert er við lokuna.
I byrjun var heldur ekki hægt að
keyra aðra af tveimur túrbínum
virkjunarinnar og hafa sérfræðing-
ar verið á staðnum til viðgerða
þannig að séð er fyrir endann á því
vandamáli einnig.“
Enn þrátt fyrir vandamál er
Eggert þó bjartsýnn á framtíðina
og ánægður með verkið í heild.
„Þrátt fyrir að ýmis vandamál hafa
komið upp á framkvæmdatíman-
um og verkið í heild tafist um hálft
ár frá upphaflegri áætlun, þá hefur
verið sérlega skemmtilegt að
takast á við þetta verkefni.
Skemmtilegast er þó að með
Múlavirkjun er verið að nýta
vatnsflæði svæðisins án þess að
ganga á nokkurn hátt á auðlindir
náttúmnnar," segir Eggert að lok-
um.
MM
Stöðvarhús Múlavirkjunar t byggingu t apríl sl.
Obreyttar reglur um skiptingu
byggðakvóta Grundarfjarðar
Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar
hefur samþykkt að sömu reglur
muni gilda á yfirstandandi fisk-
veiðiári vegna skiptingar byggða-
kvóta sveitarfélagsins og giltu á
síðasta fiskveiðiári. Nýverið var
tilkynnt að 140 þorskígildistonn
komi í hlut skipa og báta í sveitar-
félaginu eða svipað magn og síð-
ast.
Samkvæmt reglunum verður
fjórðungi kvótans úthlutað til út-
gerða aflamarksskipa sem hafa lög-
heimili útgerðar og útgerðarstjórn-
ar í Gmndarfirði í hlutfalli við
landaðan afla á síðasta fiskveiðiári.
Við úthlutun skal heildaraflamark
einstakra skipa ekki aukast um
meira en 100% og ekkert skip skal
hljóta meira en 15 þorskígildistonn.
Þrír fjórðu byggðakvótans fara
hins vegar til að bæta upp samdrátt
vegna banns við skelveiðum á
Breiðafirði. Sú úthlutun er bundin
því að kvótinn skuli veiddur af
skipum gerðum út frá Gmndar-
firði og unninn þar samkvæmt
samningi við fiskvinnslu. Sá samn-
ingur skal fylgja umsókna.
HJ
Aldarafmæli
HVANNEYRI: Hvanneyrar-
kirkja er 100 ára um þessar
mundir. Af því tilefhi verður flutt
hátíðarmessa sunnudaginn 16.
október en á eftir verðtu- kaffi-
samsæti, myndasýning og fleira.
Auglýst hefur verið eftir gömlum
ljósmyndum af kirkjunni sem
fólk kynni að hafa í fórum sínum.
Ingibjörg, sóknarnefndarfor-
maður og Flóki, sóknarprestur
taka við myndunvun. -mm
Stærsti kom-
þurrkarínn
SNÆFELLSNES: Stofhað hef-
ur verið félag sex bænda í Eyja-
og Miklaholtshreppi um rekstur
kornþurrkunartums sem taka á í
notkun í haust. Tuminn er stað-
settur við afleggjarann að Lauga-
gerðisskóla. Fyrst í stað verður
notast við ohu til kyndingar en í
ffamtíðinni gert ráð fyrir að
kornið verði þurrkað með jarð-
hita. Þurrkarinn mun verða sá
stærsti sinnar tegundar hér á
landi og afkasta yfir 20 tonnum á
sólarhring. -mm
Engin
lántaka í ár
AKRANES: Samkvæmt fyrir-
liggjandi tillögu að endurskoðun
fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akra-
ness fyrir yfirstandandi ár er ekld
gert ráð fyrir nýjum lántökum á
vegum bæjarsjóðs. Gísli Gíslason
bæjarstjóri kynnti bæjarráði
helstu atriði endurskoðunar áætl-
unarinnar á fundi bæjarráðs í síð-
ustu viku. Þar kom ffam að tekj-
ur af útsvari og gatnagerðar-
gjöldum verði hærri en gert var
ráð fyrir en mæta þurfi útgjöld-
um vegna ýmissa samþykkta tun
ffamkvæmdir og verkefni. Helstu
breytingar em, samkvæmt til-
kynningu bæjarsjóðs, að skatt-
tekjur hækka um 122 milljónir
króna, fjármagnstekjur hækka
um 31 milljón króna, tekjur af
gatnagerðargjöldum hækka um
70 milljónir króna. Hækkun
gjalda em þær helstar að ffamlag
til fjölnota íþróttahúss er áætlað
200 milljónir króna og hækkun
vegna kjarasamninga um 27
milljónir króna. -hj
Kartöflur úr snjó
FELLSSTRÖND: Það hefhr
heldtu betur kólnað í veðri og
haustið er óvenju snemma á ferð-
inni þetta árið. Uti á Fellsströnd
í Dalasýslu og víða á þeim slóð-
um er kominn 10-15 sentimetra
jafnfallinn snjór. „Þegar við kom-
um heim síðasta fimmudag, fór-
um við beint í að taka upp kart-
öflurnar og þurftum fyrst að
hreinsa vænt snjóalag ofan af
garðinum. Þetta gekk þó ágæt-
lega og náðum við kartöflunum
þó svo það hafi verið kaldara en
áður að vinna við það,“ sagði
Erla Karlsdóttir í Innri-Fagradal
á Fellsströnd í samtali við
Skessuhom. „Eg hef ekki áður
tekið upp kartöflur í snjó,“ bætti
hún við.
-gb
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla mibvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þri&judögum. Auglýsendum er bent á ab panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þribjudögum.
Blabib er gefib út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverb er 850 krónur meb vsk. á mánubi en krónur 750
sé greitt meb greibslukorti. Verb í lausasölu er 300 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blabamenn: Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is
Halídór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Gubrún Björk Fribriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is
Prentun: ísafoldarprentsmibja