Skessuhorn - 29.03.2006, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006
^kUsvnuhi!
Borgnes-
ingar f)öl-
menna til
Keflavíkur
Borgnesingar og nágrannar
æda að fjölmenna til Keflavíkur
á fimmtudaginn til þess að
hvetja leikmenn Skallagríms í
þriðju viðureign þeirra við lið
Keflavíkur í undanúrslitum Is-
landsmótsins í körfuknattleik.
Rútuferð verður á leikinn og
verður lagt af stað frá íþrótta-
miðstöðinni kl. 17. Leikurinn
hefst í Keflavík kl. 20. Fjórða
viðureign félaganna verður síð-
an í Borgarnesi mánudagskvöld-
ið 3. apríl og hefst sá leikur kl.
20. Sjónvarpað verður beint ffá
þeim leik á sjónvarpsstöðinni
Sýn. Nánar má lesa um viður-
eign félaganna á bls. 23.
m
Til minnis
Landbúnaðarháskólinn verður
með opinn dag í kennslu- og
rannsóknarfjárhúsunum að
Hesti á laugardaginn. Þar
verða kynnt rannsóknarverk-
efni LBHÍ í sauðfjárrækt ásamt
því að lambhrútar sem eru í af-
kvæmarannskókn verða kynnt-
ir með nýstárlegum hætti.
Veðtyrhorfar
Á næstu dögum er gert ráð fyr-
ir norðaustlægum áttum,
nokkuð hvössu á fimmtudag
en heldur hægari vindi á föstu-
dag og fram yfir helgi. Útlit er
fyrir bjart veður um landið suð-
og vestanvert. Hitastig verður
um frostmark á fimmtudag og
föstudag en fer kólnandi um
helgina.
Spivrrtiru} viKifnnar
í síðustu viku spurðum við inn
á Skessuhorn.is. „Ætti að launa
sveitarstjórnarstörf betur og
laða þannig fleiri í pólitík?"
Rúmur helmingur þeirra sem
svöruðu, eða um 53% voru
sammála um að það þyrfti tví-
mælalaust að launa störfin bet-
ur og 12% sögðu að líklega
væri þörf á því. 7% sögðust
ekki vita það, 6% sögðu; nei,
líklega ekki en 22% voru al-
gjörlega mótfallin því að launa
betur sveitarstjórnarstörf.
í næstu viku spyrjum við:
„Ertu ánœgð/ur
með ríkisstjórn
íslands?"
Svaraðu án undanbragða á
www.skessuhorn.is
Vestlendirujnr
vtK^nnar
Að þessu sinni er hópur fólks
valinn Vestlendingar vikunnar,
þ.e. allir félagsmenn Verkalýðs-
félags Borgarness. í stað kostn-
aðarsamra veisluhalda í tilefni
75 ára afmælis félagsins
ákváðu félagar að færa samfé-
lagi sínu rausnarlega peninga-
gjöf með 5 milljóna króna skil-
yrtu stofnframlagi til stækkun-
ar Dvalarheimilis aldraðra.
Ibúar við Vesturgötu óska
lokunar Laugafisks
Bæjarráð Akraness hefur vísað til
heilbrigðisnefndar ósk íbúa við
Vesturgötu um að starfsleyfi
Laugafisks verði afturkaliað. Starfs-
leyfið sem nú er í gildi rennur út í
apríl 2007. Forsaga málsins er sú að
um nokkurra ára skeið hefur fyrir-
tækið Laugafiskur rekið fiskþurrk-
rm á Akranesi. Fiskþurrkun fylgir
ólykt sem seint verður talin efrir-
sóknarverð í návígi. Hafa nágrann-
ar fyrirtækisins á Akranesi lengi
kvartað undan ólyktinni og hafa
málefni þess oft komið til kasta
bæjaryfirvalda og heilbrigðisnefhd-
ar Vesturlands.
I bréfi því sem íbúar \dð Vestur-
göm sendu á dögunum til Guð-
mundar Páls Jónssonar bæjarstjóra
kemur ffam að undanfarið hafi ver-
ið í gangi tilraunaverkefni til að
fullreyna tæknibúnað „sem átti að
ráða bót á lyktarvandamálum sam-
fara vinnslunni," segir í bréfinu og
einnig segir að nú sé liðinn sá tími
sem heilbrigðisefrirlitið gaf til verk-
efnisins.
Þá segir að á íbúafundi sem hald-
inn var í sumarbyrjun 2005 hafi
eigendur og hluthafar ásamt full-
trúa verkalýðsfélagsins óskað efrir
vinnuffiði til að ljúka þessu verk-
efni. Þá segir orðrétt í bréfinu: „It-
rekað allt síðastliðið sumar og í all-
an vetur hefur orðið vart við lyktar-
mengun ffá fyrirtækinu þegar vind-
átt hefur staðið af því og á það við
bæði húsin við Breiðargötu og
Vesturgötu. Þegar reynt hefur ver-
ið að koma þeim kvörtunum til
heilbrigðisfúlltrúa, sem oftast hefur
verið utan hefðbundins skrifstofu-
tíma þegar við íbúarnir erum
heimavið, hafa svörin verið að ekki
sé hægt að bregðast við nema á
skrifstofutíma nema líf liggi við.
Vill heilbrigðisefrirlitið meina að
það sé í verkahring lögreglu að taka
við kvörtunum sem þessum“.
Ibúarnir segjast hafa gengið
þrautagörigu í þessu máli og óska
því hér með eftir að starfsleyfi fyr-
irtækisins verði ekki ffamlengt þeg-
ar það rennur út í apríl 2007 og að
fyrirtækinu verði tilkynnt um það
nú þegar „þar sem við teljum full-
reynt að engin breyting hafi orðið á
þessum reynslutíma.“
HJ
Frumkvöðlar tilnefiidir
Samtök sveitarfélaga á Vestur-
landi hafa auglýst efrir tilnefning-
um ffá almenningi um einstaklinga
sem eru þess verðir að hljóta sæmd-
arheitið Frumkvöðull ársins 2005 á
Vesturlandi. Þessi aðili þarf að hafa
skarað framúr í þróun vöru, þjón-
ustu eða viðburða í landshlutanum.
Dugnaður og ffumkvæði eru mikil-
vægir eiginleikar í fólki og nauð-
synlegir öllum samfélögum til vaxt-
ar og viðhalds þeirra og geta jaftivel
skipt sköpum um hversu lífvænlegt
er að búa í smáum samfélögum á
landsbyggðinni.
Sérstök dómnefrid mun velja úr
innsendum tilnefningum og til-
kynna niðurstöðu úr því vali á
frumkvöðla- og nýsköpunardegi
sem haldinn verður í aprílmánuði.
Dómnefnd mun einkum horfa til
nýjabruns á svæðinu svo sem í
framkvæmdum, atvinnulífi eða fé-
lagslífi. Þá er horft til framfara fyr-
ir viðkomandi svæði eða landshlut-
ann í heild og loks er áræði og fyr-
irhyggja metið sem mikilvægur eig-
inleiki til að góð hugmynd geti orð-
ið að veruleika.
Tilnefningar þurfa að berast
dómnefrid SSV fyrir 10. apríl nk.
annaðhvort á netfangið
frumkvodull2005@ssv.is eða með
almennum pósti merkt SSV, Bjarn-
arbraut 8, 310 Borgarnesi.
MM
Guðmundur Páll í efsta sæti lista
Framsóknarflokksins
Guðmimdur Pálljónsson, bæjarstjóri
leiðir áfram lista framsóknarmanna.
Guðmundur Páll Jónsson, bæjar-
stjóri verður í efsta sæti ffamboðs-
lista Framsóknarflokksins við bæj-
arstjómarkosningarnar á Akranesi
þann 27. maí. Sameiginlegur fund-
ur Framsóknarfélags Akraness og
Félags ungra ffamóknarmanna á
Akranesi samþykkti framboðslist-
ann á fundi í kvöld. Listinn í heild
verður þannig skipaður:
1. Guðmundur Páll Jónsson, bæjar-
stjóri
2. Magnús Guðmundsson, forstjóri
3. Guðni Tryggvason, verslunar-
maður
4. Dagný Jónsdóttir, verkefnisstjóri
starfsmannamála
5. Helgi Pe'tur Magnússon, nemi
6. Inga Osk Jónsdóttir, viðskipta-
fræðingur
7. Stefán Bjarki Ólafsson, ofiigæslu-
maður
8. Margrét Þóra Jónsdóttir, leik-
skólakennari
9. Þórunn Matthíasdóttir, ráðgjafi
10. Valdimar Þorvaldsson, forstöðu-
maður
11. Bjarki Þór Aðalsteinsson, nemi
12. Hörður Þorsteinn Benónýsson,
jramkvæmdastjóri
13. Jóhanna H. Hallsdóttir, fjár-
málastjóri
14. Kjartan Kjartansson, rekstrar-
fræðingur
15. Eydís Líndal Finnbogadóttir, for-
stöðumaður
16. Vilhelm Jónsson, verkamaður
17. Þorsteinn Ragnarsson, fyrrver-
andi verkstjóri
18. Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrver-
andi ráðherra
Hagnaður af rekstri Jeratúns ehf.
Rekstrarhagnaður Jeratúns ehf.,
einkafyrirtækis í eigu Grundar-
fjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæj-
ar, nam tæpum 7,3 milljónum
króna á síðasta ári. I tilkynningu ffá
fyrirtækinu til Kauphallar Islands
segir að hlutverk félagsins sé bygg-
ing og rekstur skólahúsnæðis Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga í Gmndar-
firði. Flokkast starfsemi félagsins
því undir að vera á vettvangi sveit-
arfélaga. Lántaka félagsins er vegna
fjármögnunar framkvæmda við
Fjölbrautaskóla Snæfellinga í
Gmndarfirði. Sveitarfélögin ásamt
ríkinu greiða húsaleigu sem á að
standa undir afborgunum og vöxt-
um af lánum. í lok ársins námu eft-
irstöðvar lána 442,2 milljónum
króna og vom eftirstöðvar í skilum.
Sveitarfélögin bera hlutfallslega
ábyrgð á greiðslu lánanna, að því er
fram kemur í tilkynningunni.
Framkvæmdastjóri Jeratúns ehf.
er Björg Agústsdóttir bæjarstjóri í
Grundarfirði. HJ
Eldur í
fjölbýlishúsi
BORGARNES: Eldur kom upp
í fjölbýlishúsi við Arnarklett í
Borgarnesi rétt fyrir kl. 16 í gær.
Rúmgafl brann og tókst slökkvi-
liði að slökkva eldinn, en reyk-
og sótskemmdir urðu allnokkrar
á íbúðinni. Kona með tvö ung
böm var heima þegar eldurinn
kom upp og ákvað að hringja í
slökkvilið þegar hún sá að henni
myndi ekki takast að slökkva eld-
inn. -mm
Viðræður um
stækkun
BORGARGYGGÐ: Bæjarráð
Borgarbyggðar hefur óskað eftir
fúndi með heilbrigðisráðherra og
fjármálaráðherra vegna fyrirhug-
aðrar stækkunar Dvalarheimihs
aldraðra í Borgamesi. Eins og
fram hefur komið í fréttum
Skessuhorns hefur stækkun
heimilisins verið til umræðu að
undanfömu og á dögunum gaf
Verkalýðsfélag Borgamess fimm
milljónir króna sem ætlaðar em
til endurbóta eða stækkunar
heimilisins. Málið virðist því
komið á þokkalegan rekspöl. -hj
Haldlögðu dóp
AKRANES: Lögreglan á Akra-
nesi handtók á föstudag mann
sem granaður var um vörslu
fikniefna. A honum fundust 15
grömm af amfetamíni. I kjölfarið
var gerð húsleit heima hjá hon-
um og fundust þar 8 grömm af
amfetamíni til viðbótar. Þar vora
tveir menn handteknir. Málið
telst upplýst og mönnunum hef-
ur verið sleppt. Við aðgerðimar
naut lögreglan aðstoðar fíkni-
efriahunds frá lögreglunni í
Borgarnesi. Þá stöðvaði lögregl-
an á Akranesi mann við efrirlit
um miðnætti á laugardagskvöld-
ið. Við leit á honum fundust
kannabisefni í litlum mæh. Var
manninum sleppt að lokinni yfir-
heyTslu þar sem hann játaði að
eiga eftiin og hefði ætlað þau til
eigin nota. -mm
UMSB annast
héraðshátíðina
BORGARFJÖRÐUR: Að til-
lögu menningarmálanefndar
Borgarbyggðar var samþykkt af
sveitarfélögunum sem staðið hafa
að Borgfirðingahátíð undanfarin
ár að bjóða Ungmennasambandi
Borgarfjarðar undirbúning og
framkvæmd hátíðarhaldanna í
sumar. Borgarbyggð annaðist
framkvæmdina árin 2002 - 2004,
en sumarið 2005 var hátíðin í
höndum Heimamanna sf. en fyr-
irtækið óskaði ekki eftir að end-
urtaka leikinn vegna anna á öðr-
um sviðum, þrátt fyrir að vel hafi
tekist til í fyrrasumar. A sam-
bandsþingi UMSB um liðna
helgi var kynnt að UMSB hefði
tekið ffamkvæmd hátíðarinnar í
fóstur með styrk ffá sveitarfélög-
unum. -mm
Skólastjórí í
námsleyfi
SNÆFELLSBÆR: Skólanefrid
Snæfellsbæjar hefrir samþykkt að
auglýsa laust starf skólastjóra
Grunnskóla Snæfellsbæjar. Starf-
ið er þó aðeins laust tímabundið
því núverandi skólastjóri, Sveinn
Þór Ehnbergsson hefur fengið
námsleyfi. -hj