Skessuhorn - 22.02.2006, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRUAR 2006
^aunuki'
Straumi hleypt á fyrstu kerin í
stækkun Norðuráls
Straumi var hleypt á fyrstu
kerin í stækkun álvers Norður-
áls á Grundartanga á miðviku-
daginn í liðinni viku. A næstu
vikum mun kerjum verksmiðj-
unnar fjölga um 260 og fram-
leiðslugetan eykst úr 90 þús-
und tonnum í 220 þúsund tonn
á ári. Um leið verður starfs-
mönnum fyrirtækisins íjölgað
um 160 og verða þeir þá ríflega
350 að tölu. Má ætla að við
stækkunina aukist útflutnings-
tekjur Islands um 16 milljarða
króna á ári.
Logan W. Kruger, forstjóri
Century Aluminium, móðurfé-
lags Norðuráls, sagðist í ávarpi
vera mjög ánægður með hvern-
ig stækkun álversins hefur tek-
ist. Sagði hann allar tímaáætl-
anir og kostnaðaráætlanir hafa
staðist. Fjárfesting fyrirtækisins
í þessari stækkun er um 30
milljarðar króna. Hann sagði
þennan góða árangur meðal
annars byggjast á frábæru sam-
starfi Norðuráls, orkufyrir-
tækja, Landnets og íslenskra
hönnuða. Einnig hrósaði hann
verktökum, innlendum sem er-
lendum og einnig þeim bönk-
um sem komu að fjármögnun
verksins.
Eins og áður hefur komið
fram í Skessuhorni er í undir-
búningi ffekari stækkun Norð-
uráls og í kynnisferð um svæð-
ið sögðu forráðamenn Norður-
áls að stefnt væri að ljúka þeirri
stækkun árið 2008. Að henni
lokinni verður ársframleiðsla
fyrirtækisins um 260 þúsund
tonn af áli.
HJ
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra og og Logan W Kruger forstjóri Century Aluminium klippa á btyrðann og vtgja stcekkun
verksmiðjunnar formlega.
Logan W. Kruger.; forstjóri Century Aluminium og Ragnar Guðmunds-
son, framkvœmdastjóri fjármálasviðs stinga saman nefjum.
Albarrar koma úr kælingu.
Segja meirihiutann skapa bænum
skaðabótaskyldu
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins sem sitja í minnihluta bæjar-
stjórnar Akraness saka meirihlut-
ann um að mismuna aðilum með
því skapa bænum hugsanlega skaða-
bótaskyldu. Meirhlutinn sakar
minnihlutann hins vegar um
hringlandahátt.
A fundi bæjarstjórnar Akraness í
síðustu viku var til afgreiðslu sam-
komulag bæjarins við Bílás hf. þar
sem fyrirtækinu er úthlutað lóð við
Smiðjuvelli. A lóðinni hyggst fyrir-
tækið byggja hús undir starfsemi
sína. Á fundinum lögðu bæjarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins fram
svohljóðandi bókun: „I vinnuregl-
um við úthlutun á byggingalóðum á
Akranesi, dagsettar 27. febrúar
2003, segir í grein 3.4. Annað:
„Bæjarráði er í sérstökum tilvikum
heimilt að veita vilyrði fyrir lóðum,
án undangenginna auglýsinga, þeg-
ar sótt er um lóðir innan skipu-
lagðra svæða eða á óskipulögðum
svæðum. Endanleg úthlutun getur
þó ekki farið fram fyrr en að lokinni
skipulagsvinnu, sé hennar þörf og
að fengnu samþykki bæjarstjómar.“
Nú hefur það gerst tvívegis á
skömmum tíma að aðilum hefur
verið úthlutað lóð á svæðinu sem
kallað er deiliskipulag Smiðjuvalla
án undangenginnar auglýsingar. Á
sama tíma hefur tveimur öðmm að-
ilum verið tjáð að ekki sé unnt að
úthluta þeim lóðum á þessu svæði
með þeim rökum að deiliskipulagi
svæðisins sé ekki lokið. Þegar því
ljúki muni þessar lóðir verða aug-
lýstar lausar til umsóknar. Með
þessum misvísandi afgreiðslum
meirihlutans teljum við undirrituð,
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á
Akranesi, að verið sé að mismuna
aðilum og hugsanlegt sé að bærinn
sé að skapa sér skaðabótaskyldu á
grundvelli jafnræðisreglunnar í
stjórnsýslu.“
Með bókuninni var lagt fram
minnisblað frá fundi sem haldinn
var, að ffumkvæði bæjarráðs, með
umsækjendum um lóðir í grennd
við Þjóðbraut. Þar kemur ffam að
lóðir á svæðinu verði lausar til um-
sóknar um leið og deiliskipulags-
ferli svæðisins ljúki.
Sveinn Kristinsson formaður
bæjarráðs lagði fram svohljóðandi
bókun: „Undirritaður vísar á bug
bókun Sjálfstæðisflokksins um
lóðaúthlutanir sem órökstuddu
plaggi. Bókunin er enn eitt dæmið
um hringlandahátt minnihlutans,
sem virðist ekki muna á milli bæjar-
stjórnarfunda hvemig hann greiðir
atkvæði."
Afgreiðsla bæjarráðs á samningn-
um var hins vegar samþykkt með
níu samhljóða atkvæðum. HJ