Skessuhorn


Skessuhorn - 11.01.2006, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 11.01.2006, Blaðsíða 16
IMýít og öflugt tíl íbúöakaupa íbúöalán.is \y www.ibuda!an.is I&SPM 1 Sími 430-7500 - www.spm.is f Alagningarstoíhar lækkaðir enn frekar vegna hækkunar fasteignamats Meirihluti bæjarstjórnar Akra- ness lagði á fundi bæjarstjórnar í gær fram tillögu um að álagningar- stofn fasteignagjalda lækki meira en ákveðið var fyrir skömmu við af- greiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2006. Eins og fram kom í Skessuhorni í síðustu viku hefur fasteignamat á Akranesi hækkað um 93% ffá árinu 2002 og þar af30% nú um áramótin. Alagningarstofn fasteignagjalda hef- ur hins vegar verið óbreyttur þar til við afgreiðslu fjárhags- áætlunar skömmu fyrir jól. Þá var samþykkt að fast- eignaskattur lækk- aði úr 0,431% í 0,394 en holræsagjald sem var 0,2% yrði óbreytt. Minnihluti bæjar- stjórnar vildi hins vegar lækka álagningarstofninn frekar eða í Krefjast úrbóta í ^arsldpta- málum og samgöngum Félag ungra framsóknarmanna í Dala- og Strandasýslu hélt aðal- fund sinn rétt fyrir áramót. Sam- kvæmt tilkynningu frá stjórn þá þótti fúndurinn málefnalegur og greinilegt að fólk er að komast í baráttuhug fyrir komandi sveitar- stjórnarkosningar. A fundinum voru samþykktar ályktanir um far- síma- og netsamband og um sam- göngumál. „Félagið skoraði á ríkisstjórnina að setja í forgang að tryggja GSM - samband og háhraða internetsam- band á öllu landinu. Farsímasam- band er eitt mikilvægasta öryggis- tækið á afskekktari stöðum m.a. þegar að slys ber að höndum. Net- samband er sá upplýsingamiðill sem hvað mest er notaður í þekk- ingarþjóðfélagi nútímans. Því krefst FUF - DS þess að allir lands- menn sitji við sama borð og njóti jafhréttis í aðgengi að þessum upp- lýsingamiðlum. Félagið skorar á ríkisstjórnina að verja hluta af ágóða sölu Símans til þess að byggja upp nútíma fjarskipti í formi GSM- og netsambands í allri Dala- og Strandasýslu." Um samgöngumál fagnaði fund- urinn þeirri uppbyggingu sem er að verða á veginum um Svínadal. „Hins vegar harmar félagið það að ekki hafi verið ráðist í gagngerar endurbætur á veginum norður Strandir og skorar á samgönguráð- herra að hefja ffamkvæmdir hið fyrsta. Einnig vonar FUF-DS að farið verði í aðrar nauðsynlegar vegaframkvæmdir á svæðinu," segir m.a. í ályktun félagsins. Ný stjórn var kjörin en aðalstjóm skipa: Inga Guðrún Kristjánsdóttir formaður, Svava Halldóra Friðgeirsdóttir varaformaður, Guðmundur Freyr Geirsson meðstjórnandi, Harpa Hlín Haraldsdóttir meðstjórnandi og Heiðar Þór Gunnarsson með- stjórnandi. Varastjórn skipa Asgeir Bjarnason, Guðmundur Þór Guð- mundsson og Sigurður Kjartans- son. MM 0,36% en holræsagjald yrði óbreytt 0,2%. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar- innar bókaði meirihluti bæjar- stjórnar að þegar niðurstaða yfir- fasteignamatsnefndar lægi fyrir yrði skoðað hvort gerðar yrðu frekari breytingar á álagningarstofni. Sam- kvæmt heimildum Skessuhoms var málið rætt óformlega á fundi bæjar- ráðs í síðustu viku og síðan hefur málið verið skoðað frá öllum hlið- um. Niðurstaðan varð því sú að á bæjarstjórnarfundi sem fram fór í gær var lögð frarn tillaga meirihlut- ans um að fasteignaskattur lækki í 0,352% og holræsagjaldið í 0,175%. Til samans lækka þessi gjöld því um 16,48% í stað þeirrar 5,86% lækkunnar sem áður hafði verið ákveðin. Húseigandi sem átti hús að fasteignamatd 15 milljónir greiddi í fyrra samtals 94.650 krón- ur í fasteignaskatt og holræsagjald. I dag er þetta hús 19,5 milljónir króna að fasteignamati og af því þarf nú að greiða 102.765 krónur eða 8,57% hærri upphæð en í fyrra. Bæjarstjómarfundurinn stóð ennþá yfir þegar blaðið fór í prent- un þannig að ekki er hægt að full- yrða um afdrif tillögu meirihlutans þó óneitanlega sé líklegt að hún hafi verið samþykkt. HJ VLFA óskar eftir hækkun lægstu launa bæjarstarfemanna Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir fundi með bæjarráði Akraness þar sem rædd verði sú staða sem upp er komin í kjölfar samnings Reykjavíkurborgar við stéttarfélagið Eflingu „sem færir þeim hópum starfsmanna borgar- innar sem hafa haft hvað lökust kjör, verulegar launahækkanir,“ eins og segir í bréfi félagsins til bæjarráðs. Þá segir einnig meðal annars í bréfinu: ,Jafhffamt því að með þessum samningi em lagfærð laun þeirra sem starfa við umönnun barna og aldraðra. Oftast em það konur sem þessum störfum sinna og löngu orðið tímabært að meta þeirra störf að verðleikum.“ í bréfi félagsins er gert ráð fyrir „að það geti ekki verið vilji for- svarsmanna Akraneskaupstaðar að starfsmenn kaupstaðarins, hafi allt önnur og lakari launakjör en starfsmenn Reykjavíkurborgar sem sinna sambærilegum störf- um. Á heimasíðu félagsins kemur meðal annars ffam að almennur verkamaður hjá Reykjavíkurborg sé nú með í byrjunarlaun 123.097 kr. en sambærilegur starfsmaður hjá Akraneskaupstað sé með 112.661 krónur og skólaliði hjá Reykjavíkurborg sé með í byrjun- arlaun 134.599 krónur en hjá Akraneskaupstað séu byrjunar- launin 119.575 krónur. HJ 1___________ Eina stundina leikum við glöð - þá næstu hefur alvaran tekið völdin þegar þú kaupir miða í Happdrætti SÍBS leggurðu grunn að aðstoð við sjúka og slasaða um leið og þú tryggir þér þátttöku í skemmtilegu happdrætti þar sem dregið er um tugi milljóna í hverjum mánuði. Tryggðu þér miða hjá þínum umboðsmanni á Vesturlandi eða í síma eða á WWW.SÍbS.ÍS Rammar og Myndir, Skólabraut 27, sími 431-1313, 300 Akranes. Ásthildur Thorsteinsson, Hurðarbaki, sími 435-1455, 320 Reykholt Dalbrún ehf., Brákarbraut 3, sími 437-1421,310 Borgarnes. Högni Gunnarsson, Hjarðarfelli, sími 435-6666, 311 Borgarnes. Lovísa Olga Sævarsdóttir, Staðarbakka, Arnarstapa, sími 435-6758, 356 Snæfellsbæ. Jensína Guðmundsdóttir, Bárðarási 4, sími 436-6600, 360 Hellisandur. Verslunin Hrund, Grundarbraut 6, sími 436-1165, 355 Ólafsvík. Hrannarbúðin, Hrannarstig 5, sími 438-6725, 350 Grundarfjörður. Verslunin Sjávarborg, Hafnargötu 4, sími 438-1121,340 Stykkishólmur. Blómalindin-Boga Th., Vesturbraut 6, sími 434-1606, 370 Búðardalur. Jóhann G. Pétursson, Stóru-Tungu, Fellsströnd, sími 434-1479, 371 Búðardalur. Halldór D. Gunnarsson, Ljósheimum, sími 434-7770, 380 Króksfjarðarnes. H APPDRÆTTI V/5A 27.51 7 vinningar verða dregnir út á árinu. Miðaverð 900 kr. ...fyrir lífið sjálft

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.