Skessuhorn


Skessuhorn - 22.02.2006, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 22.02.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 SKES;»ljH©BKj Vilhjálmur forstöðumaður Kvíabryggju og Sigurrós kona hans hætta efirir aldarfjórðung í starfi: Afþeirri kynslóð sem vinnur mildð og þarf alltaf að vera að Vilhjálmur og Sigurrós heima í stofii á Kvíabryggju. Nú fer að líða að því að nýr for- stöðumaður fangelsisins á Kvía- bryggju við Grundarfjörð verði ráð- inn þar sem núverandi forstöðumað- ur, Vilhjálmur Pétursson hefur sagt starfi sínu lausu ffá og með l.apríl nk. Af því tilefni heimsótti blaða- maður Skessuhorns, Vilhjálm og konu hans Sigurrósu Geirmunds- dóttur, til að forvitnast lítillega um árin á Kvíabryggju og hvað taki við á þessum tímamótum í lífi þeirra. Gott að búa í Kópavogi Hjónin, sem hafa búið á Kvía- bryggju síðan 1981, munu flytja í Kópavoginn þann 1. apríl en þegar Vilhjálmur er spurður hvers vegna Kópavogur hafi orðið fyrir valinu, svarar hann brosandi: „Það er gott að búa í Kópavogi! Er það ekki það sem hann Gunnar Birgisson, bæjar- stjóri segir alltaf, við verðum að trúa honum.“ Þau hjónin hafa verulega gaman af dansi og er það fyrsta verkefhi þeirra þegar suður er komið að fara á dans- námskeið. „Við erum í tveimur dansklúbbum fyrir sunnan þar sem við hittum reglulega önnur hjón með sömu ástríðu. Það er virkilega skemmtilegt og ntina verður enn auðveldara fyrir okkur að mæta þeg- ar við flytjum héðan. Að öðru leyti ætlum við bara að slappa svoh'tið af og njóta þess að vera til,“ segir Sig- urrós. HEKLA og KIAumboðið bjóða um helgina upp á glæsilega bfla- sýningu. HEKLA mtm kynna ffá Mitsubishi Motors jeppana Pajero og Pajero Sport, auk Outlander jepplingsins. Frá Skoda verður Skoda Octavia Combi 4x4 sýndur og frá Volkswagen VW Passat Ræktar kartöflur og reykir fisk Vilhjálmur, sem er ættaður ffá Hjarðarbrekku í Eyrarsveit, vann fyrir sér sem lögregluþjónn í Grundarfirði áður en hann var ráðinn sem fangavörður á Kvía- bryggju árið 1971. Tíu árum seinna fékk hann starf forstöðu- manns og í kjölfarið fluttu þau hjón frá Grundarfirði til Kvía- bryggju en þá var skylda að for- stöðumaður væri búsettur á svæð- inu. Sigurrós fór að vinna sem matráðskona í fangelsinu og sá til þess að fangarnir fengju gott og næringaríkt fæði. Hún segir fang- ana yfir höfuð mjög ánægða með matinn sinn og leggur mikla áherslu á að þeir fái þá orku sem þeir þurfa. „Eg var ein í eldhúsinu í 18 ár, það var ekki fyrr en 1998 að ég fékk manneskju á móti mér. Fyrst um sinn var ég ekkert spennt fyrir því að fara að vinna vaktir en núna sé ég hvað það er dásamlegt að eiga smá frí inn á milli. Við erum bara af þeirri kynslóð, það eina sem maður kann er að vinna og vinna meira og við þurfum alltaf að vera að. Hérna áður fyrr ræktaði Vilhjálmur kartöflur og fór á sjóinn að sækja fisk sem hann verkaði; þurrkaði og reykti,“ segir Sigurrós. „Við höfum aldrei verið aðgerðalaus hérna á Kvíabryggju,“ bætir Vilhjálmur við. með 2.0 lítra dísilvél. KIA umboðið mun sýna og kynna hinn vinsæla KIA Sorento jeppa og KIA Sportage jeppling- inn með nýrri 2.0 lítra dieselvél. Sýningin verður á eftirtöldum stöðum: Föstudag ffá kl. 12-19 hjá sölu- Ami var \dnsæll „Hér hafa margir fangar farið í gegn á mínum tíma. Þetta eru mikið ungir strákar sem eru sendir hingað en annars höfum við fengið allar gerðir afbrotamanna, frá skjalaföls- urum til morðingja og allt þar á milli,“ segir Vilhjálmur. „Við höfum eini sinni haft eina konu og það gekk bara vel.“ Eins og flestir vita hefur Kvíabryggja mikla sérstöðu hvað varðar fangelsi á Islandi. Þar rfldr meira frelsi meðal fanganna en í öðrum fangelsum og menn geta far- umboði HEKLU í Borgamesi. Laugardag frá kl. 10-11:30 á Hellissandi, 12-14 í Ólafsvík, 14:30-16 í Grundarfirði og í Stykkishólmi ffá kl. 16:30-18:30. Sýningarnar verða á bensínstöðum á viðkomandi stað. (fréttatilkynning) ið ffjálsir ferða sinna um land Kvía- bryggju sem er um 35 hektarar að stærð. „Fangamir héma vinna fyrir sér meðal annars með því að beita línu, fella net, gera við fiskikör og smíða trébretti og era þetta yfirleitt vinnusamir menn og var Arni John- sen þar engin tmdantekning,“ segir Vilhjálmur. „Hann er með eindæm- um skemmtilegur maður, var alltaf syngjandi og hafði góð áhrif á hina fangana.“ Það fór ekki ffam hjá blaðamanni að Vilhjálmur hugsar hlýtt til hins þjóðþekkta einstaklings úr Eyjum og hafði gaman af vera hans á Kvíabryggju. „Hann á líka heiðurirm að því að við fengum al- mennileg rúm fyrir fangana. Ami var óhress með gömlu rúmin og tók það algjörlega að sér að berjast fyrir úrbótum í þeim efnum. Hann var frekar vinsæll og kom vel saman við bæði fanga og starfsfólk.“ Hreppstjórinn hjálpaði sttokuföngum „Það er mikilvægt að föngum hér sé sýnt það traust sem þeir eiga skil- ið, þó þeir hafi brotið af sér. Eg er sannfærður um að það sé ástæða þess að allt hafi gengið áfallalaust fyrir sig á mínum tíma, segir Vilhjálmur. Þegar þeir fara í dagsleyfi hafa þeir alltaf, nema einu sinni, skilað sér inn fyrir tilskilinn tíma, en þá var fang- inn veðurteptur og ekkert við því að gera.“ Blaðamann lék forvimi á að spyrja hvort fangar hafi gert tilraun til flótta á þeim aldarfjórðungi sem hann hefur stýrt fangelsinu. „Það hefur einu sinni komið fyrir, það var árið 1984 að mig minnir,“ segir VII- hjálmur. „Þrír ungir fangar, með langa dóma og sáu ekki fram á náð- un, struku út um glugga að nætur- lagi. Þeir komust áleiðis með hjálp hreppstjórans á þeim tíma, sem var grunlaus og leyfði þeim að sitja í, en strokufangamir náðust fyrir sunnan skömmu síðar. A þessum tíma stóð enginn vörður næturvakt og gluggar voru öðruvísi og því töluvert erfið- ara að endurtaka leikinn í dag.“ Pláss fyrir fleiri fanga Vihjálmur greinir frá fyrirhugaðri stækkun á húsnæði fanga og verður þá pláss fyrir 22 fanga í stað 14 sem nú er. Viðbyggingin, sem verður til- búin í september á þessu ári, mun einnig hýsa nýtt bókasafn og kennslustofu því með samstarfi Kvíabryggju og Fjölbrautaskóla Snæfellinga býðst föngum nú að mennta sig í fjamámi. „Eg er nokk- uð viss um að með fjölgun fanga mtmu þessi persónulegu tengsl milli fanga og starfsfólks rofna. Farsæl starfsemi byggist á góðu starfsfólki og mikilli nánd þeirra við fangana. Ef ég væri fangastjóri á Litla Hrauni yrði þetta örugglega fyrsta breyting- in sem ég gerði á starfseminni,“ seg- ir Vilhjálmur og vill meina að það vanti allt þetta manneskjulega í sam- skiptin þar á bæ. „Við erum innan um fangana öllum stundum og þar af leiðandi sjáum við öll vandamál sem upp koma alveg um leið. Við þurfum reyndar ekki að hafa miklar áhyggjur af þeim héma, þetta eru allt svo ljúfir strákar." Eins og ffam hefur komið í Skessuhomi var gerð leit að fikniefnum á Kvíabryggju fyr- ir stuttu, en engin efni fundust hvorki í fórum þeirra né þvagi. „Það kom mér ekkert á óvart, við værum löngu búin að taka eftir því ef þessi eftfi væru í umferð hér á svæðinu,“ segir Vilhjálmur og má hann stoltur vera. Sonurinn er líklegasti arftakinn Þrír menn hafa sótt um stöðu for- stöðumanns fangelsisins á Kvía- bryggju og er annar sonur þeirra hjóna, Geirmundur Vilhjálmsson, meðal þeirra. Geirmundur hefur starfað sem fangavörður á Kvía- bryggju í þónokkum tíma og er langlíklegasti arftakinn, að sögn Vil- hjálms og Sigurrósar. Aðspurður um ástæðu þess að sonurinn hafi fetað í fótspor föður síns, segir Vilhjálmur það algjöra tilviljun að málin hafa þróast á þann hátt. „Launin eru heldur ekki það góð að þau ein og sér festi fólk í þessu starfi,“ segir Vil- hjálmur. Þau hjón eiga annan son sem starfar sem smiður í Reykjavík. Vil- hjálmtir er afar sáttur við feril sinn þegar litið er til baka og kveðst ekki vilja breyta neinu sem harm hefur ffamkvæmt á sínum tíma sem fang- elsisstjóri, jafnvel þó það byðist. „Það verður ábyggilega viðbrigði fyrir okkur að fara úr sveitinni í menninguna en eftirsjá verður h'til. Við hlökkum svo til að fara að dansa að við getum vart beðið mikið leng- ur,“ segja þau hjón að lokum. Skessuhom óskar þeim heiðurshjón- um velfamaðar í framtíðinni. KÓÓ - mi H Im *T r * ■ 11 - 1 f®r; 'pf w ■ - 1 * i 1 1 £ 1 ll 1 ■ I imm Im | lú , ■ ", - ,*v J ’ -i Algjörlega ógirt er kringjum fangelsió á Kvíabryggju ogþví sker það sigfrá öórum fangelsum hvað það varðar. Einungis einu sinni á aldarfiórðungi hafafangar reynt að strjúka ogþá með aðstoð hreppstjórans! Helda og Kia umboðið sýna nýja bíla um helgina

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.