Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2006, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 11.01.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐ VIKUDAGUR 11. JANUAR 2006 §iagssiHiosaií3 Þrettándabrennum frestað vegna veðurs Það blés ekki sérlega byrlega á þrettándanum hér á Vesturlandi. Enn ein djúp lægð fór yfir landið og því sáu brennustjórar sér þann leik einan í stöðunni að fresta fyrirhug- uðum brennum. Brennu íbúa Borg- arbyggðar sem vera átti á Seleyri var frestað sem og brennu Skaga- manna á Jaðarsbökkum. Brennan á Seleyri var haldin í gær, þriðjudag eftir að blaðið fór í prentun, en brennan á Akranesi fór fram sl. laugardag og voru meðfylgjandi myndir teknar þar. Alfar og tröll, jólasveinar og foreldrar þeirra komu við að venju. MM/ Ljósm : MKG Fösfudaginn 1 3. janúar ki. 20:00 Lokasýning Tónteikcir föstudagurinn 20, jan, ki. 20:30. Fluft verður brof af javí besta. Forsala hefst í Pennanum 12. jan. MiSaverð í forsölu 2.000 kr. Gefðu kallínvm miða á Bándadaginn. Velheppnuð þrettándagleði Hin árlega þrettándagleði Orkunnar, yngri deildar Umf. Dagrenningar í Lundarreykjadal fór fram sl. laugardag. Eins og áður var farið eftir brennu inn í félags- heimilið Brautartungu þar sem félagar Orkunnar settu upp leikritið Svínahirðirinn auk þess að vera með nokkra leikþætti og leiki. Að dagskrá lokinni var boðið upp á kökur og kaffi. GBF Fjölmenni á þrettánda- gleði í Ólafevík íbúar Ólafsvíkur létu veðrið ekki hafa áhrif á þrettándagleði sína og héldu hana á tilsettum tíma. Sunn- an rok var og rigning en þrátt fyrir það var haldið í skrúðgöngu eftir Ólafsbrautinni með álfadrottningu og álfakóng í broddi fylkingar. Gangan endaði innan við Klif þar sem þrettándabrennan var haldin. Erfiðlega gekk að halda lífi í bál- kestinum og glímdu slökkviliðs- menn við það verkefni. Fórst þeim það vel úr hendi þrátt fyrir að vera vanari að slökkva elda en að halda í þeim lífi. Að lokinni brennu hélt Lionsklúbbur Ólafsvíkur flugelda- sýningu. Hjf Gengið í hús á þrettándanum Þær létu það ekki á sig fá að ganga í hús og fá í gogginn þær frænkur Mýra og Sæbjörg Jóhann- esdætur á þrettándanum í Ólafsvík. Þótt úti væri stóri sunnan og rign- ing þá örkuðu þær á milli húsa og bönkuðu og ekki var annað að sjá á pokunum þeirra að þeim yrði vel ágegnt. Þessi skemmtilegi siður féll ekki niður þó veðrið væri ekki eins og best væri á kosið og heldur ekki brenna þeirra Lionsmanna. PSJ Sólveig Rós glímukona ársins Pémr Eyþórsson úr KR og Sól- veig Rós Jóhannsdóttir, Dalakona úr Glímufélagi Dalamanna eru glímufólk ársins 2005, en valið var kunngjört á Grand Hótel við hátíð- lega athöfh 4. janúar sl. Sólveig Rós hefur ásamt systur sinni staðið fremst kvenna í íþróttinni og hafa þær systur skipst á að vinna til þess- ara verðlauna undanfarin ár.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.