Skessuhorn - 11.01.2006, Blaðsíða 2
2
MIDVIKUDAGUR 11. JANUAR 2006
a^»unu>.
TOSKA
færður
afrakstur
tónleika
Um miðjan desember afhenm
félagar í Lionsklúbbnum Eðnu,
Tónlistarskóla Akraness krónur
650 þúsund sem var affakstur
tónleikanna sem klúbburinn stóð
fyrir til minningar um Karl J.
Sighvatsson, tónlistarmann.
Einnig var skólanum afhent
mynd eftir Bjarna Þór af Karli.
Ollum þeim fjölmörgu sem
gerðu tónleikana að raunveru-
leika vilja Eðnukonur koma á
ffamfæri til kærum þökkum, þó
einkum og sér í lagi Islandsbanka
sem lagði til verkefnisins mynd-
arlegt íjárframlag að upphæð 400
þúsund krónur. Lárus Sighvats-
son skólastjóri þakkaði rausnar-
lega gjöf fyrir hönd tónlistarskól-
ans. A myndinni eru auk Lárusar
konur úr fjáröfltmamefhd Eðnu.
MM/
Ljósm: Heiðrún Hámundard.
Til minnis
Vib minnum á Bikarmótið f
glímu sem fram fer aö Laugum í
Sælingsdal nk. laugardag. Þang-
a& mætir allt fremsta glímufólk
landsins og etur kappi í þjó&arí-
þrótt mörlandans.
Veðwhorfijr
Þa& ver&ur austan hvassviðri og
slydda eða snjókoma abfararnótt
fimmtudags. Hvöss vestanátt á
fimmtudag, en dregur úr vindi
og ofankomu þegar lí&ur á dag-
inn. Suðlæg átt á föstudag me&
snjókomu e&a éljum, en su&vest-
anátt og él á laugardag. Norð-
vestan átt og snjókoma á sunnu-
dag, en snýst í sunnan átt meb
slyddu á mánudag. Frost yfirleitt
0 til 6 stig, en hlýnar eftir helgi.
Þar höfum vi& þa&, það er nú
einu sinni hávetur.
SpWminj viKfjnnar
í li&inni viku spurbum við lesend-
ur Skessuhornsvefjarins: „Hva&
voru flugeldar keyptir fyrir háa
fjárhæb á þínu heimili?" Svörin
létu ekki á sér standa. í Ijós kom
a& 31,2% heimila keyptu enga
flugelda. 15,5% keyptu fyrir inn-
an vib 5000 krónur, 26,1% fyrir
5-10 þúsund, 14,2% fyrir 10-20
þúsund, 6,5% fyrir 20-30 þús-
und og 6,5% sögbust hafa misst
sig alveg í flugeldakaupunum.
í næstu viku spyrjum við:
„Er fréttaflutningur
DV trúveröugur aö
þínu mati?"
Svaraöu án undanbragöa á
www.skessuhorn. is
Vestlendimjtyr
viKijnnar
Er Sólveig
Rós Jóhanns-
dóttir, glímu-
kona úr Döl-
um.
A fleygiferð
- Vesturland morgundagsins
Rannsóknamiðstöð Viðskiptahá-
skólans á Bifröst og Samtök sveitar-
félaga á Vesturlandi standa að ráð-
stefnu um framtíð Vesturlands
föstudaginn 27. janúar nk. Ráð-
stefnan, sem er öllum opin og
ókeypis, verður haldin á Bifröst og
hefst klukkan 11 árdegis. Alls munu
ellefu valinkunnir einstaklingar
flytja þar erindi og munu þeir allir
beina sjónum sínum að framtíð
Vesturlands. Framsögumenn verða
Salvör Jónsdóttir forstöðumaður
skipulags- og byggingasviðs
Reykjavíkurborgar, Gísli Gíslason
hafnarstjóri Faxaflóahafna sf., Run-
ólfúr Agústsson rektor Viðskipta-
háskólans á Bifröst, Stefán Gíslason
umhverfisstjórnunarfræðingur,
Halldór Jónsson blaðamaður á
Skessuhorni, Haraldur Benedikts-
son formaður Bændasamtaka Is-
lands, Helena Guttormsdóttir
myndlistarmaður og kennari við
LBHI á Hvanneyri, Þorleifur
Finnsson sviðsstjóri
nýsköpunarsviðs
OR, Guðmundur
Smári Guðmunds-
son framkvæmda-
stjóri Guðmundar
Runólfssonar hf,
Grétar Þór Eyþórs-
son forstöðumaður
Rannsóknamið-
stöðvar Viðskipta-
háskólans á Bifröst
og Sigmundur Ern-
ir Rúnarsson frétta-
stjóri. Ráðstefnu-
stjóri verður Bryn-
hildur Olafsdóttir
fféttamaður og Grundfxrðingur.
A ráðstefnunni verður reynt að
rýna inn í framtíðina, skoða hver
eru helstu tækifæri svæðisins og
jafnvel hvað beri að varast. Er mik-
illa breytinga að vænta á Vestur-
landi næsta áratugixm og ef svo er
hvernig er best að bregðast við?
Hvaða aðgerða er þörf og getum
við gert eitthvað til að gera hag
okkar enn betri?
Nánari upplýsingar og skráningu
er að finna á vef Viðskiptaháskólans
á Bifföst www.bifrost.is og í síma
433-3000.
MM/ Ljósm: Jacqueline Dnvney
Folald í ársbyrjun
Helga Má Ólafssyni hesteiganda á
Akranesi var heldur betur brugðið
þegar harm mætti í hesthús sitt í
Æðarodda síðastliðinn stmnudag því
þar stóð hryssa hans sem hann hafði
keypt haustið áður með nýfætt mer-
folald sér við hhð. Mjög sjaldgæff er
að hryssur kasti á þessum tíma þó
það sé ekki fordæmalaust.
Helgi hafði nokkrum dögum áður
tekið hryssuna á hús, jámað hana og
var í þann mund að hefja æfinga-
prógram vetrarins þegar folaldið
kom í heiminn. Ekki var vitað um
tilvist fylsins þegar Helgi festi kaup á
hryssunni og kom þetta því Helga
sem og fyrxrverandi eigendum
hrysstmnar í opna skjöldu. Svo virt-
ist vera sem að nýi eigandinn væri
bæði spenntur og glaður yfir þessum
óvænta glaðningi þó svo æfinga- og
sýningaplön hryssunnar þurfi nú að
endurskipuleggja. Ekki er vitað um
faðemi folaldsins en grunur leikur á
að faðirirm sé veturgamall foli ffá
því sl. vor. Móðirin heitir Kvöldrós
og er ffá Álfhólum.
BG/Ljósm. MKG
Ibúaþing sunnan heiðar á laugardaginn
Laugardaginn 14. janúar nk.
mun íbúum hreppanna sunnan
Skarðsheiðar gefast kostur á því að
taka þátt í íbúaþingi tnn framtíð
sveitarfélaganna sem mtmu samein-
ast í vor. Þinghaldið fer ffam á
Hlöðum og hefst það klukkan
10:45 með óformlegu kaffispjalli og
léttum tónlistarflumingi. I fféttatil-
kynningu frá undirbúningsnefnd
þingsins segir m.a: „Ibúaþing er
vettvangur þar sem íbúar geta haft
áhrif á ffamtíð þess samfélags sem
þeir búa í, verið þátttakendur í
virku íbúalýðræði og mótað fram-
tíðarsýn fyrir nýtt sameinað sveitar-
félag. Með því að halda íbúaþing
gefst fólki gott tækifæri á að koma
skoðunum sínum varðandi samfé-
lagið á ffamfæri á skemmtilegan og
uppbyggjandi hátt en oft koma
ffam ný sjónarhorn og nýjar hug-
myndir.“
Að sögn Hjördísar Stefánsdótmr,
formanns undirbúningsnefndar
mun vinnan á þinginu fara fram í
hópum, þannig að enginn þurfi að
óttast það að þurfa að standa upp
og halda ræðu til þess að koma
sjónarmiðum sínum á framfæri.
Stjórnsýsluráðgjöf ehf. sér um und-
irbúning og annast stjórnun íbúa-
þingsins. Dagskrá íbúaþingins er
nokkuð fjölbreytt. Boðið verður
upp á tónlistaratriði og erindi flytja
þeir Haraldur Benediktsson, for-
maður Bændasamtakanna og Gísli
Einarsson, fféttamaður. Nemendur
á unglingastigi í Heiðarskóla kynna
hvernig þau sjá sitt framtíðar sveit-
arfélag en þeir hafa undanfarið
unnið að shku verkefni við skólann.
Allir íbúar hreppanna sunnan
Skarðsheiðar em hvattir til að mæta
og hafa þannig áhrif á stefnu nýs
sveitarfélags. Boðið verður upp á
léttan hádegisverð og kaffi, en
nemendur Heiðarskóla munu sjá
um veitingarnar og er það liður í
fjáröflun þeirra í ferðasjóð.
Þriðjudaginn 17. janúar kl. 20.30
verða síðan niðurstöður íbúaþings-
ins kynntar á opnum fundi að
Hlöðum. MM
Rekstur Stykkishólmsbæjar
réttu megin á næsta ári
Samkvæmt fjárhagsáætlun
Stykkishólmsbæjar og stofnana
hans fyrir árið 2006, sem samþykkt
var fyrir áramót, er gert ráð fyrir
að rekstrarniðurstaðan verði já-
kvæð um tæpar fimm milljónir
króna. Heildartekjur em áætlaðar
rúmar 640 milljónir króna. Skatt-
tekjur eru áætlaðar rúmar 323
milljónir króna, framlög jöfnunar-
sjóðs eru áætlaðar rúmar 100
milljónir og aðrar tekjur tæpar 217
milljónir króna. Stærsti gjaldaliður
sveitarfélagsins er laun og launa-
tengd gjöld eða tæpar 301 milljón
króna, annar rekstrarkostnaður er
áætlaður tæpar 295 milljónir, af-
skriftir eru áætlaðar 27 milljónir
og fjármagnsgjöld eru áætluð rúm-
ar 12 milljónir króna.
Af einstökum málaflokkum má
nefna að til fræðslumála verður
varið 229 milljónum lcróna, til
æskulýðs- og íþróttamála er varið
80 milljónum og til félagsþjónustu
er varið 17 milljónum króna.
I áætluninni er gert ráð fyrir 214
milljóna króna fjárfestingum og
vegur þar þyngst bygging leikskóla
en til hennar verður varið 120
milljónum króna. Af öðrum fjár-
festingum má nefna gatnagerð og
frágangur að hluta í miðbænum
ásamt flutningi á bókasafni og
uppbyggingu golfvallarins.
HJ
Vinningshafar í
jólagátum
SKESSUHORN: í jólablaði
Skessuhorns voru tvær gátur sem
lesendur gám glímt við yfir há-
tíðimar og sent inn rétt svör.
Þátttaka var að venju góð og skil-
uðu á fjórða hundrað lesendur
inn svörum. Dregið var út nafh
vinningshafa og fá þeir báðir
sendar Stóra orðabókina - um ís-
lenska málnotkun, ásamt geisla-
diski, eftír Jón Hilmar Jónsson.
Viimingshafi í jólamyndagátunni
er Herdís Jónsdóttír, Hrossholti,
311 Borgarnes. Lausnin var:
„Enn og aftur hefur íslensk kona
verið valin fegurst kvenna á
heimsmælikvarða.“ Vinningshaf-
inn fyrir rétta innsenda lausn á
krossgátunni var Kolbrún Kjart-
ansdóttir, Rauðalæk 53, 105
Reykjavík. Lausnin var: „Fjöl-
skyldan sameinast". Þessum
ágæm konum er óskað tíl ham-
ingju og þátttakendum öllum
þakkað fyrir að vera með. -mm
Gunnar áfram
AKRANES: Boðað hefur verið
til fulltrúaráðsfundar Sjálfetæðis-
félags Akraness 15. janúar nk.
Fyrir fúndinum liggur tillaga um
að viðhafa prófkjör við val á
frambjóðendum á hsta flokksins
fyrir bæjarstjórnarkosningamar í
vor. Aðspurður sagðist Gunnar
Sigurðsson, oddviti listans reikna
frekar með því að hann gefi kost
á sér áffarn í forystusæti hstans.
-mm
Beðið efirir svarí
BORGARFJÖRÐUR: Sem
kunnugt er hefur undirbúningur
að stofnun Menntaskóla í Borg-
amesi staðið um nokkurt skeið.
Ætlunin er að hann verði einka-
rekinn, þriggja ára skóli og von-
ast var til að hann gæti tekið til
starfa næsta haust. Skólinn er
samstarfsverkefni Borgarbyggð-
ar, Borgarfjarðarsveitar og há-
skólanna á Bifröst og á Hvann-
eyri. Vinna við námsskrá skólans,
húsnæði og fjármögnun er á
lokastigi eins og greint var frá í
ffétt Skessuhoms í síðasta mán-
uði. Fyrir nokkra sendi undir-
búningshópur að stofnim skólans
umsókn til Þorgerðar Katrínar
Gunnarsdóttur menntamálaráð-
herra um stofnun skólans. Svar
hefur ekki borist enn. Steingrím-
ur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður
ráðherra segir erindi undirbún-
ingshópsins hafa verið til skoð-
unar í ráðuneytinu undanfarið og
fljótlega verði fúndað með undir-
búningshópnum. Aðspurður seg-
ir Steingrímur máhð flókið og
því taki tíma að fara yfir allar
hhðar þess. -hj
S
Ohapp á
Kirkjubraut
AKRANES: Ökumaður bifhjóls
á leið norður Kirkjubraut á Akra-
nesi sl. mánudag neyddist til að
nauðhemla er biffeið var ekið í
veg fyrir hann. Við þetta missti
ökumaður bifhjólsins jafnvægið
og skall í götuna en hjólið rann
áffam og lenti á biffeiðinni. Öku-
maður bifhjólsins var talsvert
lemstraður eftír atvikið en þó
ekki talinn alvarlega slasaður.
Hjóhð er talsvert skemmt en htl-
ar skemmdir urðu á bifreiðinni.
Skyggni var lélegt þegar óhappið
áttí sér stað og kvaðst ökumaður
biffeiðarinnar ekki hafa séð hjól-
ið. -mm