Skessuhorn - 22.02.2006, Blaðsíða 25
gKESSlíUÖBKI
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR 2006
25
Hér er Bjöm ásamt yfirmanni sínum; sýslumanni Mýra- og Borgarfiarðarsýslu, Stefáni Skarpbéíinssyni þegar stœkkun Grundar-
tangahafnar var tekin í notkunjyrir sk'ómmu.
Borgames
vex og dafhar
Baddi lögga hefur nánast alla
sína æfi búið í Borgarnesi og þykir
vænt um þann stað. Þegar hann
var á yngri árum var hann reyndar
aldrei kallaður annað en Baddi í
fjörunni. Það var mörgum áratug-
um áður en hann fauk í fjöruna
eins og fyrr var getið. Hann segir
mun léttara yfir Borgarnesi nú en
fyrir nokkrum árum. „Við höfum
verið að ná vopnum okkar að nýju
og hér er mikil uppbygging. Fólk-
ið er því mun léttara í lund og allt
lífið verður skemmtilegra."
Hvað skyldi nú maðurinn fara
að gera þegar hann á besta aldri fer
á eftirlaun? Það verður fátt um
svör. Hann ætli nú ekki að leggjast
með tærnar upp í loft á næstunni.
Trúlega finni hann sér einhvern
starfa því eftirlaunin dugi tæpast.
Hvað það verði eigi eftir að koma í
Ijós. Hins vegar eigi hann húsbíl
sem auðveldlega megi sinna betur
hvort sem er um sumar eða vetur.
Því sé engin ástæða til að örvænta
þegar fjörtíu ára skemmtilegum
ferli sem opinbers embættismanns
lýkur.
HJ
Nýr bátur tál Ólafsvíkur
Nýr bátur, Gunnar Bjamason SH-122, kom til heimahafnar í Olafsvík sl. laugardag. Báturinn er í eigu Hauks ehfog kemur í staS
eldri báts sem bar sama nafn. MM/ Ljósm: snb.is
Arshátíð yngri árganga
Grunnskóla Snæfeflsbæjar
Arshátíð 1.-7. bekkjaGrunnskóla
Snæfellsbæjar í Olafsvík og Hell-
issandi fór fram fyrir húsfylli á Klifi
sl. fimmtudagskvöld. Þema sýning-
arinnar var „Ævintýri“. Oll bekkj-
aratriðin sýndu gömul og ný ævin-
týri, ýmist með hefðbundnum
ellegar óhefðbundnum uppfærsl-
um, þ.á.m. „uppfærðum“ ævintýr-
um í tíma og rúmi. Undirtektir
áhorfenda voru frábærar og fékk
sýningin mikið lof. Eins og fyrr
sagði varð húsfyllir á Klifi, varlega
áætlaður fjöldi því hátt á 5.
hundraðið.
Árshátíð 8., 9. og 10. bekkinga
fer ffam þann 30. mars og þá með
breyttu sniði; kvöldverður þar sem
kennarar þjóna til borðs, skemmti-
atriði og loks stuðdansleikur á eftir.
Arshátíð nemenda deildar skólans í
Lýsuhólsskóla fer fram laugardag-
inn 18. mars.
Snb.is
n # r
VÉU.
* LW ' „ (7
* * ma/v *ey((fuju/ *
'5 4
; é , *
* 3 - M*
«•
STILLHOLT116-18 • AKRANESI
SfMI 431 3333 • model.ak@simnet.is
www.skessuhorn.is
Dalabyggð
Hjúkrunarforstjóri
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarforstjóra við Dvalar-
og hjúkrunarheimilið Silfurtún í Búðardal, Dalabyggð.
Á heimilinu eru 17 vistmenn á hlýlegu heimili.
Hjúkrunarforstjóri veitir heimilinu forstöðu. Dalabyggð
er lítið sveitarfélag með blómlegt menningalíf. I
sveitarfélaginu er tónlistarskóli, leikskóli, heilsugœslustöð,
banki, verslun o.s.frv. ailt íBúðardal. Nœg atvinna er í
boði. Sveitarfélagið mun aðstoða við útvegun á húsnœði.
Frekari upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri
Dalabyggðar í síma 434-1132
Umsóknum skal skila til sveitarstjóra Dalabyggðar,
Miðbraut 11, 370-Búðardal, fyrir 1. mars 2006.
Ferðamál
Aðalfundir Upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar
Vesturlands, UKV og Ferðamálasamtaka Vesturlands
verða haldnir að Fossatúni, Borgarfirði fímmtudaginn
9. mars 2006
Dagskrá
Kl. 12.00 Aðalfundur UKV, venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Athugið að fundargestir geta keypt sér léttan hádegisverð
á meðan á fundinum stendur.
Kl. 13.15 'Tónmilda ísland' atriði frá gestgjafanum Steinari Berg.
Kl. 14.00 Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vesturlands, venjuleg
aðalfundarstörf og önnur mál.
Kaffiveitingar í boði fundanna - Markaðssetning Vesturlands
kynning á All Senses og umhverfismál
Ferðaþjónustuaðilar, sveitarstjómarmenn og starfsmenn
sveitarstjóma em hvattir til að mæta og taka þátt
í störfum um ferðamál.
Stjórnir FSVL og UKV.
Grunnskóli Borgarfjarðarsveitar þarf á næstu
dögum að ráða kennara að Kleppjárnsreykjum
vegna fæðingarorlofs. Um er að ræða kennslu
í 1. - 7. bekk og er starfshlutfall 100%.
Einnig vantar starfmann í skólasel á Hvanneyri frá
1. mars. Starfshlutfall er u.þ.b. 35%, og vinnutími
er eftir hádegi mánudaga til fimmtudaga.
Nánari upplýsingar veita
Guðlaugur Oskarsson skólastjóri
í símum 435 1171 og 861 5971
og Elísabet Haraldsdóttir deildarstjóri á
Hvanneyri í síma 437 0009.