Skessuhorn


Skessuhorn - 28.09.2005, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 28.09.2005, Blaðsíða 19
^ikusunu.. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 19 Sa Að bæta sig eða sitja eftir Aldrei í sögu þjóðarinnar hefnr samfélag okkar breyst jaín ört sem á síðustu áratugum. Flest helstu gildi hafa fengið breytta merkingu. At- vinnuhættdr, samgöngur, menntun, vísindi og almenn þjónusta hefur tek- ið slíkum stakkaskiptum að undrun sætir. Nægir að vitna til aðstæðna þeirra er elsta kynslóð okkar kynntist og bera hana saman við Island í dag. Þar er himin og haf á milli. Fólk gerir meiri kröfur um þjónustu Eitt einkenni breytinganna eru tví- mælalaust mun harðari kröfur fólks- ins í landinu til almennrar þjónustu á flestum sviðum. Gildir það jafiit um skilyrði til menntunar barnanna, fé- lagslegrar þjónustu af öllum toga, heilbrigðisþjónustu, verslunar, fjar- skipta o.s.frv. Þetta er eðlileg þróun enda má segja að samfélagið hafi breyst frá því að vera tiltölulega ein- angrað framleiðsluþjóðfélag til þess að vera nútímalegt velferðarsamfé- lag. Þessar róttæku breytingar hafa á stundum verið sársaukafullar þar sem hefðin og fortíðin toga í hin breyttu gildi og nýjar aðstæður. En segja má að stjórnsýslan hafi ekki náð að fylgja þessum breyting- um eftir. Birtist það gleggst í skipan sveitarstjórna sem enn taka mið af strjálbýlu og einangruðu samfélagi á allt öðrum grunni en Island í upp- hafi 21. aldar. Og ótrúlega gengur seint að laga sveitarfélög að nýjum aðstæðum. Fyrir vikið hefur ríkis- valdið náð að tútna út og ríghalda í um 70% af verkefnum hins opin- bera á sama tíma og ríkið sinnir einungis um 30% sambærilegra verka í nágrannalöndum okkar. Tilgangurinn að efla heimabyggðir Þann 8. október verður gengið tdl kosninga í mörgum sveitarfélögum þar sem leitast er við að stækka og einfalda sveitarstjórnir á Islandi. Til- gangur þess er tvíþættur: Annars veg- ar að skapa svigrúm til að taka við fleiri verkefinum (og peningum) frá ríkinu og hins vegar að gera sveitar- félögum fært að standa undir þeirri þjónustu sem íbúar þess eiga skilið að fá. Engum dylst að sveitarfélag sem telur örfá hundruð íbúa á þess engan kost að mæta kröfúm samtímans um þjónustu. Og það sveitarfélag er á engan hátt búið undir að taka við verkefnum frá ríkisvaldinu og færa þannig ákvarðanatökuna heim í hér- að. Kynna sér kosti og taka afstöðu Ég hvet alla íbúa umræddra sveit- arfélaga til að kynna sér rækilega þær upplýsingar sem hggja fýrir um kosti í stöðunni. Ríkisvaldið hefur ákveðið að leggja sérstaklega 2,4 milljarða króna til að styðja við sameiningu sveitarfélaga. Það eru háar upphæðir í þágu þegnanna. Eg hvet einnig fólk til að velta fýrir sér hvernig stærra sveitarfélag hækkar þjónustustigið við borgarana, er betur í stakk búið til að sækja ffarn á öllum sviðum, þ.m.t. að fá fleiri verkefhi og fé til fólksins. Efidr miklu er að slægjast því samkeppni um fólk milli héraða mun fýrst og fremst ráðast af þeirri þjón- ustu sem í boði er fýrir fólk á 21. öld- inni. Þröngir sérhagsmunir hljóta að víkja fýrir slíkum markmiðum. Aðal- atriðið er að fólkið kynni sér upplýs- ingarnar, noti kosningaréttinn og taki afstöðu þann 8. október. Hjdlmar Amastm, fomi. verkefnisstjómar. Framundan eru kosningar um sameiningu 80 af 103 sveitarfélögum landsins. Þar sem engin formleg um- ræða hefur farið ffarn, hvorki í sveit- arstjórn né meðal íbúa Dalabyggðar, um væntanlega kosningu um sam- einingu Dalabyggðar, Saurbæjar- hrepps og Reykhóla, er rétt að tæpa á málum. Megintdlgangur með sameining- um smærri sveitarfélaga er að efla sveitarstjómarstigið og gera stærri og öflugri sveitarfélögum kleift að sinna lögbundnum verkefnum sín- um, mynda heildstætt atvinnu- og þjónustusvæði út frá sókn íbúanna til atvinnu og þjónustu og gera þau nógu burðug til að taka að sér fleiri verkefni. Er þá helst talað um heilsugæslu, málefhi fatlaðra, öldr- unarþjónustu, félagsþjónustu, svæð- isvinnumiðlum og ráðgjöf ásamt reksmr minni sjúkrahúsa. Samanlagður íbúafjöldi þessa þriggja sveitarfélaga er 971 miðað við 1. desember 2004 á um 3.100 ferkílómetra svæði. I Dalabyggð búa 631, þ.a. um 250 í Búðardal, í Saur- bæjarhreppi 80 íbúar og í Reykhóla- hreppi 257 íbúar. Oll sveitarfélögin leitast við að sinna gmnnþjónusm sveitarfélaga, ýmist sjálfstætt eða í samvinnu hvort við annað, með mis- munandi árangri. Þau eiga það öll sameiginlegt að berjast í bökkum fjárhagslega, mismunandi skuldsett, þó af mismunandi ástæðum sem rak- ið verður síðar. Það hlýmr þá að vera raunhæfur kosmr fýrir þessi þrjú fámennu sveitarfélög að sam- einast, eða hvað? Nei, ég tel það ekki raunhæfan kost af mörgum ástæðum. Fyrst er þar að nefna að sameinað sveitarfé- lag með innan við 1000 íbúa er of lít- il rekstrareining tdl að geta bætt á sig fleiri verkefhum. Núverandi reksmr Dalabyggðar reynist sveitarfélaginu ofviða, ekki síst í ljósi mikilla ffam- kvæmda og fýritækjareksturs sem ekki er séð fýrir endann á. Skulda- staða Saurbæjarhrepps er ógnvænleg og á Reykhólum standa yfir kosmað- arsamar ffamkvæmdir. I öðru lagi hggja ekki fýrir neinar fastmótaðar tillögur ffá félagsmálaráðuneyti og Jöfhunarsjóði sveitarfélaganna um fjárlög til að koma til móts við erfiða skuldastöðu sameinaðs sveitarfélags sem gerir því kleift að sinna sínum lögbundnum verkefhum. Einungis fýrirheit um styrki og fjármagn hggja fýrir. Ekki er skynsamlegt að byggja á svo veikum grunni og þarf að vinna betur í þeim málum áður en gengið er til atkvæðagreiðslu. I þriðja lagi er ekki hægt að koma auga á nein sam- legðaráhrif sveitarfélaganna með sameiningunni sem hlýtur að vera forsendaþessaðíbúarveljihana. At- vinnulíf í öllum sveitarfélögunum er einhæft og að mestu bundið við landbúnað, afurðavinnslu, þjónustu og þörungavinnslu. Ekki er að sjá að atvinnutækifæri aukist með samein- ingunni né að sveitarfélögin styrkist með öðrum hættd. Hvemig hti sameinað sveitarfélag Dalabyggðar, Saurbæjarhrepps og Reykhólahrepps út? Ef marka má skýrslu um sameiningu þessara sveit- arfélaga ffá árinu 2001 en engar aðr- ar upplýsingar liggja nú fýrir íbúum, er gert ráð fýrir 7 manna sveitar- stjórn með aðsetur stjórnsýslurmar í Búðardal. I skýrslunni er lagt tdl að sveitarsjórn skipi 5 fastanefndir auk lögbundinna nefnda og að allir starfsmenn stjórnsýslunnar, 4,5 stöðugildi hafi aðsetur í Búðardal fýrir utan einn sem hefur aðsetur á Reykhólum. Ef litdð er á hlutfalls íbúa má gera ráð fýrir að Dalabyggð fái 4 menn í sveitarstjóm, Saurbær 1 og Reykhólamenn 2. Valdið sem sagt í Dalabyggð! Tihögur sameiningarnefhdar um væntanlegar sameingu þessara þriggja sveitarfélaga vom mér mikil vonbrigði. Þær einfaldlega skila ekki þeim árangri sem tdl er ætlast og em á engan hátt tdl þess fallnar að styrkja þessi sveitarfélög. Ef Dalabyggð hyggst taka þátt í eflingu sveitarstjórnarstdgsins þarf sveitarfélagið að ganga mun lengra. Sveitarfélagið sækir ekki styrk sinn í veikari sveitarfélög, það er augljóst. Með bættum samgöngum suður á bóginn með tdlkomu Bröttubrekku, hafa opnast fjölmörg tækifæri fýrir Dalamenn, bæði hvað snertdr alla þjónustu, atvinnutækifæri og há- skólanám. Reykhólmenn hafa löng- um sótt sinn styrk norður á bóginn og telja sig tilheyra Vestjörðum. Töluverður ávinningur yrði fýrir sveitarfélagið að leita efidr samein- ingu við Hólmavík með tilkomu vegs um Arnkötludal sem gjörbreyt- ir atvirmusvæði Reykhólamanna og eflir þjónustuna við íbúana. Kosið hefur verið tvisvar um þessa tillögu sameiningar, í bæði skipti hefur hún verið felld af íbúum Saur- bæjarhrepps og Reykhólahrepps. Með þriðju kosningunum um sömu tihöguna er verið að sóa almannafé og hálf þvinga heimamenn. Illa hefur verið staðið að hlutlausri kynningu sameiningartillögunnar af hálfu sveitarstjórnanna og efdr því sem ég kemst næst stendur ekki tdl að kynna þær fýrr en nokkrum dögum fýrir kosningar þannig að tryggt er að íbúum gefist lítdll tdmi til að hug- leiða kosti og galla fýrihugaðrar sameiningar. Þeir nefhdarmenn sem bera ábyrgð á kynningunni eru trú- lega allir sammála mér aldrei shku vant, við eigum að fella tdllögu um sameiningu Dalabyggðar, Saurbæj- arhrepps og Reykhólahrepps. Sam- einingin mun ekki uppfýlla viðmið um heildstætt atvinnu- og þjónustu- svæði, samlegðaráhrifin eru engin. Guðrún J. Gunnarsdóttir, Kjörinn sveitarstjómamaður í Dalabyggð ÓSóÁasafn lAJfraness Sögustundir Fyrsta sögustund vetrarins Fyrsta sögustund vetrarins verður miðvikudaginn 5. október kl. 15:00 -15:45 Öll börn 3ja til 6 ára hjartanlega velkomin Opið á laugardögum í vetur Bókasafnið er opið: mán -fim kl. 11-19 •föstudaga kl. 11-18 og alla laugard.frá 1. okt til 1. maíkl. 11-14 Heiðarbraut 40 • s. 433 1200 www.akranes.is/bokasafn ío Verid velkomin! Akraneskaupstaður Stuðningsfulltrúi - Liðveisla - Stuðningur á heimili Stuðningsfulltrúi óskast í 30% starf inn á heimili á Akranesi. Vinnutími er eftir kl. 17:00 virka daga. Óskað er eftir starfsmanni, ekki yngri en 25 ára, með reynslu af vinnu með fólki. Viðkomandi verðm að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunum, Stillholti 16- 18,3. hæð og á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is Einnig er óskað eftir fólki á skrá til að taka að sér stuðning inni á heimili, tilsjónarstörf eða liðveislu og jafnframt óskað eftir fjölskyldum á skrá sem geta tekið að sér börn í stuðning yfir helgar. Frekari upplýsingar veitir Sveinborg Kristjánsdóttir, yfirfélagsráðgjafi, í síma 433-1000. Fjölskyldusvið Akraneskaupstaðar broste Njótum Lifum Brosum STILLHOLT116-18 • AKRANESI SÍMI 431 3333 • model.ak@simnet.is Hvanneyrarkirkja 100 ára Hvanneyrarkirkja er 100 ára um þessar mundir. Af því tilefni auglýsir sóknarnefnd og sóknarprestur eftir gömlum myndum af kirkjunni sem fólk kynni að eiga í fórum sínum. Sömuleiðis eftir myndum af athöfnum í kirkjunni. Þeir sem gætu lagt þessu erindi lið eru vinsamlegast beðnir um, að hafa samband við sóknarprest í síma 846 2020 eða Ingibjörgu Jónasdóttur í síma 437 0078. Nautasteik og lambasteik Digranesgötu 6 - Borgarnesi - s. 436 1300

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.