Skessuhorn


Skessuhorn - 29.03.2006, Page 16

Skessuhorn - 29.03.2006, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2006 Menningarstyrkir Borgarbyggðar Ymis félagasamtök, einstaklingar og verkefni fengu auk þess fjárstuðning. Það voru: Askur og Embla, vegna heimildakvikmyndar um Vesturfara í Borgar- byggð. Freyjukórinn vegna hljóðupptöku á völdum lögum kórsins. Gísli Einarsson vegna handritsgerðar og undirbúnings leikverksins „Mýramaðurinn". Hallgrímur Sv. Sveinsson f.h. Nikurs vegna rannsóknaverkefnis í þjóðfræðum. IsNord tónlistarhátíðin í Borgarfirði 2.-4. júní 2006. Kammerkór Vesturlands. Kvenfélag Hraunhrepps vegna boðsskemmtunar í Lyngbrekku. Landnám Islands vegna tónlistar við einleikinn Mr. Skallagrimsson. Leikdeild Umf Stafholtstungna vegna námskeiðs og fl. Margrét Jóhannsdóttir vegna söihunar munnmælasagna. Mímir ungmennahús vegna sumartónleika. Samkór Mýramanna vegna menningar- og söngferðar til Italíu. Tónlistarfélag Borgarfjarðar. Þorgerður Gunnarsdóttir vegna ljósmyndasýningar. Hefð er komin fyrir því að sveit- arfélagið Borgarbyggð úthluti styrkjum til menningarmála í sveit- arfélaginu. Það er menningarmála- nefnd sem annast úthlutun styrkj- anna og fór afhending að þessu sinni fram með viðhöfh í Safnahús- inu í Borgarnesi sl. fimmtudag. Það var Jónína Erna Arnardóttir, for- maður menningarmálanefndar sem stýrði samkomunni og afenti styrk- ina. Kór félags eldri borgara söng af þessu tilefhi undir stjórn Jóns Þ Björnssonar. Að þessu sinn var úthlutað styrkj- um að upphæð alls 2.320 þúsund krónum. Sérstök heiðursverðlaun hlaut Jón Þ Bjömsson fyrmm org- anisti og tónlistarmaður í Borgar- nesi. Jónína Erna sagði m.a. við það tækifæri: ,Jón Þ Bjömsson er okkur öllum að góðu kunnur. Hann hefur verið organisti og kórstjóri, kennt söng og var fyrsti skólastjóri Tón- listarskóla Borgarfjarðar og hefur sem slíkur gegnt mikilvægu hlut- verki í tónlistarh'fi í héraðinu. Hann hefur einnig spilað á píanó og harmónikku við ýmis tækifæri og ekki má gleyma því að hann hefur spilað bridds og er afbragðs skák- maður. Jón er mjög vel hagmæltur og hefur t.d. verið afar gott að leita til hans ef þurft hefur að snúa ljóð- um fyrir söng. Hann gaf út ljóða- bók árið 2003. Jón lét af störfum sem organisti árið 2004 en er engan veginn sestur í helgan stein. Hann heldur uppi sönglífi á Dvalarheimil aldraðra ásamt Hreggviði Hregg- viðssyni og spilar nú bridds sem aldrei fyrr. Jón er með afbrigðum ljúfur maður og það hefur alltaf verið mjög gott að leita til hans. Hinsvegar má segja að hann hafi ekki beint verið að trana sér fram, heldur er hann eins og partur af heildarmyndinni þar sem hann kemur við. Okkur í menningar- málanefnd fannst tilefni til að draga lífsstarf Jóns fyrir héraðið ffam og því var ákveðið að heiðra hann fyr- ir hlut sinn að menningarmálum í héraðinu,“ sagði Jónína Erna. MM Fulltrúar styrkþega. Kór eldri borgara söng nokkur lög. Lýðrœði framsóknar á Akranesi Laugardaginn 11. mars var hald- inn fundur hjá Framsóknarfélagi Akraness þar sem lögð var fram til- laga stjórna Framsóknarfélaganna á Akranesi þar sem lagt var til að skipað yrði í efstu þrjú sæti til næstu sveitarstjórnarkosninga sömu miðaldra karlmönnum og hafa verið þar á síðasta kjörtímabili. Þessi tillaga kemur í kjölfar þess að sú uppstillingarnefnd sem skipuð hafði verið klofiiaði, vegna þess að krafa fjölda Framsóknarmanna var að á listum í sveitarstjórnarkosn- ingum sé jafht hlutfall kynja og konur séu í sætum sem gefa mögu- leika á að hafa áhrif á hvernig sam- félagi okkar er stjórnað. A þessum fundi kom fram tillaga um unga konu sem var tilbúin að taka þriðja sæti listans, kona sem hafði setið í fjórða sæti listans á síðasta kjör- tímabili. Þessi tillaga var samþykkt og voru þá efstu fjögur sæti listans þá skipuð tveimur körlum og tveimur konum. Eftir þessa kosningu var fundar- stjóri mjög óviss um hvað ætti að gera, kom þá fram tillaga um að fresta fundi og talað yrði við alla sem sitja á listanum og bætt yrði við manni á listann í stað þess sem sat í þriðja sæti þvi hann lýsti því yfir að að hann myndi ekki taka sæti á listanum og myndi segja sig úr öllum nefndum sem hann sæti í á vegum flokksins. Boðað var síðan til fundar 27. mars þar sem átti að samþykkja önnur sæti en þriðja sem var búið að skipa. A þeim fundi kom fram tillaga um að kjósa aftur um þriðja sætið þrátt fyrir að löglega hefði verið staðið að kosningunni síðast. A þennan fund var búið að smala fólki til að breyta löglegri niður- stöðu síðasta fundar. Þetta finnst mér vera til algjörrar skammar fyr- ir flokkinn að það sé hægt að kjósa aftur og aftur þangað til að þeim miðaldra karlmönnum sem sitja í efstu sætum listans líkaði niður- staðan. A þessum fundi var lýðræði fót- um troðið og ungu fólki og konum hafnað. Eg taldi mig verða hluta af flokki sem stuðlaði að jafnrétti og gæfi ungu fólki tækifæri, en reynd- ist síðan vera flokkur sem hygglir miðaldra karlmönnum. Þetta er hlutur sem ég sætti mig ekki við og mtm ekki vera í flokki sem stundar jafn óvönduð vinnubrögð. Allt tal Framsóknar um jafnrétti og fólk í fyrirrúmi er eingöngu orðin tóm. Helga K. Jónsdóttir Tími breytinga Á sunnudagskvöld verður Bæjar- málafélag Frjálslyndra og óháðra stofhað á Akranesi. Eg held að þetta sé í fyrsta sinn í fjölmörg ár sem nýtt stjórnmálafélag er stofhað á Akranesi. Félag sem er vettvangur fyrir fólk til að fjalla um málefhi bæjarfélagsins, til að taka pólitíska afstöðu og vinna að stefhumörkun til ffamtíðar sem varðar okkur öll sem ætlum að búa á Akranesi. Við sem stöndum að stofnun þessa félags teljum að tími sé kom- inn til að hleypa nýju blóði og kraffi inn í bæjarstjórnarmálin og póli- tíska umræðu á Akranesi. Nýlega kynntir framboðslistar stjómmála- flokkanna sem nú em í bæjarstjórn sýna það glöggt. Endurnýjunin er lítil sem engin. I efstu sætum em þekktir fulltrúar gamalla valdaklíka sem enn eina ferðina ætla að takast á um yfirráðin yfir valdastólum bæj- arins. Það er kominn tími til breytinga þar sem fólk sem ætlar sér ffamtíð- arheimili á Akranesi, kemur að ákvarðanatöku varðandi málefni bæjarfélagsins. Bærinn þarf á upp- lyffingu að halda. Það þarf að gera stórátak í því að fegra og laga um- hverfið. Það þarf að gera bæinn að vænlegri búsetukosti fyrir ungt fólk sem vill eiga ffamtíð á Akranesi. Einnig þarf að bæta hag eldra fólks. Breyta þarf forgangsröð í mann- virkjabyggingum á vegum bæjarins. Endurskoða þarf skipulagsmál með þetta í huga. Bærinn þarf nýja ímynd sem framsækið bæjarfélag þar sem gott er að búa og íbúar lifa við öryggi í fallegu og heilbrigðu umhverfi. Stundum finnst mér eins og Akra- nes sé eitt af best varðveittu leynd- armálum meðal sveitarfélaga á suð- vesturhorni landsins. Akranes þarf á bæjarstjórn og forystu að halda þar sem kjömir fulltrúar þora að taka á málunum og verja hagsmuni allra bæjarbúa og bæjarfélagsins framar öllu. Þetta gildir til dæmis í atvinnumálum þar sem Skagamenn hafa þttrft að horfa á bak áunnum nýtingarétti sínum á fiskistofnunum með þeim alvarlegu afleiðingum sem það hefur haft á hagkerfið og atvinnulíf á Akranesi. Þetta gildir líka í samgöngumálum þar sem tala þarf skýrt og ákveðið fyrir því að aflétt verði hið fyrsta þeim óréttláta vegatolli sem nú er innheimtur við norðurmunna Hvalfjarðarganga. Núverandi bæj- arstórnarmeirihluti hefur bragðist illilega í þessum efnum. Það er kominn tími til að gefa þeim frí og skoða nýja möguleika nú í vor. Verum stolt af bænum okkar. Magnús Þór Hafsteinsson, alþingismaður og Skagamaður í húð og hár

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.