Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2005, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 28.09.2005, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 Gestirfylltu sal Snorrastofu á afmælishátíSinni. Afinæli Snorrastofu Það var þéttskipaður salur í Snorrastofu í Reykholti sl. föstu- dagskvöld þegar minnst var 10 ára afmælis Snorrastofu. Dagurinn er sterkt tengdur sögu stofhunarinnar á tvennan hátt. Hann er í fyrsta lagi sá sami og þegar Snorri Sturluson var drepinn af fyandmönnuin sínum í Reykholti árið 1241. I annan stað má segja að fræðasetrið Snorrastofa hafi orðið að veruleika þennan dag árið 1995 þegar Guðlaugur Oskars- son, formaður sóknarnefndar Reykholtskirkju og Björn Bjarna- son, þáverandi menntamálaráð- herra, rimðu undir skipulagsskrá Snorrastofu. Meginefhi afmælisdagskrárinnar var minningarfyrirlesmr Vésteins Olafssonar sagnfræðings um Snorra Smrluson en fyrirlesmrinn nefhdi hann Illt og gott hjá ásum - og Snorra. Jafnframt var saga Snorrastofu í fortíð, nútíð og fram- tíð rakin af Bergi Þorgeirssyni, for- stöðumanni. Guðlaugur Oskars- son, formaður sóknarnefhdar flutti ávarp sem og Bjarni Guðmunds- son, formaður stjórnar Snorrastofu. Þá lék ungur og efhilegur fiðluleik- ari, Eygló Dóra Davíðsdóttir ffá Hvassafelli tvö verk á fiðlu. Svein- björn Eyjólfsson, oddviti Borgar- fjarðarsveitar færði, fyrir hönd sveitarfélagsins og Borgarbyggðar, peningagjöf til afmælisbarnsins í tilefni dagsins. Gesmm var að lok- um boðið til veislu að dagskrá af- staðinni í safnaðarsal Reykholts- kirkju. MM Þrengingar í Grundarfirði Þrengingar standa núyfir á Grundargötu í Grundarfirái meö það í huga að dragi úr umferðarhraða um aðalgötu bæjarins. Það er fyrirtœkið Dodds ehf. sem sér um framkvœmdimar sem nú eru vel á veg ktrnnar. Ljósm: SK Stóði smaiað til Laufskálaréttar Vetrarlegt var um að litast í Laufskálarétmm um liðna helgi en þrátt fyrir það lét fólk ekki færð né veður aftra því að mæta í þessar fjölmennu réttir þar sem Skagfirð- ingar rétta stóðhrossum sínum. Gríðarlegur fjöldi fólks var í rétt- unum og á meðfylgjandi myndum sést bros á hverju andliti. Dansleik- ir og önnur skemmtun sem síðan haldin í tengslum við réttarhaldið og var mikill viðbúnaður lögreglu og gæsluaðila sökum fjölda gesta í Skagafirðinum. Þar sem stóðréttir heyra nú sögunni til á Vesturlandi lámm við fljóta hér með nokkrar myndir ffá vinum okkar í Skaga- firði. MM/ Ijósm: MKG Barist á móti vindinum Það var ansi hvasst á Snæfellsnesi þurfti að taka á öllu sínu til að berj- á mánudaginn var þannig að meira ast við vindinn. að segja Bæjarfossinn í Ólafsvík Framhaldsskóli -fyrir hvem? Núna undanfarið hafa verið uppi vangavelmr um stofnun fram- haldsskóla í Borgarnesi og hefur verið stofnaður starfshópur um málið. Vangavelmrnar eru komnar það langt að Sparisjóður Mýra- sýslu er búinn að heita fjárffam- lögum til stofnunar skólans. Sem gamall Borgnesingur ætti ég að fagna þeim vangavelmm þar sem stofnun smærri framhalds- skóla í byggðum landsins er talin auka sókn fólks í nám. Vandamálið er bara það að námsframboð í þessum litlu skólum einskorðast oft við hagkvæmnis sjónarmið. Það er staðreynd að fólk leitar í það nám sem býðst í heimabyggð. Ef stofnaður verður enn einn bók- námsskólinn á þessu svæði er víst að aðsókn að iðnnámi mun minnka. Dæmi um slíkt varð að veruleika þegar Borgarholtskóli í Grafarvogi var stofnaður og málmiðnaðardeild Breiðholtsskóla færð í hann, en við það hurfu nem- endur úr Breiðholti úr málmiðn- aði. Heima hjá mömmu Hvaða foreldri langar ekki til að halda barninu sínu örlítið lengur heima? Ef settur er upp skóli með takmarkað námsframboð er til- hneiging til að senda barnið í það nám sem býðst á staðnum, þó ekki væri nema vegna hagkvæmninnar. Má í því sambandi áætla að hlutfall Borgnesinga í iðnnámi fari lækk- andi, sbr. reynslu af flumingi náms- deilda í Reykjavík. Þannig að ef af stofnun skólans verður í Borgarnesi er verið að takmarka möguleika Borgnesinga til vals á námsleiðum. Efast ég um að hægt verði að halda úti einkareknum ffamhaldsskóla og halda fullu samstarfi við Fjölbraut á Akranesi þannig að nemendur geti raunverulega valið. Nemendur af Snæfellsnesi týndir! Fram til þessa hefur iðnnám verið sterkur hlekkur í Fjölbrautaskóla Vesturlands, aðsókn að iðnnámi í skólan hefur hinsvegar sjaldan verið dræmari en nú, þrátt fyrir að skólinn sé yfirfullur af bóknámsnemum. Undanfarin ár hafa margir iðnnem- ar komið af Snæfellsnesi en núna sjást þeir ekki og hver ædi ástæðan sé? Með stofinm framhaldsskólans í Grundarfirði klufu Snæfellingar sig út úr samstarfinu við FVA en inni- falið í því samstarfi var m.a. aðgang- ur að heimavist og forgangur að plássi við skólann. Þar sem aðsókn nemenda í framhaldsskólann í Grundarfirði hefur verið góð má æda að þeir sem stundi nám frá Snæ- fellsnesi smndi það að mestu í Grundarfirði við þær bóknámsleiðir sem þar er boðið upp á. Má í því sambandi benda á að enginn Snæ- fellingur er skráður í iðnnám á Akra- nesi. Eflaust eru ástæðurnar ýmsar en þó má nefna að áhersla í atvinnu- uppbyggingu ætti að hafa áhrif á- samt framboði á námi. Ef við skoðum málið nánar er vert að spyrja hvar atvinnuuppbyggingin hefur verið á Vesturlandi og innan hvaða sviðs? Háskólar hafa verið stofnaðir á Bifröst og að Hvanneyri og hefur þar af leiðandi fjölgað stör- fun þar sem langskólamenntunar er krafist. Einnig var stofnaður fram- haldsskóli í Grundafirði sem hefur kallað efrir fólki með aukna mennt- un. Þessi störf sem talað er um eru góðra gjalda verð og hafa skilað þeim stöðum miklu, þar sem þau eru. Hinu er ekki að leyna að mest fjölgun atvinnutækifæra er tengd málmiðnaði og ber þar hæst Norð- urál. Hvergi á landinu eru betri at- vinnutækifæri fyrir málmiðnaðar- menn en á sunnanverðu Vesturlandi. En samt fækkar þeim sem sækja það nám. Það er til lítils að lokka að stór- iðnað ef ekki er hægt að útvega menntað vinnuafl. Dýrt nám fellt niður! Stór framhaldsskóli getur boðið fjölbreytt nám vegna þess að hag- kvæmnin liggur í fjöldanum. Fari nemendum hinsvegar fækkandi er hætt við að skera þurfi niður í óhag- kvæmu námi og á ég þar ekki við þjóðhagslega óhagkvæmt heldur rekstrarlega. Iðnnám er margfallt dýrara en bóklegt og hggur því ljóst fyrir hvaða nám er hagkvæmast að skera niður. Ef skóli eins og Fjöl- brautaskóli Vesmrlands á Akranesi verður of h'till er hætt við því að hann geti ekki notið hagkvæmninn- ar sem felst í núverandi stærð. Þeir sem hafa þurft á iðnaðarmanni að halda upp á síðkastið vita hvað er þá í vændum. Fækkandi iðnnemar er ekld lausnin á þeim vanda. Eg verð því að vona að þeir sem láta sig dreyma um að byggja þenn- an skóla í Borgamesi eða hvar sem er á landinu hugsi sinn gang og skoði mögulegar afleiðingar. Þröstur Þór Olafsson, Málmiðnaðarkennari.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.